Morgunblaðið - 02.03.2002, Blaðsíða 25
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. MARS 2002 25
YFIRVÖLD í Bandaríkjunum
hafa fallist á að fangar í herstöð-
inni í Guantanamo-flóa á Kúbu fái
að vefja túrbönum um höfuð sér
við bænahald eftir að meirihluti
fanganna fór í hungurverkfall til
að mótmæla banni við því að þeir
bæru túrbana. Þá hafa fangarnir
fengið loforð um vikulega fundi
um framgang málarekstursins
gegn þeim.
Föngunum hafði verið bannað
að ganga með túrbana þar sem tal-
ið var að þeir gætu falið vopn í
þeim. Samkvæmt nýju reglunum
hafa fangaverðir þó leyfi til að
skoða túrbanana hvenær sem er.
Næstum tveir þriðju fanganna
300, sem vistaðir hafa verið í her-
stöð Bandaríkjamanna á Kúbu,
fóru í hungurverkfall til að lýsa
óánægju sinni með að fá ekki að
nota túrbana sína við bænahaldið.
Voru þetta fyrstu samræmdu mót-
mælaaðgerðir fanganna frá því að
byrjað var að flytja þá til Kúbu frá
átakasvæðunum í Afganistan 11.
janúar sl. en um er að ræða talib-
ana og liðsmenn al-Qaeda-hryðju-
verkasamtakanna.
Mótmælin hófust þegar einn
fanganna hunsaði skipun um að
taka niður túrban sinn. Fór fanga-
vörður þá inn í klefa fangans og
tók túrbaninn af fanganum. Kom-
ust yfirvöld að því síðar að fanginn
hefði hunsað skipanir sökum þess
að hann var í miðri bænagjörð en
þær krefjast algerrar einbeitingar.
Ekki var um það að ræða að
fangarnir legðu fram kröfur eða
að þeir hefðu formlega lýst því yfir
að þeir væru í hungurverkfalli
heldur bárust fréttir af þessum at-
burði eins og eldur um sinu um
herstöðina. Var svo komið um há-
degisbil á miðvikudag að meiri-
hluti fanganna lýsti óánægju sinni
með því að neita að taka til matar
síns.
Fangarnir fá
kröfur sínar
uppfylltar
Washington. AFP.
NEÐRI deild þýska þingsins sam-
þykkti í gær lagafrumvarp um inn-
flytjendur en megintilgangur þess
er að takmarka mjög aðgang ann-
arra innflytjenda en þeirra, sem
eru menntaðir á einhverju sviði.
Búist er við hörðum átökum um
frumvarpið í efri
deildinni eða
sambandsráðinu.
Í neðri deild-
inni var frum-
varpið samþykkt
með 321 atkvæði
stjórnarflokk-
anna gegn 225
atkvæðum kristi-
legu flokkanna
en í sam-
bandsráðinu er stjórnin hins vegar í
minnihluta. Andstaða kristilegu
flokkanna stafar af því, að þeir vilja
ganga miklu lengra í að draga úr
aðflutningi fólks og halda því fram,
að hann verði aðeins til að auka á
atvinnuleysið í landinu.
Samtök atvinnulífsins í Þýska-
landi styðja aftur á móti stjórn Ger-
hards Schröder í þessu máli og þau
segja, að menntaðir innflytjendur
auki ekki á atvinnuleysið, heldur
skapi þeir þvert á móti atvinnu. Það
er einkum í ýmsum tæknigreinum,
sem skortur er á vinnuafli í landinu.
Umrædd lög eru þau fyrstu um
innflytjendur í Þýskalandi eftir
stríð.
Þýskaland
Tekist á
um innflytj-
endalög
Berlín. AFP.
Gerhard
Schröder
FBI, bandaríska alríkislögreglan,
yfirheyrði í gær mann, sem kom með
farþegaþotu frá Air India til Kenn-
edy-flugvallar í New York, en sleppti
honum að því búnu. Í London höfðu
vaknað grunsemdir um, að maðurinn
væri á lista yfir eftirlýsta hryðju-
verkamenn en svo reyndist ekki
vera.
Kanadískar herþotur fylgdu Air
India-þotunni nokkurn hluta leiðar-
innar til New York og þar var FBI
með allnokkurn viðbúnað. Var vél-
inni beint á afvikinn stað þar sem
lögreglubílar umkringdu hana. Var
maðurinn sóttur um borð en eins og
fyrr segir var hann sárasaklaus af
öllu misjöfnu.
Líklegt þótti strax, að um ein-
hvern misskilning væri að ræða en
viðbrögðin eru höfð til marks um
hvað öryggisgæslan er orðin mikil.
Saklausum
ferðalangi
sleppt
New York. AFP.
„Grunsamlegur
farþegi“
♦ ♦ ♦