Morgunblaðið - 02.03.2002, Blaðsíða 23
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. MARS 2002 23
EF marka má nýja skoðanakönnun eru
írskir kjósendur á báðum áttum um hvort
rétt sé að samþykkja stjórnarskrárbreyt-
ingu sem stjórnvöld hafa lagt til og sem fel-
ur í sér strangari reglur um fóstureyðingar
en þjóðaratkvæðagreiðsla fer fram um málið
næsta miðvikudag, 6. mars. Hafni Írar
breytingunni yrði það mikið áfall fyrir Ber-
tie Ahern, forsætisráðherra og leiðtoga
Fianna Fáil-flokksins, í aðdraganda þing-
kosninga sem fram eiga að fara á Írlandi í
maí.
Skoðanakönnun dagblaðsins The Irish
Times sýnir að 35% kjósenda myndu greiða
atkvæði með breytingunum en 31% eru á
móti. Óákveðnir eru 23% og 11% segjast
ekki ætla að greiða atkvæði í þjóðarat-
kvæðagreiðslunni.
Írar hafa alla tíð verið íhaldssamir í mál-
efnum er varða kenningar kaþólsku kirkj-
unnar. Hafa fóstureyðingar sérstaklega ver-
ið litnar hornauga. Á níunda áratugnum
spruttu þó upp hreyfingar sem börðust fyrir
rétti kvenna til að fara í fóstureyðingar, þó
ekki á Írlandi heldur var um það að ræða að
ýmis félagasamtök veittu konum upplýsing-
ar um hvernig þær ættu að snúa sér í því að
tryggja sér fóstureyðingu hinum megin Ír-
landshafs, þ.e. í Bretlandi.
Þótti andstæðingum fóstureyðingar jafn-
vel slík upplýsingagjöf vítaverð og unnu
m.a. mál fyrir rétti árin 1983 og 1988 er
viku að þessu.
Dómnum í X-málinu hnekkt
Þjóðaratkvæðagreiðslan nú á hins vegar
fyrst og fremst rætur að rekja til umdeilds
hæstaréttardóms sem féll á Írlandi árið
1992. Þar heimilaði dómstóllinn 14 ára gam-
alli stúlku, sem nefnd var X, að ferðast til
Englands í því skyni að fara í fóstureyðingu
en hætta var talin á því að hún myndi ella
fremja sjálfsmorð. Varð X þunguð eftir að
hafa verið nauðgað af vini fjölskyldunnar.
Felur sú stjórnarskrárbreyting, sem nú
er lögð til, í sér að úrskurði hæstaréttar frá
1992 verður í raun hnekkt, þ.e. sjálfsmorðs-
hugleiðingar móður verða ekki taldar við-
unandi réttlæting fóstureyðingar. Hins veg-
ar geti læknir heimilað fóstureyðingu ef
vitneskja liggur fyrir um að lífi móður yrði
sannarlega stefnt í hættu með því að ganga
með fóstur til loka meðgöngutíma.
Hinir allra íhaldssömustu
mótfallnir breytingunni
Er breytingartillagan nú svipuð þeirri
sem var lögð í dóm kjósenda þegar eftir að
X-málið kom upp 1992. Varð niðurstaðan þá
sú að Írar höfnuðu stjórnarskrárbreyting-
unni.
Að því er fram kemur í The Irish Times
hafa stjórnarflokkarnir tveir, Fianna Fáil og
Framsæknir demókratar, hvatt kjósendur á
Írlandi til að samþykkja stjórnarskrárbreyt-
inguna. Hið sama hefur kaþólska kirkjan á
Írlandi gert en hún þykir enn mjög áhrifa-
mikil í írsku þjóðlífi.
En þótt Bertie Ahern forsætisráðherra sé
íhaldssamur í skoðunum að þessu leytinu til,
og berjist fyrir samþykkt breytingarinnar,
er þjóðaratkvæðagreiðslan þó komin til af
því að nokkrir óháðir þingmenn, sem hafa
tryggt ríkisstjórn Aherns meirihluta í írska
þinginu, settu þessi mál mjög á oddinn er
þeir samþykktu að verja stjórnina falli.
Stjórnarandstöðuflokkarnir berjast hins
vegar gegn samþykkt þessara breytinga,
sem og ýmis frjálslynd félagasamtök en þau
telja hugsanlegt sjálfsmorð móður fyllilega
réttlæta fóstureyðingu.
Hitt vekur athygli að þeir allra íhalds-
sömu, eins og t.d. söngkonan Dana (Rose-
mary Scallon), sem vann Evrópusöngva-
keppnina árið 1970 fyrir Írlands hönd en
sem situr nú á Evrópuþinginu, eru einnig
andsnúnir samþykkt stjórnarskrárbreyting-
ar.
Skýrist sú afstaða af því að breyting-
artillaga stjórnvalda felur jafnframt í sér að
leyfð verði notkun „daginn eftir“-pillunnar
svokölluðu, þ.e. pillu sem konur geta tekið
daginn eftir samræði í því skyni að koma í
veg fyrir þungun.
Reglur um
fóstureyðing-
ar verði hertar
AP
Barátta vegna þjóðaratkvæðagreiðslunnar 6. mars nk. stendur nú sem hæst á Írlandi.
Afar tvísýn þjóðaratkvæðagreiðsla á Írlandi á miðvikudag