Morgunblaðið - 02.03.2002, Qupperneq 15

Morgunblaðið - 02.03.2002, Qupperneq 15
Laugardagur 2. mars Kl. 10.00 Myndlistarsýning Þuríðar Sigurðardóttur „Í nýju ljósi“ í Ráðhúsinu. Kl. 10.00–17.00 Fjölskyldu- og húsdýra- garðurinn: Fjölbreytt dagskrá. Kl. 10.00–17.00 Garðskáli Grasagarðs Reykjavíkur: „Ekkert líf án ljóss“. Mynda- og veggspjaldasýning í samstarfi við skólastofnanir í nágrenni Laugardals. Kl. 11.00 Bókabúð Máls og menningar – Súfistinn: Sögustund, leikir og tónlist. Leikarar sýna brot úr uppfærslu Hafnarfjarðar- leikhússins á Rauðhettu. Kl. 13.00–16.00 Hjá Sævari Karli: Pálmar Ólason leikur á flygilinn, nýjasta sumartískan og ljósasýning í sýningarsal verslunarinnar. Kl. 13.00–20.00 Rafheimar Orkuveitunnar í Elliðaárdal opnir almenningi í fyrsta sinn. Kl. 14.00 Götuleikhúsið í miðborg Reykjavíkur. Kl. 15.00 Listasalur Man: Sýningin „Birta“. Vilborg Dagbjartsdóttir flytur ljóð. Kl. 15.00–17.00 Fjölskylduhátíð í Skautahöllinni. Listdans á skautum, leikir og óvæntar uppákomur. Tónlist við allra hæfi. Kl. 16.00–18.00 Opnun málverkasýningar Hlaðgerðar Írisar Björnsdóttur í Húsi málarans. Kl. 16.00–20.00 Opið hús í nýja Hinu húsinu, Pósthússtræti 3–5: Sýningar, tónlist, götuleikarar, ungskáld og dansarar stíga dansinn. Kl. 17.30 Djass og ljós í Listasafni Íslands: Djasstónleikar með ljósasýningu. Egill B. Hreinsson leikur á píanó, Jóel Pálsson á saxófón og Tómas R. Einarsson á bassa. Alfreð Sturla Böðvarsson stýrir ljósasýningu. Kl. 19.00–24.00 Foss í Aðalstræti, verðlauna- verk eftir Jón Sæmund Auðarson: Orkuveita Reykjavíkur varpar mynd af íslenskum fossi á framhlið Aðalstrætis 6 með tilheyrandi fossnið. Kl. 20.00 Listasafn Reykjavíkur í Hafnarhúsinu: Auður Bjarnadóttir og Helena Jónsdóttir sýna dans- og myndspuna. Gunnhildur Hauksdóttir og Ingibjörg Magnadóttir standa fyrir hópgjörningi. Athugið breyttan sýningarstað. Kl. 20.00–22.00 Vínarvalsakvöld í Skauta- höllinni. Áheyrendur dansa vínarvalsa á skautum undir lifandi tónlist og söng Signýjar Sæmundsdóttur óperu- söngkonu. Kl. 20.00–22.00 Ljós í dalnum: Ljósaleikir, dans og leikhús við Rafheima í Elliðaárdalnum í boði Orkuveitunnar. Kl. 20.00–23.00 Opið hús í félagsmiðstöðinni Vesturgötu 7. Róbert Arnfinnsson les ljóð og Guðlaug Erla Jónsdóttir flytur gamanmál. Guðný Helgadóttir kynnir og stýrir fjöldasöng. Dansað við lifandi tónlist í lokin. Kl. 21.00 Hátíð í Fríkirkjunni. Flutt verður óhefðbundin trúarleg tónlist. Gospelkór Fríkirkjunnar syngur. Bergþór Pálsson og fleiri tónlistarmenn koma fram. Séra Hjörtur Magni fjallar um andstæður ljóss og myrkurs. Lesið úr helgum ritum. Aðgangseyrir: 500 kr. Hátíðin endar með blysför í kringum Tjörnina. Kl. 23.00 Ljósasýning í miðborginni. Arnarhóll baðaður marglitum ljósum. Kl. 24.00 Grímuball með Stuðmönnum á Kaffi Reykjavík. Veitt verða verðlaun fyrir flottasta búninginn. Sunnudagur 3. mars Kl. 10.00–17.00 Garðskáli Grasagarðs Reykjavíkur: „Ekkert líf án ljóss“. Mynda- og veggspjaldasýning í samstarfi við skólastofnanir í nágrenni Laugardals. Kl. 10.00–20.00 Fjölskyldu- og húsdýra- garðurinn: Fjölbreytt dagskrá. Kl. 11.00 Æskulýðsdagur Þjóðkirkjunnar. Messur í kirkjum borgarinnar þar sem þemað verður ljós og myrkur. Nemendur 7. bekkjar grunnskóla taka þátt í messunni. Kl. 13.00–20.00 Rafheimar Orkuveitunnar í Elliðaárdal opnir almenningi í fyrsta sinn. Kl. 14.00 Fyrirlestrar tengdir ljósi og orku á Reykjavíkurtorgi Borgar- bókasafns Reykjavíkur. Guðjón Friðriksson fjallar um Einar Benediktsson og myrkrið og Viðar Hreinsson flytur erindið „Að vita myrkrið svart“, hugleiðingu sprottna af kvæðinu Skuggsýni eftir Stephan G. Stephansson. Kristinn Schram fjallar um skógarnytjar sem orkugjafa og menningarlega uppsprettu og Þorsteinn Vilhjálmsson prófessor flytur erindið „Hvað er ljós?“. Júlía Mogensen leikur á selló milli fyrirlestra. Kl. 15.00 Bókabúð Máls og menningar – Súfistinn: Hljómsveitin Rússíbanarnir leikur m.a. tónlist úr uppfærslu Þjóðleikhússins á Cyrano. Kl. 16.00 Borgarleikhúsið: Common Couple – Paramyndir. Leikin myndlistarsýning. Kl. 16.00 Stórsveit Reykjavíkur spilar í Ráðhúsi Reykjavíkur. Kl. 17.00 Tónleikar í Norræna húsinu. Sænski slagverksleikarinn Jonas Larsson frumflytur m.a. verk eftir Áskel Másson. Norræn og amerísk tónlist í brennidepli. Kl. 19.00 Laugardalslaug: Vígsla á nýju listaverki. Kl. 20.00 Kvöldvaka í Hallgrímskirkju í tengslum við Æskulýðsdag þjóðkirkjunnar. Páll Rósinkrans syngur, hópur frá Listdansskóla Íslands dansar, tónlistaratriði, upplestur o.fl. Kl. 20.00–24.00 Myndverkinu „Sjáðu“, upplifun barnsins af töfrum ljóssins, eftir Þorvald Þorsteinsson varpað á framhlið Aðalstrætis 6. Kl. 20.00–21.00 Lokahátíð: Hátíðardagskrá fyrir alla fjölskylduna í Elliðaár- dalnum. Ljósaleikir, dans, leikhús og flugeldasýning í lokin. Kl. 21.30 Gaukur á Stöng: Hljómsveitin NÓVA.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.