Morgunblaðið - 02.03.2002, Page 40
SKOÐUN
40 LAUGARDAGUR 2. MARS 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Lifandi tungumál breytist ítímans rás. Þrátt fyrirað við gortum okkur afþví að hafa varðveitt
tungu forfeðra okkar betur en
frændþjóðir okkar og segjumst
geta lesið og skilið það sem skrifað
var fyrst á Íslandi, hefur mikið
breyst. Það er alveg ljóst að hand-
ritin lesa ekki aðrir en þeir, sem
hafa til þess sérstaka menntun og
þekkingu. Almenningur getur svo
lesið textann, þegar styttingar og
„skammstafanir“ hafa verið leystar
upp og hann færður á nútíma letur.
Samt sem áður er margt í þessum
textum sem dvalið getur skilning
okkar.
Það er afar eðlilegt að margt í
fornritunum komi okkur ein-
kennilega fyrir sjónir, enda er
tungan lifandi og hefur tekið mikl-
um breytingum á öllum þessum
öldum. Breytingarnar eru af ýmsu
tagi, svo sem eðlileg málfræðileg
þróun, vegna áhrifa úr öðrum
tungumálum og vegna breyttra
þjóðhátta. Á tímum Egils Skalla-
grímssonar merkti orðið sæmileg-
ur að vera til sóma. Betur var ekki
hægt að gera. Í dag er sá sæmilegi
ekki nema í slöku meðallagi en orð-
in ágætur eða frábær hafa tekið yf-
ir fyrri merkingu hins sæmilega.
– – –
Tökuorð eru algengari í íslensku
en líklega flesta grunar. Segja má
að öll orð, sem byrja á péi í ís-
lensku, séu tökuorð, komin úr ýms-
um tungumálum, en líklega flest úr
latínu. Orðin faðir og móðir eru til
dæmis komin, reyndar fyrir óra-
löngu, með sérstakri hljóðfærslu
úr latínu, þar sem samsvarandi orð
eru pater og mater, father og
mother á ensku og svo framvegis.
Það, sem líklega má segja að ís-
lenska hafi fram yfir tungumál
frændþjóðanna, er hins vegar ný-
yrðasmíð og er þar af mörgu að
taka, allt frá skilvindu til þotu og
þyrlu og tölvu. Nýyrðin ná misvel
að festa sig í sessi. Sum slá í gegn
en önnur veslast upp og deyja. Það
er eitt af lögmálum hins lifandi
máls.
– – –
Skilningur á tungumálinu, merk-
ingu orðanna er mikilvægur. Hægt
er að setja saman texta með rétt-
mynduðum íslenskum orðum, sem
engu að síður er gersamlega óskilj-
anlegur. Á hinn bóginn er einnig
hægt að setja
saman texta
sem byggður er
röngum orð-
myndum og
rangri orðnotk-
un, en er hins
vegar auðskilj-
anlegur. Hvor-
ugt er gott, en
meginmarkmiðið með því að segja
eða skrifa eitthvað, hlýtur að vera
að koma einhverju til skila. Því
verður það sem sagt er eða skrifað
að skiljast.
Að sjálfsögðu er það ýmislegt
sem betur mætti fara í almennri
málnotkun, það er eðli hinnar lif-
andi tungu. En hvenær á að grípa
fram í og hver á að skera úr um
hvað sé beinlínis rangt og hvað sé
eðlileg þróun? Því er vandsvarað.
Verður þó tekið hér dæmi um
orð, sem er orðið algengt í íslensku
máli, en ætti ekki að eiga þar
heima. Það er orðið samkeppn-
isaðili. Orðin samkeppni og aðili
eiga sér fastan og eðlilegan sess í
tungunni hvort um sig en eiga enga
samleið. Tungan býr yfir miklu ein-
faldara, rökréttara og gagnsærra
orði; keppinautur. Þeir sem eiga í
samkeppni eru keppinautar. Sé lit-
ið á orðið rekkjunautar, það er þá
þær eða þau sem deila saman
rekkju, sést enn betur hve kauðskt
orðið samkeppnisaðili er. Hvernig
líst fólki á orðið rekkjuaðilar?
Orðið magn er mikið notað,
reyndar ofnotað. Algengt er að
sagt sé að mikið magn af síld eða
loðnu hafi veiðst. Orðinu magn er
þarna algjörlega of aukið. Nægi-
legt er að segja að mikið hafi
veiðst, hvort sem það er síld eða
loðna.
Hægt er að segja hlutina á ýms-
an hátt til að koma sínu til skila.
Oft er reynt að fegra laka stöðu
með orðskrúði. Algengt er þegar
skýrt er frá tapi á rekstri fyr-
irtækja að talað sé um neikvæðan
hagnað. Það er vandséð að sú mál-
notkun standist, en sé verið að tala
um eitthvað annað en venjulegt
tap, þá þarf að skýra það betur.
Samkvæmt þessu ætti þá hagn-
aður að vera neikvætt tap, vildi
maður sverta myndina. Gera ekki
tveir mínusar plús, eða hvað?
– – –
Gamanmál - Skólaganga getur
verið tyrfin á stundum, sérstaklega
þegar áhuginn er af skornum
skammti. Þegar á hólminn er kom-
ið, verða menn þó að gera sitt
besta. Eftirfarandi ritgerð um
hrognkelsin er úr ónefndum fram-
haldsskóla fyrir alllöngu:
„Hrognkelsinn er meindýr af
skólpdýraættinni. Hann hefur einn
maga en út úr honum ganga níu
botnlangar. Verði hann fyrir
áreitni, spýtir hann frá sér vökva
og verður þá óvinurinn svartur í
framan.“
Ekki fylgir sögunni hvaða ein-
kunn nemandinn fékk en skemmt-
anagildið er ótvírætt.
ÍSLENSKT MÁL
Eftir Hjört Gíslason
En hvenær á að
grípa fram í og
hver á að skera
úr um hvað sé
beinlínis rangt
og hvað sé eðli-
leg þróun?
hjgi@mbl.is
ÞAR sem vegir mæt-
ast verður til borg, við
járnbrautarstöðvar,
hafnir og þar sem flug-
vellir eru byggðir. Því
skýtur nokkuð skökku
við að leggja flugvöllinn
af og þrengja að höfn-
um. Góðar samgöngur
eru jú ein af undirstöð-
um byggðar. Þar sem
gert er ráð fyrir stækk-
un borgarinnar tel ég
því rétt að landrými
umhverfis hafnir og
flugvöllinn sé strax tek-
ið frá til að taka við
væntanlegri stækkun í
framtíðinni. Hið sama á við um at-
vinnuuppbyggingu. Of kostnaðar-
samt er að leggja af iðnaðarsvæði á
40 til 60 ára fresti og byggja þar íbúð-
arhús og flytja atvinnusvæðin sífellt á
nýja staði. Sem betur fer hafa Íslend-
ingar ekki enn hafið samgöngur með
járnbrautum eða jarðgöngum í þétt-
býli. Reynsla erlendis er sú að járn-
brautir eru nánast alls staðar reknar
með miklum halla. Undankomuleiðir
vegna slysa í jarðgöngum eru oftast
mjög takmarkaðar vegna mengunar
við bruna. Þótt æskilegt sé að þétta
byggð á það fyrst og fremst við um
ný hverfi. Ekki er skynsamlegt að
þétta byggð í eldri hverfum meira en
svo að komist verði hjá því að jarð-
göng verði lögð innanbæjar og að
komist verði hjá kostnaðarsömum
breytingum á fráveitukerfum, vatns-
veitu, hitaveitu, rafkerfi. Þá er óæski-
legt að bílageymslur og aðrar bygg-
ingar séu byggðar undir sjávarmáli
vegna kostnaðar. Vegna mengunar í
þéttbýli er æskilegt að hafa græn
svæði með tiltölulega stuttu millibili.
Ekki eru margir áratugir síðan gera
átti umgerð um borgina með Hring-
brautinni. Nú á að gera slíka umgerð
sem kallast græni trefillinn. Ég tel
heppilegra að hugsa fyrir grænum
svæðum jafnóðum eftir því sem borg-
in stækkar. Nú þegar vilji virðist
vera fyrir hendi á því að leiða raf-
magn í aðrar áttir en til suðvestur-
hornsins eru líkur á að hægi á út-
þenslu höfuðborgarsvæðisins.
Útþensla höfuðborgarsvæðisins á
ekki að vera markmið í sjálfu sér,
heldur hlýtur að þurfa að reikna með
byggð sem víðast úti á landi. Höfuð-
borgin hefur skyldum að gegna við
það fólk sem þar býr,
meðal annars með góð-
um samgöngum.
1. Meirihluti þjóðar-
innar og alþingis mun
vera fylgjandi núver-
andi staðsetningu flug-
vallarins. Til að friður
skapist um flugvöllinn
er nauðsynlegt að halda
í allt land flugvallarins
auk þess sem lítillega
þarf að stækka flugvall-
arsvæðið vegna SV-
NA-brautar flugvallar-
ins sem nauðsynlegt er
að lengja til suðvesturs
að ströndinni. Við þessa
breytingu liggja þrír flugbrautar-
endar að sjó, einn yfir Tjörnina, ann-
ar yfir kirkjugarðinn og aðeins einn
flugbrautarendi yfir byggð (til norð-
austurs). Þá verður nánast ekkert
flug yfir byggð í nánasta umhverfi
flugvallarins. Öryggi farþega eykst
stórlega þar sem flutningsleiðir með
bílum styttast (flugöryggi er marg-
falt á við umferðaröryggi með bílum)
ef borið er saman við að flytja allt
flug til Keflavíkurflugvallar. Öryggi
flugvallarins og nýting vex. Í hvassri
suðvestanátt á vetrum verða oft mjög
dimm snjóél með stuttu millibili.
Bremsuskilyrði eru þá oft léleg en
nægja þó oftast til lendingar á SV-
flugbrautinni sem þá snýr beint upp í
vindinn. Með tilkomu þessarar flug-
brautar myndi flug mjög sjaldan tefj-
ast á morgnana vegna bremsuskil-
yrða við þessi veðurskilyrði eins og
nú er raunin.
2. Hvössustu vindáttir í Reykjavík
eru úr suðaustri og suðvestri. Því
yrði SV-NA-brautin notuð í suðvesta-
nátt. Í suðaustanátt er A-V-brautin
notuð og flug í brottflugi því yfir
kirkjugarð og Fossvog. Í norðaust-
anátt er SV-NA-braut notuð til lend-
ingar. Flugtak til norðausturs mætti
takmarka eða banna alveg þar sem
hvöss norðaustanátt er mjög sjald-
gæf.
3. Núverandi staðsetning Reykja-
víkurflugvallar er sú besta sem völ er
á og mun betri en staðsetning Kefla-
víkurflugvallar með tilliti til nálægrar
byggðar. Þannig eru 3 flugbrautar-
endar að sjó (eftir breytingar á SV-
NA-brautinni). Einn flugbrautarendi
við Tjörnina og einn við Fossvogs-
kirkjugarð (verndað í 70 ár eftir að
kirkjugarði er lokað). Aðeins einn
flugbrautarendi liggur að byggð. Það
er norðausturendi SV-NA-brautar.
Þá braut þarf þó aðeins að nota til
suðvesturs fyrir lendingu og flugtak í
hvössum suðvestanvindum og til
lendingar í norðaustanátt (ekki til
flugtaks nema í undantekningartil-
fellum og þá í það miklu hvassviðri að
flugvélar hefðu svigrúm til að beygja
mætti í stefnu yfir Tjörnina).
4. Með þessari uppbyggingu má
fresta að byggja flugvöll fyrir einka-
flug og flugskóla.
5. Öryggi flugfarþega eykst, þar
sem ekki þyrfti að flytja farþega eftir
Reykjanesbrautinni með aukinni
áhættu.
6. Vatnsmýri er vernduð að hluta
og verður henni meira ógnað með
byggð þar heldur en með núverandi
flugvelli. Mýrlendi er árangursríkara
en annað land í að binda koltvísýring.
7. Með því að takmarka þéttingu
byggðar á Vatnsmýrarsvæðinu er
frekar mögulegt að komast hjá bygg-
ingu jarðganga, sem eru bæði dýr og
ógna öryggi farþega.
8. Vonandi yrðu allar hugmyndir
um lestarsamgöngur úr sögunni.
Enda er reynslan af þeim erlendis að
þær eru víðast hvar reknar með mikl-
um halla, þótt markaður þar sé marg-
falt stærri en hér. Auk þess taka lest-
arspor landrými auk landrýmis fyrir
bílastæði við lestarstöðvar.
9. Vegna flugöryggis er nauðsyn-
legt að hafa að minnsta kosti tvo flug-
velli á suðvesturhorninu. Auk þess
verður flug mun hagkvæmara þar
sem bera þarf minna eldsneyti vegna
varaflugvalla í mörgum tilfellum.
Flugdögum fjölgar.
10. Flugtími innanlands frá Kefla-
vík yrði um 5 til 10 mínútum lengri á
hverju flugi en frá Reykjavík. Auk
þess er aksturstími á jörðu frá flug-
vélastæði að flugtaki að meðaltali um
3 mínútur í Reykjavík en allt að 10
mínútur í Keflavík. Það er því líklegt
að flugfargjald innanlands þurfi að
hækka um 10 til 15%, auk fargjalds
með bíl frá Reykjavík til Keflavíkur.
Þá er ekki talið með tímatap farþega.
Með flutningi innanlandsflugsins til
Keflavíkur mun örugglega draga
verulega úr innanlandsfluginu, vegna
aukins kostnaðar og tíma. Um leið
eykst álag á vegakerfið með tilheyr-
andi kostnaði fyrir hið opinbera.
11. Flugöryggi myndi minnka lít-
illega með þéttari flugumferð um-
hverfis Keflavík.
12. Búast má við að farþegar þurfi
að fara fleiri en eina ferð til Keflavík-
ur fyrir flug út á land þegar flugvellir
lokast vegna veðurbreytinga sem oft
verða með stuttum fyrirvara yfir vet-
urinn.
13. Reykjavíkurflugvöllur hefur
miklu hlutverki að gegna í sambandi
við sjúkraflug svo og vegna eldgosa,
hafíss og annarra náttúruhamfara.
14. Kostnaðarauki vegna flutnings
innanlandsflugs hefur áhrif á mörg-
um sviðum. Þannig myndi kostnaður
við virkjunarframkvæmdir á austur-
landi aukast. Það er óeðlilegt að
Reykvíkingar ráðskist einir um fram-
tíð Reykjavíkurflugvallar, því að
hann snertir alla landsmenn.
15. Um staðsetningu flugvalla má
læra af reynslu Breta, Dana og Þjóð-
verja og af mistökum Svía og Norð-
manna.
Í upphafi skal endinn skoða. Verði
allt flug innanlands flutt til Keflavík-
ur er ljóst að fleira fylgir á eftir, svo
sem hótelbyggingar, aukin íbúðar-
byggð og starfsemi tengd flugvelli,
auk þess sem ýmis stjórnsýsla mundi
flytjast í kjölfarið. Með þessu eru
flutt á annað þúsund störf frá
Reykjavík til Reykjanesbæjar. Ólík-
legt er að borgaryfirvöldum í Reykja-
vík takist að bæta fyrir það áfall.
Þétting byggðar í Reykjanesbæ yrði
mjög hröð og myndi þrengja að flug-
vellinum innan fárra áratuga ef ekki
er að gætt.
Því er ástæða til að hafa ákveðið
rými umhverfis flugvelli og hafnir til
frekari framþróunar. Þannig er hag-
ur skattgreiðenda best tryggður.
NOKKRAR ATHUGASEMDIR
VIÐ AÐALSKIPULAG
HÖFUÐBORGARSVÆÐISINS
Kristján Árnason
Útþensla höfuðborg-
arsvæðisins á ekki að
vera markmið í sjálfu
sér, segir Kristján
Árnason, heldur hlýtur
að þurfa að reikna með
byggð sem víðast úti
á landi.
Höfundur er flugmaður og
flugvélaverkfræðingur.
Málarar - Múrarar - Píparar - Smiðir
Dúkarar - Rafvirkjar - Ræstitæknar
Vertu í góðum höndum!
Eitt númer - 511 1707
www.handlaginn.is
handlaginn@handlaginn.is
Mikið úrval af
fallegum
rúmfatnaði
Skólavörðustíg 21, Reykjavík, sími 551 4050