Morgunblaðið - 16.03.2002, Síða 8
FRÉTTIR
8 LAUGARDAGUR 16. MARS 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Háskólastigin kynna sig í HÍ
42% fjölgun
háskólanema
Á MORGUN, sunnu-daginn 17. mars erkynning á háskóla-
námi í húsakynnum Há-
skóla Íslands. Allir skólar
á háskólastigi taka þátt í
námskynningunni og verð-
ur því meira framboð á
upplýsingum fyrir fram-
haldsskólanema heldur en
verið hefur á svipuðum
námskynningum Háskól-
ans til þessa. Hefð er orðin
fyrir námskynningum
þessum og er ævinlega
mikil umferð gesta og
gangandi. Guðrún J. Bach-
mann forstöðumaður hjá
Þróunar- og kynningar-
sviði Háskólans er í for-
svari fyrir námskynn-
inguna og svaraði hún
nokkrum spurningum.
– Svona kynningum hafið þið
margstaðið fyrir, en er ekki að
verða mikil aukning á háskóla-
framboði?
„Námskynningar á vegum Há-
skóla Íslands eiga sér langa sögu
og hafa verið til í ýmsum mynd-
um, enda mikilvægt að slíkir við-
burðir séu í sífelldri þróun og end-
urskoðun. Í fyrstu var áherslan á
námið í HÍ, en síðan bættust við
smám saman fleiri skólar og nú er
þetta orðin sameiginleg kynning
allra skóla á háskólastigi. Kynn-
ing sem þessi er fyrst og fremst
hugsuð sem þjónusta og hvatning
fyrir alla þá sem áhuga hafa á há-
skólanámi og standa frammi fyrir
því að velja sína námsleið. Það
hefur á fáum árum orðið gífurleg
aukning í framboði á námi á há-
skólastigi. Sem dæmi má nefna að
á síðustu fimm árum hefur nem-
endum í háskólanámi fjölgað um
42%. Alls eru nú um 13.000 manns
í slíku námi. Þessi fjölgun er í
samræmi við sífellt auknar kröfur
samfélagsins og atvinnuveganna
um vel menntaða einstaklinga á
öllum sviðum, menntunarstig
þjóðarinnar fer vaxandi og er
viðbúið að svo verði áfram.“
– Í hverju er þessi aukning fólg-
in?
„Aukningin felst í mörgu, það
hafa bæst við námsgreinar, fram-
haldsnám, meistaranám og dokt-
orsnám hefur verið í örum vexti,
valkostum hefur fjölgað í fjöl-
mörgum greinum, skólar sem
ekki voru á háskólastigi hafa verið
að bætast í hópinn o.s.frv. Allir
hafa þessir skólar sín sérkenni,
bæði hvað varðar námsleiðir og
uppbyggingu námsins. Meðal
annars af þeim sökum verður sí-
fellt flóknara fyrir stúdenta að
velja sér námsleið og mikilvægt að
þeir geti borið saman og gert sér
grein fyrir náminu í víðara sam-
hengi.“
– Verða sum sé allir skólar á há-
skólastigi með kynningar?
„Já, þarna verða öll háskóla-
stigin. Skólarnir sem standa að
kynningunni eru Háskóli Íslands,
Háskólinn á Akureyri, Háskólinn í
Reykjavík, Kennaraháskólinn,
Landbúnaðarháskólinn
á Hvanneyri, Listahá-
skólinn, Tækniskóli Ís-
lands og Viðskiptahá-
skólinn á Bifröst. Alls
átta skólar á háskóla-
stigi, þar af þrír utan höfuðborg-
arsvæðisins. Þess má einnig geta
að á kynningunni verða fulltrúar
frá Alþjóðaskrifstofu háskóla-
stigsins og Fulbright-stofnuninni
þannig að gestum gefst jafnframt
kostur á að kynna sér nám á er-
lendri grund. Einnig verða LÍN,
SÍNE og fleiri þjónustuaðilar á
staðnum. Að ónefndum öllum
þeim snjöllu námsráðgjöfum sem
gestir geta leitað til eftir upplýs-
ingum og leiðbeiningum.“
– Hvar, hvenær og hvernig?
„Kynningin fer fram í húsnæði
Háskóla Íslands og verður í þrem-
ur byggingum, í aðalbyggingunni,
Odda og Nýja Garði. Hún stendur
yfir á sunnudag klukkan 11 til 17
og skólarnir verða dreifðir um
svæðið. Það er því um að gera fyr-
ir gestina að gefa sér góðan tíma í
að ganga á milli, spjalla við kenn-
ara og nemendur sem þar verða
með kynningar á sínum náms-
greinum, afla sér upplýsinga og
fara svo heim og velta fyrir sér
hinum mismunandi möguleikum.
Ítarlegar leiðbeiningar verða á
staðnum um staðsetningu skól-
anna og til þess að krydda heim-
sóknina gefst gestum kostur á að
fara í ratleik, þar sem álitlegir
vinningar verða í boði.“
– Þið eigið væntanlega von á ör-
tröð?
„Hingað til hefur alltaf verið
húsfyllir og vel það á háskóla-
kynningunni. Þetta ár ákváðum
við að lengja tímann sem kynn-
ingin stæði, hún hefst sem fyrr
segir klukkan 11 að morgni. Það
dreifir væntanlega umferðinni og
þeir sem vilja nýta sunnudaginn
til hins ýtrasta geta tekið daginn
snemma og byrjað hjá okkur.
Þarna myndast oft skemmtileg
stemmning, t.d. koma margir
kennarar með hópa útskriftar-
nema úr framhaldsskólum utan af
landi, fjölskyldur stúdentsefna
eru ekki síður áhugasamar um að
kynna sér möguleikana
í námi og þarna hittast
vinir og kunningjar
sem bera saman bækur
sínar.“
– Hvert liggur
straumurinn helst?
„Straumurinn liggur sjaldnast í
einhverja eina átt. Margir hafa
þegar gert upp hug sinn og ein-
beita sér að vissum fögum. Aðrir
eru opnir fyrir öllu og velta fyrir
sér ólíkum möguleikum. Oft er
verið að kynna einhverjar nýjung-
ar og þær vekja auðvitað áhuga,
en sígildu fögin standa alltaf fyrir
sínu.“
Guðrún J. Bachmann
Guðrún J. Bachmann fæddist
1953. Stúdent frá MH og bók-
menntafræðingur frá HÍ. Starfaði
um árabil við þýðingar, kennslu,
búskap og fleira. Frá 1984 texta-
gerð, hugmyndasmíði og al-
mannatengsl á auglýsingastofum.
1993–2001markaðs- og kynning-
arstjóri Þjóðleikhússins og kenn-
ari við Endurmenntunarstofnun
HÍ og víðar. Frá haustinu 2001
verkefnisstjóri þróunar- og kynn-
ingarsviðs HÍ. Maki hennar er
Leifur Hauksson dagskrárgerð-
armaður og eiga þau fimm börn.
… mikilvægt
að geta borið
saman
Gætum við fengið fagmann í djobbið, sem verktaka?
ÍSLENSKIR nemendur í Háskól-
anum í Skövde í Svíþjóð urðu sig-
ursælir í árlegri forritunarkeppni
sem haldin var í skólanum um síð-
ustu helgi í samstarfi við Ericsson
Microwave Systems, dótturfyrir-
tæki Ericsson í Svíþjóð. Einn
þriggja keppenda í sigurliðinu var
Þorvaldur Jochumsson frá Akur-
eyri og skammt á undan í öðru sæti
hafnaði Íslendingalið, sem sigraði í
sömu keppni í fyrra, skipað þeim
Gunnari Búasyni frá Sauðárkróki,
Vilhjálmi Stefánssyni frá Akureyri
og Kjartani Ástþórssyni úr Borgar-
nesi.
Forritunarkeppnin kallast á
sænsku MJUKT, sem er skamm-
stöfun fyrir „Mjukvaruutveckling i
kreativa team“ eða hugbúnaðar-
hönnun í skapandi hópum. Að þessu
sinni tóku 9 lið þátt, skipuð þremur
nemendum hvert. Keppendurnir
fengu verkefni frá Ericsson sem
þeir þurftu að leysa á sem bestan
hátt innan við sólarhring. Dóm-
endur frá Ericsson og háskólanum
mátu verkefnin svo út frá arkitekt-
úr kerfisfræðinnar, viðmótshönn-
uninni og skipulagi vinnuferilsins,
auk þess að kanna að sjálfsögðu
hvernig lausnirnar virkuðu. Allan
tímann fylgdust fjölmiðlunarnemar
skólans með keppninni og héldu úti
vefsíðu með fréttum og myndum af
henni.
25 Íslendingar
í tölvudeild skólans
Að sögn Inga Vilhelms Jónasson-
ar, kennara við tölvudeild skólans
og fyrrum nemanda þar, er mark-
miðið með keppninni að breyta
þeirri ímynd að við forritun og hug-
búnaðarhönnun fáist aðeins
„ófélagslyndir nördar“.
„Hugbúnaðarþróun er ferli sem
byggist á frjórri samvinnu fleiri ein-
staklinga. Til að skapa nothæf og
virk hugbúnaðarkerfi þarf fólk með
margvíslega mismunandi hæfileika
og kunnáttu,“ segir Ingi sem undan-
farin ár hefur komið á hverju vori
til landsins til að kynna nám við Há-
skólann í Skövde. Þær kynningar
hafa gefist vel því við tölvudeildina
nema nú 25 Íslendingar, flestir í
tölvunarfræði og líftölvunarfræði.
Ingi er væntanlegur til Íslands eftir
páska í sína tíundu kynningarferð
og að þessu sinni verður prófessor
við skólann með honum í för.
Ericsson Microwave Systems er
sem fyrr segir dótturfyrirtæki
Ericsson í Svíþjóð. Markmið fyrir-
tækisins með stuðningi við keppn-
ina er að sögn Johans Norén, yfir-
manns tækniþróunar hjá EMW, að
vekja athygli nemenda skólans á
fyrirtækinu þannig að auðvelda
megi ráðningu hæfs starfsfólks í
framtíðinni. EMW sérhæfir sig á
sviði örbylgjutækni en hjá fyrir-
tækinu, sem einkum fæst við þróun
og rannsóknir, vinna um 5 þúsund
manns. Johan afhenti sigurvegur-
unum verðlaunin að keppni lokinni
og voru þau fullkomnir farsímar,
skiljanlega af gerðinni Ericsson.
Forritunarkeppni Háskólans í Skövde og Ericsson
Íslendingar
sigursælir
annað
árið í röð
Sigurliðið í forritunarkeppninni. Þorvaldur Jochumsson stendur lengst
til hægri og sænskir félagar hans í liðinu sitja fyrir framan, þeir Henrik
Grimm og Henrik Thorburn. Með þeim að störfum fylgjast Beatrice
Alenljung úr dómnefnd og Finnur Sigurðsson, einn áhorfenda.
Íslensku nemendurnir sem lentu í öðru sæti í keppninni að þessu sinni
en þeir sigruðu í fyrra. Frá vinstri eru það Kjartan Ástþórsson, Vil-
hjálmur Stefánsson og Gunnar Búason.