Morgunblaðið - 16.03.2002, Page 76

Morgunblaðið - 16.03.2002, Page 76
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040, ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 LAUGARDAGUR 16. MARS 2002 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK. HUÐNAN Rák frá Fjallalækjar- seli, sem er með lögheimili í Hús- dýragarðinum, er líklega sælust allra geita í borginni um þessar mundir því í gær bar hún hvítum kiðlingi, sem reyndist vera hafur. Faðir þessa vorboða er hafurinn Kappi sem einnig er fæddur í Húsdýragarðinum. Í fréttatilkynningu frá Hús- dýragarðinum segir að huðnur beri yfirleitt 1–2 kiðlingum hverju sinni eftir 5 mánaða með- göngu og eru þeir á við nýborin lömb á stærð. Fjórar huðnur eru í garðinum og er búist við að burði hjá geitunum ljúki áður en ærnar bera. Fyrsti vor- boðinn í Húsdýra- garðinum aði. Þeir tóku því ákvörðun um að hætta við lendingu og kipptu vélinni upp.“ Í aðflugi láta flugmenn sjálfstýr- ingu yfirleitt um stjórnina rétt eins og í farflugi en taka sjálfir stjórnina í sínar hendur í um 500 feta hæð. Þótt sjálfstýring sé tekin af geta þeir eftir sem áður haft eldsneyt- isgjöfina sjálfvirka og stillt á æski- legan hraða. Lækkunin ræðst hins vegar ekki síður af beitingu stjórn- tækjanna en eldsneytisgjöfinni. Þota í aðflugi getur lækkað flugið mishratt en algeng viðmiðun er um þúsund fet á mínútu. Það þýðir að þota í um 300 feta hæð á eftir um 20 sekúndur í jörð. Lækkunin getur FLUGLEIÐAÞOTAN, sem lenti í svonefndu „alvarlegu flugatviki“ við lendingu á Gardermoen-flugvelli við Osló þriðjudaginn 22. janúar sl., var nálægt 300 fetum frá jörðu, þegar hún hækkaði flugið á ný. Með vél- inni voru 75 farþegar auk áhafnar. Þota í þessari hæð getur átt eftir 20–30 sekúndur í jörð eftir því hve hratt hún lækkar flugið. Þessar upplýsingar byggjast á heimildum, sem Morgunblaðið telur öruggar. Guðjón Arngrímsson, upplýsinga- fulltrúi Flugleiða, lýsti atvikinu svo í samtali við Morgunblaðið hinn 25. janúar sl.: „Þegar vélin var í rúm- lega þúsund feta hæð fengu flug- menn grun um bilun í aðflugsbún- líka verið hægari, oft um 600 fet á mínútu, og þá á þota í 300 feta hæð eftir um hálfa mínútu í jörð. Þormóður Þormóðsson, rann- sóknarstjóri og formaður Rann- sóknarnefndar flugslysa, tjáði Morgunblaðinu í gær að eftir helgina yrði flugatvikið sett upp í flughermi í Svíþjóð. Þormóður held- ur til Oslóar eftir helgina vegna rannsóknar á atvikinu sem er á for- ræði Rannsóknarstofnunar flug- slysa í Noregi. Mun hann fara ásamt fulltrúum stofnunarinnar til Sví- þjóðar þar sem líkt verður eftir flug- atvikinu í flughermi fyrir Boeing- þotur. Fenginn verður flugmaður og flugkennari til að fljúga líkt því sem gerðist í Flugleiðaþotunni sam- kvæmt þeim upplýsingum sem rannsakendur hafa aflað sér. Þá sagði Þormóður að tekið hefði verið yfir upptökur úr stjórnklefa þotunnar en öll samtöl og samskipti flugmanna eru tekin upp meðan á flugi stendur. Skýrist það af því að einungis er unnt að taka upp tvo tíma í senn uns tækið spólar sjálf- krafa til baka og hefur upptöku á ný. Upptökurnar voru ekki teknar úr vélinni eftir atvikið við Gardermoen og þær því ekki varðveittar. Eftir sem áður eru til upptökur af sam- skiptum flugmannanna við flugum- ferðarstjóra sem norska stofnunin hefur undir höndum. Alvarlega flugatvikið á Gardermoen-flugvelli við Osló í janúar Flugvélin var nálægt 300 fetum frá jörðu VERSLANIR Nóatúns aug- lýstu „nýjar íslenskar“ kartöflur á tilboðsverði í gær, eða 98 krón- ur kílóið. Þegar grennslast var nánar fyrir um aldur þeirra og uppruna sagði Guðni Grétars- son, markaðsstjóri Nóatúns, í samtali við Morgunblaðið að umræddar kartöflur væru „ekki nýjar“ í þeim skilningi. „Í aug- lýsingunni var átt við nýjustu uppskeru sem hægt er að fá á þessum árstíma,“ segir Guðni. „Þetta var klaufalega orðað hjá okkur. Við hörmum ef aug- lýsingin hefur valdið misskiln- ingi og biðjumst velvirðingar á þessu. Þarna er ekki um nýupp- teknar kartöflur að ræða,“ segir hann. „Klaufa- lega orðað hjá okkur“ Nýjar íslenskar kartöflur auglýstar í Nóatúni 37 ÁRA gamall Íslendingur var í gær úrskurðaður í þriggja vikna gæsluvarðhald að kröfu lögreglunn- ar í Reykjavík í tengslum við eitt um- fangsmesta fíkniefnamál sem upp hefur komið hérlendis. Lögreglan og tollgæslan í Reykjavík lögðu hald á 30 kg af hassi í vikunni sem leið og er talið að fíkniefnin hafi komið með vörusendingu í gámi sem kom með skipi frá Skandinavíu. Ekki fæst uppgefið hvort hinn grunaði hafi gengist við smyglinu eða hvort hann hafi átt sér vitorðs- menn erlendis. Þá fæst heldur ekki uppgefið hvaðan fíkniefnin komu en síðasti viðkomustaður flutninga- skipsins mun hafa verið Gautaborg í Svíþjóð. Ekki fást upplýsingar um hvort um hafi verið að ræða smygl- leið sem hafi staðið opin um langa hríð, en lögreglan fylgdist með mál- inu um nokkurra vikna skeið. Hinn handtekni hefur ekki komið við sögu lögreglunnar áður. Samkvæmt heimildum Morgun- blaðsins voru fíkninefnin í gámi með húsgögnum sem var fluttur inn á vegum fyrirtækis sem fæst við hús- gagnainnflutning. Eftir að fíkniefnin fundust var gámurinn tollafgreiddur til fyrirtækisins og fylgdist fíkni- efnadeildin með öllum ferðum í kringum gáminn eftir það. Búið var að hreyfa við fíkniefnunum þegar maðurinn sem nú er í gæsluvarð- haldi var handtekinn. Gera má ráð fyrir að verðmæti fíkniefnanna í götusölu nemi yfir 60 milljónum. Hald lagt á 30 kg af hassi 69 ÁRA gamall karlmaður beið bana í bílslysi á Kjalarnesi í gær, þegar fólksbifreið sem hann ók, rakst framan á gámaflutningabif- reið á Vesturlandsvegi við býlið Móa. Lögreglunni var tilkynnt um áreksturinn klukkan 14.15 og var ökumaðurinn látinn þegar lögreglan kom á vettvang. Hann var einn í bif- reiðinni og þurfti að beita klippum tækjabíls Slökkviliðs höfuðborgar- svæðisins til að ná honum út úr bíl- flakinu. Ökumann flutningabif- reiðarinnar, sem einnig var einn í bifreiðinni, sakaði ekki. Ekki er unnt að birta nafn hins látna að svo stöddu. Talið er að tildrög slyssins megi rekja til þess að fólksbifreiðinni var ekið fram úr annarri bifreið en lenti framan á flutningabifreiðinni sem kom á móti. Veginum var lokað í kjölfar slyss- ins og var umferð beint um Kjós- arskarð á meðan lögregla og sjúkra- lið athöfnuðu sig á vettvangi. Var umferð hleypt á Vesturlandsveginn að nýju um klukkan 17.30. Banaslysið í gær er hið níunda í umferðinni á þessu ári, en öll bana- slys ársins hafa orðið utan þéttbýlis. Að meðaltali hefur orðið eitt bana- slys á viku frá áramótum, sem er svipað og á árinu 2000, sem var þriðja versta árið frá upphafi hér- lendis hvað banaslys í umferðinni áhrærir. Flest banaslysin, eða fjögur, hafa orðið við árekstur fólksbifreiða og jeppa og þrír hafa látist vegna útaf- aksturs. Óli H. Þórðarson, framkvæmda- stjóri Umferðarráðs, segir slysaþró- unin sem átt hefur sér stað á árinu óviðunandi. „Afleiðingar slysa þar sem stórar og litlar bifreiðir lenda saman eru okkur mikið áhyggju- efni,“ segir Óli. „Við hljótum að þurfa að skoða þessi mál enn betur en við höfum gert. Það er greinilegt að íslenskir ökumenn verða að staldra við, enda er slysaþróunin óviðunandi. Við erum að fara inn í sama ferilinn og árið 2000 þegar ástandið var með allra versta móti.“ Lést í árekstri við flutn- ingabifreið á Kjalarnesi Morgunblaðið/Júlíus Beita þurfti klippum tækjabíls Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins til að ná hinum látna út úr bílflakinu.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.