Morgunblaðið - 16.03.2002, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 16.03.2002, Blaðsíða 29
LISTIR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. MARS 2002 29 1 5 -4 0 % a fs lá ttu r 525 3000 • www.husa.is Málningartilboð 4.390 10 lítrar af Jotun innimálningu 07 á aðeins kr. VEL var mætt á hádegistónleika Íslenzku óperunnar á þriðjudag, þegar Ólafur Kjartan Sigurðarson og gestir hans, systurnar Signý og Þóra Fríða Sæmundsdætur, kynntu nokkur ný eða nýleg sönglög Atla Heimis Sveinssonar undir fyrirsögn- inni „Heima hjá Atla“. Fyrst söng Signý tvö sönglög við ljóð eftir Béatrice Cantoni, fyrrum sendi- herrafrú á Íslandi. Lögin hétu Rien ne viendra og Dans ton silence. Því miður voru textar hvergi prentaðir í tónleikaskrá, en lausleg þýðing var þó lesin munnlega. Ólafur Kjartan söng þvínæst tvö sönglög á ensku eftir Kára Stefánsson, Vala og Woman, hið síðarnefnda frumflutt við þetta tækifæri. Af Jónasarlögum Hallgrímssonar söng þvínæst Signý Álfareiðina (Stóð ég úti í tunglsljósi) og Ómur alfagur (frumfl.), en Ólafur Kjartan Söknuð og Stökur (frumfl.) Loks sungu bæði Tittlingsminning við ljóð séra Jóns frá Bægisá, stíl- ræna skopstælingu á Händel (ef ekki John Gay) í gamansömum dúr, sem endaði í algjörri ringulreið. Atli Heimir hefur undanfarið lýst yfir auknum áhuga sínum á ljóða- söngslaginu í hinu stærra „Lieder“ formi, eins og þekkt er erlendis hjá 19. aldar meisturum allt frá Schu- bert, og er það vel. Einkum ef rétt er sem manni skilst, að Íslendingar eigi fátt annað fyrir en „söngvísur“, stutt, einföld og oftast strófísk söng- lög í Kaldalónshefðinni, og mátti því heita að tími væri til kominn að sinna stóra sönglaginu. Vissulega á landinn af ærnu textaefni að taka, og það allt frá landnámsöld. Spurningin er hins vegar hversu langt verði gengið á vit framsækinnar útfærslu, áður en almennir áheyrendur – jafn- vel bókhneigðustu ljóðaunnendur – hætta sínu föruneyti og ljóðasöngs- lagið fellur undir aflukta sérgrein módernískrar listmúsíkur. Vandinn er að því leyti áþreifanlegri að hér á landi nýtur enn óvenjumikils áhuga á hvoru tveggja söng og kveðskap – a.m.k. af hefðbundnari gerðum. Enda hafa Jónasarlög Atla sannar- lega hitt í mark, þ.e.a.s. í tónlist- arstíl sem í meginatrið- um hefði getað verið frá efri árum ljóðskáldsins, þótt ekki verði kenndur við eitt 19. aldar tón- skáld frekar en annað. Er það ekki lítið afrek út af fyrir sig – jafnvel þótt ytri stíll, hvort sem er forn eða nýr, sé hvorki forsenda né trygging fyrir frum- leika. Ensku og frönsku lögin í upphafi tón- leikanna virtust hvað þetta varðar sérkenni- lega leitandi. Í heild verkuðu þau frekar hæggeng, innhverf og seintekin, þó að kynnu að leyna á sér við end- urheyrn. Þau áttu og til að sveiflast á milli eins konar síð- rómantísks tónmáls við oft þéttriðna áferð, og nútímalegra, þar sem satzinn var ósjaldan gisnari og stöku sinni mótaður af þrástefjatækni. Þó virtist notkun „mal canto“ risatónbila, dæmigert einkenni á framsæknum rithætti fyrir söngrödd, ekki áberandi, og má segja að hafi lýst lofsverðri umhyggju fyrir með- töku hlustenda á söngtextum. Nýju Jónasarlögin sóru sig í ætt við tímalausan „pan-róman- tískan“ svip hinna og sómdu sér vel í þeim flokki. Þau Ólafur Kjartan og Signý skiluðu sínu með mestu ágæt- um við fylginn píanóleik Þóru Fríðu Sæmundsdóttur. Sagt er, að á frumbýlingsárum ís- lenzka módernismans á 7. áratug hafi einsöngslagið legið mjög í lág- inni. Kannski var kominn tími á hvíld eftir 50 ára gullöld. Kannski var líka meðverkandi ástæða, að söngvarar þess tíma ku hafa sýnt sönglögum ungu tónskáldanna lítinn skilning. En nú er öldin e.t.v. önnur. Alltjent hefur framboð og menntun söngvara aukizt verulega frá því sem áður var. Það verður því spenn- andi að sjá hvort áheyrendur munu ljá höfundum og flytjendum eyra í sama mæli, svo að stóra ljóðasöngs- lagið hljóti loksins síðbúinn byr und- ir báða vængi. Hlýtur stóra sönglagið byr? TÓNLIST Íslenzka óperan Lög eftir Atla Heimi Sveinsson. Ólafur Kjartan Sigurðarson barýton, Signý Sæ- mundsdóttir sópran; Þóra Fríða Sæ- mundsdóttir, píanó. Þriðjudaginn 12. marz kl. 12:15. LJÓÐASÖNGSTÓNLEIKAR Ríkarður Ö. Pálsson Atli Heimir Sveinsson Á TÓNLEIKUM Sinfóníuhljóm- sveitar áhugamanna í dag, laugar- dag, kl. 17, leikur Örn Magnússon einleik í píanókonsert í G-dúr, K 453 eftir Mozart. Auk þess verður leikinn Concerto grosso ópus 6 nr. 10 eftir Händel og sinfónía nr. 83 eftir Haydn. Stjórn- andi á tónleikunum er Gunnsteinn Ólafsson. Morgunblaðið/Sverrir Örn Magnússon á æfingu með Sinfóníuhljómsveit áhugamanna í Neskirkju. Barokk og klassík í Neskirkju
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.