Morgunblaðið - 16.03.2002, Page 9
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. MARS 2002 9
RÚMLEGA 180 gestir á Hótel
Esju voru fluttir frá hótelinu
snemma í gærmorgun eftir að
grunur vaknaði um gasleka. Fljót-
lega kom í ljós að lyktin barst frá
steinolíuhitablásara í nýbyggingu
hótelsins en hún þótti minna mjög á
gaslykt. Gestir hótelsins voru því
aldrei í hættu.
Að sögn Kristínar Gylfadóttur,
móttökustjóra hótelsins, tóku gest-
irnir rúmruskinu af yfirvegun og
skilningi. Flestir hafa þó efalaust
viljað sofa lengur.
Vaktmenn á hótelinu sem urðu
varir við lyktina kölluðu til slökkvi-
lið klukkan 5.52. Þá voru bruna-
bjöllur hótelsins settar í gang og
gestirnir ræstir á fætur. Þegar fjór-
ir sjúkrabílar, tveir dælubílar og
lögreglumenn komu á staðinn var
rýming hótelsins þegar hafin. Fjór-
ir strætisvagnar voru einnig kall-
aðir til og voru nývaknaðir gestirnir
fluttir frá hótelinu í öryggisskyni
meðan verið var að kanna upptök
hinnar meintu gaslyktar. Ekki leið
á löngu þar til hið sanna kom í ljós
en skv. upplýsingum frá Slökkviliði
höfuðborgarsvæðisins hafði loginn í
hitablásaranum slokknað en blás-
arinn hélt þó áfram að ósa. Lyktin
barst inn í hótelið um loftræstikerfi
og fór um stigaganga hótelsins.
Engin hætta var þó á ferðum fyrir
gestina. Um klukkan 6.15 voru
gestirnir kallaðir til baka en stræt-
isvagnarnir munu hafa ekið rólega
um nágrennið meðan á þessu stóð.
Móttökustjóri hótelsins segir að
vafalaust muni hótelstjórinn eða
framkvæmdastjóri þess eiga fund
með byggingarfyrirtækinu sem á
hitablásarann út af þessu atviki.
Grunur um gasleka
á Hótel Esju
180 gestir
fluttir á brott
með strætó
TÓMAS Ingi Olrich menntamála-
ráðherra hefur ráðið Guðbjörgu Sig-
urðardóttur sem aðstoðarmann sinn.
Guðbjörg lauk
stúdentsprófi frá
Menntaskólanum
á Akureyri 1976,
kennaraprófi frá
Kennaraháskóla
Íslands 1980 og
BS-prófi í tölvun-
arfræði frá Há-
skóla Íslands
1983. Hún kenndi
við Barnaskóla
Akureyrar 1976–1977, starfaði við
tölvudeild Ríkisspítala 1983–1997 og
var deildarstjóri kerfisfræðideildar
Ríkisspítala frá 1985–1997. Frá 1997
hefur hún gegnt starfi formanns
verkefnisstjórnar um upplýsinga-
samfélagið í forsætisráðuneyti en
meginviðfangsefni verkefnisstjórn-
arinnar er að hrinda í framkvæmd
stefnu ríkisstjórnarinnar um upplýs-
ingasamfélagið.
Guðbjörg hefur setið í nefndum og
stjórnum ýmissa félaga og hefur
m.a. verið formaður Félags tölvunar-
fræðinga, RUT-nefndar og nor-
rænnar nefndar um málefni upplýs-
ingasamfélagsins. Einnig hefur hún
setið í stjórn Persónuverndar eftir
tilnefningu Skýrslutæknifélags Ís-
lands.
Guðbjörg var formaður nefndar á
vegum menntamálaráðuneytis sem
mótaði stefnu um menntun og upp-
lýsingatækni. Afrakstur þeirrar
vinnu er að finna í ritinu: Í krafti
upplýsinga, sem gefið var út í mars
1996.
Hún var formaður verkefnis-
stjórnar um mótun upplýsingastefnu
fyrir ríkisstjórn Íslands 1995–1996
og formaður verkefnisstjórnar um
mótun upplýsingastefnu fyrir heil-
brigðiskerfið 1996–1997.
Guðbjörg er gift Skúla Kristjáns-
syni tannlækni og eiga þau tvo syni.
Nýr aðstoðarmaður
menntamálaráðherra
Guðbjörg
Sigurðardóttir
Vorum að taka upp
meira af glæsilegum fatnaði
fyrir fermingarmömmuna
Ný sending
af glæsilegum fatnaði
fyrir fermingar og ferðalög
Engjateigi 5, sími 581 2141.
Opið virka daga frá kl. 10.00—18.00, laugardaga frá kl. 10.00—15.00.
Ljósakrónur Skrifborð
Skatthol Íkonar
www.simnet.is/antikmunir
Borðstofuborð og borðstofustólar
Antíkmunir, Klapparstíg 40, sími 552 7977.
Sigurstjarnan, Suðurlandsbraut 50 (bláu húsin), sími 588 4545.
Síðasti útsöludagur - allt á að seljast
Húsgögn, pelsar, rúmteppi og dúkar - 50% afsláttur
Lampar og ljós - 30% afsláttur
Aðrar gjafavörur - 20% afsláttur
Sigurstjarnan - Stórútsala
Opið virka daga frá kl. 11-18, laugard. 11-15
Garðar Ólafsson
úrsmiður - Lækjartorgi - sími 551 0081
Páska tilboð
Úr: Omega, Gucci,
Raymond Weil, Seiko,
Tissot, Pierpont o.fl.
Klukkur: Gólfklukkur,
veggklukkur,
vekjaraklukkur o.fl.
Skartgripir:
Demantshringar, gull-
lokkar, gullhálsfestar,
gullmen, gullkrossar,
gullarmbönd o.fl.
30%
afsláttur
af öllum
vörum
Ný sending
Neðst við Dunhaga, sími 562 2230
Opið í dag laugardag 10-14
A›eins 3 ver›
kr. 990 - 1.990 - 2.990
opi› í dag laugardag 10-14 og
á mánudaginn 10-18
Lok
útsölumarka›ar
Safnaramarkaður
Á morgun sunnudaginn 17. mars verður safnaramarkaður
í Síðumúla 17, 2.hæð kl. 13 - 17.
Mynt - Seðlar - Minnispeningar - Barmmerki - Smáprent
Frímerki - Umslög - o.m.fl.
Myntsafnarafélag Íslands Félag frímerkjasafnara
Reykjavík,
Hverfisgötu 6, sími 562 2862
Vor
2002