Morgunblaðið - 16.03.2002, Qupperneq 16
ÁRBORGARSVÆÐIÐ
16 LAUGARDAGUR 16. MARS 2002 MORGUNBLAÐIÐ
FAXI RE 9 landaði fullfermi af
loðnu, eða um 1500 tonnum, í Þor-
lákshöfn í gær. Arnar Guðlaugsson,
háseti á Faxa, sagði að þeir hefðu
fengið loðnuna í miðjum Faxaflóa á
fimmtudaginn. „Við fengum þetta í
þremur köstum en vorum búnir að
kasta tvisvar áður. Fyrstu köstin
skiluðu litlu en svo gáfum við af-
ganginn úr síðasta kastinu.“
Arnar sagði að þessi loðna væri
úr austangöngunni og þeir hefðu
ekki orðið varir við gönguna að
vestan. Nú er loðnan að verða full-
hrygnd og þá er viðbúið að dragi úr
veiðinni, sagði Arnar. Hann bætti
við að mikið lægi á að komast sem
fyrst á miðin aftur og því hefði ver-
ið afleitt að þurfa að bíða eftir flóð-
inu í fjóra tíma.
Ólafur Einarsson, skipstjóri á
Faxa, sagði að skipið risti 8 til 8,5
metra en höfnin væri 6 til 6,5
metra á fjöru og því hefðu þeir orð-
ið að bíða eftir flóðinu. Hann sagði
að Faxi væri búinn að veiða um
33.000 tonn og reikna mætti með
að tveir túrar, um 3.000 tonn, væru
eftir miðað við viðbótina. Einnig
væri möguleiki á að veiða fyrir
aðra. Faxamjöl, sem á Faxa RE 9,
á verksmiðjur í Reykjavík og Þor-
lákshöfn og hefur Faxi landað til
skiptis á þessum stöðum.
Indriði Kristjánsson, hafnarstjóri
í Þorlákshöfn, sagði það rétt að
höfnin væri of grunn fyrir allra
stærstu loðnubátana enda ristu
þeir meira en stóru vikurskipin.
Hann sagði að á næsta ári stæði til
að byggja nýja loðnubryggju norð-
an á svokallaðri L-bryggju og í
framhaldi af því ætti að dýpka í 8
metra.
Indriði sagði lítið mál að dýpka
en vandamálið væri að þessar sand-
hafnir fylltust fljótt aftur. Því væri
verið að gera tilraunir með að búa
til gildrur eða skápa utan við höfn-
ina sem taka ættu við framburð-
inum frá ósnum. Þaðan væri þægi-
legra að fjarlægja sandinn.
Höfnin ekki nægjanlega djúp fyrir stærstu loðnuskipin
Afleitt að bíða í fjóra
tíma eftir flóðinu
Þorlákshöfn
Morgunblaðið/ Jón H. Sigurmundsson
Faxi RE 9 við bryggju í Þorlákshöfn, en skipið á væntanlega eftir tvær veiðiferðir á loðnuvertíðinni.
STANGAVEIÐIFÉLAG Selfoss
leggur mikla áherslu á að efla
stangaveiði í Ölfusá við Selfoss.
Félagið leigir veiðiréttinn í ánni á
þremur veiðisvæðum. Veiði var
frekar dræm á liðnu ári, um 180
laxar veiddir. Á aðalfundi félags-
ins, sem nýlega var haldinn, flutti
Magnús Jóhannsson erindi um
seiðabúskapinn í ánni og mögu-
leika árinnar til þess að ala af sér
fiska. Magnús hefur rannsakað
seiðabúskapinn í ánni og í því
sambandi skoðað náið staði þar
sem botnsvæðið er hentugt fyrir
seiði.
Niðurstaða Magnúsar er að
seiðasvæðin í ánni við Selfoss geti
framleitt 30–40 laxa í veiði á ári
hverju. Þeir laxar sem veiðast um-
fram þetta eru af öðrum svæðum.
Þetta segir veiðimönnum að
helsta veiðivonin er í Ölfusá við
Selfoss þegar göngur fara upp
ána. Magnús sagði að laxinn
hrygndi á veiðisvæðunum, helst á
svonefndu miðsvæði, það segði
seiðaþéttleikinn til um enda væri
þar ákjósanlegasti botninn fyrir
seiðin. Þá sagði Magnús að heimt-
ur úr seiðasleppingum væru
0,5–1% í veiði á stöng.
Á fundinum urðu miklar um-
ræður um erindi Magnúsar og
möguleika til þess að efla stang-
veiðina svo sem með sleppitjörn-
um. Í máli manna kom fram sam-
anburður á verðmæti veiddra laxa
á stöng annars vegar og í net hins
vegar og bent á að stangveiði-
menn greiddu um 4.000 krónur
fyrir kílóið af laxi sem gera 10–12
þúsund krónur á lax, á meðan
netabændur fá að meðaltali innan
við 1.000 krónur á lax. Þetta sýndi
að stangveiðin skapaði umtals-
verða veltu og það væri því verð-
mæti í að efla hana sem mest og
draga bæri úr netaveiðinni.
Veitt voru verðlaun á fundinum
fyrir nokkra þætti í veiðiskap fé-
lagsmanna. Páll Árnason málara-
meistari fékk verðlaun fyrir
stærsta fiskinn, Gunnar Örn Jóns-
son fyrir flesta fiska á veiðisvæð-
um félagsins og Sveinn Þórarins-
son fyrir flesta laxa í Ölfusá.
Steingrímur Ólason fékk Sól-
bakkabikarinn fyrir stærsta
flugulaxinn og Gunnar Örn Jóns-
son fyrir flesta flugulaxa. Þá fékk
Ragna Björnsdóttir kvennabikar-
inn fyrir flesta laxa veidda af konu
og Jón Þorsteinn Ólafsson fékk
bjartsýnisbikarinn fyrir síðasta
laxinn á veiðitímanum.
Morgunblaðið/Sigurður Jónsson
Þrír verðlaunahafar með viðurkenningar, Gunnar Örn Jónsson,
Sveinn Þórarinsson og Steingrímur Ólason.
Helsta veiðivon-
in í Ölfusá er
í laxagöngum
Selfoss
LEIKFÉLAG Nemendafélags Fjöl-
brautaskóla Suðurlands er um þess-
ar mundir að hefja sýningu á rokk-
söngleiknum Rocky Horror.
Þrotlausar æfingar hafa staðið yfir
í rúmar fjórar vikur og er frumsýn-
ing miðvikudaginn 20. mars næst-
komandi klukkan 20. Sýningar eru
í ófullgerðum menningarsal Ársala
í Hótel Selfoss þar sem nemendur
hafa æft og sett upp leikmynd af
mikilli elju og dugnaði.
Leikstjóri er Guðmundur Karl
Sigurdórsson en hann hefur komið
að fjölmörgum leiksýningum bæði
sem leikari og leikstjóri og hefur
þeim alltaf verið vel tekið. Fram-
kvæmdastjórn er í höndum Árna
Grétars Jóhannssonar. Baldvin
Árnason sér um tónlistarstjórn.
Hann stjórnar fjögurra manna
hljómsveit sem sér um allan tónlist-
arflutning í verkinu. Benedikt Ax-
elsson sér um ljósahönnunina.
Alls eru um 25 leikarar sem
koma fram í verkinu en aðal-
hlutverk eru í höndum Óðins Dav-
íðssonar Löve sem leikur Frank
N’Furter. Janet Weiss er leikin af
Emiliu Christinu Gylfadóttur og
Brad Majors er leikinn af Jóni Ósk-
ari Guðlaugssyni.
Það eru tæplega 70 manns sem
koma að uppsetningu með einum
eða öðrum hætti en nemendur
leggja mikinn metnað í þessa sýn-
ingu eins og undanfarin ár.
Nemendur hafa fengið veitinga-
staðina Menam og Laufás á Selfossi
til að bjóða leiksýningargestum
upp á tilboð, einnig býðst fé-
lagsmiðstöðvum að koma, fara í
sund og síðan á Pizza 67 fyrir sýn-
ingu.
Þá er ráðgert að fara í skóla á
Suðurlandi og kynna sýninguna
með því að sýna brot úr henni. Aðr-
ir sýningardagar eru sem hér segir:
22. mars kl. 20 og 23.30, 24. mars
kl. 20, 28. mars kl. 20 og 23.30 og
30. mars kl. 20. Þessi síðasti sýning-
ardagur býður upp á aukasýningu
kl. 23.30 ef eftirspurnin verður nóg.
Um 70 manns koma að sýningu
Fjölbrautaskólans á Rocky Horror
Morgunblaðið/Sigurður Jónsson
Leikarar Nemendafélags Fjölbrautaskóla Suðurlands í Rocky Horror. Fremst er aðalleikarinn Óðinn Davíðsson.
Selfoss
BÆJARRÁÐ Árborgar samþykkti
á fundi á fimmtudag, að boða til
fundar með foreldra- og kennara-
ráðum beggja grunnskólanna á
Selfossi til að ræða framkvæmd
þeirra breytinga sem samþykktar
hafa verið varðandi sameiningu
skólanna. Gert er ráð fyrir að
sameina Sólvallaskóla og Sand-
víkurskóla undir eina stjórn og
auglýst hefur verið eftir skóla-
stjóra að sameinuðum skóla. Þá er
gert ráð fyrir að hefja starfsemi í
nýjum skóla í Suðurbyggð á Sel-
fossi árið 2004. Mótmæli hafa kom-
ið fram varðandi þessa samein-
ingu.
„Markmiðið er að ná sátt í þessu
máli, veita upplýsingar og fá fram
skoðanaskipti við fólkið. Síðan vilj-
um við horfa fram á við og finna
bestu leiðir að framgangi málsins.
Það hefur alltaf staðið til að þessar
breytingar fari fram með þátttöku
kennara og foreldra. Þessi sam-
þykkt bæjarráðs er liður í að hefja
þá vinnu,“ sagði Ingunn Guð-
mundsdóttir, formaður bæjarráðs
Árborgar.
Boðað til fund-
ar með for-
eldra- og
kennararáðum
Selfoss
Skólamál