Morgunblaðið - 16.03.2002, Side 26
HEILSA
26 LAUGARDAGUR 16. MARS 2002 MORGUNBLAÐIÐ
LIÐAMÍN
Er ætlað öllum þeim
sem reyna mikið á liðina
eða þjást af stirðleika,
verkjum og þreytu í
liðum.
Í Liðamíni er efni sem
endurnýjar brjósk auk
þess sem í því er eitt
algengasta byggingar-
efnið í liðbrjóski. Bæði
þessi efni hamla bólgu-
myndun og eru talin
v inna gegn s l i tg igt .
M A G N A
LÝSI hf www.lysi.is
N
O
N
N
I
O
G
M
A
N
N
I
|
Y
D
D
A
N
M
0
5
7
5
3
/s
ia
.i
s
Spurning: Lesandi vildi fá að vita
um húðkrabbamein, hvernig það
breiðist út og hvaða afleiðingar
það getur haft að fá það.
Svar: Húðkrabbamein er af fjór-
um aðaltegundum, algengast er
grunnfrumukrabbamein en síðan
koma flöguþekjukrabbamein,
sortuæxli og Kaposi-sarkmein.
Mikilvægt er að sem flestir hafi
hugmynd um hvernig þessi æxli
líta út til að fólk geti leitað til
læknis í tæka tíð.
Grunnfrumukrabbamein (basal
cell carcinoma) geta verið af
nokkrum undirflokkum og sama
lýsingin á ekki við þá alla, þau eru
oftast fáeinir mm að stærð þegar
eftir þeim er tekið. Þau geta verið
flöt, rauð, hrukkótt, hreistrug og
með örsmáum sárum eða þau geta
byrjað sem lítil kúla eða bóla sem
ekki hverfur og stundum blæðir
úr eða þau geta verið flöt og hvít
eða gul vegna bandvefsmynd-
unar. Grunnfrumukrabbamein
geta líka verið einhvers konar
blanda af þessu sem lýst hefur
verið en þau hafa alltaf tilhneig-
ingu til að mynda sár sem blæðir
úr og þau geta minnkað og stækk-
að svo aftur. Þessi krabbamein
dreifa sér yfirleitt ekki með mein-
vörpum en þau eru hættuleg ef
þau ná að vaxa inn í undirliggj-
andi vefi eins og t.d. hauskúpu.
Meðferð er fólgin í því að fjar-
lægja æxlið og nánasta umhverfi
þess en þessi krabbamein hafa
vissa tilhneigingu til að taka sig
upp aftur á sama stað.
Flöguþekjukrabbamein
(squamous cell carcinoma) er
næst algengasta tegund húð-
krabbameina. Tæplega 1% af
þeim sem fá sjúkdóminn deyja af
hans völdum og þó svo að þessi
tala kunni að virðast lág, kemur á
móti að fjöldi þeirra sem fá þessa
krabbameinstegund er mikill.
Þetta krabbamein lýsir sér oftast
sem þykkni eða útvöxtur (æxli),
stærðin getur verið frá örfáum
mm upp í nokkra cm, æxlið getur
valdið roða og ertingu og það er
oft hreistrað og viðkvæmt og við
hnjask getur auðveldlega blætt úr
því. Meira en helmingur þessara
æxla eru á höfði eða hálsi en hin
eru dreifð um önnur líkamssvæði
sem eru útsett fyrir sólarljósi.
Þessi æxli geta dreift sér um lík-
amann en ef þau eru fjarlægð með
skurðaðgerð ásamt nærliggjandi
vefjum fá 90% sjúklinganna var-
anlegan bata eftir fyrstu aðgerð.
Sortuæxli (melanoma) eru
sjaldgæfari en jafnframt mun
hættulegri en þær tegundir húð-
krabbameins sem lýst hefur verið.
Tíðni sortuæxla vex einna hraðast
allra krabbameina á Vestur-
löndum og þessi tegund húð-
krabbameins er orðin verulegt
heilbrigðisvandamál. Talið er að
rekja megi flest sortuæxli til út-
fjólublás ljóss frá sólinni eða
ljósalömpum en einnig virðist
vera nokkuð sterkur erfðaþáttur
til staðar. Sortuæxli eru sjaldgæf
undir 14 ára aldri en verða síðan
sífellt algengari með hækkandi
aldri. Um helmingur sortuæxla
myndast úr fæðingarbletti eða
freknu en hinir koma þar sem
ekkert slíkt var fyrir. Mörg sortu-
æxli greinast meðan þau eru mjög
lítil, oft minni en 1 mm, og eru þá
batahorfur góðar. Nokkur atriði
einkenna útlit þessara æxla, þau
sem skipta mestu máli er stækk-
andi blettur með óreglulega lögun
og tenntar brúnir, margvíslegir
litir (brúnt, svart, blátt og bleikt)
sem taka breytingum, smávegis
roði og hrúðurmyndun með blæð-
ingum af og til. Sortuæxli eru ekki
upphleypt í byrjun en verða það
stundum þegar þau stækka. Þessi
lýsing getur hjálpað við greiningu
á flestum sortuæxlum en ekki má
gleyma því að sum sortuæxli
passa ekki allskostar við lýs-
inguna. Mestu máli skiptir að
greina þessi æxli nógu snemma
og fjarlægja þau ásamt svæðinu
umhverfis. Þegar þessi æxli ná að
dreifa sér finnast fyrst meinvörp í
nálægum eitlum og þess vegna
eru slíkir eitlar fjarlægðir ef þeir
eru stækkaðir.
Kaposi-sarkmein er sjaldgæf
tegund húðkrabbameins sem hef-
ur fengið aukið vægi á síðari árum
vegna þess að það er stundum
fylgikvilli alnæmis.
Aukning á tíðni húðkrabba-
meins hefur verið svo mikil á und-
anförnum áratugum að henni hef-
ur verið líkt við faraldur. Á
Bretlandseyjum hefur tíðni húð-
krabbameins meira en þrefaldast
á sl. 15 árum og í Bandaríkjunum
gera menn ráð fyrir að annar hver
einstaklingur fái húðkrabbamein
fyrir 85 ára aldur. Það sem virðist
skipta mestu máli er sólböð og
ljósaböð fyrir tvítugsaldur, er
setja af stað frumubreytingar
sem síðan koma fram sem húð-
krabbamein 30–60 árum síðar.
Hér skiptir miklu að lífskjör fólks
á Vesturlöndum hafa breyst mjög
á síðustu 50 árum en það hefur
aukið frístundir og möguleika á
sól- og ljósaböðum. Einnig skiptir
máli að klæðaburður fólks hefur
breyst á þann veg að sólarljósið
nær til stærri hluta líkamans en
áður þekktist. Einnig koma við
sögu erfðir og eflaust fleiri þættir
sem við skiljum ekki ennþá.
Hversu hættulegt
er húðkrabbamein?
MAGNÚS JÓHANNSSON LÆKNIR SVARAR SPURNINGUM
Húðkrabba líkt
við faraldur
Lesendur Morgunblaðsins geta spurt lækn-
inn um það sem þeim liggur á hjarta. Tekið
er á móti spurningum á virkum dögum milli
klukkan 10 og 17 í síma 5691100 og bréfum
eða símbréfum merkt: Vikulok. Fax
5691222. Einnig geta lesendur sent fyrir-
spurnir sínar með tölvupósti á netfang
Magnúsar Jóhannssonar: elmag@hot-
mail.com.
TÓLF íslenskir læknar eru að hefja
rannsókn á því hvort virkni lyfs við
sykursýki af tegund 2 geti verið
breytileg milli einstaklinga að teknu
tilliti til mismunandi erfðaeiginleika
þeirra. Niðurstaða rannsóknarinnar
getur leitt til þess að farið verði að
„klæðskerasníða“ lyf við þessum
sjúkdómi eftir erfðasamsetningu
sjúklinga.
Rannsóknin er liður í samnorrænni
rannsókn á áhrifum sykursýkislyfsins
Actos, sem er gefið sjúklingum með
sykursýki af tegund 2. Rannsóknin
mun ná til u.þ.b. 100 sjúklinga hér á
landi og alls 1.250 sjúklinga í Dan-
mörku, Noregi og Svíþjóð.
Sykursýki af tegund 2 er arfgengur
sjúkdómur og vitað er að ákveðin gen
hafa áhrif á framvindu sjúkdómsins,
ásamt óhollum lifnaðarháttum. Syk-
ursýki af þessari tegund einkennist af
háum blóðsykri og í upphafi er sjúk-
lingum ráðlagt að breyta mataræði og
hreyfa sig meira. Dugi það ekki eru
tekin sykursýkislyf til inntöku. Lyfin
hafa mismunandi verkun en stuðla öll
að lækkun blóðsykurs.
Óhollir lifnaðarhættir
ýta undir sjúkdóminn
Vegna þess hve erfðir ráða miklu
um framvindu sýkursýki af tegund 2,
ákvað framleiðandi Actos, lyfjafyrir-
tækið Eli Lilly, að hlutast til um þessa
samnorrænu rannsókn. Niðurstaða
hennar getur leitt til þess að með
blóðprufu og klínískri skoðun geti
læknir séð fyrirfram hvort lyfið henti
viðkomandi sjúklingi eða ekki. Niður-
staðan getur ennfremur flýtt fyrir
þróun lyfja sem taka mið af mismun-
andi erfðaeiginleikum sjúklinganna.
Á vissan hátt er þar mörkuð ný braut
í þróun lyfja sem verða nánast klæð-
skerasaumuð fyrir hvern sjúklinga-
hóp.
Actos er tiltölulega nýtt lyf sem
eykur næmi fyrir insúlíni og þar með
upptöku insúlíns í vefjum líkamans.
Af þessum sökum getur virkni Actos
verið breytileg vegna mismunandi
erfðaeiginleika.
Alþjóðaheilbrigðisstofnunin,
WHO, hefur opinberlega lýst yfir því
að áunnin sykursýki, þ.e. sykursýki af
tegund 2, ógni velferð þeirra sem
komnir eru yfir miðjan aldur, eru yfir
kjörþyngd eða eiga ættingja með syk-
ursýki.
Hluti rannsóknarhópsins, þegar hann kom saman í fyrsta skipti fyrir
skömmu til að leggja á ráðin um framkvæmdina. Til vinstri má sjá Hörð
Björnsson lækni, Gunnar Valtýsson lækni, Rafn Benediktsson lækni,
Sólveigu H. Sigurðardóttur lyfjafræðing og Ragnar Gunnarsson lækni.
Verða lyf „klæðskerasaumuð“ fyrir sjúklingahópa?
Ný íslensk rannsókn á
erfðaþáttum sykursýki A
Ð STUNDA göngu er af mörgum
talin hollasta líkamsræktin. Ganga
er í senn einföld og örugg og hana
geta nær allir iðkað, sama á hvaða
aldri. Ef gengið er rösklega er auk
þess hægt að ná sama árangri í þoli og með
hlaupum, hjólreiðum eða þolfimi – án þess að
álagið valdi meiðslum.
Kostir þess að stunda göngu
Þú ert ekki bundin/n við að fara út að ganga
á ákveðnum tíma. Þú getur þess vegna þjálf-
að þig í göngu að nóttu til ef það hentar.
Þú getur þjálfað á mismunandi stöðum, allt
eftir því hvað hentar þér og hugur segir til
um hverju sinni.
Einu tækin sem þarf eru góðir skór. Ganga er því ódýrasta líkamsrækt
sem völ er á.
Þú getur þjálfað utandyra, sem er ómetanlegt. Flestir eru allt of mikið
inni en það er nauðsynlegt að fara út og anda að sér fersku, súrefnis-
ríku lofti reglulega. Hafðu í huga að þú býrð á Íslandi; láttu veðrið ekki
halda aftur af þér heldur klæddu þig samkvæmt því.
Aukakílóin, ef einhver eru, fjúka burt. Ekki segjast hafa þrautreynt all-
ar megrunaraðferðir eða kaupa enn eina ,,töfralausnina“ ef þú hefur
ekki prófað að fara í röska göngu þrisvar eða oftar í viku í einn mánuð.
Þú styrkist líkamlega og dregur stórlega úr líkunum á að fá ýmsa sjúk-
dóma, s.s. hjarta- og æðasjúkdóma, háþrýsting, beinþynningu og ýmis
stoðkerfisvandamál. Ganga, eins og önnur hreyfing, getur einnig bætt
marga þessa sjúkdóma
Þú sefur betur og bætir andlega líðan. Um leið ertu að vinna gegn
kvíða, streitu og þunglyndi.
Hver og einn getur þjálfað göngu á sínum forsendum og sett sér mark-
mið við hæfi. Skynsamlegt er að byrja á að fara í göngutúr t.d. þrisvar
sinnum í viku í nokkrar vikur og lengja gönguferðirnar og fjölga þeim
smátt og smátt. Þær verða að ómissandi vana að skömmum tíma liðnum
og eftir því sem gönguþolið eykst því meira nýtur maður göngunnar.
Landlæknisembættið í samvinnu við: Manneldisráð – Ísland á iði 2002 – Sjúkra-
þjálfunarskor Háskóla Íslands og Íþróttafræðasetur Kennaraháskóla Íslands
Heilsan í brennidepli
Farðu út að ganga
Byrjaðu að ganga
strax í dag með
skynsemi og þolin-
mæði að leiðarljósi
APA með ígrædda örflögu á stærð
við fingurnögl hefur tekist að færa
bendil á tölvuskjá með hugsuninni
einni. Hér er um að ræða tilraunir,
sem vísindamenn við Brown-
háskóla hafa gert á öpum og vekja
vonir um að síðar meir verði hægt
að gera lömuðum kleift að stjórna
flóknum tækjum með huganum.
Svipað tæki til að stjórna bendli
hefur þegar verið grætt í menn, en
vísindamennirnir í Brown-háskóla
notuðu grennri víra og mældu
færri nevrónur við vinnu sína.
Þrír apar fengu ígræðslu
Rannsóknin fór þannig fram að
kubbarnir voru græddir í þrjá apa.
Fyrst voru þeir notaðir til að
greina merki, sem komu frá þeim
hluta heilans, sem stjórnar hreyf-
ingum, á meðan aparnir notuðu
stýripinna til að stjórna bendlinum.
Því næst voru þessi merki notuð til
að búa til forrit, sem gerði einum
apanna kleift að hreyfa bendilinn
með heilanum.
Tilraunin tók
marga mánuði,
en mðan á henni
stóð hreyfði ap-
inn bendilinn
með því að hgsa
og notaði hann
til að snerta
punkta, sem birtust á skjánum. Að
launum hlaut apinn appelsínusafa.
Niðurstöður tilraunarinnar birt-
ust í tímaritinu Nature á fimmtu-
dag og skrifa vísindamennirnir,
sem hana gerðu, að þær lofi það
góðu að ætla megi að menn geti
þegar fram í sæki notað tækið.
John Donoghue, yfirmaður tauga-
vísindadeildar Brown-háskóla,
sagði að með áþekkri ígræðslu
mætti stjórna öllu, sem staðsetja
mætti með tveimur eða þremur
hnitum.
Eins og áður segir hafa svipaðar
rannsóknir verið gerðar á mönnum
og á það sömuleiðis við um apa og
nagdýr. Miguel Nicolelis, sem gert
hefur tilraunir í þessa veru á öpum,
sagði tilraunir vísindamannanna
við Brown lofa góðu og taldi þetta
sýna að nota mætti þessa tækni fyr-
ir menn, en taldi að það tæki milli
fimm og tíu ár að yfirfæra tæknina.
Virkja
hugsun apa
AP.