Morgunblaðið - 16.03.2002, Side 27

Morgunblaðið - 16.03.2002, Side 27
HEILSA MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. MARS 2002 27 15 - 50% afsláttur af fatnaði og fylgihlutum. Notaðir vélsleðar með ríflegum afslætti. Mikið úrval í sýningasal. Frábært verð á síðustu Yamaha sleðunum árg.200 1. Sími: 594 6000 SLEÐADAGAR NÝ RANNSÓKN þykir benda til þess að lyf, sem notuð eru til að lækka magn kólesteróls í blóði, bægi einnig frá Alzheim- er-sjúkdómnum. Niðurstöður rannsóknarinnar voru birtar í tímaritinu Archives of Neuro- logy og sýna að mikið magn kólesteróls virðist skaða heil- ann og leiða til andlegrar hrörnunar með svipuðum hætti og Alzheimer. Einnig kom í ljós að eldri konur, sem tóku lyf, sem kennd eru við statín og seld undir nöfnum á borð við Lipitor, Zocor og Mevacor, höfðu orðið fyrir minni and- legri hrörnun en þær, sem ekki höfðu notað lyfið. Frekari rannsókna þörf „Niðurstöður okkar styðja þá kenningu að statín kunni að koma í veg fyrir Alzheimer- sjúkdóminn,“ sagði dr. Krist- ine Yaffe, yfirlæknir í öldrun- argeðlækningum við Lækna- miðstöð uppgjafa hermanna í San Francisco. Rannsókninni var hins vegar ekki ætlað að kanna áhrif lyfjanna á andlegt ástand og sagði Yaffe að frek- ari rannsókna væri þörf til að komast að því hvort statín drægi í raun úr hættuni á að menn fái Alzheimer-sjúkdóm- inn. Rannsóknin tók einkum til hvítra kvenna með hjartasjúk- dóma og sögðu aðstandendur hennar að ekki væri ljóst hvort niðurstöðurnar ættu við um konur, sem ekki væru hvítar, karla eða fólk, sem ekki væri með hjartasjúkdóma. Ekki afgerandi niðurstöður Rannsóknin virðist benda til þess að samband sé milli kól- esteróls og Alzheimer, en Bill Thies hjá bandarísku Alzheim- er-samtökunum, segir að nið- urstöðurnar séu ekki afger- andi. Fyrri rannsóknir á sambandi kólesteróls og Alz- heimer hafa verið misvísandi. Hins vegar er ljóst að hátt magn kólesteróls getur þrengt æðar og aukið hættuna á hjartasjúkdómum. Sumir vís- indamenn telja einnig að mikið kólesteról hafi áhrif á æðar í heilanum og leiði til þess að prótein, sem nefnist beta- amyloid, safnist saman, en það er talið skaða heila Alzheimer- sjúklinga. Samband milli kól- esteróls og Alz- heimer? Chicago. AP.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.