Morgunblaðið - 16.03.2002, Qupperneq 37
UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. MARS 2002 37
LÆKNAR læra í
námi og starfi að ráð-
leggja fólki það sem
líklegt er að geri gagn
og byggt er á góðum og
viðurkenndum rann-
sóknaniðurstöðum.
Læknar hvetja einnig
til hollra lífshátta og
bætiefnataka getur
verið þáttur í því fyrir
marga. Stundum getur
verið óvissa um gagn-
semina, en þá er byggt
á því, að af inntökunni
verði ekki skaði og
hugsanlega einhver
bót. Aðrar heilbrigðis-
stéttir eiga að hafa
sama viðhorf. Ráðleggingar þeirra
til almennings eiga að byggjast á vís-
indalegum grunni. Í auglýsinga-
væddu samfélagi samtímans gleym-
ist þetta oft, einkum í von um
fjárhagslegan ágóða.
Dæmi um gleymskuna hafa und-
anfarið sést í umfjöllun og auglýs-
ingum, m.a. á síðum Morgunblaðs-
ins. Tveir virtir íslenskir prófessorar
hafa í samvinnu við aðra komið á
framfæri efnum, sem í öðru tilvikinu
eiga að hafa jákvæð áhrif á ýmsa
húðkvilla (Pensím-húðáburður) og í
hinu á inntaka unnin úr ætihvönn
(Angelica) að hressa og bæta líðan
neytandans. Hvorugt efnanna hefur
hlotið þá prófun í mönnum sem rétt-
lætir markaðssetningu þeirra, held-
ur er byggt á tilgátum úr tilraunum,
sem geta í besta falli gefið vísbend-
ingu um hvernig haga eigi fram-
haldsrannsóknum. Samt er látið að
því liggja að efnin geti haft jákvæð
áhrif með því að vitna til kenninga
um orsakatengsl sjúkdóma. Notaðir
eru vitnisburðir nokkurra ánægðra
notenda, sem telja sig hafa fengið
bót. Opinber umfjöllun og auglýsing-
ar af þessu tagi, hvort heldur er í
ræðu eða riti, í dagblöðum eða á Net-
inu, er ekki viðeigandi. Læknum
væri ekki stætt á því vegna þeirra
siðareglna sem þeir
verða að fylgja.
Það sama á við um
spánnýja opnuauglýs-
ingu í Morgunblaðinu
12. mars og hálfa síðu
14. mars. Þar er aug-
lýst ný vítamínblanda
handa körlum, „Well-
man“. Nú á að taka
karlana með trompi og
höfða til þess að þeir
þurfi aukinn þrótt,
meiri hraða og kraft,
orku og úthald, ekki
einasta í íþróttum og
við þolfimi, heldur líka í
erli dagsins, þar sem
hætt er við að menn
borði óreglulega og ástundi óholl-
ustu. Með þessu eiga karlmenn að
geta „fullnýtt orku sína“. Ónæmis-
kerfið á að styrkjast og frjósemi og
kynlíf að batna. Allt á þetta að lagast
með þessari stórkostlegu blöndu af
vítamínum, ginsengi, aminósýrum
og hvítlauk, enda byggt á vísindum.
Vísindin eru þó aðeins almennt
þekktar staðreyndir um vítamín og
snefilefni. Ekki er byggt á neinum
marktækum tilraunum, þar sem at-
hugað er hvort blanda af þessu tagi
hafi gildi umfram það að taka ekki
neitt, taka aðra ódýrari blöndu eða
bara drekka vatn. Margt í auglýsing-
unni, eins og það sem sagt er um
frjósemi og kynlíf, er með öllu ósann-
að. Auglýsinguna birta allar þrjár
meginlyfjabúðasamsteypur lands-
ins, þar sem háskólamenntaðir lyfja-
fræðingar sitja við stjórnvölinn. Þeir
ættu, í krafti þekkingar sinnar, að
geta aðgreint hvað er satt og rétt í
þessum efnum. En auglýsingin er
bara bein þýðing texta af vefsíðu
framleiðandans, fyrirtækisins Vita-
biotics í Englandi, með mynd og öllu.
Þetta er ágæt vítamínblanda og
ólíklegt að nokkrum verði meint af
henni, en það er hægt að kaupa 5–8
sinnum ódýrari íslenskar vítamín-
töflur. Það er með öllu ósannað að
þessi blanda geri nokkuð betra gagn.
Hver einasta Wellman-tafla kostar
nærri 50 kr. og ársskammturinn
18.218 kr.. Ég efast um að það kosti
meira en 5–10 kr. að framleiða
hverja töflu. Reynt er að ljá þessu
trúverðugleika með því að nefna til
mann, sem á heimasíðu enska fyr-
irtækisins virðist hinn mætasti pró-
fessor á eftirlaunum. Hversu mikið
hann hefur komið nálægt þróun
þessarar blöndu er ekkert sagt um.
Það vekur athygli, að auk lyfsölu-
samsteypnanna er ESSO nú einnig
farið að sækja inn á nýjan orkumark-
að, jafnvel að kynorku karla. Fyr-
irtækin fjögur gætu svo bætt við
blöndunni „Wellwoman“, sem er
auglýst sem sérstök nýjung fyrir
konur á ensku heimasíðunni.
Ég vil ekki letja íslenska karl-
menn til að taka vítamín. Það er ef-
laust ágætt fyrir marga. Kaupa má
margfalt ódýrari íslensk bætiefni.
En með heilbrigðu líferni, hollum
mat og góðri líkamshreyfingu þurfa
íslenskir karlmenn ekki endilega að
taka vítamín eða drekka ætihvönn í
alkóhóli. Svo mættu menn ganga eða
hjóla meira og spara aðra orku sem
fæst hjá ESSO.
Villandi auglýsingar
um óþarfa
Reynir Tómas
Geirsson
Höfundur er prófessor og for-
stöðulæknir á Landspítala –háskóla-
sjúkrahúsi og deildarforseti lækna-
deildar Háskóla Íslands.
Undralyf
Það er með öllu ósann-
að, segir Reynir Tómas
Geirsson, að þessi
blanda geri nokkurt
betra gagn heldur en
5–8 sinnum ódýrari ís-
lenskar vítamíntöflur.
HJÁLPARSTARF
kirkjunnar stendur
fyrir söfnun gegn al-
næmi dagana 17.–24.
mars undir kjörorðinu
Lífskraftur. Safnað er
til forvarnaverkefnis í
öllum grunnskólum
landsins í samvinnu
við Alnæmissamtökin
og fyrir hjálp við
sjúka og munaðarlaus
börn af völdum al-
næmis í Úganda. Safn-
að er í gegnum söfn-
unarsíma 907 2002.
Forvarnir
um allt land
Verkefnin hér heima og í Úg-
anda eru ólík. Við vonumst þó til
að þau snúi einmitt að því sem
mikilvægast er á hvorum stað. Hér
heima varð bylting þegar ný lyf
komu á markað og viðhorf til HIV-
smitaðra hafa smám saman breyst.
Sá óvænti vinkill er hins vegar
kominn á málin að fyrir vikið hefur
ungt fólk sem er að hefja kynlíf og
missti af fræðslu 9. áratugarins
sofnað á verðinum. Þeir sem gerst
þekkja til hafa orðið áþreifanlega
varir við þá skoðun í þeirra hópi að
smitist fólk af HIV-veirunni sé
bara hægt að taka lyf. Þetta er
hættulegur misskilningur sem Al-
næmissamtökin ráðgera að leið-
rétta – fái þau stuðning til. Hjálp-
arstarf kirkjunnar vill veita hann
− með þér og öðrum þeim sem láta
sig málið varða. Alnæmissamtökin
hafa reynsluna og nemendur eru
fróðleiksfúsir. Það hefur sýnt sig í
heimsóknum í grunnskóla í
Reykjavík þegar nemendur taka á
móti smituðum einstaklingi sem
fræðir um staðreyndir í bland við
eigin sögu. Með þátttöku í söfn-
uninni nú getur þú séð til þess að
reynsla samtakanna komi börnum í
efstu bekkjum grunnskóla, um allt
land, til góða.
Víðtækt
hjálparstarf
Fyrsta alnæmistilfellið í Úganda
var skráð í Rakai-héraði í suður-
hluta landsins 1982, en héraðið er
eitt af þeim fátækustu í landinu
þar sem 70% íbúa eru undir fá-
tæktarmörkum eða hafa minna enn
500 kr. í tekjur á viku. Sjúkdóm-
urinn breiddist hratt út, héraðið
liggur að landamærum og um það
fóru farandverkamenn, farand-
kaupmenn og langferðabílstjórar á
milli landa og landshluta. Þetta
hafði gríðarleg áhrif, bæði á heilsu-
far fólksins og félagslega- og efna-
hagslega stöðu þess. Stór hluti
ungs vinnufærs fólks veiktist og
féll frá. Eftir stóðu munaðarlaus
börn sem oft áttu í engin hús að
venda.
Margir
smitaðir
Enn breiðist alnæmi út með ógn-
arhraða í Afríku og fullyrt er að
um 4 milljónir manna hafi sýkst
1999. Í 16 löndum Afríku er meira
en einn tíundi fullorðinna smitaður
og í 7 löndum Afríku er talið að
einn af hverjum fimm séu HIV-
jákvæðir. Í Botsvana eru um 35%
fullorðinna sýktir af alnæmisveir-
unni og í Suður-Afríku fjölgaði
smituðum um 7% á tveggja ára
tímabili 1997–1999. Þrátt fyrir
þessar óhugnanlegu staðreyndir
bera aðgerðir árangur. Úganda
varð það land þar sem flestir voru
smitaðir en er nú 12. í röðinni ekki
síst vegna markvissra aðgerða
stjórnvalda og hjálparstofnana.
Mikil áhersla hefur verið lögð á að
þjálfa leiðbeinendur og fræða ungt
fólk svo og á félagslega upp-
byggingu og stuðning við sjúka og
fjölskyldur þeirra. Nú
er hlutfall smitaðra í
Úganda komið niður í
8,3 % úr 30% árið
1992 sem verður að
teljast góður árangur.
En björninn er fjarri
því unninn. Eftir
standa 1,7 milljónir
munaðarlausra barna
sem er það mesta í
löndum Afríku. Á
hverju ári fæðast
30.000 HIV-smituð
börn. Fullorðnir sem
veikir eru af alnæmi
þurfa aðhlynningu.
Neyðin er brýn og
hjálpar er þörf.
Heimili þar sem
börn eru í forsvari
Heimilum þar sem börn eru í
forsvari fjölgar stöðugt. Þótt fjöl-
skyldutengsl í Afríku séu oftast
mjög sterk er víða svo komið að
engra fullorðinna ættingja nýtur
við. Í Rakai-héraði hefur fjöldi
munaðarlausra barna aukist um
9% frá 1995 og eru nú 38.700 börn
þar skráð munaðarlaus. Oft verða
þessar „barnafjölskyldur“ fyrir
áreiti og yfirgangi annarra. Börnin
skortir föt, fæði, húsnæði og virð-
ingu annarra. Mörg eru í tilfinn-
ingalegu ójafnvægi og þörf fyrir
umhyggju, leiðbeiningar og kær-
leika einhvers sem eldri er, er mik-
ill. Þessi börn hætta oft skólagöngu
og ókunnugir misnota veika stöðu
þeirra. Söfnunarfé nú verður varið
þeim til stuðnings, en Lútherska
heimssambandið sem Hjálparstarf
kirkjunnar er aðili að hefur um
árabil rekið samfélagslega aðstoð í
Rakai-héraði og sérverkefni þar
gegn alnæmi. Það hefur verið í
formi ráðgjafar og efnalegra
styrkja. Börnin fá aðstoð við að
reisa og halda við húsum sínum,
þau fá aðstoð við að sjá fyrir sér,
ganga í skóla, eignast akurspildu
og læra eitthvert handverk. Ráð-
gjafar fylgjast reglulega með þess-
um fjölskyldum og veita börnunum
handleiðslu og leiðbeina á marg-
víslegan hátt. Á fjórða hundrað
„barnafjölskyldur“ fá nú reglulega
aðstoð og ráðgjöf á því svæði sem
Hjálparstarf kirkjunnar hyggst
styrkja.
Ísland, Úganda, söfnunarfé
skipt til helminga
Hjálparstarf kirkjunnar hyggst
deila söfnunarfé í 907 2002 til
helminga milli verkefna hér heima
og í Úganda. Alnæmissamtökin
munu ráðstafa sínum hluta til for-
varna í grunnskólum um allt land
en Lútherska heimssambandið sem
Hjálparstarf kirkjunnar er aðili að
sér um verkefnið í Úganda.
Ég hvet þig til að staldra við,
grípa símann og hringja í 907 2002,
en þá leggur þú 1.000 kr. til barátt-
unnar gegn alnæmi. Auðvitað er
hægt að hringja eins oft og hver
vill og leggja þessu málefni lið eftir
vilja og getu.
Lífskraftur −
forvarnir
gegn alnæmi
Jónas Þórir
Þórisson
Höfundur er framkvæmdastjóri
Hjálparstarfs kirkjunnar.
Hjálparstarf
Verkefnin hér heima,
og í Úganda eru ólík,
segir Jónas Þórir
Þórisson, en við von-
umst til að þau snúi ein-
mitt að því sem er mik-
ilvægast á hvorum stað.
Á VORMÁNUÐUM
hvers árs stendur fólk
á öllum aldri frammi
fyrir því að velja sér
háskólanám. Fyrir
suma reynist valið
auðvelt en það reynist
erfiðara fyrir aðra.
Fyrir þá sem eru að
velta því fyrir sér
hvaða háskólanám
þeir eiga velja og hina
sem eiga eftir að
skipta nokkrum sinn-
um um skoðun fram á
vor vil ég benda á
námið sem ég valdi og
sé alls ekki eftir. Það
er þroskaþjálfanám til
BA-gráðu við Kennaraháskóla Ís-
lands. Þroskaþjálfanámið er
þriggja ára nám sem veitir þeim
sem því ljúka starfsréttindi sem
þroskaþjálfar. Markmiðið með
þroskaþjálfanáminu er að verðandi
þroskaþjálfar öðlist þekkingu og
hæfni í starfi með börnum, ungling-
um og fullorðnum með fötlun. Inni-
hald þroskaþjálfanámsins skiptist
að mestu í fjögur svið sem eru:
uppeldisgreinar, heilbrigðisgreinar,
þroskaþjálfun og vettvangsnám. Í
uppeldisgreinunum er mikil
kennsla í þróunarsál-
fræði þar sem nem-
endum er kennt um öll
æviskeið mannsins. Í
uppeldisgreinunum er
einnig mikil áhersla
lögð á samtalstækni,
samskipti og sam-
vinnu. Í heilbrigðis-
greinunum er áherslan
þríþætt, það er í
fyrsta lagi kennsla um
starfsemi líkamans. Í
öðru lagi umfjöllun um
umönnun í starfi með
fólki með fötlun og í
þriðja lagi umfjöllun
sjúkdóma. Í þeim
greinum sem falla
undir þroskaþjálfun fá nemendur
fræðslu um orsakir og eðli mismun-
andi fatlana sem og kennslu í
vinnubrögðum þroskaþjálfunar sem
gerir nemendum kleift að tileinka
sér viðhorf, þekkingu og færni til
að geta lagt faglegan grunn að
undirbúningi og útfærslu þroska-
þjálfunar. Bæði gömul og ný hug-
myndafræði í málefnum fólks með
fötlun er kennd sem og rannsóknir
á fötlun frá mörgum mismunandi
sjónarhornum. Nemendur fara í
vettvangsnám á vormisserum ann-
ars og þriðja árs og vinna verkefni
í tengslum við það. Vettvangsstaðir
þroskaþjálfanema eru margvíslegir
eins og starfsvettvangur þroska-
þjálfa, svo sem á sambýlum, í dag-
þjónustu fyrir fólk á öllum aldri, í
leikskólum, grunnskólum og hjá fé-
lagsþjónustu sveitarfélaga svo eitt-
hvað sé nefnt.
Fyrir þá sem áhuga hafa á að
kynna sér þroskaþjálfanámið betur
bendi ég á heimasíðu Kennarahá-
skóla Íslands http://www.khi.is og
háskólakynninguna sem verður í
Odda sunnudaginn 17. mars næst-
komandi.
Þroskaþjálfanám
Elfa Björk
Gylfadóttir
Höfundur er þriðja árs nemi
í þroskaþjálfun í KHÍ.
Háskólakynning
Þroskaþjálfanámið er
þriggja ára nám, segir
Elfa Björk Gylfadóttir,
sem veitir þeim sem því
ljúka starfsréttindi sem
þroskaþjálfar.