Morgunblaðið - 16.03.2002, Page 60
MINNINGAR
60 LAUGARDAGUR 16. MARS 2002 MORGUNBLAÐIÐ
✝ SæmundurBjörnsson fædd-
ist í Grænumýrar-
tungu 29. janúar
1911. Hann lést á
Sjúkrahúsinu á
Hvammstanga hinn
11. mars síðastliðinn.
Foreldrar hans voru
Björn Þórðarson þá í
Grænumýrartungu,
Bæjarhreppi í
Strandasýslu og síðar
bóndi í Gilhaga í
sömu sveit, f. 19. júní
1879, d. 14. des. 1935
og kona hans, Sólveig
Sigurbjörg Sæmundsdóttir, f. 7.
janúar 1882, d. 23. sept 1923, frá
Vatnagörðum í Garði í Gullbringu-
sýslu. Systkini Sæmundar: Sigríð-
ur Elín, f. 26. nóv. 1906, d. 18. sept
1907. Júlíana Kristbjörg, f. 2. feb.
1908, d. 10. apríl 1999. Þórunn Val-
gerður, f. 22. feb. 1917, d. 17. feb.
1984. Sigríður, f. 15. maí 1919, bú-
sett í Reykjavík.
Sæmundur giftist 27. desember
1932 Þorgerði Steinunni Tómas-
dóttur, f. 5. júní 1906 í Hrútatungu,
d. 17. júní 1974. Foreldrar hennar
voru Tómas Þorsteinsson, f. 16.
jan. 1867, d. 24. ágúst 1941, og
Guðrún Jónsdóttir, f. 12. júlí 1861,
d. 22. sept. 1935. Þorsteinn og
Ólöf, foreldrar Tómasar, hófu bú-
skap í Hrútatungu 1863. Börn Sæ-
mundar og Þorgerðar: 1) Sólveig
Sigurbjörg, f. 6. maí
1933, d. 8. maí 1985,
maki Jón Bjarni
Ólafsson, börn þeirra
eru: Kristrún Jóna, f.
19. okt. 1958, sam-
býlismaður Guð-
mundur Arason, bú-
sett í Borgarnesi.
Fósturdóttir þeirra
Ísfold Grétarsdóttir.
Sæmundur, f. 25. maí
1963, maki Kristín
Anna Kristjánsdótt-
ir, búsett í Borgar-
nesi. Börn þeirra eru
Jón Kristján og Sól-
veig Sigurbjörg. 2) Tómas Gunnar,
f. 5.apríl 1942, d. 1. janúar 1943. 3)
Tómas Gunnar, f. 30. mars 1945,
maki Sigrún Erna Sigurjónsdóttir,
búsett í Hrútatungu. Börn þeirra
eru: Sigurjón, f. 18. ágúst 1975,
Þorgerður, f. 7. október 1978, sam-
býlismaður Brynjar Örn Sig-
mundsson. Arndís, f. 3. september
1981.
Sæmundur og Þorgerður stund-
uðu búskap í Hrútatungu frá því
þau giftu sig þar til Þorgerður lést.
Eftir það var hann til heimilis hjá
Gunnari og Sigrúnu og börnum
þeirra og gekk að bústörfum með-
an kraftar entust. Síðustu mánuð-
ina dvaldist hann á Sjúkrahúsinu á
Hvammstanga. Útför Sæmundar
fer fram frá Staðarkirkju í dag og
hefst athöfnin kl. 14.
Elsku afi, þá ertu búinn að
kveðja eftir stutt veikindi. Það var
nú það sem þú vildir, að þurfa ekki
að lifa meðvitundarlaus lengi. Sem
betur fer fékkstu þá ósk uppfyllta.
Seinustu skiptin sem við komum til
þín á Sjúkrahúsið á Hvammstanga
varstu ótrúlega hress og auðvitað
vildir þú fá að vita hvað væri að
gerast í sveitinni, heima og hvernig
okkur krökkunum gengi. Þú munt
lifa í minningunni sem góður og
hress karl sem vildi allt fyrir okkur
gríslingana gera. Ætíð varstu mikill
hestakall, alveg fram á seinasta
dag, það var enginn annar en þú
sem smitaðir mann af hestadell-
unni. Þegar við vorum pínulítil peð
varstu strax farinn að kenna okkur
allt um hesta og hvernig maður ætti
að umgangast þá. Á veturnar þegar
lítið var um útreiðartúra var maður
bara drifinn á bak inni í hesthúsi til
að fá smáfíling. Þegar sumarið kom
voru klárarnir allir járnaðir og ef
þeir voru með einhverja óþekkt var
maður bara látinn vera á baki með-
an verkið var klárað. Svo var haldið
út í náttúruna og fyrstu ferðirnar
voru í taumi hjá þér. Svo þegar
klárarnir fóru að þreytast var
taumnum sleppt og þá átti maður
að hvetja þá áfram og ekki vera á
eftir, það voru skilaboðin þín, ekki
láta klárana komast upp með ein-
hverja leti eða kergju. Þegar þú
sást að við systurnar vorum komn-
ar með hestadelluna fórstu að
smíða fyrir okkur beisli og tauma,
því þú varst mjög laghentur og góð-
ur í söðlasmíði. Við systurnar eigum
því okkar beisli sem við höfum alla
tíð notað. Einnig útvegaðir þú okk-
ur sinn hnakkinn hvorri og allar
aðrar alvöru græjur sem þurfti í
hestamennskuna. Á tímabili vorum
við systurnar svo iðnar við að
stunda hestamennskuna að farið
var á hverjum degi, jafnvel oftar, og
alltaf varstu þolinmóður að hjálpa
okkur að leggja á, herða gjörðina
aðeins betur svo allt væri í lagi áður
en lagt væri af stað í hefðbundna
rúntinn í kringum túnið. Oftast
komstu þó með okkur sjálfur og
rifjast upp þegar þú fékkst okkur
til að koma með þér í girðinga-
viðgerðir, tókum við þá okkur hesta
til reiðar, byrjuðum svo á því að
fara í sjoppuna og kaupa nammi,
það fannst manni vera voða mikið
sport að fara í sjoppu á hestbaki til
að kaupa nesti. Hestarnir voru þitt
líf og yndi og það hélt þér lengi
gangandi að skreppa í hesthúsið,
moka og gefa klárunum, enda
þekktu þeir sinn mann. Alveg fram
á seinustu ár áttir þú hesta og
fórstu seinast á bak 89 ára gamall,
þótt stirður værir og það tæki sinn
tíma að komast á bak þá hamlaði
það ekki viljanum til að bregða sér
á gott tölt eða brokk. Eitt sinn kom
Gerða heim í helgarfrí á föstudags-
eftirmiðdegi og þá varstu einn
heima. Farið var að spjalla og kom
það upp úr dúrnum að þú hafðir
verið frekar slappur nóttina áður.
Þú sagðist þá hafa hugsað þér að
fara með bæn, en ekki munað neina
þá stundina og tautaðir þess í stað
eina hestavísu, og já, þú varst ekki
frá því að það hefði virkað ágæt-
lega, allavega áttirðu marga góða
daga eftir það.
Alla tíð varstu að fræða mann á
alls konar sögum frá gömlum tím-
um og þú varst ótrúlega ern alveg
fram á síðustu daga. Ósjaldan leit-
aði fólk í visku þína ef það vildi vita
eitthvað um gamla tíma og það gat
verið gaman að sitja við eldhús-
borðið heima og hlusta á sögur af
gömlum prakkarastrikum og fleiru
skemmtilegu. Dísa átti eitt sinn að
skrifa ritgerð í skólanum um Holta-
vörðuheiði, þá var farið í visku-
brunninn þinn og þú gast frætt
hana um öll smáatriði sem sneri að
því þegar vegur var lagður yfir
heiðina. Fannst kennaranum það al-
veg ómetanlegt þegar hann las rit-
gerðina að upplýsingarnar hefðu
verið fengnar svona beint í æð frá
þér. Einnig áttir þú það til að taka
fólk í klippingu og munum við eftir
því sem börn að nágrannar komu í
Hrútatungu til að fá hársnyrtingu.
Þú tókst alltaf í nefið frá því við
munum eftir okkur og Dísa gleymir
því eflaust seint þegar hún var lítil
og fékk að prófa að taka í nefið hjá
þér, hún hefur ekki endurtekið
þann leik og mun líklega ekki gera.
Þó svo að þessi reynsla hafi ekki
verið neitt sérlega góð, var nú samt
eitthvað við tóbakið þitt, það var
nefnilega svolítið gaman að fara og
sópa herbergið hjá þér, það var
nefnilega þannig með þig og tób-
akið að þú hrúgaðir á handarbakið
og saugst svo af krafti en afgangn-
um var dustað af hendinni niður á
gólf. Eftir nokkra daga var svo
hægt að fara og sópa herbergið og
sjá hvað kæmi mikið tóbak undan
rúminu og oft fannst manni það
vera dágóður slatti í dós sem safn-
aðist saman.
Líklega var herbergið þitt heima
oftast rólegasti staðurinn á heim-
ilinu, allavega fannst köttunum nú í
seinni tíð vera afar þægilegt að
stinga sér þar inn ef litlir krakkar
komu í heimsókn en þá áttu þau
það til að skjóta sér í skúffuna í
rúminu þínu, já þeim fannst það
vera afar rólegur og öruggur stað-
ur. Þú hafðir lúmskt gaman af að
kisurnar skyldu leita þangað inn í
sængina þína þótt þú væri aldrei
sérlega mikill kattakarl. Eins hefur
það eflaust verið hjá okkur krökk-
unum, allavega átti Dísa það til
þegar hún var yngri að fá að gista
inni hjá þér í Sæmabekk þótt her-
bergið hennar væri næstum því
beint á móti.
Ekki gerðir þú mikið mál úr hlut-
unum, eitt atvik er mjög minnis-
stætt en það var þegar fjölskyldan
fór í veiði upp á Arnarvatnsheiði í 2
daga, en þú ákvaðst hins vegar að
vera heima. Þegar við komum aftur
úr ferðinni komst þú röltandi út úr
gamlabænum með póstinn undir
hendinni, þá hafðir þú læst þig úti
snemma þann dag. Þú tókst það nú
ekki nærri þér, þú náðir bara í
póstinn, grófst upp einhver gömul
gleraugu í gamlabænum og fórst að
lesa blöðin og dunda þér þangað til
við komum heim, það var nú ekki
stórmál þótt þú hefðir ekki fengið
vott eða þurrt hálfan daginn.
Alltaf varstu að gauka einhverju
að manni alveg fram á seinustu
skipti sem við hittumst, maður fór
varla í búð eða ferðalag svo þú viss-
ir að þú létir okkur ekki hafa ein-
hverja aura til að versla eitthvað
gott í gogginn, það vantaði ekki
góðvildina í garð okkar krakkanna.
Við systkinin erum sammála um að
það séu forréttindi að fá að alast
upp á sama heimili og afi manns,
það eru ekki margir sem hafa afa
eða ömmu á heimilinu frá fæðingu
og fram á fullorðinsár. Við höfum
alltaf haft þig hjá okkur á jólunum,
meira að segja nú seinast þótt heils-
unni hafi verið farið að hraka, enda
verður það skrýtið eftirleiðis að
hafa þig ekki til staðar. Seinast
þegar Gerða hitti þig sagði hún þér
frá því að hún væri að byggja brú
úr spýtum í skólanum og ætlaði hún
að koma með hana til að sýna þér
næst þegar þið hittust, enda varstu
alltaf áhugasamur um það sem við
vorum að gera. Ekki dugði sá tími
og þú sérð hana kannski ef þú ert á
sveimi í kringum okkur. Minning-
arnar hrannast upp, við gætum ef-
laust skrifað miklu meira, við eigum
endalaust margar góðar minningar.
Við erum viss um að núna ertu
kominn til ömmu og annarra náinna
ástvina hinum megin við móðuna og
þeysir um á gömlum, góðum gæð-
ingum. Við kveðjum í dag með
söknuði, en lifum með minningun-
um um þig.
Arndís, Þorgerður og Sigurjón.
SÆMUNDUR
BJÖRNSSON
MIKIL áhersla er lögð á, að handrit séu vel frá gengin, vélrituð eða
tölvusett. Sé handrit tölvusett er æskilegt, að disklingur fylgi útprent-
uninni. Það eykur öryggi í textameðferð og kemur í veg fyrir tvíverknað.
Þá er enn fremur unnt að senda greinarnar í símbréfi (569 1115) og í
tölvupósti (minning@mbl.is). Nauðsynlegt er, að símanúmer höfundar/
sendanda fylgi.
Um hvern látinn einstakling birtist formáli, ein uppistöðugrein af
hæfilegri lengd, en aðrar greinar um sama einstakling takmarkast við
eina örk, A-4, miðað við meðallínubil og hæfilega línulengd, – eða 2.200
slög (um 25 dálksentimetra í blaðinu). Tilvitnanir í sálma eða ljóð tak-
markast við eitt til þrjú erindi. Greinarhöfundar eru beðnir að hafa
skírnarnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum.
Frágangur afmælis-
og minningargreina
!!
!
!"!"#!
!!"#!
$
%&
$ % ! !"#
!
'(
)
)
%
* +(
,
!
"#"#$#
% & '&$#
"" !(!)
'&"(!)
* +# % $ ,
+
- +
."
+# / 012
' )
,(
% - ) .
!
/ &%
-
.
!
!"!"#!
%&
) "# ,
(
.
(
3 -(3-%(
44- / 56
)'7'
, 0
1
.
2!
-#8 % $
% $
3 8&% $
798% $
% :79 % $
$:9 : :9
: : :9 ,
3
*(
% +,%; (
' 7#
<6
)'7'
, % 4
2!
!
/ &
4 .
!
!"!"#!
% $$#
=% $$#
% $$#
+# % $$# ,
3
(
% ,4=
(
& ' '
.9$ 5
)'7'
0
1
2!
/ &%
4
&
!
!5!##!
'(
)
)
%
*$
**
,
6
7 8
!
"#&$#
'% % & $#
> ?.7 3$ .7
" ( 7$(
% $% $% $. $#
+# -#8$#
: :9 : : :9 ,