Morgunblaðið - 05.04.2002, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 05.04.2002, Blaðsíða 18
LANDIÐ 18 FÖSTUDAGUR 5. APRÍL 2002 MORGUNBLAÐIÐ sumarlitirnir Ekki eru allar sjónhverfingar gerðar með speglum og reyk. Með sanseringu og glimmer skapa Visual Illusion nagla-, augn- og varalitirnir sjónhverfingu sem mundi koma sjálfum Houdini á óvart. Engin töfrabrögð nauðsynleg. DAGMAR farðar og gefur öllum sem kaupa fyrir kr. 3.000 eða meira flotta snyrtibuddu frá HARD CANDY. Föstudag 5. apríl Snyrtivörud. Hagkaups Skeifunni Laugardag 6. apríl Snyrtivörud. Hagkaups Kringlunni Fimmtudag 11. apríl Snyrtivörud. Hagkaups Smáralalind Föstudag 12. apríl Snyrtistofa Hönnu Kristínar Laugardag 13. apríl Snyrtivörud. Hagkaups Smáralind www.forval.is KAUPFÉLAG Héraðsbúa tapaði tæpum 168 milljónum króna á síð- asta ári, en árið áður nam tapið 56 milljónum. Veldur greiðsluþrot Kjötumboðsins hf. þar mestu, en KHB tapaði þá á einu bretti 166 milljónum. Velta félagsins var á síðasta ári tæplega 2 milljarðar, en það er keim- líkt því sem var árið áður. Veltufé frá rekstri var neikvætt um rúmar 2 milljónir króna, en hefði orðið já- kvætt um 45 milljónir, ef ekki hefði komið til vandræða vegna málefna Kjötumboðsins. Áætlanir þessa árs gera ráð fyrir hagnaði af rekstri, auk söluhagnað- ar. Á fyrstu tveimur mánuðum þessa árs hefur KHB selt hlutabréf, auk þess að selja Mjólkursamlagið á Eg- ilsstöðum. Söluverð eigna er um 255 milljónir króna og söluhagnaður þar af 143 milljónir. Ýmsar sviptingar virðast vera inn- an félagsins um þessar mundir. Starfsfólk skrifstofu KHB sendi stjórn á dögunum stuðningsyfirlýs- ingu við fráfarandi kaupfélagsstjóra, Inga Má Aðalsteinsson, en hann sagði upp fyrir skemmstu. Bar hann fyrir sig slæma útreið KHB vegna málefna Goða/Kjötumboðsins og ágreining við stjórn félagsins. Mjög skiptar skoðanir eru hjá almennum félagsmönnum um réttmæti ýmissa ákvarðana kaupfélagsstjórans og stjórnar í Goðamálinu. Ingi Már hyggst við starfslok fara til Edin- borgar í viðskiptafræðinám. Þá hefur vakið athygli að stjórn- arformaður KHB, Jón Júlíusson, stjórnaði ekki síðasta fundi félagsins og mun ekki ætla sér að sinna frekari stjórnarstörfum fram að aðalfundi. Sögur herma að búið sé að finna nýjan kaupfélagsstjóra, en staðan hefur aldrei verið auglýst. Verður væntanlega upplýst um hver hreppir hnossið á aðalfundi félagsins í mán- aðarlok. Kaupfélag Héraðsbúa tapar 166 milljónum á Goða/Kjötumboðinu Brestir komnir í stjórn KHB Egilsstaðir TVEIR bátar skemmdust nokkuð þegar kúfiskskipið Fossá rakst á annan þeirra þegar skipið var á leið á veiðar seint að kvöldi annars páskadags. Þrengsli voru í höfninni á Þórshöfn og ætlaði skipstjórinn á Fossánni að bakka skipinu innar í höfnina og sigla svo beint út. Mjög hvasst var svo hliðarskrúfa Fossár hafði ekki undan vindinum og skip- ið rak undan vindi og afturhluti þess rakst á plastbátinn Draum. Annar bátur var bundinn við hann og skemmdust þeir því báðir. Í þessu hvassviðri rakst afturhluti Fossár líka í bryggjuna og tók í sundur á henni langband svo hún skemmdist einnig í þessu óhappi. Guðbjörn Magnússon er eigandi beggja smábátanna og var nýkom- inn að sunnan til að fara með þá á grásleppuvertíð. Stærri báturinn, Draumurinn, er nýr níu tonna plastbátur en hinn, Bylgjan, er sex tonn. Bátarnir voru hífðir upp til að kanna skemmdirnar á þeim og Guðbjörn fékk einnig starfsmann frá Siglingamálastofnun til að koma á staðinn og athuga hvort þeir væru haffærir. „Þetta var leið- indaóhapp í vertíðarbyrjun en búið er að gera þannig við bátana að þeir fengu haffærisskírteini til haustsins svo við drífum okkur á grásleppuna og trúum því að fall sé fararheill,“ sagði Guðbjörn glað- beittur. Morgunblaðið/Líney Sigurðardóttir Bylgjan hífð af bryggju eftir við- gerðina á bátnum sem er 6 tonn. Óhapp í höfninni Þórshöfn ÍSTAK hf. vinnur að gerð brim- varnargarðs við Húsavíkurhöfn um þessar mundir. Framkvæmdir hóf- ust í ágúst sl. og eru verklok áætluð samkvæmt verksamningi 30. sept- ember á þessu ári. Reinhard Reyn- isson, bæjarstjóri á Húsavík, sem jafnframt er hafnarstjóri segir framkvæmdir hafa gengið vel og verkið sé á áætlun. Garðurinn verð- ur u.þ.b 300 metrar að lengd og áætlaður kostnaður við hann er 463 milljónir króna. Í hann fara 275 þúsund m3 af efni, 137 þúsund m3 af kjarna og 137 þúsund m3 af grjóti og eru stærstu björgin allt að 30 tonn á þyngd. Kjarninn er tekinn úr Kötlum rétt sunnan og ofan við Húsavík, grjótið er aftur á móti tek- ið norðan við Húsavík eða í Hlíð- arhorni sem er í landi Mánár á Tjörnesi. Reinhard segir að tilgangur með gerð garðsins sé tvíþættur. „Í fyrsta lagi mun hann auka kyrrð innan hafnarinnar og þar með eykst nýting þeirra mannvirkja sem þar eru. Í öðru lagi er hann forsenda byggingar 150 metra stálþils innan á garðinum með 8–10 metra aðdýpi sem er á hafnaráætlun á næsta ári.“ Morgunblaðið/Hafþór Hreiðarsson Starfsmenn Ístaks hf. vinna að gerð 300 metra brimvarnargarðs á Húsavík, verkinu lýkur í lok september. Framkvæmdir við brim- varnargarð ganga vel Húsavík LJÓSMYNDASÝNING verður opnuð í dag kl. 18 á Hótel Höfða. Á sýningunni eru myndir frá meðlimum í Blaðaljósmynd- arafélagi Íslands og Ljósmynda- félagi Íslands. Í þessum félögum eru helstu fréttaljósmyndarar landsins ásamt fleirum sem taka myndir fyrir ýmis blöð sem gef- in eru út á Íslandi og verða ein- hverjir þeirra viðstaddir opn- unina. Sýningin var opnuð fyrir stuttu í Gerðasafni í Kópavogi, af forseta Íslands Ólafi Ragnari Grímssyni. Mikill fjöldi fólks hef- ur lagt þangað leið sína og ekki er að efa að íbúar Snæfellsness og gestir þeirra muni einnig njóta hennar á Hótel Höfða. Það er mikill heiður að fá sýn- inguna á Nesið en hún mun fara víðar um landið á vordögum. Sýningin verður væntanlega op- in í um tvær vikur á Hótel Höfða. Mikill velvilji var meðal fyrirtækja í Snæfellsbæ að styrkja uppsetningu á sýning- unni og eru þeim færðar bestu þakkir. Morgunblaðið/Alfons Hótel Höfði þar sem ljósmyndasýningin verður haldin. Ljósmyndasýning Ólafsvík Á FUNDI sem haldinn var með fulltrúum Landgræðslu ríkisins og bæjarstjórnar Vestmannaeyja nú nýverið voru kynntar niðurstöður í mati á beitilandi Heimaeyjar árið 2001. Í máli Sveins Runólfssonar landgræðslustjóra, en hann kynnti ásamt Garðari Þor- finnssyni helstu niðurstöður skýrslunnar, kom fram að Vestmannaeyjakaupstaður er fyrsta bæjarfélagið sem óskar eftir slíku mati á eigin landi, sem væri nýtt sem beitilönd. Í skýrslunni kemur fram að á Heimaey eru veður- og gróðurfarsleg skilyrði með því besta sem gerist á Íslandi. Hins vegar vegur á móti hagstæðum veðurskilyrðum m.a. brattlendi og veik jarð- vegsgerð, mikil veðurhæð og að jarðvegur er víða grunnur og rýr. Samkvæmt skýrslunni er almennt ástand beitilands á Heimaey gott víðast og óvíða um ofnýtingu að ræða. Ástand á beitilandi Heimaeyj- ar metið Vestmannaeyjar
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.