Morgunblaðið - 05.04.2002, Síða 23
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. APRÍL 2002 23
EINDREGINN stuðningur Georg-
es W. Bush Bandaríkjaforseta við
Ísraela hefur áunnið honum mikið
hrós frá helstu samtökum gyðinga í
Bandaríkjunum, en þeir greiddu
langflestir atkvæði gegn Bush í síð-
ustu forsetakosningum. Nokkrir
helstu málsvarar Ísraela í Banda-
ríkjunum segjast nú telja að Bush
hafi djúpa og einlæga samúð með
Ísrael. Segja þeir þessa samúð for-
setans eiga rætur í trúarhugmynd-
um hans, tilhneigingu hans til að
hugsa um hlutina í ljósi baráttu góðs
og ills og í ferð hans til Ísraels síðla
árs 1998.
„Vinir Ísraels meta mikils þá af-
stöðu sem ríkisstjórnin, undir for-
ystu forsetans, hefur tekið í því
neyðarástandi sem nú ríkir,“ sagði
Howard Kohr, framkvæmdastjóri
Bandarísk-ísraelsku nefndarinnar
(AIPAC), eindregnasta málsvara
Ísraels í Washington. Hann bætti
við, að ólíklegt væri að bandarískir
gyðingar hefðu búist við þessu af
stjórn Bush um það leyti er hann tók
við völdum.
Jafnan hallari undir demókrata
Útgönguspár í síðustu forseta-
kosningum sýndu að um 80% gyð-
inga, er fóru á kjörstað, greiddu Al
Gore og Joe Lieberman atkvæði sín,
sem var í samræmi við það að gyð-
ingar hafa jafnan verið fremur hallir
undir Demókrataflokkinn, og einnig
skipti máli að í þessum kosningum
var gyðingur, Lieberman, í fyrsta
sinn í framboði fyrir annan stóru
flokkanna.
Undanfarna daga hafa AIPAC og
önnur samtök gyðinga sent frá sér
yfirlýsingar þar sem fagnað er af-
stöðu Bandaríkjastjórnar, einkum
kröfum stjórnarinnar um að Yasser
Arafat Palestínuleiðtogi leggi harðar
að sér við að hafa hemil á hryðju-
verkamönnum. Einnig var fagnað
svohljóðandi yfirlýsingu sem forset-
inn gaf út sl. laugardag: „Ég hef full-
an skilning á þörf Ísraela fyrir að
verja hendur sínar.“
Sumir baráttumenn í röðum gyð-
inga telja þó að of langt hafi verið
gengið í hrósinu. „Þegar um er að
ræða sitjandi forseta, eiginlega al-
veg burtséð frá því hver það er, þá
vilja samtök gyðinga segja jákvæða
hluti um hann, sérstaklega þegar
maður er að reyna að fá aðgang að
Hvíta húsinu,“ sagði talsmaður gyð-
inga, er ekki vildi láta nafns síns get-
ið.
Sumir gyðingar gagnrýnir
Sum samtök gyðinga, er fylgja
demókrötum að málum, hafa gagn-
rýnt stjórnina fyrst og fremst fyrir
að hafa ekki fylgt eftir íhlutun henn-
ar í friðarumleitanir, og einnig fyrir
að gefa misvísandi skilaboð. Annars
vegar hafi Bandaríkjamenn krafist
þess að Arafat komi í veg fyrir
hryðjuverk, en hins vegar hafi
bandaríska utanríkisráðuneytið öðru
hvoru fordæmt Ísraela fyrir að beita
of mikilli hörku og Bandaríkjamenn
hafi staðið að ályktunum Sameinuðu
þjóðanna um að Ísraelar skuli hverfa
á brott frá palestínskum svæðum.
„Fólk lætur mjög mikið að sér
kveða, siðferðiskennd margra er of-
boðið vegna aðgerða Ísraela og
vegna þess að Bandaríkjastjórn að-
hefst ekkert nema hvetja Ariel Shar-
on undir rós með þessum rolulegu
yfirlýsingum um að sýna aðgát,“
sagði rabbíninn Michael Lerner, rit-
stjóri gyðingatímaritisins Tikkun og
stofnandi samtakanna Tikkun
Community, sem eru frjálslyndari
en AIPAC.
„Okkar afstaða er sú, að besta
leiðin til að fylgja Ísraelum að mál-
um sé að beita þá ástríkum aga, og
segja þeim, að þeir verði að draga
sig til baka frá Vesturbakkanum og
Gaza og leyfa Palestínumönnum að
stofna sitt eigið ríki,“ sagði Lerner.
Bandarískir gyðingar fagna stefnu
forseta síns í Miðausturlandadeilunni
Telja Bush hafa
einlæga samúð
með Ísrael
Washington. The Washington Post.
DONALD Rumsfeld, varnarmála-
ráðherra Bandaríkjanna, hefur for-
dæmt þá ákvörðun Íraksstjórnar
að hækka greiðslur hennar til fjöl-
skyldna ungra Palestínumanna
sem fórna lífi sínu í sprengjuárás-
um á Ísraela. Palestínumenn segja
hins vegar að það séu ekki pen-
ingar sem fái ungu mennina til að
gera sjálfsmorðsárásir, heldur
hefndarþorsti, trúareldmóður og
draumar um eilífa himnasælu.
Stjórn Saddams Husseins Íraks-
forseta ákvað 12. mars að hækka
greiðslurnar til fjölskyldna Palest-
ínumanna, sem sprengja sig í loft
upp til að vega óbreytta borgara,
úr andvirði milljónar króna í 2,5
milljónir. Fjölskyldur Palestínu-
manna, sem falla í átökum við ísr-
aelska hermenn, fá eftir sem áður
eina milljón króna.
Eftir að greiðslurnar voru hækk-
aðar hafa Palestínumenn gert að
minnsta kosti tólf sjálfsmorðsárás-
ir. Einn árásarmannanna varð 25
Ísraelum að bana þegar þeir sátu
að snæðingi á hóteli á páskahátíð
gyðinga. Fjölskyldur þriggja árás-
armannanna hafa þegar fengið
andvirði 2,5 milljóna króna frá
Írökum, að sögn fréttavefjar
MSNBC.
Flestir árásarmannanna eru
heittrúaðir múslímar og telja að
þeir fari til himna sem píslarvottar
og dvelji þar um alla eilífð í sam-
vistum við 72 hreinar meyjar. Eftir
árásirnar eru oft sýndar mynd-
bandsupptökur þar sem árásar-
mennirnir kveðja með því að lesa
kafla úr Kóraninum og lofa Allah.
Þeir sem ekki eru trúaðir vita að
verknaður þeirra færir fjölskyldum
þeirra skjall vina, nágranna og
annarra Palestínumanna.
Sterk hefndarþrá virðist einnig
vera kveikjan að mörgum árás-
anna. Ættingjar margra árásar-
mannanna segja þá hafa setið í ísr-
aelskum fangelsum á mótunar-
árunum eða orðið vitni að hrotta-
skap ísraelskra hermanna.
Mahmoud Safi, leiðtogi Arabísku
frelsisfylkingarinnar, palestínskrar
hreyfingar sem nýtur stuðnings
Íraka, viðurkenndi að greiðslurnar
til fjölskyldnanna hefðu auðveldað
sumum árásarmannanna að gera
upp hug sinn. „Sumir hafa stöðvað
mig á götunni og sagt að ef við
hækkum greiðslurnar [í andvirði
fimm milljóna króna] láti þeir strax
til skarar skríða,“ sagði Safi. Hann
bætti við að margir virtust segja
þetta í hálfkæringi.
Fá einnig peninga frá
Sádi-Arabíu og Katar
Safi og tveir aðrir menn frá Ar-
abísku frelsisfylkingunni heim-
sækja fjölskyldur árásarmannanna
og afhenda þeim peningana. „Við
förum til allra fjölskyldnanna og
færum þeim ávísanir. Við segjum
þeim að þetta sé gjöf frá Saddam
forseta og Írökum.“
Saddam Hussein hefur sagt að
Palestínumenn þurfi á vopnum og
peningum að halda en ekki frið-
artillögum og hefur stutt þá frá því
að uppreisn þeirra hófst fyrir einu
og hálfu ári. „Ég heyrði Saddam
segja í íraska sjónvarpinu að hann
myndi halda áfram að styðja upp-
reisnina jafnvel þótt það þýddi að
hann þyrfti að selja fötin sín,“
sagði Safi í viðtali við MSNBC.
Rumsfeld fordæmdi Saddam
Hussein í vikunni sem leið fyrir að
umbuna fjölskyldum ungra Palest-
ínumanna sem myrða saklaust fólk
í Ísrael. Fjölskyldurnar fá þó ekki
aðeins peninga frá Írökum. Góð-
gerðastofnanir Sádi-Araba og Kat-
arbúa, bandamanna Bandaríkja-
stjórnar, láta einnig fé af hendi
rakna til fjölskyldna Palestínu-
manna sem bíða bana í uppreisn-
inni, meðal annars í sjálfsmorðs-
árásum.
MSNBC hefur eftir móður eins
árásarmannanna að hún hafi fengið
andvirði milljónar króna frá Írök-
um og hálfrar milljónar króna frá
Sádi-Arabíu eftir að sonur hennar
reyndi að aka bíl, hlöðnum sprengi-
efni, á rútu gyðinga á hernumdu
svæðunum. Hún segist ætla að
nota peningana til að kaupa íbúð til
að fjölskylda hennar geti flutt úr
íbúðarholu sem hún hefur leigt í
rúm 20 ár. Hún segir að pening-
arnir sem hún fékk dugi fyrir
helmingnum af verði lítillar íbúðar
í borginni Nablus á Vesturbakk-
anum.
AP
Shaul Mofaz, yfirmaður ísraelska hersins (fyrir miðju), leggur á ráðin með undirmönnum sínum nálægt bænum
Tulkarem. Ísraelska varnarmálaráðuneytið hefur máð burt landakortið sem hermennirnir eru að rýna í.
Fjölskyldum hryðju-
verkamanna umbunað
’ Flestir árásar-mannanna telja að
þeirra bíði eilíf sæla
á himnum með 72
hreinum meyjum ‘
ATAL Behari Vajpayee, forsætis-
ráðherra Indlands, lét þung orð falla
í garð ráðamanna í indverska ríkinu
Gujarat í gær en hann heimsótti þá
höfuðstaðinn Ahmedabad. Skamm-
aði hann Narendra Modi ríkisstjóra
sérstaklega en Modi hefur verið sak-
aður um að gefa ekki nægilegan
gaum átökum hindúa og múslíma í
Gujarat undanfarnar vikur, en þau
hafa kostað 815 manns lífið.
Stjórnmálaflokkur Vajpayees,
BJP, fer með völd í Gujarat og því
vöktu ummæli hans athygli. Vajpay-
ee sagði að Modi ætti að beita ofbeld-
ismenn sömu viðurlögum, hvort sem
þeir væru hindúar eða múslimir.
Í fyrradag brunnu fimm múslímar
inni þegar hindúar kveiktu í þremur
húsum í þorpinu Abhasana. Ofbeld-
ishrinan í Gujarat hófst 27. febrúar
þegar múslímar kveiktu í lest sem
flutti hindúa frá borginni Ayodhya.
Hindúar hyggjast reisa hof í borg-
inni á stað þar sem þeir eyðilögðu
mosku frá 16. öld fyrir tíu árum.
Áfram ofbeldi í Gujarat
Ahmadabad. AFP.