Morgunblaðið - 05.04.2002, Page 29

Morgunblaðið - 05.04.2002, Page 29
ness dregur úr leiklistarsögunni inn í þetta verk.“ Kristín telur hæpið að samtíma- menn Halldórs Laxness hafi getað séð Strompleikinn í samhengi við þessa heimsvíðáttu leiklistarinnar og skilið vísanir hans í alþjóðlega leiklistarsögu. Halldór hafi verið allt of stór til að fólk hér hafi getað fengið yfirsýn yfir það sem hann var að gera, og að auki hafi hann verið eins og múraður inni í ákveðnum pólitískum heimi, sem flokkaði hann samkvæmt pólitísk- um formúlum. „Ég held að honum hafi verið gerður mikill grikkur með þessu, – og það voru ekki síður stuðningsmenn hans en pólitískir andstæðingar sem urðu þannig til að takmarka hann og lestur á verk- um hans. Þeir sáu ekki raunveru- lega það sem hann var að fást við, – leikhúsið sem slíkt, – heldur horfðu á þetta með mikilli nærsýni og blésu upp einhverjar tilbúnar vís- anir, allt of nálægar til að þær gætu orðið að einhverri stærð. Laxness var vissulega miklu stærri en það að vera bara að fjalla um tilvist Keflavíkurflugvallar eða eitthvað slíkt, – það hvarflar ekki að mér að hann hafi takmarkað sig þannig. Þess utan finnst mér staðsetning þessa verks í höfundarverki Lax- ness vera mjög merkileg. Á þessum tíma er hann að segja skilið við svo margt. Hann er í pólitísku uppgjöri alveg jafnt og bókmenntalegu upp- gjöri. Það eru miklar hræringar sem eiga sér stað í bakgrunni Strompleiksins. Ég er sannfærð um að það var ekkert hliðarverkefni hjá Laxness að skrifa leikrit, heldur var það ákvörðun hans, tekin í fullri al- vöru að gerast fullgildur leikritahöf- undur og starfa við það í framtíð- inni. Það hefur verið mjög fróðlegt að skoða Strompleikinn í samhengi við þetta pólitíska uppgjör, vegna þess að maður sér alveg hvernig hann er að afgreiða og klára gamalt dæmi. Munurinn á þessu verki og til að mynda Silfurtúnglinu er gríð- arlega mikill. Hér hefur hann sagt skilið við sósíalrealismann og pólitík 19. aldar skáldsögunnar og leikrit af sama toga. Mér finnst að frá og með Strompleik sé hann að fást við hluti í miklu stærra samhengi, og þannig markar verkið merkilegt þrep á hans ferli.“ Tími kominn til að skoða leik- verk Halldórs Laxness betur Kristín segir að samtími Laxness hafi ekki áttað sig á forsendum leik- hússins hvað Strompleikinn varðar, og að leikhúsheimurinn hér hafi þá haft þær væntingar að hann semdi „ibsensk freskuverk“ sem tilheyrðu 19. öldinni, en út úr þeirri hefð vildi Halldór Laxness einmitt komast. „Ég las einhvers staðar að Ólafur Jónsson gagnrýnandi sagði að leik- verk Laxness væru einhvers konar dæmi samkvæmt hugmyndafræði taósimans, en lausnin á dæmunum fælist eingöngu í þeirri skemmtan sem af þeim hlýst. Það er rétt. Halldór Laxness vildi ekkert frekar en að fólk næði verkunum á þeirri stundu sem það var að upplifa leik- húsið; – að það þyrfti ekki að mæta með lógaritmatöflur og heimspek- ing á öxlinni til að túlka verkin fyrir sig. Skilningurinn átti að koma hindrunarlaust; enda sagði hann sjálfur svo skemmtilega að hann hefði skrifað verkið fyrir sköllóttan skósmið og ljósku sem væri smink- uð eins og vikustaðið lík; – sem sagt almúgann, eins og hann orðaði það. Þetta stenst alveg, en svo bætir Ólafur því við að þetta séu engu að síður léttvæg verk, sem ég held að sé alls ekki rétt. Þetta fjallar um stórar grundvallarspurningar er varða okkur sjálf, bæði sem sam- félagsverur og manneskjur. Þannig held ég að það sé kominn tími til að menn skoði leikverk Halldórs Lax- ness aðeins betur. Ég las líka at- hyglisverða gagnrýni eftir Odd Björnsson eftir frumsýningu á Strompleiknum á sínum tíma. Hann sagðist hafa verið gjörsamlega ráð- þrota eftir að hafa horft á frumsýn- inguna og ekki vitað hvað hann ætti að halda. Verkið hafi þó haldið áfram að sækja á hann, og eftir þrjá sólarhringa og þrjár nætur undarlegra draumfara dreif hann sig aftur á sýninguna og þá stóðu alveg kristaltærar fyrir honum þessar nýjungar; – þetta leikhús sem þetta snýst allt um. Oddur var kannski eini maðurinn sem var ná- lægt því að átta sig á verkinu, enda stóð hann sjálfur í svipuðum spor- um og Laxness og var að ryðja sér nýjar brautir í leikritun.“ Dollararnir – skætt vopn Persónur í Strompleiknum eru litríkar og miðla allar skýrt því „ástandi“ sem skáldið lýsir í verk- inu. Þær eru fastar í ástandinu og komast hvergi. Kristín segist jafnan undrast hve mikill mannþekkjari Halldór Laxness hafi verið, hann dragi fram í dagsljósið undar- legustu fleti á mannlegu eðli. Frú Ólfer, sem Kristín segir rót svika- myllunnar sem fer í gang í verkinu, elur dóttur sína Ljónu upp með það í huga að dóttirin skaffi þeim lifi- brauð með því að lokka til sín karl- menn. Ávísun í dollurum er vopn Ljónu, – hún veit að um leið og hún veifar henni sópast að henni karl- menn; – og peningar. Hver á fætur öðrum falla karlarnir í gildruna. „Þetta eru persónur sem eru fulltrúar mannskepnunnar á öllum tímum,“ segir Kristín „og ekki síður í dag en þá. Halldór Laxness hefur haft mjög sterka framtíðarsýn og skilið vel eðli mannskepnunnar.“ Með hlutverk mæðgnanna Ólfer og Ljónu fara þær Sólveig Arnars- dóttir og Kristbjörg Kjeld, en þetta er frumraun Sólveigar í Þjóðleik- húsinu eftir að hún lauk námi sínu í leiklist í Þýskalandi. begga@mbl.is Heildsali lagður að velli. Sólveig Arnarsdóttir og Atli Rafn Sigurðarson í hlutverkum sínum. LISTIR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. APRÍL 2002 29 BIODROGA Bankastræti 3, sími 551 3635.Snyrtist. Lilju, Stillholti 16, Akranesi. Hjá Laufeyju, Hjarðarlundi 1, Akureyri. Jurta - snyrtivörur Nýr farði Silkimjúk, semi-mött áferð. 4 litir. Póstkröfusendum Vegna tiltektar á lager rýmum við fyrir nýjum vörum og höldum lagerútsölu á veiðarfærum í 4 daga Allt á að seljast Gjafverð Skipholti 25 SKIPHOLT N Ó AT Ú N BRAUTARHOLT LAUGAVEGUR Miðvikudag kl 13-17 Fimmtudag kl. 10-12 & 13-17 Föstudag kl. 10-12 & 13-17 Laugardag kl. 12-16 Frábær tilboð - Þú mátt ekki missa af þessu 96 1 / TA K T ÍK 2 7. 02 .0 2 Morgunblaðið/Þorkell

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.