Morgunblaðið - 05.04.2002, Síða 30
FERÐ án fyrirheits
nefnist sýning á verk-
um Sigurðar Gúst-
afssonar arkitekts
sem opnuð verður í
Víkurskóla, Hamravík
10, Grafarvogi, í dag
kl. 17. Að sýningunni
standa sænska fyr-
irtækið Källemo, sem
framleiðir verk hönn-
uð af Sigurði, og Epal
hf.
Sigurður er fæddur
á Akureyri 1962.
Hann lærði arkitektúr
í Ósló og útskrifaðist
1990. Útskriftarverk-
efni hans var valið
besta verkefni ársins. Hann hefur
starfað hjá Cullberg Architects í
Gautaborg og hjá Teiknistofunni í
Reykjavík. Árið 1995 hóf hann
rekstur á eigin arkitektastofu.
Sigurður hefur tekið þátt í
mörgum sýningum, m.a. sýning-
unni Svens öga í Stokkhólmi og
Gautaborg 1998, og
Moss í Noregi 1999.
Þá tók hann þátt í
sýningunni The
Transparent North í
Stedelijk Museum í
Amsterdam 1999 og
Schwedens aufbruch
zur moderne í Lindau
í Þýskalandi árið
2000. Söfn í Stokk-
hólmi, Gautaborg,
Malmö og Amsterdam
eiga verk eftir Sigurð.
Sigurður hlaut
verðlaun 1995 fyrir
hönnun á Víkurskóla
og hin virtu Bruno
Mathsson-hönn-
unarverðlaun í Svíþjóð árið 2001.
Í tilefni af sýningu Sigurðar
kemur hingað til lands Sven
Lundh, stofnandi og eigandi
sænska húsgagnafyrirtækisins
Källemo í Värnamo. Källemo fram-
leiðir og selur marga gripi eftir
Sigurð.
Arkitekt sýnir
í Víkurskóla
Sigurður
Gústafsson
JPV-útgáfa hefur nýlega gengið frá
samningum um útgáfu á bókum Vig-
dísar Grímsdóttur til útgefenda í
Danmörku og
Svíþjóð og einnig
er væntanleg
finnsk útgáfa á
Þögninni hjá
Like-forlaginu í
Finnlandi.
Forlagið Klim í
Danmörku hefur
nú fest kaup á
dönskum útgáfu-
rétti á Þögninni
eftir Vigdísi en
Klim hefur áður gefið út tvær bækur
Vigdísar.
Absalut Böcker í Svíþjóð hafa
keypt réttinn á nýjustu bók Vigdís-
ar, Frá ljósi til ljóss, sem kom út fyr-
ir síðustu jól. Þetta er nýtt forlag en
útgáfustjóri þess var áður hjá
Anamma-forlaginu, sem hefur gefið
út fyrri bækur Vigdísar.
Bækur
Vigdísar
Grímsdóttur
seldar til
Norðurlanda
Vigdís
Grímsdóttir
LISTIR
30 FÖSTUDAGUR 5. APRÍL 2002 MORGUNBLAÐIÐ
AULAR eða ofurhugar? Hvorn
hópinn þeir skipa þremenningarnir
sem eru í fylkingarbrjósti fallhlífar-
stökkvaranna í heimildarmyndinni
Arne í Ameríku, má endalaust deila.
Menn eins og undirritaður, hálfærð-
ir af lofthræðslu, álíta þá snargeggj-
aða, aðrir tala um hetjur. Flestir
geta verið sammála um að Hálf-Ís-
lendingurinn Arne og félagar hans,
Finninn Seppanen og Bandaríkja-
maðurinn Corliss, sýna ósvikna fífl-
dirfsku sem kvikmyndagerðarmað-
urinn Dúi Másson, hefur fest á
filmu.
Arne í Ameríku segir frá Banda-
ríkjaferð þremenninganna þar sem
þeir þreyta „íþrótt“ sína vítt og
breitt um landið. Félagarnir eru
búnir fisléttum og sérhönnuðum
fallhlífum sem í útliti minna lítið á þá
hefðbundnu gerð sem mönnum kem-
ur fyrst í hug þegar minnst er á fyr-
irbrigðið. Í stað þess að vera hann-
aðar með það fyrst og fremst í huga
að draga úr fallinu eru þessar nýju
líkt og vængur í laginu enda geta
menn svifið á þeim ótrúlega langt og
lengi og eru fljótir að ná stjórn á
þeim. Hönnunin gerir þessum köldu
köllum fært að hoppa fram af hverju
sem er, svo framarlega sem viss lág-
markshæð sé fyrir hendi, að því er
virðist um 200 metrar.
Arne og hans menn hefja stökkin í
Vermont-fylki, síðan er haldið til
New York þar sem hugmyndin var
að gluða fram af tvíburaturnunum
sálugu. Ekkert verður úr því. Þá er
landið þverað og stokkið ofan af há-
hýsi í Los Angeles. Öllu glæfralegra
er stökk ofan af Golden Gate-brúnni
yfir San Fransisco-flóann, eftir lend-
inguna urðu kempurnar að liggja í
felum í tæpan sólarhring fyrir sveit-
um lögreglumanna sem leituðu þess-
ara brjálæðinga stíft, enda uppátæk-
ið sjálfsagt ekki til fyrirmyndar í
augum yfirvaldanna.
Félagarnir sluppu með skrekkinn
og að grotna niður í Folsom Prison,
eða einhverjum öðrum, ámóta ynd-
islegum stað. Þess í stað hefja þeir
sig til flugs af hæðum í Arizona og
enda svo þennan dauðaleik með því
að fleygja sér fram af ofurháum út-
sýnisturni í Las Vegas. Það atriði er
langbest gert og unnið og með ólík-
indum að þessi glæframenni sleppa
án þess að skrámast eða lenda í
klóm löggunnar.
Sannarlega taugatrekkjandi atriði
og eitt þess virði að kíkja á myndina,
sem geldur þess að vera unnin af
vanefnum og kolólöglegt efnið unnið
rétt fyrir framan nefið á lögreglunni.
Einstök mynd í sinni röð sem gæti
orðið, snyrtilega klippt og skorin,
fræg á skjánum í þáttum á borð við
Discovery.
KVIKMYNDIR
Háskólabíó
Leikstjórn og klipping: Dúi Másson. Kvik-
myndataka: Arna Aarhus, Ivar Wulff o.fl.
Fallhlífarstökkvarar: Arne Aarhus, Liro
Seppanen, Jeb Corliss. Framkvæmda-
stjóri: Arndís Bergsdóttir. Sýningartími
100 mín. Idiot kvikmyndagerð. Ísland
2002.
Arne í Ameríku Arne stökk af
björgum fram
Sæbjörn Valdimarsson
AUKASÝNING verður á leikritinu
Blessað barnalán annað kvöld, laug-
ardagskvöld, kl. 20, en það er Leik-
félag Akureyrar sem sýnir verkið í
íslensku Óperunni. Blessað barnalán
er ærslafullur gamanleikur – eða
farsi, og var verkið samið sérstak-
lega fyrir Leikfélag Reykjavíkur og
sett upp af LR í Iðnó fyrir rúmum
tuttugu árum.
Aukasýning
á Blessuðu
barnaláni
PÍKUSÖGUR verða sýndar í 95.
sinn í kvöld og verður sýningin færð
yfir á Stóra sviðið í Borgarleikhúsinu
að þessu sinni. Sýningin er síðbúið
innlegg í Alþjóðlegan baráttudag
kvenna sem var laugardaginn fyrir
páska, en þá er lögbundið frí í leik-
húsinu.
Sýningum fer nú fækkandi í
Reykjavík, þar sem leikkonurnar
eru bundnar í öðrum sýningum. En
sýningar eru ráðgerðar á Akureyri
og í Fjarðabyggð síðar í mánuðinum.
Leikkonur í Píkusögum eru Hall-
dóra Geirharðsdóttir, Jóhanna Vig-
dís Arnardóttir og Sóley Elíasdóttir.
Leikstjóri er Sigrún Edda Björns-
dóttir.
Píkusögur á
Stóra sviðið
ARTISTS’ TALK – Listamanna-
spjall nefnist röð óformlegra fyr-
irlestra og funda sem hefjast í Ný-
listasafninu í dag, laugardag, kl.
17. Listamenn koma saman til að
ræða og kynna verk sín og er það
Elina Medley frá Catalyst Arts í
Belfast sem byrjar ferlið og kynnir
starfsemi sinnar stofnunar og ein-
staka listamenn á vegum hennar.
Það er NIFCA, Nordic Institute
For Contemporary Art sem stend-
ur að þessari fyrirlestraröð. Sex
spjallfundir eru fyrirhugaðir í Ný-
listasafninu á meðan á verkefninu
stendur en á sama tímabili verða
haldnir viðlíka fundir í sjö öðrum
þátttökulöndum.
Þá kynna í fyrirlestraröðinni,
forsvarsmenn sjálfstætt rekinna
liststofnana, Oslo Konsthall og
Catalyst Arts-Belfast, starfsemina
þar.
Listamanna-
spjall
Nýlistasafnið
Á UNDANFÖRNUM vikum hafa
um 1.000 gestir látið skrá sig í svo-
kallaðar „söguveislur“ sem hefjast
að nýju í byrjun apríl í Sögusetrinu
á Hvolsvelli. Að sögn Arthúrs
Björgvins Bollasonar, forstöðu-
manns Sögusetursins, er um að
ræða samfellda Njáludagskrá sem
er í boði fyrir hópa á laugardögum
á tímabilinu 6. apríl til 15. júní.
Dagskráin hefst með rútuferð frá
Hvolsvelli um söguslóðir Brennu-
Njálssögu í Rangárþingi, með sér-
fróðum leiðsögumanni. Að því búnu
er komið aftur í Sögusetrið á Hvols-
velli og gestir leiddir á lifandi hátt
um sýninguna Á Njáluslóð. Þá tek-
ur við þríréttaður kvöldverður í
Söguskálanum (miðaldaskála Sögu-
setursins), sem er fram borinn af
griðkonum í miðaldaklæðum við
flöktandi skímu frá kyndlum sem
loga á fornum röftum. „Undir borð-
um sjá heimamenn um að skemmta
fólki með kátlegum leik um hjóna-
bandsvandræði Gunnars og Hall-
gerðar, auk þess sem hinir söngv-
arar Sögusetursins kyrja syrpu af
Njálusöngvum – í fullum herklæð-
um,“ segir Arthúr.
Njálusönghópurinn í för utan
Njálusönghópur Sögusetursins er
á förum til Þýskalands í byrjun maí.
Þar mun hópurinn flytja söngleik-
inn Gunnar á Hlíðarenda á nokkr-
um stöðum í boði innfæddra, auk
þess sem Flugleiðir og samgöngu-
ráðherra styrkja ferðina. Söngleik-
urinn um Gunnar var frumsýndur í
fyrra og ætlunin er að hefja sýn-
ingar á honum að nýju í Sögusetr-
inu í byrjun júlí.
„Auk þess mun hópurinn, sem á
ensku hefur fengið nafnið The Saga
Singers, koma fram í bandarískum
sjónvarpsþætti um Ísland sem tek-
inn verður upp nú í apríl og þýska
sjónvarpsstöðin NDR hefur einnig
látið í ljósi áhuga fyrir að senda
myndatökufólk til Íslands í apríl í
því skyni að gera sérstakan þátt um
félagana í sönghópnum, þar sem
þeir yrðu myndaðir við dagleg störf
sín í Rangárþingi,“ segir forstöðu-
maðurinn Arthúr Björgvin.
Söguveislur á
Njáluslóðum
♦ ♦ ♦
♦ ♦ ♦
♦ ♦ ♦
DAGATÖLIN Af ljósakri, sam-
vinnuverkefni hjónanna Harðar
Daníelsson ljósmyndara og Krist-
ínar Þorkelsdóttur hönnuðar, hafa
síðustu árin vakið verðskuldaða at-
hygli fyrir fagmannlega teknar
panórama myndir Harðar og
smekklegt útlit sem Kristín á heið-
urinn af. Nú hafa hjónin tekið
höndum saman við gerð tveggja
bóka, þeirra fyrstu í flokki sem
þau kalla Seið Íslands og fjallar
önnur um Þingvelli og hin um
Snæfellsnes.
Þetta eru bækur í litlu broti en
aflöngu, enda myndirnar flestar í
breiðu panórama formi. Þrátt fyrir
smátt brotið njóta myndirnar sín
ákaflega vel á síðunum, enda um-
búnaðurinn allur hinn fagmannleg-
asti og prentararnir í Odda hafa
skilað mjög góðu verki.
Hörður er ákaflega natinn og
vandvirkur ljósmyndari sem hefur
náð góðum tökum á myndbygg-
ingu innan aflangs panórama-
formsins. Hann hefur sótt þessi
svæði heim á öllum tímum árs, í
ólíkum birtuskilyrðum þótt veðrið
sé oftast nær á blíðari nótunum.
Bókin um Þingvelli ber undirtit-
ilinn Í ljósi árstíðanna. Þar byrjar
Hörður á að sýna litbrigði hausts-
ins á þessum helgasta stað þjóð-
arinnar, hann sýnir hraun og söln-
uð lauf, vatnið og ólíkar ásjónur
formmyndana í náttúrunni. Svo
rekur hver árstíðin aðra; það er
kyrrð og tign yfir vetrarmyndun-
um og þegar vorar leysir ísa af
vatninu, lífið vaknar aftur og svo
brestur sumarið á, með ferða-
mannafjöld í Almannagjá og höf-
ugum litum í birkikjarrinu. Bókinu
lýkur með endurkomu haustsins,
eilífri hringrás náttúrunnar.
Bókin um Snæfellsnes hefur
einnig undirtitil, Í ljósi hafs og
jökuls, en þorri myndanna er tek-
inn vestast á nesinu, með jökulinn
í öndvegi. Kaflarnir fjalla um jök-
ulinn, hraunið, ströndina og hafið;
sýnin er nokkuð einsleitari en í
bókinni um Þingvelli, en sjónar-
hornin eru falleg, vel valin og rík
tilfinning fyrir tilbrigðum í birtu.
Hörður sýnir tignarlegan jökulinn
á sérstaklega fjölbreytilegan hátt
og þá er samband strandar og hafs
iðulega sýnt í áhugaverðu og fal-
legu ljósi.
Ágætir ljóðrænir formálar eru í
báðum bókunum; einskonar hug-
vekjur um svæðin og upplifanir á
þeim.
Með myndunum eru einnig ljóð-
rænir myndatextar sem hefðu
mátt missa sín, myndirnar eru
nægilega áhrifamiklar, lýrík í
sjálfu sér, og þurfa ekki á hug-
lægum lyklum í textaformi að
halda.
Í hönnun bókarinnar er leikið
með möguleika í uppsetningu og
litatónum á síðum, allt af mikilli
smekkvísi. Þorri myndanna fyllir
opnu og flæðir, á milli eru aðrar
minni sem brjóta flæðið upp á
ljómandi hátt.
Þessar bækur eru aðstandend-
um til sóma og þrát fyrir að brotið
sé ekki stærra þá njóta myndirnar
sín ákaflega vel. Það verður
áhugavert að sjá hvar Hörð ber
niður næst í þessum flokki bóka
um seið Íslands.
BÆKUR
Ljósmyndir
eftir Hörð Daníelsson. Hönnunarstjóri:
Kristín Þorkelsdóttir. Prentun og bók-
band: Prentsmiðjan Oddi hf. Útgefandi:
Iceland Review 2001
SEIÐUR ÍSLANDS: SNÆFELLSNES /
SEIÐUR ÍSLANDS: ÞINGVELLIR
Ljóðræn-
ar sýnir
Úr Þingvallabók Harðar Daníelssonar.
Einar Falur Ingólfsson