Morgunblaðið - 05.04.2002, Blaðsíða 58
DAGBÓK
58 FÖSTUDAGUR 5. APRÍL 2002 MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar:
569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156,
sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RIT-
STJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið.
Skipin
Reykjavíkurhöfn:
Mánafoss og Lagarfoss
fara í dag.
Hafnarfjarðarhöfn:
Leonid Novospasskiy
kemur í dag. Ljósafoss
fór í gær, Olga kom í
gær.
Mannamót
Aflagrandi 40. Kl. 9
leikfimi og vinnustofa,
kl. 12.45 dans, kl. 13
bókband, kl. 14 bingó.
Kynning í kaffitímanum
frá Lyfjum og heilsu,
kaffiveitingar í þeirra
boði, allir velkomnir.
Árskógar 4. Kl. 13–
16.30 opin smíðastofan.
Allar upplýsingar í síma
535 2700.
Bólstaðarhlíð 43. Kl. 8
hárgreiðsla, kl. 8.30
böðun, kl. 9–12 bók-
band, kl. 9–16 handa-
vinna, kl. 10–17 fótaað-
gerð, kl. 13 frjálst að
spila. Harmónikkuball
verður fimmtudaginn
11. apríl kl. 16. Ragnar
Leví spilar á nikkuna.
Kaffi og meðlæti.
Skráning í síma
568 5052. Allir velkomn-
ir.
Eldri borgarar í Mos-
fellsbæ, Kjalarnesi og
Kjós. Félagsstarfið
Hlaðhömrum er á
þriðju- og fimmtudög-
um kl. 13–16.30, spil og
föndur. Kóræfingar hjá
Vorboðum, kór eldri
borgara í Mosfellsbæ á
Hlaðhömrum fimmtu-
daga kl. 17–19. Les-
klúbbur kl. 15.30 á
fimmtudögum. Jóga á
föstudögum kl. 11. Pútt-
kennsla í íþróttahúsinu
kl. 11 á sunnudögum.
8–16. Kennsla í línu-
dansi byrjar í Damos
mánud. 15. apríl kl. 20.
Ferð verður á Sæ-
dýrasafnið í Höfnum og
til Keflavíkur 16. apríl,
lagt af stað kl. 13 frá
Damos. Skráning í s.
586 8014 e.h.
Félagsstarfið Dalbraut
18–20. Kl. 9–12 aðstoð
við böðun, kl. 9–16.45
hárgreiðslustofan opin,
kl. 9 opin handa-
vinnustofan.
Félag eldri borgara í
Kópavogi. Félagsvist
spiluð í Fannborg 8
(Gjábakka) kl. 20.30.
Opið hús verður í Gull-
smára 13 laugardaginn
6. apríl kl. 14. Dagskrá
upplestur, hljóðfæra-
leikur o.fl. Kaffi og
meðlæti.
Félagsstarfið, Löngu-
hlíð 3. Kl. 8 böðun, kl.
10 hársnyrting, kl. 10–
12 verslunin opin, kl.
13. „opið hús“ spilað á
spil.
Félag eldri borgara
Hafnarfirði, Hraunseli,
Flatahrauni 3. Myndlist
og brids kl. 13.30. Leik-
húsferð miðvikud. 10.
apríl kl. 14 að sjá leik-
ritin „Í lífsins ólgusjó“
og „Fugl í búri“ sem
Leikfélagið Snúður og
Snælda sýnir í Ásgarði,
Glæsibæ. Skráning í
Hraunseli, s. 555 0142.
Félag eldri borgara,
Reykjavík, Ásgarði,
Glæsibæ. Kaffistofan
opin virka daga kl. 10–
13. Kaffi, blöðin og mat-
ur í hádegi. Leikfélagið
Snúður og Snælda sýnir
í Ásgarði í Glæsibæ, fé-
lagsheimili Félags eldri
borgara söng- og gam-
anleikinn „Í lífsins ólgu-
sjó“ minningar frá ár-
um síldarævintýranna.
Og „Fugl í búri“,
dramatískan gamanleik.
Næstu sýningar: föstud.
5. apríl kl. 14 og sun-
nud. 7. apríl kl. 16. Sýn-
ingum fer fækkandi.
Miðapantanir í s.:
588 2111 og 568 9082.
Heilsa og hamingja
laugard. 13. apríl kl.
13.30 í Ásgarði,
Glæsibæ. Hóprann-
sóknir á vegum Hjarta-
verndar, Vilmundur
Guðnason, for-
stöðulæknir Hjarta-
verndar. Fræðslunefnd
FEB hvetur fólk til að
mæta og kynna sér
málefnin. Á eftir hverju
erindi gefst tækifæri til
spurninga og umræðna.
Sparidagar á Örkinni
14.–19. apríl, skráning á
skrifstofu FEB. Silf-
urlínan er opin á mánu-
og miðvikud. frá kl. 10–
12 f.h. í s. 588 2111.
Skrifstofa félagsins er
flutt að Faxafeni 12,
sama símanúmer og áð-
ur. Félagsstarfið er
áfram í Ásgarði,
Glæsibæ. Upplýsingar á
skrifstofu FEB.
Félagsstarfið Hæð-
argarði 31. Kl. 9–16.30
myndlist og rósamálun
á tré, kl. 9–13 hár-
greiðsla, kl. 9.30 göngu-
hópur, kl. 14 brids. Op-
ið alla sunnudaga frá kl.
14–16 blöðin og kaffi.
Félagsstarfið Furu-
gerði. Kl. 9 aðstoð við
böðun, smíðar og út-
skurður, kl. 14 bingó,
kl. 15 kaffi.
Gerðuberg, félagsstarf.
Kl. 9–16.30 vinnustofur
opnar, kl. 9.30 boccia
umsjón Óla Sítna, frá
hádegi spilasalur opinn,
kl. 14 kóræfing. Veit-
ingar í veitingabúð.
Upplýsingar um starfs-
semina á staðnum og í
síma 575 7720.
Gjábakki, Fannborg 8.
Kl. 9.30 málm- og silf-
ursmíði, kl. 9.15
rammavefnaður, kl. 13
bókband, kl. 13.15
brids.
Gullsmári, Gullsmára
13. Kl. 10 glerlist,
Gleðigjafarnir syngja
kl. 14–15.
Hraunbær 105. Kl. 9–
12 baðþjónusta, kl. 9–17
hárgreiðsla og fótaað-
gerðir, kl. 9 handa-
vinna, bútasaumur, kl.
11 spurt og spjallað, kl.
14 bingó. Kaffiveitingar.
Allir velkomnir.
Hvassaleiti 56–58. Kl. 9
böðun, leikfimi og
postulín, kl. 12.30
postulín. Fótaaðgerð,
hársnyrting. Þjónusta
félagsþjónustunnar er
öllum opin án tillits til
aldurs eða búsetu í
Reykjavík.
Norðurbrún 1. Kl. 9–13
tréskurður, kl. 9–17
hárgreiðsla, kl. 10
boccia. Félagsstarfið er
opið öllum aldurs-
hópum, allir velkomnir.
Vesturgata 7. Kl. 9–16
fótaaðgerðir og hár-
greiðsla, kl. 9.15 handa-
vinna, kl. 13.30 sungið
við flygilinn, kl. 14.30
kaffi og dansað í að-
alsal. Sigrún Ingv-
arsdóttir félagsráðgjafi
verður með viðtalstíma
á föstudögum kl. 14–16.
Tímapantanir í af-
greiðslu s. 562 7077. Kl.
15 kemur Björn Bjarna-
son í heimsókn og Karl
Jónatansson harm-
onikkuleikari leikur fyr-
ir dansi. Rjómaterta
með kaffinu. Allir vel-
komnir.
Vitatorg. Kl. 9 smíði og
hárgreiðsla, kl. 9.30
bókband og morg-
unstund, kl. 10 leikfimi
og fótaaðgerðir, kl.
12.30 leirmótun, kl.
13.30 bingó.
Háteigskirkja, aldraðir.
Samvera í Setrinu kl.
13–15. Kl. 13.30 teflt,
spilað og rabbað, söng-
ur með Jónu, vöfflur
með kaffinu.
Bridsdeild FEBK Gjá-
bakka. Brids kl. 13.15 í
dag.
Hana-nú, Kópavogi.
Laugardagsgangan
verður á morgun. Lagt
af stað frá Gjábakka,
Fannborg 8, kl. 10.
Gott fólk, gott rölt.
Gengið frá Gullsmára
13, kl. 10 á laug-
ardögum.
Félag fráskilinna og
einstæðra. Fundur á
morgun kl. 21 í Konna-
koti, Hverfisgötu 105,
Nýir félagar velkomnir.
Munið gönguna mánu-
og fimmtudaga.
Ungt fólk með ungana
sína. Hitt húsið býður
ungum foreldrum (um
16–25 ára) að mæta
með börnin sín á laug-
ard. kl. 15–17 á Geysir,
Kakóbar, Aðalstræti 2
(Gengið inn Vesturgötu-
megin). Opið hús og
kaffi á könnunni, djús,
leikföng og dýnur fyrir
börnin.
Kvenfélag Grens-
ássóknar. Fundur í
safnaðarheimilinu
mánudaginn 8. apríl kl.
20. Gestur verður Val-
gerður Gísladóttir.
Kaffiveitingar.
Barðstrendingafélagið,
heldur skemmtun í
Breiðfirðingabúð við
Faxafen laugardaginn
6. apríl kl. 22.
Kvenfélag Óháða safn-
aðarins. Aðalfundur
verður þriðjudaginn 9.
apríl. kl. 20.30 í
Kirkjubæ.
Minningarkort
Minningarspjöld
Kristniboðssambands-
ins fást á skrifstofunni,
Holtavegi 28 (hús
KFUM og K gegnt
Langholtsskóla) sími
588 8899.
Í dag er föstudagur 5. apríl, 95.
dagur ársins 2002. Orð dagsins:
Jesús sagði þeim: „Ég er brauð
lífsins. Þann mun ekki hungra, sem
til mín kemur, og þann aldrei
þyrsta, sem á mig trúir.“
(Jóh. 6, 35.)
K r o s s g á t a
LÁRÉTT:
1 hrynjandi, 8 eflum, 9
óhræsi, 10 forfeðrum, 11
lokar, 13 fyrirboði, 15
tími, 18 borða, 21 stefna,
22 fátið, 23 kjánar, 24
pretta.
LÓÐRÉTT:
2 rándýrs, 3 stór, 4 óstel-
víst, 5 blaði, 6 óþolin-
mæði, 7 snædd, 12 fag, 14
hress, 15 vökvi, 16
mergð, 17 afreksverkið,
18 vinna, 19 hyggst, 20
nytjalanda.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU:
Lárétt: 1 sýkil, 4 flekk, 7 nafar, 8 aldin, 9 tak, 11 alin, 13
erta, 14 ábóti, 15 skýr, 17 rúmt, 20 ást, 22 tafls, 23 ræfil,
24 glaum, 25 gæðin.
Lóðrétt: 1 senna, 2 kafli, 3 lært, 4 flak, 5 Eddur, 6
kanna, 10 atóms, 12 nár, 13 eir, 15 sótug, 16 ýlfra, 18 úlf-
úð, 19 talin, 20 ásum, 21 treg.
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
Víkverji skrifar...
UPPÁHALDSHVERFI Vík-verja í Reykjavík er gamla
miðborgin. Hún hefur allt mögu-
legt, sem önnur hverfi í borginni
hafa ekki, til dæmis mannlíf; í mið-
bænum er fólk oft á gangi án þess
að það sé bara að skjótast á milli
húsa eða á leiðinni heim til sín að
elda matinn eða fara að sofa eins
og víðast annars staðar í Reykja-
vík. Miðbærinn hefur skemmtilega
blöndu af verzlunum, veitingahús-
um, þjónustufyrirtækjum, skólum,
kirkjum, opinberum stofnunum,
listasöfnum, leikhúsum, kvik-
myndahúsum o.s.frv. Miðbærinn
líður vissulega fyrir að vera að
sumu leyti byggður af vanefnum
en að öðru leyti af stórhug og
myndarbrag, að hluta í þjóðlegum
stíl, að hluta í alþjóðlegum og að
hluta – alltof stórum hluta að mati
Víkverja – á tímabili þegar arki-
tektar duttu úr sambandi við feg-
urðarskyn og tilfinningu fyrir hlut-
föllum og teiknuðu bara stór og
hagkvæm karakterlaus hús í þágu
notagildisins. Og allur er Miðbær-
inn byggður á skjön við flest, sem
getur talizt skynsamlegt skipulag.
En að sumu leyti er þetta kaos þó
hluti af sjarma miðborgarinnar.
NÚ Í aðdraganda borgarstjórn-arkosninganna eru málefni
Miðbæjarins talsvert til umræðu
og sýnist sitt hverjum. Víkverji
getur tekið undir með þeim, sem
finnst Miðbærinn hafa látið á sjá.
Hann er subbulegur og útkrotaður
og það er ekki lengur hægt að
vera þar öruggur um líf sitt og
limi að kvöld- og næturlagi. Að
mati Víkverja mætti laga miðbæj-
arbraginn mikið með virkri og
sýnilegri löggæzlu. Hann er líka
sammála því að stöðugjaldaofstæki
Bílastæðasjóðs hefur fyrir löngu
gengið út í öfgar og væri nær að
hafa þann einkennisklædda her,
sem á degi hverjum raðar hundr-
uðum eða þúsundum sektarmiða
undir rúðuþurrkur á bílum í mið-
bænum, í því að halda miðborginni
hreinni, taka í lurginn á veggja-
kroturum og hjálpa gömlu fólki yf-
ir götur.
x x x
VÍKVERJI botnar hins vegarekkert í þeim, sem vilja
hleypa nýju lífi í Miðbæinn með
því að fara að rífa þar gömul og
friðuð hús. Gömlu húsin eru afar
mikilvægur hluti af aðdráttarafli
Miðbæjarins og það væri misráðið
að fórna þeim. Sumir segja að
gömlu húsin séu svo lélegt verzl-
unarhúsnæði. En hvað ef Miðbær-
inn væri allur úr steypu, stáli og
gleri með límtré í bland? Væri
hann þá ekki bara ópraktískari út-
gáfa af Smáralind eða Kringlunni?
Og af hverju ætti fólk þá frekar að
koma þangað til að verzla en í
stóru verzlunarmiðstöðvarnar?
Gömlu húsin eru lélegt verzlunar-
húsnæði af því að þeim hefur ekki
verið haldið við og kaupmenn hafa
oft gert á þeim skelfilega ósmekk-
legar breytingar, þannig að feg-
urðarskyn viðskiptavina þeirra
kemur allt skrámað og krambúler-
að úr bæjarferð. Það á að gera
gömlu húsin upp af myndarskap
og þá verður gaman að verzla í
þeim.
Víkverji hefur líka heyrt kaup-
menn amast við fjölgun veitinga-
húsa í Miðbænum á kostnað verzl-
ana. Veitinga- og kaffihúsin eru
hins vegar ein meginástæða þess
að Víkverji vill verzla í Miðbænum
– hann getur t.d. alls ekki farið inn
í kvenfatabúð með konunni sinni á
fastandi maga.
Kann einhver
þetta ljóð?
HANN karl faðir minn
(Halldór Friðriksson,
Steinholtsvegi 12, Eski-
firði) bað mig um að
kanna hvort hægt væri að
fá birtan hluta úr kvæði
sem hann lærði hjá móður
sinni ungur drengur.
Hann langar að vita hvort
einhver kann allt kvæðið.
Vísan sem hann man
eftir er svona:
Já, einstæðinginn allir smá./
Hann er sem lítið blóm,/
sem visin grein/ sem fölnað
strá/ sem freðin voða tár.
Lag: Þú sæla heimsins.
Ekki er víst að þetta sé
allt rétt eftir haft, en
gaman væri að vita hvort
einhver man eftir þessu.
Kveðja,
Helgi Halldórsson,
Laugateigi 50,
Reykjavík.
Viðtalsþættir
VIÐRÆÐUÞÁTTUR
Guðlaugs Þórs og Helga
Hjörvar var dæmigerður
fyrir dónaskap vinstri-
manna. Helgi byrjaði með
að tína fram einhver
ósköp sem lögfræðingur-
inn væri búinn að gera
þótt málið snerist fyrst og
fremst um Strætó. Síðan
fékk Guðlaugur Þór að-
eins að segja nokkur orð,
þá greip Helgi frammí.
Stjórnendur viðtalsþátta
virðast vera óhæfir í störf
sín sbr. Kastljósþáttinn
21. þessa mánaðar með
borgarstjóra og Birni
Bjarnasyni. Þessu verður
að breyta.
Matthildur Ólafsdóttir.
Efnisafgangar
Í VELVAKANDA fyrir
stuttu spyr kona um það
hverjir taki á móti göml-
um efnisafgöngum.
Ég held að þeir á Sól-
heimum taki við efnisaf-
göngum og noti í vefnað
en ég er þó ekki alveg
viss en ákvað að koma
þessu á framfæri.
Kveðja,
Sólveig.
Röng dagsetning
HAFSTEINN Hjaltason
hafði samband við Velvak-
anda vegna pistilsins um
áltál sem birtist í Morg-
unblaðinu 3. apríl sl. Þar
gaf hann upp ranga dag-
setningu. Þar á að standa
í DV 26. febrúar sl.
Getur einhver
gefið góð ráð?
ER einhver þarna úti sem
bíður eftir að skipt sé um
liði í hnjám? Ég er að
bugast af verkjum og
þætti gott ef einhver gæti
gefið mér góð ráð við
verkjunum og hefur verið/
er í sömu aðstöðu og ég.
Vinsamlegast hafið sam-
band við Sveinbjörgu
Haraldsdóttur í síma 555-
1931.
Tapað/fundið
Hestamenn athugið
NÝ geldýna tapaðist á
skírdag á leiðinni Kópa-
vogur-Heimsendir-Hafn-
arfjörður. Dýnan er ný og
keypt erlendis og er eig-
andanum afar mikilvæg.
Skilvís finnandi er vin-
samlegast beðinn að hafa
samband í síma 698-6717
eða 565-7643.
Dýrahald
Kanínustrák
vantar heimili
ÁRSGAMALL kanínu-
strákur leitar að góðu
heimili. Upplýsingar í
síma 866-7179.
Lítill gári óskast
ÓSKA eftir litlum kven-
kyns páfagauk – gára –
fyrir maka. Helst hvítum
eða ljósum. Vinsamlegast
hafið samband við Eddu í
síma 588-1220.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15.
Netfang velvakandi@mbl.is
MIG langar til að lýsa
undrun minni yfir mynd-
inni Krossgötur sem sýnd
var í Ríkissjónvarpinu á
annan í páskum. Myndin
gerist á geðdeild og þar
eru í aðalhlutverki geð-
læknir og sjúklingur hans
sem er ung kona. Lýs-
ingin á hugarheimi kon-
unnar var á margan hátt
listræn en því meira
stakk í stúf túlkunin á
öðru vistfólki deild-
arinnar sem var gert að
gargandi óargadýrum.
Hver yrðu viðbrögð al-
mennings ef sambærileg
mynd yrði sýnd þar sem
jafn röng og ógeðsleg
mynd yrði dregin upp t.d.
af þroskaheftu eða fötl-
uðu fólki?
Þessi mynd lýsti fá-
fræði og fordómum í
garð fólks sem á við geð-
ræn vandamál að stríða.
Til samanburðar má
nefna myndina Englar al-
heimsins þar sem fjallað
var um þetta efni af skiln-
ingi og þekkingu.
Það er orðið löngu
tímabært að fólk geri sér
grein fyrir því að geðræn
vandamál eru sjúkdómar
rétt eins krabbamein.
Selma.
Krossgötur