Morgunblaðið - 05.04.2002, Síða 68

Morgunblaðið - 05.04.2002, Síða 68
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040, ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 FÖSTUDAGUR 5. APRÍL 2002 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK. ÓLÖF Þórhallsdóttir lyfjafræðingur segir að svo virðist sem auka- og milliverkanir vegna náttúrulyfja, náttúruvara og fæðubótarefna séu vanskráðar hér á landi. Í nýlegri rannsókn sem hún og Kristín Ing- ólfsdóttir lyfjafræðingur og Magnús Jóhannsson læknir gerðu og sagt er frá í Læknablaðinu kemur fram að dæmi séu um að aukaverkanir þess- ara efna hafi stofnað lífi sjúklinga í hættu. Rannsóknin byggðist á því að sendir voru spurningalistar til allra lækna á landinu, alls 1.083. Svör bár- ust frá 410 læknum sem er 38% svör- un. Þar af höfðu 134 orðið varir við eða töldu sig hafa orðið vara við aukaverkanir og 25 við milliverkanir. Upplýsingar komu fram um 253 aukaverkanir og 13 milliverkanir. Innlögn á sjúkrahús var talin afleið- ing 38 tilvika og í 14 tilvikum var tal- ið að aukaverkun hefði stofnað lífi sjúklinga í hættu. Dæmi um alvar- legar aukaverkanir eru lifrarbólga, hjartsláttartruflanir, hjartastopp, yfirlið og ofnæmi. Í rannsókninni eru nefnd 20 nátt- úrulyf, náttúruvörur og fæðubótar- efni sem læknarnir sögðust hafa orð- ið varir við að hefðu aukaverkanir. Tvær náttúruvörur eru langoftast nefndar, en það eru Herbalife og gin- seng. Í rannsókninni er einnig spurt um hvaðan svarendur hefðu þekkingu um verkun náttúruefnanna. Flestir sögðust hafa upplýsingar um efnin úr auglýsingum. Litlar rannsóknir liggja fyrir um aukaverkanir efnanna Ólöf sagði að það hefði komið sér á óvart hvað læknarnir gátu greint frá mörgum tilvikum aukaverkana af völdum þessara efna, sérstaklega í ljósi þess að ekki hefði borist nein til- kynning til Lyfjastofnunar eða land- læknis um alvarlegar aukaverkanir af völdum efnanna. Það er þekkt að lyf sem læknar ávísa og seld eru í apótekum geta haft aukaverkanir. Ólöf var spurð hvort það væri eitthvað hættulegra að taka náttúrulyf en venjuleg lyf. „Áður en venjuleg lyf eru sett á markað eru þau rannsökuð ítarlega. Það gilda allt aðrar reglur um nátt- úruefnin. Það þarf ekki að gera rannsóknir á mönnum áður en nátt- úruefni er markaðssett. Oft er það eina sem vitað er um aukaverkanir það sem kemur í ljós eftir að efnin koma á markað. Þegar einstaklingur ákveður að taka inn náttúruefni veit hann því ekki endilega fyrirfram hvaða aukaverkanir það getur haft í för með sér. Oft skortir mjög á upp- lýsingar. Fólk telur oft að ef efnið kemur úr náttúrunni, hljóti það að vera náttúrulegt og þar með hafi það engar aukaverkanir, en það er mis- skilningur. Ef efnið hefur verkun getur það yfirleitt haft aukaverkun.“ Ólöf sagði aðspurð að ein af ástæð- um þess að náttúruvörurnar Herba- life og ginseng væru oftast nefndar í rannsókninni gæti verið sú að neysla þeirra væri útbreiddari á Íslandi en hinna varanna sem nefndar væru í rannsókninni. „Herbalife er auglýst sem nátt- úrulegt fæðubótarefni og er einungis selt í heimahúsum. Það kemur aldrei neinn heilbrigðisstarfsmaður þar að. Það vekur athygli hvað margar al- varlegar aukaverkanir verða af þess völdum. Það kemur a.m.k. fram að læknar sem svöruðu spurningalist- unum höfðu orðið varir við allmargar aukaverkanir af völdum þess. Söluaðilar segja að það sé allt í lagi fyrir ófrískar konur og börn að neyta Herbalife, en við sem höfum aflað okkur vísindalegrar þekkingar telj- um að ófrískar konur og börn eigi alls ekki að nota náttúruefni nema undir handleiðslu læknis. Ástæðan er sú að áhrif þessara vara á ófrískar konur og börn hafa ekkert verið rannsökuð og það er því ekkert vitað um áhrif efnanna á þessa hópa. Það eru til ágætar rannsóknir fyrir nokk- ur þessara náttúruefna, en þá er yf- irleitt alltaf verið að tala um heil- brigða einstaklinga en ekki ófrískar konur eða börn. Þessi efni eru það lítið rannsökuð að það er ekki hægt að fullyrða að þau séu ekki skaðleg fyrir fóstur,“ sagði Ólöf. Könnun á aukaverkunum náttúrulyfja og fæðubótarefna Aukaverkanir hafa ógnað lífi sjúklinga EINN helsti ókosturinn við að drullumalla í rigningu er, eins og alþjóð veit, hversu óhreinn maður getur orðið við þá iðju. Þegar rigningin dynur á sandinum klístrast hann fastur við pollagallann og verða menn á endanum drullugir upp fyrir haus. Unga konan hefur fundið snjallt ráð við þessu al- kunna vandamáli og notaði slöngu til að spúla sandinn af þessum ungu drullumöllurum í gær. Pollagallarnir hlífðu börnunum vel við vatnsbun- unni og voru börnin stillt og þæg meðan sandurinn var spúlaður af þeim og virtust bara hafa gaman af. Morgunblaðið/Ásdís Óhreinindin spúluð af pollagöllunum FJÖLSKIPAÐUR dómur Héraðs- dóms Austurlands dæmdi í gær karlmann í 18 mánaða fangelsi fyr- ir kynferðisbrot gegn ungri stjúp- dóttur sinni og til að greiða henni eina milljón króna í miskabætur. Ákærði smitaði stúlkuna af kyn- færavörtum og klamydíu og var talið sannað að hann hafi komið við kynfæri hennar með lim sínum þótt ekki hafi verið um eiginlegar samfarir að ræða. Að mati sál- fræðings sem skoðaði stúlkuna má ætla að hún muni eiga við lang- vinnan vanda að etja vegna mis- notkunarinnar sem hún varð fyrir og óvíst sé hvort hún nái sér að fullu. Ákærði bar fyrir dómi að um- rædd kynferðismök hafi verið að frumkvæði stúlkunnar sem hafi byrjað á þeim að honum sofandi og hann vaknað við mökin. Þeirri staðhæfingu hafnaði dómurinn og taldi að slá mætti því föstu að ákærði hefði átt allt frumkvæði að þeim og stýrt þeim að öllu leyti. Dóminn kvað upp Logi Guð- brandsson, dómstjóri Héraðsdóms Austurlands. Meðdómendur voru Freyr Ófeigsson, dómstjóri Hér- aðsdóms Norðurlands eystra, og Pétur Guðgeirsson, héraðsdómari í Héraðsdómi Reykjavíkur. Skipað- ur verjandi ákærða var Örn Clau- sen hrl. Réttargæslumaður brota- þola var Sif Konráðsdóttir hrl. 18 mánaða fangelsi fyrir kyn- ferðisbrot FISKISTOFA hefur svipt þrjá báta á Snæfellsnesi veiðileyfi og sá fjórði verður sviptur leyfinu á mánudag vegna verulegs afla umfram veiði- heimildir. Samtals hafa skipin veitt vel á fimmta hundrað tonn umfram heimildir, aðallega af þorski. Þrjú skipanna eru gerð út af sama aðila. Bátarnir sem þegar hafa verið sviptir leyfinu eru Bervík SH, Að- alvík SH og Stormur SH. Klettsvík SH verður svipt leyfinu eftir helgi. Klettsvík var að veiðum í gær. Ber- vík, Aðalvík og Klettsvík eru öll gerð út af sama aðila en samtals hafa skip- in þrjú veitt um 350 tonn umfram kvóta. Miðað við að um 200 krónur fáist að meðaltali fyrir kílóið af þorski og ýsu á fiskmörkuðum hér- lendis má ætla að verðmæti þess afla sem skipin þrjú hafa veitt umfram kvóta nemi um 70 milljónum króna. Útgerðarmaður skipanna, Krist- ján Kristjánsson í Ólafsvík, segist líta svo á að sér sé heimilt að halda skipi til veiða á meðan það hafi veiði- leyfi. Hann segist munu leigja kvóta á skipin þegar verð á aflamarki lækki. Þá muni hann leigja þann kvóta á skipin sem þau hafi nú veitt umfram heimildir. Kjartan Júlíusson, forstöðumaður lögfræðisviðs Fiskistofu, segir að samkvæmt lögum hafi útgerðir fjóra virka daga til að laga aflamarksstöðu sína hafi þau veitt umfram heimildir. Skipin sem hér um ræði séu nokkuð stór og afkastamikil og geti því veitt mikið á stuttum tíma. Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins hafa um- rædd skip landað í gáma og selt á er- lendum mörkuðum og því komi upp- lýsingar um afla þeirra seinna fram en ef þau hefðu selt aflann hérlendis. Veiddu 460 tonn umfram kvóta  Hafa veitt/20 ALLHARÐUR árekstur varð milli tveggja fólksbifreiða á gatna- mótum Hringbrautar og Njarðar- götu upp úr klukkan níu í gær- kvöld. Eldur kom upp í annarri bifreiðinni við áreksturinn og kom slökkvilið á slysstað og slökkti eldinn. Ökumaður annarrar bif- reiðarinnar og tveir farþegar í henni voru fluttir á slysadeild með sjúkrabifreið en meiðsl þeirra virtust þó ekki vera alvarleg. Flytja varð báða bílana burt með kranabíl. Þá var ekið á fjórtán ára gaml- an dreng við Selásskóla og var hann fluttur á slysadeild með áverka á fæti. Eldur kom upp við árekstur

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.