Morgunblaðið - 16.04.2002, Blaðsíða 27
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. APRÍL 2002 27
STOPPLEIKHÓPURINN
sýnir leikritið Það var barn
í dalnum, eftir Þorvald
Þorsteinsson, í þremur
grunnskólum á Suðurlandi
í dag: Hveragerði, Laug-
arvatni og Þorlákshöfn.
Leikritið gerist inni á sal
ónefnds grunnskóla og það
fjallar um Barða og Rúnu
sem eru nýnemar í skól-
anum, nútímaunglingar af
ólíkum uppruna sem þó eru
búin að reyna eitt og ann-
að í lífinu. Þau eru að fara
í tónlistartíma í skólanum.
Í verkinu koma fyrir ým-
isleg þjóðsagnaminni, at-
burðir Íslandssögunnar og frum-
samin rapptónlist byggð á
Ókindarkvæði eftir Pálma Sig-
urhjartarson er flutt í verkinu.
Leikarar eru Eggert Kaaber,
Katrín Þorkelsdóttir og Pálmi
Sigurhjartarson. Leikstjóri er Jón
Stefán Kristjánsson.
Morgunblaðið/Þorkell
Úr leikritinu Það var barn í dalnum.
Stoppleikhópurinn
á Suðurlandi
HAFI einhver haldið að miðaftann
á laugardegi væri slæmur tónleika-
tími reyndist slíkt ekki raunin þegar
Gunnhildur Halla Guðmundsdóttir
sellóleikari kvaddi sér hljóðs í fyrsta
sinn á tónleikum á Íslandi í Listasafni
Íslands á laugardaginn var. Fjöl-
menni var í salnum enda jafnan for-
vitnilegt að heyra í einleikara sem
hefur ekki spilað hér áður eftir að
námi lýkur. Ekki sakaði að efnisskrá-
in var sérstaklega forvitnileg, þrjú
færeysk verk, íslenskt, sænskt, pólskt
og ísraelskt, öll tiltölulega ung; það
elsta, Lettneskt lag eftir Joachim
Stutschewskí samið um miðja síðustu
öld og það yngsta, Landslag eftir
Kristian Blak samið í fyrra fyrir
Gunnhildi Höllu.
Verk eins af höfuðtónskáldum Svía,
Ingvars Lidholms, Fantasia sopra
laudi, er fallegt verk; fer hægt af stað
með pizzicato og hægferðugum ein-
földum laglínum. Það er einhver íhug-
ull tónn í þessu verki, – andlegur og
áleitinn í senn. Gunnhildur Halla lék
það mjög fallega; mjúkt og lipurt eins
og karakter verksins bauð. Færeysku
verkin þrjú, Landslag eftir Kristian
Blak, Ups a la Musik eftir Edvard
Nyholm Debess og Warnings eftir
Sunleif Rasmussen voru merkilega
ólík; Landslagið, einhvers konar tón-
rænt panorama byggt á þrábassa eða
dróna, sem gat allt eins merkt nið eða
undirleik hafsins við sjóndeildar-
hringinn frá bænum Mykinesi sem
verkið lýsir; Ups a la Musik (Uppsala-
músík), kraftmikið og litríkt; – og
Warnings, ljóðræn og rismikil stemn-
ing. Það hefur verið lán að fá að heyra
óvenju mikið af færeyskri músík upp
á síðkastið, sérstaklega verk eftir
Sunleif, og þetta verk hans var góð
viðbót við þá mynd af tónskáldinu
sem lesa má úr kammermúsík hans.
Kristian Blak er elstur þeirra þriggja
og verk hans líka elst í músíklegum
skilningi; Debess (sem mun vera af-
komandi Debess vitavarðar sem
Heinesen sagði svo vel frá í sögum
sínum) á rætur í djassi og verk hans
var það fjörmesta þessara þriggja.
Verk Þorkels Sigurbjörnssonar, Mild
und (meistens) leise var eins og gam-
all kunningi innan um hin verkin sem
sjaldan eða aldrei hafa heyrst hér áð-
ur. Verk Þorkels er firnagott, samið
fyrir hartnær þrjátíu árum fyrir Haf-
liða Hallgrímsson, en hefur elst af-
skaplega vel. Lettneskt lag, eftir
Stutschewskí, gæti verið byggt á jidd-
ískri laglínu, yndisleg og ljúfsár lítil
melódía. Viðamesta verkið á tónleik-
unum var Einleikskaprísa, – Solo
Capriccio eftir Krzyztof Penderecki,
samin 1968 fyrir sellóleikarann Sig-
fried Palm. Þetta var tilkomumikið
verk og gríðarlega fallega spilað.
Leikur Gunnhildar Höllu á tónleikun-
um var sérstaklega kraftmikill og lif-
andi. Sums staðar örlaði á óhreinum
tónum, mest í tvígripum í verki Þor-
kels. Það var eins og ákefð og skap
Gunnhildar Höllu bæri hana örlítið af
leið af og til; – en þessi sama ákefð var
þó það sem gerði leik hennar svo
ferskan og skapríkan sem raunin var.
Þetta var gott debút, verkefnin ögr-
andi og spilamennskan músíkölsk.
Fersk frumraun
Bergþóra Jónsdóttir
TÓNLIST
Listasafn Íslands
Gunnhildur Halla Guðmundsdóttir lék á
selló verk eftir Ingvar Lidholm, Kristian
Blak, Þorkel Sigurbjörnsson, Edvard Ny-
holm Debess, J. Stutschewskí, Sunleif
Rasmussen og Krzsyztof Penderecki.
Laugardag kl. 18.
EINLEIKSTÓNLEIKAR