Morgunblaðið - 16.04.2002, Page 68

Morgunblaðið - 16.04.2002, Page 68
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040, ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 ÞRIÐJUDAGUR 16. APRÍL 2002 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK. ÞESSIR kátu krakkar eru í leik- skólanum Sólbrekku og voru í gönguferð á Nesveginum í hala- rófu með leikskólaband á milli sín. Kannski voru þau á leiðinni niður í fjöru til að leita að skeljum, kuð- ungum og öðru skemmtilegu sem hægt er að finna við fjöruborðið eða kannski bara á leiðinni á leik- völlinn. Eitt er þó víst að þeim virðist líka útiveran vel þar sem þau marsera í beinni röð. Morgunblaðið/Ómar Í halarófu áfram gakk FORSÆTISRÁÐHERRA, fjár- málaráðherra og forystumenn ASÍ og Samtaka atvinnulífsins eru á einu máli um að líkur á að verðlagsmark- miðið í næsta mánuði, rauðu strikin svokölluðu, muni nást, hafi aukist verulega eftir nýjustu verðbólgu- mælingu Hagstofunnar. Vísitala neysluverðs hækkaði einungis um 0,04% í marsmánuði og stóð vísitalan í 221,9 stigum miðað við verðlag í byrjun apríl, skv. frétt Hagstofunnar í gær. Forystumenn samtaka vinnu- markaðarins eru einnig bjartsýnir á áframhaldandi stöðugleika og lækk- un verðlags á næstu mánuðum. Rauða strikið er sett á 222,5 vísi- tölustig í maí og má vísitalan því hækka um 0,3% í aprílmánuði án þess að það bresti. Undanfarna þrjá mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 0,2%, sem jafngildir 0,7% verðbólgu á ári. Davíð Oddsson, forsætisráðherra, sagði við Morgunblaðið að verð- bólgumælingin í gær hefði komið þægilega á óvart, því ýmsir hefðu spáð því að útkoman yrði lakari en á hafi orðið raunin. Mælingin sýndi að sú aðgerð sem farið hefði verið í, hefði heppnast, jafnvel þótt farið yrði einhverja millimetra yfir rauðu strikin. Það væri afar þýðingarmikið vegna þess að það hefði áhrif á alla framtíð verðlagsmálanna. Margir hefðu gagnrýnt Seðlabankann fyrir að lækka vexti 26. mars en það virð- ist hafa verið nákvæmlega rétti tím- inn. Spáð hefði verið að gengið myndi veikjast við þá lækkun en gengið hefði þvert á móti styrkst, sem ætti að ýta undir að áhrif þess myndu einnig sjást í vöruverði í næsta mánuði. Verðbólga á fyrstu þremur mánuðum ársins væri undir 1% miðað við heilt ár og það gæfi væntingar um rétt rúmlega 2% verð- bólgu frá upphafi til loka ársins. Það væri mikil breyting miðað við 9,8% verðbólgu á liðnu ári. Að sögn Davíðs Oddssonar var fyrirsjáanlegt að verðbólgan myndi lækka mjög mikið. Til að hnykkja á samningsstöðunni hefði verið ákveð- ið að setja háleit markmið, markmið sem margir hefðu sagt við setningu þeirra að myndu aldrei nást. Hins vegar hafi allir hlutaðeigandi lagt sitt af mörkum til að þau næðust. Al- þýðusambandið hafi staðið sig afar vel í því sambandi og ríkisstjórnin gert sitt til að taka þátt í þessu og koma í veg fyrir að einstakir atburð- ir utan við venjulega rás verð- lagsþróunar hefðu óheillavænleg áhrif á þróunina. Þetta hefði gengið með samstilltu átaki og enginn fótur væri fyrir því að verðlagshækkunum hefði verið haldið í skefjum með óeðlilegum hætti og það muni koma í ljós eftir mælingu í maí. Þvert á móti bendi sterk staða gengisins og lækk- andi vextir til þess að verðlag ætti alls ekki að hækka heldur verða stöðugt og lágt. ,,Hækkunin er nokkru minni en markaðasaðilar höfðu spáð og ég tel það gefa góða von um að rauðu strik- in muni halda ef ekkert óvænt kemur upp á,“ sagði Geir H. Haarde fjár- málaráðherra í gær. Verð á mat og drykkjar- vörum lækkaði um 1,7% Verð á mat og drykkjarvörum lækkaði um 1,7% í marsmánuði. Verð á grænmeti, kartöflum o.fl. lækkaði umtalsvert í mánuðinum eða um 10,8%. Í frétt frá Hagstofunni er bent á að vetrarútsölum er nú lokið og leiddi það til 2,6% verðhækkunar á fötum og skóm. Húsnæðisliður vísi- tölunnar hækkaði um 0,9% sem hafði í för með sér 0,17% vísitöluhækkun. ,,Ég tel að líkurnar á því að mark- miðið náist hafi aukist verulega með þessari mælingu,“ segir Ari Edwald, framkvæmdastjóri SA. Hann sagðist eiinnig telja að verðstöðugleikinn muni haldast til lengri tíma litið. Grétar Þorsteinsson, forseti ASÍ, er á sömu skoðun. ,,Styrking krón- unnar hlýtur að fara að koma fram enn sterkar í vöruverði. Vaxtalækk- unin um síðustu mánaðamót hlýtur líka að fara að skila sér og kannski sjáum við meiri vaxtalækkanir. Ég er bjartsýnismaður. Þetta hvort- tveggja hlýtur að auka líkurnar á að okkur takist að vera undir rauða strikinu í maí og í annan stað að við munum halda áfram á næstu mán- uðum að sigla inn í tímabil lækkandi verðlags og lægri verðbólgu,“ sagði Grétar. Ný verðbólgumæling eykur vonir um að rauða strikið í maí muni halda Aukin bjartsýni á áfram- haldandi lækkun verðlags              9                            ( : . .;    .  Góðar líkur/6 OVALLA Trading seldi í gær 6,7% hlut í Tryggingamiðstöð- inni hf. fyrir 800 milljónir króna. Eigendur Ovalla Trading, í gegnum önnur félög, eru Jó- hannes Jónsson og börn hans, Kristín og Jón Ásgeir, auk Hreins Loftssonar, en bæði Jón Ásgeir og Hreinn sitja í stjórn Tryggingamiðstöðvarinnar. Eftir söluna á Ovalla Trading 11,3% hlutafjár í Tryggingamið- stöðinni. Ovalla Trading var um síð- ustu áramót stærsti hluthafi Tryggingamiðstöðvarinnar með 18% hlutafjár, en næststærst voru félög í eigu fjölskyldu Sig- urðar heitins Einarssonar, út- gerðarmanns úr Vestmannaeyj- um. Skömmu fyrir aðalfund Tryggingamiðstöðvarinnar í síðasta mánuði eignuðust þessi félög fjölskyldu Sigurðar heitins hlutabréf sem verið höfðu í eigu Straums hf. og voru þá saman- lagt komin með 43,3% í Trygg- ingamiðstöðinni. Á aðalfundin- um var kosin ný stjórn og tók Gunnlaugur Sævar Gunnlaugs- son við stjórnarformennsku af Hreini Loftssyni. Kaupir í Baugi Frá því var einnig greint á Verðbréfaþingi í gær að Ovalla Trading hefði keypt í Baugi fyr- ir 100 milljónir króna, og er eignarhlutur félagsins í Baugi 0,4% eftir kaupin. Hreinn Loftsson vildi ekki tjá sig um fyrrgreind viðskipti þeg- ar eftir því var leitað í gær og hið sama er að segja um stjórnar- formann TM, Gunnlaug Sævar Gunnlaugsson. Ekki tókst að ná í Jón Ásgeir Jóhannesson, sem er erlendis. Ovalla Trading minnkar hlut sinn í TM TÆPLEGA tvítug stúlka var á laugardag handtekin á Kefla- víkurflugvelli eftir að tollverðir fundu rúmlega kíló af hassi í stígvélum hennar. Við leit fund- ust einnig um 65 grömm af am- fetamíni í snyrtitösku. Að sögn Kára Gunnlaugsson- ar, aðaldeildarstjóra tollgæsl- unnar á Keflavíkurflugvelli, var hassið falið í skósólunum en hafði einnig verið stungið niður með fótleggjum stúlkunnar of- an í stígvélin. Hún var með belgískt vegabréf og var að koma með síðdegisfluginu frá París þegar hún var stöðvuð í reglubundnu eftirliti. Enn eitt burðardýrið Fíkniefnadeild lögreglunnar í Reykjavík tók við rannsókn málsins og hefur stúlkan verið úrskurðuð í gæsluvarðhald til 23. apríl nk. Gera má ráð fyrir að stúlkan sé „burðardýr“ fíkniefnanna sem aðrir hafa keypt og skipu- lagt innflutningin til landsins og sölu. Kíló af hassi í stígvél- unum

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.