Morgunblaðið - 25.04.2002, Page 59

Morgunblaðið - 25.04.2002, Page 59
UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. APRÍL 2002 59 Sunnuhlíðar. Þá er í Kópavogi, eins og víðast annars staðar á höfuðborg- arsvæðinu, erfitt að fá heimilislækni eða tíma á heilsugæslustöð. Þessari öfugþróun verður að snúa við. Hvað er til ráða? Hluti þeirra verkefna sem að ofan greinir eru á hendi ríkisins og bær- inn því ekki aðili að þeim nema óbeint. Þetta á einkum við um heilsugæslu og heimahjúkrun. Bær- inn ætti þó tafarlaust að koma sér upp áætlun með það fyrir augum að efla þá þætti sem eru í ólestri. Í þessu augnamiði á að stefna að eft- irfarandi:  Stórefla heimaþjónustu  Krefja ríkið um aukin framlög til heimahjúkrunar  Samþætta þjónustu þessara tveggja til að efla þjónustuna  Bærinn hefji þegar viðræður við Sunnuhlíðarsamtökin um að ger- ast aðili að samtökunum með því að leggja fram myndarlegt fram- lag sem stofnfé  Auka þrýsting á ríkisvaldið um að hefja þegar byggingu nýrrar heilsugæslustöðvar, fremur en að standa við bakið á einkareknum stöðvum  Bærinn hafi frumkvæði að því að koma á sveigjanlegum starfs- lokaaldri  Bærinn hefji þegar vinnu við að gera könnun á högum og viðhorf- um eldri bæjarbúa með það fyrir augum að bæta þjónustuna Vissulega eru fjölmörg önnur verkefni er snúa að eldri borgurum sem bíða nýrra stjórnenda bæjarins eftir kosningar. Það er þó grundvall- aratriði í allri slíkri vinnu að samráð sé haft við þá sem þjónustunnar njóta. Eldra fólk á skilyrðislausan rétt á að komið sé fram við það af fullri virðingu. Forræðishyggju í málefnum aldraðra þarf að afleggja. Höfundur er öldrunarlæknir og leiðir lista vinstri-grænna í Kópavogi fyrir sveitarstjórnar- kosningarnar í vor. bókstaflega beitt sér gegn því að lög, sem nutu meirihluta á viðkom- andi þingi, heimiluðu þróun raf- ræns lýðræðis. Það er ákaflega miður. Tilraunir og framfarir Fyrir utan að auðvelda kosning- ar og framkvæmd þeirra í alla staði draga kosningar á Netinu jafn- framt stórum úr því umfangi og kostnaði sem fylgir stórum at- kvæðagreiðslum. Það er að sjálf- sögðu mjög jákvætt fyrir fylgis- menn milliliðalauss lýðræðis. Svo virðist hins vegar sem við Íslend- ingar þurfum að sætta okkur við kyrrstöðu í lýðræðisþróuninni með- an Sjálfstæðisflokkurinn er við völd. Ég hyggst beita mér fyrir fram- förum og tilraunum um rafrænar kosningar um leið og við jafnaðar- menn komumst til aukinna áhrifa við stjórn landsins. Hver niðurstað- an verður í framtíðinni með raf- rænar kosningar og beint lýðræði veit enginn. En við eigum að þora að horfa til framtíðar og gera til- raunir með lýðræðið. Höfundur er formaður Sam- fylkingarinnar. Söluaðilar Navision Attain á Íslandi eru: Element HSC Landsteinar Ísland Maritech Strengur Tölvuþjónustan á Akranesi Einfalt að innleiða, auðvelt að aðlaga og öruggt í notkun. Á veginum til vaxtar verður þú að geta brugðist við breytingum, nýtt þér styrkleika þína og gripið sóknartækifærin þegar þau gefast. Sjáðu hvernig Navision getur hjálpað þér að fullnýta tækifærin á www.navision.is Navision Attain er ný kynslóð viðskiptahugbúnaðar frá Navision, byggð á hinu vinsæla kerfi Navision Financials Þú selur nýja bílinn um leið og þú kaupir hann! N O N N I O G M A N N I | Y D D A / s ia .i s N M 0 6 1 5 5 ÁSKRIFTARDEILD netfang: askrift@mbl.is, sími 569 1122alltaf á föstudögum

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.