Morgunblaðið - 25.04.2002, Síða 64
64 FIMMTUDAGUR 25. APRÍL 2002 MORGUNBLAÐIÐ
AT V I N N U A U G LÝ S I N G A R
Ræstingar
Atvinna í boði við ræstingar. Um ca 55% starf
er að ræða. Möguleiki á helgarvinnu.
Umsóknir sendist til auglýsingadeildar Mbl.
eða á box@mbl.is, merktar: „R — 12079“.
Málari óskast
í vinnu sem fyrst. Aðeins vanur maður kemur
til greina. Framtíðar- eða tímabundið starf.
Góð laun í boði.
ÍS-MÁL ehf.,
símar 898 3123 og 564 6776.
Starfskraftur
á besta aldri óskast
í tískufataverslun fyrir konur. Áreiðanlegur ein-
staklingur, sem býr yfir frumkvæði, áhuga,
stundvísi, metnaði, þjónustulund og góðri
framkomu, telst afar mikilvægur.
Reykingafólk kemur ekki til greina.
Skriflegar umsóknir sendist til augldeildar Mbl.
eða á box@mbl.is fyrir 30. apríl, merktar: „Spenn-
andi — 12239“. Öllum umsóknum verður svarað.
Bessastaðahreppur
Tónlistarskóli
Bessastaðahrepps
auglýsir eftir málmblásturs- og slagverkskenn-
urum fyrir næsta skólaár. Nánari upplýsingar
gefur skólastjóri í símum 565 4459, 565 2625
eða 565 3191.
Orgelleikarar
— organistar
Organisti óskast í hálft starf að kirkjum Kirkju-
bæjarklaustursprestakalls. Hæfniskröfur eru
a.m.k. 7. stig í orgelleik/hljómborðsleik, þekk-
ing á uppbyggingu messu í lútherskri kirkju
og nokkur reynsla af kórstjórn, auk þess að eiga
auðvelt með að vinna með fólki, jafnt ungu
sem öldnu. Launakjör skv. samningi Félags
ísl. orgelleikara. Möguleiki er fyrir hæfan tón-
listarmann á allt að hálfu starfi á móti organ-
istastarfinu við stofnanir Skaftárhrepps.
Í Kirkjubæjarklaustursprestakalli eru 4 sóknarkirkjur. Í Prestsbakka-
kirkju er 8 radda pípuorgel en í hinum kirkjunum eru allgóð harmoní-
um. Við kirkjurnar starfa 2 kórar sem æfa að jafnaði einu sinni í viku
hvor yfir vetrarmánuðina. Í prestakallinu eru nálægt 550 manns.
Nánari upplýsingar veitir formaður sóknar-
nefndar Prestsbakkasóknar, Guðmundur Óli
Sigurgeirsson, í síma 487 4664 milli kl. 19.00
og 22.00 á kvöldin og formaður fræðslunefndar
Skaftárhrepps, Jóna Sigurbjartsdóttir,
í síma 487 4636.
Grunnskólinn á Hellu
auglýsir!
Erum að leita að áhugasömum
kennurum til starfa á næsta skólaári.
Meðal kennslugreina: Raungreinar, kennsla
yngri barna, smíðar, hannyrðir, tónmennt
og sérkennsla.
Ath. Grunnskólinn á Hellu er einsetinn 160 nemenda skóli, sem starfar
í 10 fámennum bekkjardeildum. Í skólanum er frábær vinnuaðstaða
fyrir kennara í nýju og glæsilegu skólahúsnæði. Ódýrt íbúðarhúsnæði
er fyrir hendi. Á Hellu er m.a. góð aðstaða til íþróttaiðkana, leikskóli
og tónlistarskóli. Einnig er á Hellu góð aðstaða til að iðka hin ýmsu
áhugamál, s.s. hestamennsku, golf og fjallamennsku. Á svæðinu
starfa öflugir kórar og leikfélag. Nánari upplýsingar má einnig nálgast
á heimasíðu skólans http://hella.ismennt.is/ .
Nánari upplýsingar má einnig nálgast á heima-
síðu skólans http://hella.ismennt.is/
Vinsamlegast hafið samband við undirritaða
og fáið upplýsingar um kjör og aðstöðu.
Sigurgeir Guðmundsson, skólastjóri, í símum
487 5441/894 8422, og
Pálína Jónsdóttir, aðstoðarskólastjóri, í símum
487 5442/487 5891.
Valsárskóli,
Svalbarðsströnd,
601 Akureyri
Í skólanum eru tæplega 80 nemendur
í 1.—10. bekk
Skólinn er mjög vel staðsettur í fallegu, fjöl-
skylduvænu umhverfi, um 12 km frá Akureyri.
Aðstaða í skólanum er nokkuð góð og býður
upp á ánægjulegan vinnustað.
Lausar stöður við skólann
Aðstoðarskólastjóri
Kennslureynsla í samkennslu æskileg, skipu-
lagshæfileikar og tölvukunnátta nauðsynleg.
● Íþróttakennsla, hálf staða.
● Smíðakennsla.
● Íslenskukennsla í 9.–10. bekk.
● Valgreinakennsla.
● Heimilisfræðikennsla.
● Tónmenntakennsla.
Áhugasamir eru beðnir að hafa samband sem
fyrst.
Umsóknarfrestur er til 15. maí nk.
Upplýsingar veitir Hólmfríður Sigurðardóttir,
skólastjóri, í símum 462 3105, 891 7956,
hs. 462 6822.
Heilbrigðis- og
tryggingamálaráðuneytið
Lögfræðingur
Umsóknarfrestur framlengdur
til 8. maí nk.
Umsóknarfrestur um áður auglýst starf á lög-
fræðiskrifstofu heilbrigðis- og tryggingamála-
ráðuneytisins er hér með framlengdur til
8. maí nk.
Verkefni eru m.a. þátttaka í undirbúningi laga-
frumvarpa, samning reglugerða, samskipti við
Alþingi, stjórnsýsluúrskurðir, erlend samskipti
og afgreiðsla erinda á lögfræðisviði.
Umsækjendur skulu hafa lokið embættisprófi
í lögfræði.
Launakjör eru samkvæmt samningi Félags há-
skólamenntaðra starfsmanna stjórnarráðsins.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Guðríður
Þorsteinsdóttir, skrifstofustjóri lögfræðisskrif-
stofu, í síma 560 9700.
Umsóknir, ásamt upplýsingum um menntun
og fyrri störf, sendist heilbrigðis- og trygginga-
málaráðuneytinu, Laugavegi 116, 150 Reykja-
vík, eigi síðar en 8. maí nk.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörð-
un um ráðningu hefur verið tekin.
Heilbrigðis og tryggingamálaráðuneytið,
Reykjavík 22. apríl 2002.
Svæðisskrifstofa málefna
fatlaðra á Reykjanesi
Þroskaþjálfar og
stuðningsfulltrúar
óskast til starfa á nýtt heimili fólks með
fötlun í Blikaási 2 í Hafnarfirði
Í júní verður opnað nýtt heimili fyrir fólk með
fötlun í Blikaási 2, Hafnarfirði. Svæðisskrifstofan
óskar eftir að ráða þroskaþjálfa og almennt
starfsfólk til framtíðarstarfa við heimilið.
Um er að ræða 50—100% stöður fyrir
þroskaþjálfa og almennt starfsfólk af báðum
kynjum.
Fjölbreytt og spennandi framtíðarstörf fyrir
starfsfólk sem býr yfir jákvæðum viðhorfum
og er áhugasamt um starf með einstaklingum
með fötlun. Boðið er upp á öflugan faglegan
stuðning, þjálfun og námskeið. Nýtt starfsfólk
tekur þátt í framsæknu þróunarstarfi við mótun
þjónustunnar.
Við bjóðum laun samkvæmt gildandi kjara-
samningum ÞÍ og SFR. Kaffitímar eru greidd-
ir í yfirvinnu, frítt fæði og fleira. Reyklaus
vinnustaður.
Upplýsingar um ofangreind störf eru veittar
í síma 525 0900 á skrifstofutíma. Umsóknar-
frestur er til og með 10. maí nk. Ráðið verður
í störfin frá 15. maí til 1. júní nk. Umsóknar-
eyðublöð eru á skrifstofunni á Digranesvegi
5 í Kópavgi og á heimasíðu Svæðisskrifstofu,
http://www.smfr.is
R A Ð A U G L Ý S I N G A R
ÓSKAST KEYPT
Hoppukastali
Gerðahreppur, f.h. 17. júní nefndar, óskar eftir
að kaupa eða taka á leigu hoppukastala. Nánari
upplýsingar á skrifstofu Gerðahrepps í síma
422 7108, netfang: sigurdur@gerdahreppur.is .
Sveitarstjóri.
LISTMUNIR
Málverk/Svavar Guðnason
Olíumálverk eftir Svavar til sölu
Stærð 1,00x0,80. Keypt beint af listamanninum.
Lysthafendur leggið inn upplýsingar til auglýs-
ingadeildar Mbl. merktar: „EG — 12230“.
LÓÐIR
Kirkjustétt — Grafarholti
Plata undir einbýlishús við Kirkjustétt til sölu.
Suðurgarður. Útsýni. Teikningar fylgja.
Áhvílandi 4,8 millj.
Upplýsingar í símum 861 0401/898 4444.
NAUÐUNGARSALA
Uppboð
Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim
sjálfum, sem hér segir:
Betanía, Önundarfirði, Ísafjarðarbæ, þingl. eig. Einar Örn Björnsson,
gerðarbeiðendur Búland ehf. og Ísafjarðarbær, mánudaginn 29. apríl
2002 kl. 14.10.
Seljalandsvegur 30, Ísafirði, þingl. eig. Sesselja Þórðardóttir og
Magnús Þorgilsson, gerðarbeiðandi Landsbanki Íslands höfuðstöðv-
ar, mánudaginn 29. apríl 2002 kl. 13.30.
Sýslumaðurinn á Ísafirði,
23. apríl 2002.
TILKYNNINGAR
Lokað föstudaginn 26. apríl
vegna ferðalags starfsfólks.
Gleðilegt sumar! ATVINNUAUGLÝSINGAR
sendist á augl@mbl.is