Morgunblaðið - 25.04.2002, Blaðsíða 70
70 FIMMTUDAGUR 25. APRÍL 2002 MORGUNBLAÐIÐ
BRÉF
TIL BLAÐSINS
Kringlunni 1 103 Reykjavík Sími 569 1100
Símbréf 569 1329 Netfang bref@mbl.is
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt t i l að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
ti l birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.
Fyrsta barnið sem fæddist á kvennadaginn 7. apríl í 5. hverfi í Mapútó.
Félags- og kvenna-
málaráðuneytið
í Mósambík
Frá Huldu Biering;
SNEMMA á árinu 2000 var stofnuð
deild innan félagsmálaráðuneytisins
í Mósambík sem kölluð er kvenna-
máladeild og í kjölfar þess var ráðu-
neytið nefnt ráðuneyti kvenna- og
félagsmála. Meginverkefni deildar-
innar er að skilgreina, koma á fram-
færi og þróa verkefni sem styðja
málefni kvenna og fjölskyldunnar al-
mennt, en alltaf með jafnréttissjón-
armið að leiðarljósi. Auk þess er
hlutverk deildarinnar að halda utan
um þær stofnanir jafnt opinberar og
óopinberar, innlendar sem erlendar
sem starfa að því að bæta hlut
kvenna og fjölskyldna í landinu. Þró-
unarsamvinnustofnun Íslands tekur
þátt í því að styrkja og byggja upp
hina nýju deild. Þessi deild innan
kvenna- og félagsmálaráðuneytisins
opnaði nýja og glæsilega skrifstofu
13. mars síðastliðinn.
Starfseminni þar er skipt upp í
þrjá meginþætti; fjölskyldudeild
sem heldur utan um og kynnir verk-
efni sem og lög og reglugerðir er
miða að því að styrkja fjölskyldur í
landinu með sérstaka áherslu á að
rétta hlut kvenna. Má þá nefna verk-
efni sem tengjast baráttunni gegn
útbreiðslu alnæmis, verkefni sem
vinna gegn heimilisofbeldi og verk-
efni sem styðja sérstaklega konur
sem einar annast framfærslu heim-
ilisins og uppeldi, eins og ekkjur og
einstæðar mæður. Starfsmenn eru
einnig til ráðgjafar öðrum stofnun-
um sem starfa að sömu markmiðum.
Í öðru lagi er þar starfandi þróun-
ardeild sem heldur utan um og kem-
ur á framfæri lögum og reglugerð-
um ráðuneytisins. Sú deild sér auk
þess um að kynna og koma á fram-
færi framkvæmdaáætlun Samein-
uðu þjóðanna (SÞ) sem samþykkt
var á jafnréttisráðstefnu SÞ í Beij-
ing 1995, en frá þeim tíma hefur
markvisst verið unnið að því að
framkvæma áætlunina frá Beijing. Í
þriðja lagi hefur jafnréttisnefnd
landsins aðsetur í húsinu.
Kvennafrídagurinn
í Mósambík 7. apríl 2002
Í Mósambík hefur kvennafrídag-
urinn verið í hávegum hafður síðan
árið 1973 og er einn af opinberum
frídögum landsins. Í tilefni af deg-
inum þetta árið er sérstök dagskrá á
vegum ráðuneytisins og annarra
stofnana sem láta sig varða málefni
kvenna í Mósambík.
Dagskráin hófst 1. apríl og í tvær
vikur var staðið fyrir alls kyns uppá-
komum á hverjum degi til að minna
á jafnrétti og stöðu kvenna í landinu.
Fjölmiðlar tóku viðtöl og fjölluðu um
og kynntu hin ýmsu verkefni. Fram
komu einnig upplýsingar um það
sem er að gerast í þinginu í jafnrétt-
ismálum landsins. Aðalhátíðarhöldin
voru sunnudaginn 7. apríl. Þá var
lagður blómsveigur að minnismerk-
inu á Hetjutorginu, til minningar um
baráttu kvenna hér í borg og til heið-
urs konum. Mörg verkefni og sam-
tök fengu viðurkenningu þennan
dag. Ein þeirra eru Samtök ekkna
og einstæðra mæðra í hverfi númer
fimm í Mapútóborg. Á þessum degi
færðu samtökin móður fyrsta barns-
ins sem fæddist í hverfinu þeirra,
gjafir, föt, rúmföt, hreinlætisvörur
og moskítónet. Allar aðrar nýbakað-
ar mæður í hverfinu fengu einnig
moskítónet fyrir fjölskylduna.
Moskítónetin verja börn og full-
orðna fyrir stungum moskítóflug-
unnar sem ber með sér m.a. mal-
aríusmit
Þessi Samtök ekkna og einstæðra
mæðra voru stofnuð fyrir sex árum
af nokkrum konum í hverfi númer
fimm. Þau voru að svara brýnni þörf,
þar sem stór hópur kvenna, einstæð-
ar mæður og ekkjur sem kallaðar
eru höfuð fjölskyldunnar, berst við
af miklum vanmætti að sjá fyrir sér
og sínum. Samtökin styðja þennan
hóp og veitir þeim fyrirgreiðslu og
fræðslu. Í dag eru í þessum samtök-
um rúmlega 300 manns, ekkjur,
ekklar og einstæðar mæður. Þar er
kominn upp sterkur vísir að fullorð-
insfræðslu, og er boðið upp á nám-
skeið í saumaskap, bókhaldi,
hænsnarækt. Einnig vinna þau að
forvarnarstarfi með reglulegum
fræðslufundum um heilsu og hvern-
ig ber að varast sjúkdóma eins og
malaríu og kóleru. Einnig eru starf-
andi í samtökunum sjálfboðaliðar
sem ganga um hverfið og kynna mik-
ilvægi forvarna og þá sérstaklega
gegn alnæmi/eyðni Meðfram þessu
er næsta verkefni samtakanna að ná
til unga fólksins í hverfinu og þá sér-
staklega til ungra verðandi mæðra.
Þróunarsamvinnustofnun styrkir
þessi samtök og var fulltrúum stofn-
unarinnar í Mósambík boðið að taka
þátt í hátíðahöldunum á kvennafrí-
daginn 7. apríl síðastliðinn.
HULDA BIERING,
starfsmaður ÞSSÍ, ráðgjafi í
ráðuneyti jafnréttis- og félags-
mála í Mósambík.