Morgunblaðið - 28.05.2002, Side 20

Morgunblaðið - 28.05.2002, Side 20
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF 20 ÞRIÐJUDAGUR 28. MAÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ HAGNAÐUR Granda hf. og dótt- urfyrirtækis þess, Faxamjöls hf., á fyrstu 3 mánuðum ársins 2002 nam 575 milljónum króna, en á sama tíma árið 2001 var hagnaðurinn 68 milljónir króna. Rekstrartekjur samstæðunnar á tímabilinu námu 1.673 milljónum króna samanborið við 1.257 milljónir króna á sama tíma á síðasta ári og jukust um 33%. Rekstrarhagnaður fyrir afskrift- ir var 609 milljónir króna eða 36% af rekstrartekjum samanborið við 366 milljónir króna fyrir sama tímabil árið áður. Veltufé frá rekstri nam 445 milljónum króna sem er 27% af rekstrartekjum samanborið við 305 milljónir króna á sama tíma árið áður. Hagnaður Rekstrarhagnaður Granda hf. og Faxamjöls hf. af eigin starfsemi var 446 milljónir króna samanbor- ið við 232 milljónir króna á sama tíma árið áður. Hreinar fjármuna- tekjur námu 193 milljónum króna samanborið við 128 milljóna króna gjöld á sama tíma árið 2001. Geng- ishagnaður af erlendum skuldum nam um 270 milljónum króna fyrstu 3 mánuði ársins, en geng- isvísitalan hefur lækkað um 4% frá áramótum. Hagnaður varð á rekstri Faxa- mjöls hf. að fjárhæð 159 milljónir króna á tímabilinu. Hlutdeildar- félögin eru fjögur. Þormóður rammi – Sæberg hf. var rekið með hagnaði. Hjá fyrirtækjunum í Mexíkó gekk reksturinn illa og hjá Deris í Chile var tap á tímabilinu. Rekstur Stofnfisks var samkvæmt áætlun og var félagið rekið með hagnaði á tímabilinu. Alls var hlut- deild Granda í rekstrarafkomu hlutdeildarfélaga jákvæð um 55 milljónir króna. Eignabreytingar Í byrjun árs 2002 fékk félagið afhentan frystitogarann Venus HF 519 sem keyptur var með afla- heimildum er nema um 3.000 þorskígildistonnum. Kaupverð skipsins og aflaheimilda nam sam- tals 1.621 milljón króna. Á sama tíma var Snorri Sturluson RE 219 afhentur nýjum eigendum ásamt veiðarfærum og aflaheimildum sem nema 1.045 þorskígildis- tonnum. Söluverð skips, veiðafæra og aflaheimilda nam samtals 878 milljónum króna og er það greitt með hlutafé í Ísfélagi Vestmanna- eyja hf. Hagnaður af sölu Snorra Sturlusonar nam um 85 milljónum króna og er hann meðtalinn í rekstrartekjum undir öðrum tekjum í rekstrarreikningi. Eigið fé Eigið fé Granda hf. var hinn 31. mars sl. 5.214 milljónir króna og hefur það hækkað um 575 milljónir króna frá ársbyrjun 2002. Eigin- fjárhlutfall er 36%. Arðsemi eigin fjár var 12,3% á tímabilinu. Á aðal- fundi félagsins hinn 5. apríl sl. var samþykkt að greiða 11% arð og var hann greiddur hinn 23. maí sl. Arðurinn var óbókaður hinn 31. mars sl. Hagnaður Granda 575 milljónir króna ÍSLANDSBANKI hefur fengið nýtt aðalnúmer, 440 4000. Nýja símanúmerið veitir aðgang að þjónustuveri bankans og skipti- borði. Í einu númeri má því sækja alla bankaþjónustu og ná sambandi við hvaða starfsmann bankans sem er. Útibú Íslands- banka og starfsmenn hafa jafn- framt fengið ný bein símanúmer, en eldri númer verða í gildi jafn- hliða þeim nýju út ágústmánuð. Nánari upplýsingar um ný síma- númer útibúa og starfsmanna er að finna á vef Íslandsbanka isb.is. Nýtt símanúmer Íslandsbanka KAUPHÖLLIN í Ósló hefur tengst SAXESS-viðskiptakerfinu sem er notað af Verðbréfaþingi Íslands auk kauphallanna í Kaupmannahöfn og Stokkhólmi en allar kauphallirnar eru aðilar að NOREX-samstarfinu. Með þessu skrefi munu aðilar allra kauphallanna hafa aðgang að skráð- um bréfum á öllum mörkuðunum. Kauphallaraðilar í 10 löndum munu hafa aðgang að SAXESS-við- skiptakerfinu. Íslensk verðbréf verða því ekki aðeins sýnileg íslensk- um kauphallaraðilum heldur einnig dönskum, sænskum, norskum, finnskum, enskum, frönskum, þýsk- um, hollenskum og svissneskum og þar af leiðandi viðskiptavinum þeirra, fjárfestum. Þéttriðið net kauphallaraðila gefur fjárfestum um allan heim tækifæri til að fjárfesta á norræna markaðnum. Af vel þekkt- um erlendum bönkum sem eru aðilar að NOREX-kauphöllunum má nefna Merrill Lynch, Morgan Stanley, Citibank, Deutsche Bank, UBS, Sal- omon Brothers og Lehman Brot- hers. Aukinn seljanleiki Aðgengi erlendra fjárfesta að nor- ræna markaðnum og miðlæg við- skipti með bréf á heimamarkaði skapa forsendur fyrir auknum selj- anleika og betri verðmyndun. Hvort tveggja eru mikilvægar forsendur við mat erlendra fjárfesta á fjárfest- ingarkostum. Eitt af markmiðum Verðbréfaþings með þátttökunni í NOREX-samstarfinu var að opna markaðinn fyrir erlendum fjárfest- um. „Verðbréfaþing hefur nú auðveld- að erlendum bönkum og verðbréfa- fyrirtækjum að gerast aðilar að þinginu til að eiga viðskipti með ís- lensk verðbréf. Mjög einfalt er t.d. fyrir kauphallaraðila í Ósló að gerast aðili að Verðbréfaþingi. Þetta er ein leið til að fá erlenda fjárfesta inn á markaðinn og á næstu mánuðum mun þingið leggja aukna áherslu á að fjölga erlendum aðilum að þinginu. Nauðsynlegt er að fá erlent fjármagn til að auka veltuna og dýpka markaðinn,“ segir Þórður Friðjónsson, forstjóri Verðbréfa- þings Íslands. Kauphöllin í London (LSE) hyggst opna útibú í Stokkhólmi til að mæta aukinni samkeppni samfara SAXESS-viðskiptakerfinu. Þetta var tilkynnt á blaðamannafundi, sem haldin var á sama tíma og SAXESS- viðskiptakerfið var kynnt í Osló. Þetta er fyrsta útibúið sem LSE opnar utan Bretlands og segja tals- menn kauphallarinnar að ef vel tak- ist til, verði fleiri útibú opnuð á Norðurlöndum. Norski mark- aðurinn tengist SAXESS Allar NOREX-kauphallirnar munu eiga viðskipti í sama viðskiptakerfinu Verkefnastjórnunarfélag Íslands heldur námstefnu miðvikudaginn 29. maí á Hótel Loftleiðum undir yfirskriftinni Verkefnastjórnun í fjármálafyrirtækjum. Á námstefn- unni verður gefin innsýn og yfirlit yfir verkefnastjórnun í fjármála- fyrirtækjum og fjallað um hvar og hvernig megi beita henni. Einnig verða fluttar nokkrar reynslusög- ur úr fjármálafyrirtækjum. Þröstur Sigurðsson, fagstjóri fjármálaráðgjafar hjá Pricewater- houseCoopers, mun m.a. skýra frá nýtingu verkefnastjórnunar við lausn ráðgjafarverkefna í fjár- málafyrirtækjum. Hann mun einn- ig koma inn á sérstöðu fjármála- fyrirtækja með tilliti til aðferðafræði verkefnastjórnunar. Rætt um reynslu fyrirtækja Páll Kolka Ísberg, verkefna- stjóri hjá Íslandsbanka, mun fjalla um reynslu af innleiðingu og upp- byggingu verkefnastjórnunar hjá Íslandsbanka. Stefán H. Stefáns- son, framkvæmdastjóri þróunar- sviðs Landsbankans, mun skýra frá nýtingu aðferðafræðinnar í stefnumótunar-, þróunar- og hag- ræðingarverkefnum hjá Lands- bankanum, og Kristinn Tryggvi Gunnarsson, framkvæmdastjóri markaðssviðs SPRON, mun skýra frá því hvernig SPRON hefur nýtt sér aðferðafræðina á sviði mark- aðs- og vöruþróunarmála. Að lokum mun Lára Jóhanns- dóttir, gæðastjóri hjá Sjóva-Al- mennra, fjalla um reynslu fyrir- tækisins af verkefnastjórnun m.a. við skráningu fyrirtækisins á Verðabréfaþing Íslands. Námstefna um verkefna- stjórnun í fjármála- fyrirtækjum

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.