Morgunblaðið - 28.05.2002, Side 53
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. MAÍ 2002 53
DAGBÓK
STÓRSVEIT Norðurlands
eystra vann Kjördæmamót
BSÍ, sem fram fór á Egils-
stöðum fyrir rúmri viku.
Hvert kjördæmi tefldi fram
fjórum liðum og voru spilað-
ar sjö umfeðir af 16 spila
leikjum. Norðurland eystra
hlaut 471 stig, eða 16,82 stig
að jafnaði úr leik. Reykvík-
ingar uðru í öðru sæti, en
Reyknesingar því þriðja.
Átakaspil úr síðustu umferð-
inni olli sveiflum í mörgum
leikjum.
Norður gefur; allir á
hættu.
Norður
♠ 98753
♥ K107653
♦ –
♣106
Vestur Austur
♠ 104 ♠ –
♥ – ♥ Á9842
♦ ÁK98432 ♦ DG65
♣K943 ♣D875
Suður
♠ ÁKDG62
♥ DG
♦ 107
♣ÁG2
Sex spaðar vinnast í suður
með tígulás út og sú varð nið-
urstaðan á mörgum borðum,
oft í dobluðu spili. Vilhjálmur
Sigurðsson júníor, sem spil-
aði fyrir hönd Reykjavíkur,
fann þó hið banvæna laufút-
spil gegn slemmunni, en
hann hafði pata af því að
blindur væri með eyðu í tígli.
Fórnin í sjö tígla kostar ekki
nema 500 og borgar sig því ef
menn eru ekki á skotskón-
um.
Í viðureign Norðurlands
eystra og Reykjaness á
fyrsta borði, höfðu NS í lok-
aða salnum látið sér nægja
að spila spaðageim og skrif-
uðu fyrir það 680 í eigin dálk.
Tilþrifin voru meiri í opna
salnum. Þar voru fyrir
Reykjanes þeir Þröstur
Ingimarsson og Erlendur
Jónsson gegn Birni Þorláks-
syni og Frímanni Stefáns-
syni í sigurliðinu:
Vestur Norður Austur Suður
Frímann Þröstur Björn Erlendur
– 2 tíglar Pass 2 grönd
3 tíglar 4 tíglar 5 tíglar 6 spaðar
Pass Pass 7 tíglar Pass
Pass Dobl Allir pass
Þröstur hefur sagnir með
norskri sagnvenju sem sýnir
hálitina og veik spil. Erlend-
ur krefur í geim með tveimur
gröndum á móti og Frímann
kemur tíglinum í leikinn.
Sagnir stigmagnast svo upp í
sex spaða, sem rúlla yfir til
Björns í austur. Björn á vold-
ugt varnarspil í hjartaásn-
um, en sá jafnframt í hendi
sér að sjö tíglar væru ódýr
fórn og „tók af sér höggið“ –
500 í NS og 5 IMPar til
Norðurlands eystra.
Stefán Vilhjálmsson stýrði
sigurliðinu og gerði það einn-
ig í fyrra með sama árangri.
Hann er þó alls ekki viss um
að sér hlotnist sá heiður á
næsta ári, því í ljósi síðustu
frétta úr annarri íþrótta-
grein hefur hann efasemdir
um „starfsöryggi liðsstjóra í
kjölfar velgengni“. Stefán
orðar það svo í litlu versi:
Til sigurs þó hafi ég lið okkar
leitt,
lítið það öryggi jók,
því fyrir að vinna nú fæst bara
eitt
að fordæmi þeirra hjá Stoke.
Í stórfyrirsögnina stefnir því
greitt:
Stebbi Vill pokann sinn tók.
BRIDS
Umsjón Guðmundur Páll
Arnarson
STJÖRNUSPÁ
eft ir Frances Drake
TVÍBURAR
Afmælisbörn dagsins:
Þú ert mjög sérstakur ein-
staklingur. Þú ert skapandi
og færð nýjar og frumlegar
hugmyndir. Á þessu ári gæti
nýtt upphaf beðið þín á ein-
hverju sviði.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Ómeðvitandi viðhorf úr fortíð-
inni setja svip sinn daginn,
sérstaklega á heimilinu. Þetta
getur auðveldlega valdið
óánægju þannig að þú ættir að
reyna að sýna þolinmæði.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Það er að færast meiri hraði í
líf þitt. Þú hefur mikla orku og
þarft að gæta þess að sýna
nærgætni í daglegum sam-
skiptum.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Af einhverjum ástæðum sam-
samar þú þig eigum þínum
þessa dagana. Gleymdu því
ekki að þú ert ekki það sem þú
átt. Þú ert þú sjálfur.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Það er mikið að gerast hjá
þér. Þú þarft að leggja hart að
þér til að koma ár þinni fyrir
borð og vinna þig í álit hjá öðr-
um.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Hunsaðu hugsanir og tilfinn-
ingar sem gera þér gramt í
geði. Þetta litla svarta ský
mun fljótlega gufa upp enda
hefur það litla þýðingu.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Dagurinn hentar vel til að
skilgreina takmök þín og
vinna að þeim. Leggðu þig
fram við vinnu þína í dag og þá
muntu ná árangri á morgun.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Þú vilt helst ráða þér sjálfur
þessa dagana. Þú átt auðvelt
með að hafa árif á aðra svo
framarlega sem þú ógnar ekki
valdi þeirra.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Þú hefur þörf fyrr að vinna
meira krefjandi og skapandi
störf en þú ert vanur. Þú vilt
örva huga þinn með því að
læra eitthvað nýtt og spenn-
andi.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Þú gætir fundið upp á því að
hefja umræðu um sameigin-
legar eignir. Þú átt fullan rétt
á því að það sé komið fram við
þig af sanngirni í þessu máli.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Þú gætir fundið fyrir spennu á
milli þín og þinna nánustu. Ef
þú átt erfitt með að láta undan
og miðla málum reyndu þá að
halda aftur af þér og bíða betri
tíma.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Þú ert tilbúinn að leggja þig
allan fram við að koma hlut-
unum í verk í dag. Það er
sama hvað þú gerir, þú átt eft-
ir að finna til stolts yfir afrek-
um þínum.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Láttu sjálfan þig vera í fyr-
irrúmi í dag. Þú ert hlaðinn
orku sem gerir að það verkum
að þig langar til að hrópa Ég
er!
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
LJÓÐABROT
ALÞINGISRÍMUR
Söng í ránum, rumdi grimm
Rán á óðum mari;
löng í trjánum dundi dimm
duna’ á góðu fari.
Þvoði úðinn öldujó,
eimvél rámri knúin
gnoðin prúð um svalan sjó
sveimaði’ und ámum lúin.
1. d4 f5 2. g3 Rf6 3. Bg2 g6
4. Rf3 Bg7 5. 0–0 0–0 6. c4
d6 7. Rc3 Ra6 8. d5 Bd7 9.
Be3 c6 10. Hc1 Rg4 11. Bd2
e5 12. dxe6 Bxe6 13. b3 h6
14. Ra4 De7 15. Bc3 Re5 16.
He1 Had8 17. Dc2 Df7 18.
Rb2 Rc5 19. Rxe5 Bxe5 20.
b4 Bxc3 21. Dxc3 Re4 22.
De3 g5 23. a3 a6 24.
Hed1 d5 25. cxd5
Bxd5 26. Db6 Hd6
27. Rd3 c5
Staðan kom upp á
fyrsta bikarmóti
FIDE sem haldið
var í Dubai. Kiril
Georgiev (2.655)
hafði hvítt gegn
Predrag Nikolic
(2.653). 28. Dxd6!
Rxd6 29. Re5 Dg7
30. Hxd5 cxb4 31.
axb4 Re4 32. h3 He8
33. Bxe4! fxe4 34.
Rg4 Menn hvíts
vinna ákaflega vel saman og
þrátt fyrir liðsmuninn er
svarta staðan hartnær töp-
uð. Framhaldið varð: 34.
… e3 35. Rxe3 Db2 36. Hc7
Dxe2 37. Rg4 Df3 38.
Rxh6+ Kh8 39. Rf7+ Kg8
40. Rh6+ Kh8 41. Rf7+
Kg8 42. Hxg5+ Kf8 43. Re5
Dd1+ 44. Kh2 Hxe5 45.
Hxe5 Dd4 46. Hf5+ Ke8 47.
Hxb7 De4 48. Hb8+ Ke7 49.
Hf4 og svartur gafst upp.
SKÁK
Umsjón Helgi Áss
Grétarsson
Hvítur á leik.
Árnað heilla
70 ÁRA afmæli. Í dag,þriðjudaginn 28. maí,
verður sjötug Þórunn K.
Jónsdóttir. Þórunn og fjöl-
skylda hennar taka á móti
gestum í Félagsheimili KR
við Frostaskjól, laugardag-
inn 1. júní nk. á milli kl. 18
og 22.
50 ÁRA afmæli. Í dag,þriðjudaginn 28. maí,
er fimmtugur Gunnar Jóa-
kimsson, Unnarbraut 30,
Seltjarnarnesi. Af því tilefni
taka Gunnar og Sólveig
Þórhallsdóttir, eiginkona
hans, á móti ættingjum og
vinum á heimili sínu milli kl
17 og 19 í dag.
Með morgunkaffinu
Hann ætlar bara svindla, þessi.
Umsóknarfrestur
til 1. júní
2002
www.khi.is
KENNARAHÁSKÓLI
ÍSLANDS
Nýbýlavegi 12, Kópavogi,
sími 554 4433.
Mikið úrval
Dragtir frá 5.900 • Blússur frá 2.900
Bolir • Buxur
Verð kr. 39.865
M.v. hjón með 2 börn, 2–11 ára.
Flug, gisting, skattar, 12. júní, viku-
ferð. Staðgreitt. Alm. verð kr. 41.860.
Verð kr. 49.950
M.v. 2 í íbúð, 12. júní, vikuferð.
Flug og gisting, skattar.
Staðgreitt. Alm. verð kr. 52.450.
Verð kr. 49.865
M.v. hjón með 2 börn, 2–11 ára.
Flug, gisting, skattar, 12. júní, 2 vikur.
Staðgreitt. Alm. verð kr. 52.360.
Skógarhlíð 18, sími 595 1000.
www.heimsferdir.is
Ótrúlegt tilboð á síðustu sætunum til
Benidorm þann 12. júní í eina eða tvær vikur. Sumarið er komið og
yndislegt veður á þessum vinsælasta áfangastað Íslendinga. Þú bókar
núna, og tryggir þér síðustu sætin, og 4 dögum fyrir brottför hringjum
við í þig og tilkynnum þér hvar þú býrð. Og að sjálfsögðu nýtur þú
traustrar þjónustu fararstjóra Heimsferða allan tímann.
Síðustu sætin
Stökktu til
Benidorm
12. júní
frá 39.865
Góð fyrirtæki
1. Lítil efnalaug, vel staðsett á milli margra stórra fjölbýlishúsa á
stór Reykjavíkursvæðinu. Góður vélakostur. Auðvelt að markaðs-
setja sig betur. Mjög hagstætt verð
2. Gamall og þekktur söluturn með tveimur bílalúgum. Velta um 6-7
millj. á mán. og gefur góðar tekjur, lítill rekstrarkostnaður. Hægt
að hafa opið á nóttunni um helgar ef vill. 40% af veltunni er
skyndibiti sem framleiddur er á staðnum.
3. Lítill og snyrtilegur kaffi- og matsölustaður sem er aðeins opinn til
kl. 5 á daginn, lokað laugardaga og sunnudaga. Gott eldhús fyrir
veisluþjónustu ef vill. Bakað og eldað á staðnum. Er þetta ekki
einmitt fyrirtækið sem þig hefur ætíð dreymt um? Hafðu samband
strax áður en einhver rífur þetta frá þér.
4. Þægileg sólbaðstofa í þéttbýlu íbúðarhverfi í Reykjavík. 4 bekkir.
Selst mjög ódýrt vegna veikinda.
Mikið af nýinnkomnum fyrirtækjum af öllum gerðum.
ATVINNA mbl.is
MORGUNBLAÐIÐ
birtir tilkynningar um
afmæli, brúðkaup,
ættarmót og fleira les-
endum sínum að
kostnaðarlausu.
Árnað heilla,
Morgunblaðinu,
Kringlunni 1, 103
Reykjavík