Morgunblaðið - 06.06.2002, Page 6
FRÉTTIR
6 FIMMTUDAGUR 6. JÚNÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
SPJÖLL voru unnin á um fimmtíu
leiðum í Gufuneskirkjugarði um
kvöldmatarleytið á þriðjudag. Að
sögn Þórsteins Ragnarssonar, for-
stjóra Kirkjugarða Reykjavíkurpró-
fastsdæma, er um að ræða leiði vest-
ast í garðinum og eru þau öll frekar
nýleg. „Það er alltaf mjög alvarlegt
þegar svona gerist. Þarna hefur að-
allega verið ráðist á ljósker og þau
mölvuð, blóm tekin af leiðum og
blómavösum fleygt út á gras. Þetta
er mjög sorglegt yfir að líta,“ segir
hann.
Hann segir að lögreglan sé að
rannsaka málið en hann telur senni-
legast að börn hafi verið að verki og
að um óvitaskap hafi verið að ræða,
þar sem atvikið átti sér stað á þess-
um tíma dags.
Þórsteinn segir, aðspurður hvern-
ig gæslu í kirkjugörðunum sé háttað,
að öryggisþjónusta sjái um gæslu í
görðunum og starfsmenn hennar
komi nokkrum sinnum á sólarhring.
Fyrstu spjöllin eftir að görð-
unum var lokað fyrir umferð
„Garðurinn er hins vegar svo mik-
ið flæmi og maður á síst von á að
þetta gerist á miðjum opnunartíma.“
Hann bendir á að görðunum sé lokað
fyrir akstri klukkan 23:00 yfir sum-
artímann, þá sé öllum aksturshliðum
læst. Það er ekki lokað fyrir göngu-
umferð, þó að Þórsteinn telji það
mjög óæskilegt að fólk sé á ferð í
görðunum eftir lokun. Að hans sögn
koma svona skemmdarverk yfirleitt
upp á hverju ári, þótt stórlega hafi
dregið úr þeim eftir að görðunum
var lokað, sérstaklega í hinum þrjá-
tíu hektara Fossvogskirkjugarði. Er
tilvikið nú það fyrsta síðan görðun-
um var lokað fyrir umferð.
„Það var röð svona tilvika sem
gerði það að verkum að við tókum þá
ákvörðun að fá leyfi til að loka görð-
unum fyrir umferð yfir næturtím-
ann. Reynsla okkar sýnir að þau
spjöll sem unnin hafa verið í Foss-
vogi og á Suðurgötu eru yfirleitt
myrkraverk, sem eru unnin í skjóli
myrkurs á haustin,“ segir Þórsteinn
og bendir á að hert sé á gæslu á
haustin.
Líklegt að börn hafi verið að
verki í kirkjugarðinum
Þórsteinn segir að aðstandendur
leiðanna, sem urðu fyrir spjöllum,
verði látnir vita og bætir við að
starfsmenn Kirkjugarðanna geri það
sem þeir geti, lagi blómin og annað
slíkt, en hins vegar bæti Kirkjugarð-
arnir ekki tjón á luktum og ljóskerj-
um.
Að sögn lögreglunnar í Grafarvogi
voru sennilega að verki börn á aldr-
inum 10–12 ára, en lítil fótspor í
kringum skemmdirnar bentu til
þess. Engin vitni voru að atburðin-
um, en lögreglan segist vonast til að
um óvitaskap hafi verið að ræða. Allt
verði gert til að reyna að upplýsa
þetta mál.
Miklar skemmdir voru unnar á leiðum í Gufuneskirkjugarði
Ljósker mölvuð
og blómavösum
fleygt út á gras
Morgunblaðið/Golli
Lögreglan myndar spjöllin á leiðunum í Gufuneskirkjugarði.
STRANGAR reglur gilda um með-
ferð persónuupplýsinga í Lyfju að
sögn Inga Guðjónssonar fram-
kvæmdastjóra og hann segir ríka
áherslu lagða á að eftir þeim sé farið,
en lyfjalisti úr apóteki Lyfju var fyr-
ir mistök sendur með á faxi til
ónefnds fyrirtækis. Ingi segir sjúk-
linga geta nálgast útprentun yfir
lyfjakaup og þá verði viðkomandi að
koma í apótekið, framvísa persónu-
skilríkjum og kvitta fyrir móttöku en
ef senda þarf upplýsingar sé það
gert með ábyrgðarpósti og á lög-
heimili viðtakanda. Í algjörum und-
antekningartilfellum hafi svona upp-
lýsingar verið myndsendar á
Tryggingastofnun eða Lyfjastofnun.
„Við hörmum þau mistök sem
urðu þegar listi sem átti að berast
Lyfjastofnun var sendur á rangan
viðtakanda. Það sem gerðist var að
starfsmaður Lyfjastofnunar hringdi
í viðkomandi lyfsala og lagði mikla
áherslu á að fá þennan lista mynd-
sendan strax. Við munum í fram-
haldi af þessu grípa til ráðstafana
sem felast í því að í framtíðinni verða
svona sendingar í öllum tilvikum
sendar í ábyrgðarpósti til Lyfja-
stofnunar.“
Skoða hvort fjarskiptalög
hafi verið brotin
Ingi bendir á að nokkrum mínút-
um eftir að ranga sendingin fór af
stað hafi mistökin uppgötvast og
samstundis hafi verið haft samband
við þá sem sendinguna fengu, en um
er að ræða lítið fyrirtæki í Reykja-
vík. Tekið var fram að sendingin
hefði farið á rangan stað og viðkom-
andi aðili var beðinn um að eyða
gögnunum strax. „Hann ætlaði að
verða við því en síðan var þessi listi
sendur á fréttastofu Útvarps og vek-
ur það furðu okkar. Í skoðun er
hvort um brot á lögum um fjarskipti
hafi verið að ræða hjá þessu fyrir-
tæki.“
Ingi tekur fram að listanum sem
barst á rangan stað hafi verið eytt og
þá hafi fréttastofa Útvarps einnig
verið beðin um að eyða listanum.
Hann bendir á að í fréttum út-
varps hafi komið fram að allir starfs-
menn apóteka hafi aðgang að lyfja-
listum, en þetta sé ekki rétt, þar sem
aðeins þeir sem eru í lyfjaafgreiðsl-
unni hafi aðgang að listunum.
Lyfja herðir á reglum
um sendingu lyfjalista
nemar leitað eftir störfum hjá
Vinnumiðlun skólafólks í ár sam-
anborið við síðasta ár og spurð um
skýringar segir Selma greinilegt
að fyrirtæki haldi sér höndunum í
sumarráðningum.
„Ástandið hefur ekki verið svona
slæmt í fjölda ára. Það stoppar
ekki síminn frá áhyggjufullum for-
eldrum,“ segir hún.
Borgarráð samþykkti fyrr í
sumar 50 millj. kr. aukafjárveit-
ingu til að mæta þeim vanda sem
MIKILL fjöldi skólafólks hefur
ekki enn fengið sumarvinnu og eru
600 umsækjendur enn á lista hjá
Vinnumiðlun skólafólks, sem rekin
er á vegum Reykjavíkurborgar,
skv. upplýsingum Selmu Árnadótt-
ur, verkefnastjóra vinnumiðlunar-
innar. Atvinnuástand meðal stúd-
enta virðist hins vegar vera
nokkuð svipað og á seinasta ári
skv. upplýsingum Erlu Hrannar
Diðriksdóttur, staðgengils rekstr-
arstjóra Atvinnumiðstöðvar stúd-
enta.
Að sögn Selmu er ástandið í ár
mun verra en seinasta sumar. ,,Í
fyrra fengu allir vinnu sem vildu fá
vinnu,“ segir hún.
Skólanemar 17 ára og eldri með
lögheimili í Reykjavík geta sótt
um sumarstörf hjá borginni.
Hafa tæplega eitt þúsund fleiri
uppi er varðandi sumarstörf skóla-
fólks og sl. þriðjudag samþykkti
borgarráð 50 milljón kr. aukafjár-
veitingu til viðbótar í þessu skyni.
Var framkvæmdastjóra íþrótta- og
tómstundaráðs falið að ráðstafa
þeim fjármunum með það að leið-
arljósi að sem flest skólafólk fái
vinnu. ,,Í því skyni skal m.a. líta til
styttri vinnutíma og annars þess
sem stuðlað getur að því mark-
miði. Jafnframt skal við forgangs-
röðun við það miðað að yngra
skólafólk, á aldrinum 17 til 18 ára,
gangi fyrir um vinnu. Enn fremur
beinir borgarráð því til Orkuveitu
Reykjavíkur að við ráðningu við-
bótarsumarstarfsmanna verði haft
samráð við framkvæmdastjóra
íþrótta- og tómstundaráðs,“ segir í
samþykkt borgarráðs.
Nokkru færri á skrá hjá
Atvinnumiðstöð stúdenta
Selma segir að þessir fjármunir
verði nú notaðir til að reyna að út-
vega sem flestum störf. Að sögn
Erlu Hrannar Diðriksdóttur gekk
mun verr að útvega stúdentum
störf á seinasta ári en á árinu 2000
og nú er útlit fyrir að ástandið
verði svipað í sumar og í fyrra. Þó
eru heldur færri stúdentar á skrá
hjá Atvinnumiðstöð stúdenta um
þessar mundir en á sama tíma í
fyrra eða um 1.100 stúdentar sam-
anborið við um 1.400 sem voru á
skrá í maí í fyrra að sögn Erlu.
Á hinn bóginn hefur tekist að
útvega álíka mörgum störf og á
síðasta ári eða nálægt 270. Erla
segir erfitt að gera sér grein fyrir
hvort fleiri stúdentar séu án at-
vinnu í ár en í fyrra þegar á heild-
ina sé litið. ,,En okkur eru ennþá
að berast störf og það er nóg af
góðu fólki á skrá hjá okkur,“ segir
Erla.
Enn eru 600 umsækjendur á lista hjá Vinnumiðlun skólafólks í Reykjavík
Mikill fjöldi skólafólks er
enn án atvinnu í sumar
TVEIR ungir Norðmenn,
þeir Thomas Guttormsen og
Lars Narverud hyggjast í
dag reyna að setja nýtt
heimsmet með ferðalagi á
hraðbáti frá Noregi til Ís-
lands.
Áætlað er að ferðin sem
hefst í Bergen og á ljúka í
Reykjavíkurhöfn, taki 20–30
tíma eftir veðri. Um er að
ræða 920 sjómílna ferð sem
Norðmennirnir fara á opnum
hraðbáti sem getur náð meira
en 75 hnúta hraða. Þeir gera
ráð fyrir að gera hlé á ferð-
inni í Þórshöfn í Færeyjum
og bæta þar bensíni á bátinn.
Reyna við
nýtt
heimsmet
á hraðbáti
SJÓNVARPSÞÆTTIRNIR
Leiðarljós verða sýndir aftur í
Ríkissjónvarpinu frá og með 1.
ágúst n.k.
Þættirnir voru sýndir hvern
virkan dag um árabil en sýn-
ingum var hætt í vor þegar
samningar runnu út. Sam-
kvæmt upplýsingum RÚV í
gær hafa náðst samningar um
sýningu þáttanna að nýju.
Hörð viðbrögð urðu þegar
sýningum þáttanna var hætt
og birtust m.a. tugir mót-
mælabréfa hér í Morgun-
blaðinu.
Leiðarljós
aftur í
Sjónvarpið