Morgunblaðið - 06.06.2002, Side 44

Morgunblaðið - 06.06.2002, Side 44
UMRÆÐAN 44 FIMMTUDAGUR 6. JÚNÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ Ertu að f ara í frí ? Panta›u Frífljónustu Morgunbla›sins á e›a í síma 569 1122 BEIN okkar eru lif- andi vefur, sem nærist og dafnar eða tærist og veikist eftir því, hvern- ig við nærumst. Lík- aminn endurnýjar öll bein okkar á 10 árum. Um sjötugt byrjum við á 8. beinagrind. Styrk- leiki beina er á hverj- um tíma afleiðing af næringu okkar síðustu tíu árin. Ef styrkleik- inn er nægur, heldur lögunin sér, annars ekki. þá verða beinin stökk, menn brotna, lækka, verða bognir og veikburða. Einn af hverjum 50 mönnum þjáist af beinþynningu. Hér á landi um 6.000 manns, flest konur yfir fertugu. Enginn þarf þó að örvænta. Þekkingin er til, en menn verða að nýta hana, því sölu- áróður reynist rugl og blekking og ekki allur sannleikurinn. Það er kominn tími til að spyrna við fótum. Mikilvægast af öllu er að fá nóg magnesíum. Það fæst úr heilhveiti, hveitiklíði, höfrum, soyabaunum, dökkgrænu grænmeti, möndlum, hnetum, melassa, graskersfræjum og töflum. Magnesíum eyðist við vinnslu matvæla. Bleikiefni í mat- vælaiðnaði eyða magnesíum. Því þarf varan að vera óunnin. Fita t. d. í möndlum og hnetum oxast (þránar) af snertingu við súrefni lofts, mynd- ar stakeindir, sem eru orsök sjúk- dóma og öldrunar. Því þarf sú vara að vera með hýðinu og þannig varin fyrir snertingu við loft. Ef nægilegt magnesíum er í lík- amanum, og D-vítamín frá húðinni, fer kalk fæðunnar til myndunar beina, annars ekki. Magnesíum breytir D-vítamíni frá húð í virka mynd með því að ræsa hvata (en- zím), sem hjálpar til við myndun nýrra kalkkristalla í beininu. Ef skortur er á magnesíum, veld- ur kalkið beinlínis skaða í líkaman- um, safnast saman á stöðum, sem síst skyldi, og er dregið út, þar sem það á að vera, t.d. úr beinum. Kalkið fer þá til neðri hluta heilans og veld- ur þar taugasjúkdómum, skorti á hvítu og fituríku efni (myelen), sem myndar slíður um sumar taugar. Taugaboðin komast þá ekki leiðar sinnar. Kalkið fer einnig til hjartans og veldur skaða á æð- um, kölkun, þrenging- um og háþrýstingi. það má lagfæra með svo- kölluðum „flavoníd- um“, sem eru í berjum og eyða kalkskellum, hreinsa æðar, byggja upp hált yfirborð æða og lækka þrýsting. Skortur á magnesí- um er mjög alvarlegur og einn mesti sjúk- dómsvaldur á Vestur- löndum og veldur því líka, að ál leitar í heil- ann og veldur heila- og taugasjúkdómum, minnisleysi ofl. Skortur á magnesí- um er talinn algengasta orsök bein- þynningar. Önnur orsök er streita, sem færir kalk frá beinum út í vef- ina. Of mikið kalk á hringferð um líkamann (calcinosis) er talið valda sjúkdómum allt frá liðagigt til hrukkna. Af þessu má vera ljóst, að það er víðs fjarri sannleikanum, að mjólk- urneysla til að fá kalk í beinin sé „holl fyrir beinin“, eins og staglast er á í auglýsingum. Hún er sölu- blekking og getur valdið alvarlegum sjúkdómum. Mjólk felur í sér mikið af fosfór og próteinum, sem beinlínis eyða kalki úr líkamanum auk þess sem þriðjungur manna með bein- þynningu er með mjólkuróþol. Hins vegar er neysla á magnesíum frum- skilyrði og skilyrðislaust holl. Líkaminn nýtir kalk ekki aðeins til myndunar beina. Frumur þurfa kalk til að starfa rétt, og kalk hindr- ar frásog á mettaðri fitu í þörmum. D-vítamín er tvenns konar, nátt- úrulegt og sem gerviefni. D-vítamín myndast í húðinni við geislun sól- arinnar. Þetta er hið eina og sanna D-vítamín. Magnesíum örvar það og gerir það virkt til myndunar kalk- kristalla í beinum. Skortur á þessu rétta D-vítamíni veldur beinmeyru. D-vítamín í mjólk er gerviefni, svik- samlega kallað þessu nafni og bein- línis heilsuspillandi. Það hindrar frá- sog á magnesíum, frásogar kalk úr meltingarvegi og dregur kalkið á ranga staði í líkamanum, í fituvefi undir húð. Nú ráðleggja sérfræðingar inn- töku á magnesíum og kalki í töflu- formi til viðbótar við fæðið í hlut- föllum 1:1, og jafnvel 2:1, ef meltingarfærin afkasta því án verkja. Kalk er best sem -sítrat eða -karbónat, 500 mg með máltíð 2 sinnum á dag. Til myndunar beina þarf ekki að- eins magnesíum og kalk, heldur A-, folic, B-6, C-, D- (frá sól) og K-vít- amín, mangan, zink, kopar, bór og kísil. Það er ekki nóg að hugsa bara um þau efni, sem byggja upp beinin. Einnig þarf að forðast þau efni og lífshætti, sem beinlínis eyða beinum. Þar eru efst á blaði gosdrykkir, megrunarfæði, próteinneysla og of- þjálfun. Gosdrykkir fela í sér mikið af fos- fór til að eyða sýruáhrifum, einkum á tennur. Til að eyða þessum fosfór tekur líkaminn kalk úr beinum, sennilega til að mynda kalsíumfos- fat, sem hann losar gegn um nýrun. Megrunarfæði felur líka í sér mikið af fosfór með sömu afleiðingum. Fosfór án kalks eyðir kalki úr bein- um. Það er lítið vit í að léttast á kostnað beinanna. Of mikið próteín hefur sömu áhrif. Nægilegur skammtur af próteini er 75 g/dag. Því meira prótein á matseðlinum, því meira kalk tapast úr beinum. Daglegur kalkskammtur þarf ekki að vera nema 350 mg, ef prótein er í lágmarki. Við getum mikið lært jafn- vel af Bantumönnum í Afríku í nær- ingarfræði. Þeir fá sitt prótein úr grænmeti og byggja upp bein úr köfnunarefni og amínósýrum og mynda kollagen. Grikkir neyta pítu með baunum, „chickpea“ og kryddi. Indverjar og aðrir Asíubúar neyta hrísgrjóna með hýði og íbúar S-Am- eríku kornfæðis. Samkvæmt þessu mættum við alveg lækka hrokann og læra neyslu af okkar ágætu „nýbú- um“. Hvernig er næringarfræðin hjá afreksmönnum okkar í íþróttum? Þeir líða oftar en skyldi, teygja og slíta liðbönd eða vöðva og eru úr leik allt of oft og allt of lengi. Eru gos- drykkir, ofneysla próteins, ofþjálfun og rangt mataræði sökudólgurinn? Hvernig er með hinn almenna borg- ara? 6000 manns með beinþynningu af vanþekkingu samkvæmt ofan- skráðu og brotnir og þjáðir sjúkling- ar í meðferð á sjúkrahúsum. Mér skilst að læknar hafi ekki næring- arfræði á sinni námsskrá, en al- menningur gerir ráð fyrir, að þeir viti allt um orsakir þess, sem aflaga fer í líkama mannsins. Svo virðist ekki vera. Af hverju er ekki hvatt til neyslu á magnesíum, bent á ofneyslu á fosfór og próteinum og afleiðandi beineyð- ingu með mjólkurþambi, bent á beineyðandi gosdrykkjaþamb, of- þjálfun og rangt mataræði yfirleitt í sambandi við beinþynningu? Um beinin Jón Brynjólfsson Bein Af hverju er ekki hvatt til neyslu á magnesíum, spyr Jón Brynjólfsson, bent á ofneyslu á fosfór og próteinum og afleið- andi beineyðingu með mjólkurþambi? Höfundur er verkfræðingur. VIÐ MAT á þeim verðmætum sem fyr- irtæki búa yfir hefur verið byggt á þeirri skráningu sem hefð- bundið bókhald býður upp á. Þessi skráning dugar skammt þegar óáþreifanlegar eignir eiga í hlut. Þessar óá- þreifanlegu eignir hafa oft verið nefndar samheitinu þekking- arauður og er þýðing á enska hugtakinu „intellectual capital“. Þegar útskýra á mik- inn mismun á mark- aðsverði og bókfærðu verði fyr- irtækja er horft til þessara verðmæta. Þetta hefur komið ber- lega í ljós við mat á svonefndum þekkingarfyrirtækjum eða fyrir- tækjum sem hafa það að aðal- starfsemi sinni að framleiða óá- þreifanleg verðmæti, s.s. hugbún- aðarfyrirtæki, fjarskiptafyrirtæki o.fl. Það er rétt að fara nokkrum orðum um hver þessi þekkingar- verðmæti eru. Gróft séð má skipta þeim í þrennt. Fyrst eru það þau verðmæti sem mest eru í sviðsljós- inu. Þetta er mannauðurinn sem er sá hluti þekkingarverðmætanna sem býr í starfsmönnunum sjálfum og yfirgefur fyrirtækið við starfs- lok á degi hverjum. Þá er það markaðsauðurinn sem felst í við- skiptavild sem er mæld í fjölda viðskiptavina, samninga, vöru- merkja auk annarra atriða sem tryggja fyrirtækinu markaðs- aðgang með afurðir sínar í fram- tíðinni. Síðast en ekki síst er það skipulagsauðurinn sem er sá hluti þekkingarverðmæta sem fyrirtæk- inu hefur tekist að fanga í innra skipulagi, ferlum og upplýsinga- kerfum fyrirtækisins. Sú þekking sem er áfram til staðar eftir lokun tryggir verklag og gæði og mætir nýjum starfsmanni í byrjun dags. Það er ekki langt síðan fyrirtæki fóru að reyna að skrá þessi óá- þreifanlegu verðmæti og koma þessum upplýsingum í skýrsluform líkt og gert er við fjárhagsupplýs- ingar. Á ensku er þetta nefnt „in- tellectual capital reporting“, á dönsku „videnregnskab“ og á ís- lensku þekkingarskýrsla eða þekk- ingarreikningsskil. Þjóðir heims eru mislangt komnar í þessari skráningu, en vert er að nefna frum- kvæði Dana á þessu sviði. Á ráðstefnu sem haldin var á vegum stjórnvalda í Óðins- véum nýverið kynnti ég mér þróunina þar í landi og kemur í ljós að þau fyrirtæki sem útbúa þekkingar- skýrslu skipta nú hundruðum. Þykir það góður árangur í ljósi þess að stjórn- völd lögðu af stað með hóp 17 fyrirtækja á árinu 2000 til þess að koma verk- efninu af stað. Margir aðilar hafa beinna hags- muna að gæta varðandi gerð þekk- ingarskýrslna. Með þekkingar- skýrslunni hafa t.d. fjárfestar tækifæri til að nota raunverulega mælikvarða á áður huglæga þætti sem væntingar um gengi fyr- irtækja byggist á. Þetta er mik- ilvægt þegar val er um marga fjár- festingarkosti. Þetta getur einnig hjálpað við fjármögnun nýjunga eða lítilla fyrirtækja með litla reynslu en gott þekkingarefni, þannig að það skipti máli við að gera fjárfestinguna vænlegri. Í raun eru slíkar þekkingarskýrslur ómetanlegt hjálpartæki fjárfesta til þess að meta fjárfestingarkosti með sambærilegum hætti. Þekk- ingarskýrslan gefur viðskipta- vinum/birgjum fyrirtækis tækifæri til að meta og skoða þekkingarlega getu fyrirtækisins. Þannig er hægt að velja samstarfsaðila sem er ekki aðeins fjárhagslega traustur heldur hefur einnig yfir að ráða því þekkingarstigi sem er honum nauðsynlegt til þess að geta fram- kvæmt tiltekin verkefni. Þetta á sérstaklega við á sviði upplýsinga- tækni. Fyrir starfsmenn fyrirtæk- isins getur þekkingarskýrslan veitt upplýsingar sem geta auð- veldað núverandi og verðandi starfsmönnum að meta stöðu sína og þannig haft áhrif á frumkvæði og framþróun fyrirtækisins. Síðan er það fyrirtækið sjálft sem með auknum skilningi á þekkingarlegri getu sinni bætir ímynd sína, ekki aðeins gagnvart sjálfu sér heldur einnig umhverfi sínu og nær að sýna verðmæti sem áður voru dul- in, en hafa jafnvel úrslitaáhrif á arðsemi og tilvist fyrirtækisins. Það er samt ekki aðeins ytri skýrslugjöf sem kallar á skráningu þekkingarverðmæta. Hjá fyrir- tækjum sem eiga það sammerkt að skilgreina sig sem þekkingar- fyrirtæki skipa þekkingarstjórnun og þekkingarmat lykilhlutverk í verðmati slíkra fyrirtækja. Mögu- leikar fyrirtækja á vexti hafa auk- ist vegna tækniframfara samfara harðnandi samkeppni. Í þessu nýja umhverfi skiptir þekkingarbreidd og þar af leiðandi yfirsýn, frum- kvæði og viðbragsflýtir sköpum. Á sama hátt þarf að skapa það um- hverfi innan fyrirtækis að ávöxtun þessara verðmæta verði sem mest. Þar sem hér um mikil verðmæti og greiningu á samkeppnisforskoti að ræða gera sífellt fleiri sér grein fyrir nauðsyn þess að skrá þessi verðmæti og ekki síður að koma á samræmdum aðferðum við skrán- inguna. Þekkingarskýrslan er verkfærið sem á að nota til þess. Er þekkingar- skýrsla árs- reikningur framtíðarinnar? Eggert Claessen Höfundur er framkvæmdastjóri hjá Tölvumiðlun hf. Þekking Nauðsynlegt er, segir Eggert Claessen, að skrá þekkingar- verðmæti með samræmdum hætti. Kaffibollar Cappucino verð kr. 2.700 Mokka verð kr. 1.890 Kaffikönnur verð kr. 1.890 Mörkinni 3, sími 588 0640 Opið mánudag-föstudag 11-18, laugardag 11-15

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.