Morgunblaðið - 06.06.2002, Qupperneq 52

Morgunblaðið - 06.06.2002, Qupperneq 52
MINNINGAR 52 FIMMTUDAGUR 6. JÚNÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ ✝ Óskar Lárussonfæddist á Norð- firði 13. desember 1911. Hann lést á Landspítalanum í Fossvogi 29. maí síð- astliðinn. Hann var sonur hjónanna Lár- usar Ásmundssonar, f. 1885, d. 1971, og Dagbjartar Sigurð- ardóttur, f. 1885, d. 1977. Óskar var næstelstur tólf systk- ina og eru fjögur á lífi. Óskar kvæntist ár- ið 1933 eftirlifandi konu sinni, Sigríði Árnadóttur, f. 1910, frá Burstafelli í Vestmannaeyjum. Fyrstu þrjú árin voru þau búsett í Vestmannaeyjum en fluttu síðan til Norðfjarðar og bjuggu þar til 1975, og fluttu þá til Mosfellsbæj- ar og síðan til Reykjavíkur árið 1986. Börn þeirra eru: 1) Árndís Lára, f. 4. ágúst 1933, gift Friðriki Jóni Sigurðssyni og eiga þau þrjú börn; Sigurbjörgu Ósk, Línu Dag- björtu og Árna Óla. 2) Óskar Sig- urður, f. 8. júní 1941, kvæntur Kirsti Helene Óskarsson (f. Gutt- ormsen). Eiga þau þrjú börn; Finn Óskar, f. 1965, Helene Sigríði, f. 1972, og Ara Ólaf, f. 1975. 3) Ólaf- ur, f. 21. mars 1946, kvæntur Fanneyju Valgarðsdóttur og eiga þau eina dóttur, Hlín, f. 1980. Óskar byrjaði ungur sjó- mennsku á árabát með föður sín- um og síðar á trillu. Hann gerðist síðan útgerðar- maður og síðasti bát- urinn í hans eigu var togskipið Hafþór NK 76. Samhliða útgerð var hann virkur meðlimur í Sam- vinnufélagi útgerð- armanna, Neskaup- stað (SÚN) og var í stjórn og varastjórn þess í samfleytt 33 ár. Hann hafði um- sjón og framkvæmd með byggingu hrað- frystihúss SÚN og sá einnig um kaup á vélum þess og tækjum. Óskar var einn af stofnendum Olíusamlags útvegsmanna á Norðfirði 1947 og var stjórnarformaður þess frá stofnun þar til hann flutti suður og var einnig starfsmaður þess í mörg ár. Hann hafði forgöngu að stofnun síldarsöltunarstöðvarinn- ar Drífu hf. í Neskaupstað og var framkvæmdastjóri fyrirtækisins meðan það starfaði. Hann var um- boðsmaður síldarútvegsnefndar í Neskaupstað í 15 ár. Árið 1970 varð Óskar heilbrigðisfulltrúi fyr- ir Neskaupstað og var einnig trúnaðarmaður Verðlagseftirlits- ins þar í nokkur ár. Eftir að hann flutti suður starfaði hann sem sölumaður hjá Nóa-Síríusi hf. í tíu ár og lauk störfum þar árið 1986, þá 75 ára gamall. Óskar var einn af stofnendum Rotaryklúbbs Neskaupstaðar. Útför Óskars fer fram frá Há- teigskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 13.30. Elsku afi minn, núna er komið að kveðjustund og langar mig að minn- ast þín í nokkrum orðum. Það er af svo miklu að taka því árin þín voru heil 90. Margs er að minnast úr æsku minni því þú og amma voruð alltaf ná- lægt. Oft var brugðið á leik í fallega garðinum í Ásbyrgi og ekki var nú verra ef þú settir vatn í tjörnina og hvítu svanina á vatnið. Svo byrjaði skólagangan og þá vildir þú hlusta á mig lesa. Svo bættust við tungumálin og þú varst á heimavelli þegar að dönskunni kom, bæði í framburði og þýðingu. Eftir að þið amma fluttuð til Reykjavíkur, árin færðust yfir og þið fluttuð í Hvassaleitið var enginn garð- ur til staðar. Þá var farið að huga að blómakerjunum þínum því svalirnar áttu að skarta sínu fegursta. Alltaf í júníbyrjun fór ég og náði í sumar- blómin og þá var glatt á hjalla þegar við vorum í sameiningu búin að planta í kerin og skreyta alla veggi. Oft var nú glatta á hjalla í stofunni og um- ræða um vinnu og hagi fjölskyldu- meðlima, því þú varðst að fá að fylgj- ast með hvort að allir væru ekki við góða heilsu og að börnunum gengi vel í skóla. Þegar litið er yfir farinn veg þá er svo gleðilegt að hafa orðið vitni að dásamlegri hamingju ykkar ömmu og hvað þið voruð samrýnd og hugsuðuð vel hvort um annað. Mér veittist sú lotning að fá að sitja við rúmið þitt og halda í höndina þína þegar þú kvaddir og mun ég ávallt minnast þeirrar stundar. Elsku amma mín, megi Guð veita þér styrk á þessari erfiðu stundu. Vertu sæll, elsku afi. Þín nafna Ósk. Elsku hjartans afi minn, mig lang- ar að kveðja þig með örfáum orðum þó mig langi að segja svo margt. Þú varst yndislegur maður, afi minn, og mér þótti svo afar vænt um þig. Þú varst alltaf svo kátur og hress alveg fram á síðasta dag. Það var allt- af svo gaman að heimsækja þig og ömmu, fá te og spjalla saman. Þegar ég bjó heima hjá þér og ömmu austur á Norðfirði og var að klára skólann, þá varst þú alltaf til staðar að hjálpa mér að læra. Elsku afi minn, þakka þér fyrir allt. Guð blessi þig og minningu þína. Elsku amma mín, Guð gefi þér styrk til að halda áfram, þú veist að afi er í góðum höndum. Þín mun ég minnast fyrir allt það góða sem þú gerðir, fyrir allt það sem þú skildir eftir, fyrir gleðina sem þú gafst mér, fyrir stundirnar sem við áttum, fyrir viskuna sem þú kenndir mér , fyrir sögurnar sem þú sagðir mér, fyrir hláturinn sem þú deildir, fyrir strenginn sem þú snertir. Ég mun ætíð minnast þín. (F.D.V.) Lína. Enn eru höggvin skörð í hóp systk- ininna frá Sjávarborg. Aðeins nokkrir dagar á milli andláts Þórunnar móð- ursystur og Óskars móðurbróðurs. Nú lifa fjörgur systkini af tólf systk- ina hópi. Á skömmum tíma eru þrír fyrrum fastir punktar í næsta ná- grenni barnæskunnar, húsbændur á Sjávarborg, Ásbyrgi og Borghól, horfnir á braut. Þegar lítill polli var að vaxa upp í föðurhúsum á Norðfirði var ekki laust við honum finndist Ás- byrgi, hið reisulega hús Óskars og Siggu ofan við Sjávarborg, hálfgerður ævintýraheimur. Ekki síður garður- inn sem þau stunduðu af natni, þekk- ingu og áhuga. Þar eru minnisstæð jarðarber undir gleri sem freistuðu óbærilega á lognkyrrum og din- mmum haustkvöldum og smökkuðust dásamlega. Einnig var í garðinum að finna gosbrunn og fleira sem annars sást aðeins í dönskum blöðum. Húsið sjálft með stórum stofum og merki- legum húsgögnum, neðri hæðin þar sem þeir bræður Óskar yngri og Ólaf- ur höfðu búið í, full af leyndardómum. Í bílskúrnum var svartur og velkró- maður Comet allur hvítur að innan, furðuverk sem næst komst bensum nafna á Þórhól. Áramótaveislur í Ás- byrgi eru ógleymanlegar, þar sem bræðurnir, afi og pabbi sátu aflokaðir í borðstofu, sungu fjórraddað, tóku í spil og komu velkenndir út rétt fyrir tólf til að skála og syngja. Þar réði gleðin ríkjum. Það var ósjaldan sem lítill polli var leiddur í rólegheitum upp sundið, spjallað við hann um lífið og tilveruna eins og fulloðinn mann og til dæmis leitt fyrir sjónir að fótboltaleikir upp í Ásgarði væru út af fyrir sig ekkert sérlega heppilegir fyrir blómabeðin hennar Siggu. Og þar með var sá hinn sami sjálfvirkt og án fyrirhafnar orð- inn sérlegur verndari beðanna í Ás- byrgi. Óskar hafði þann einstæða hæfi- leika sem sumir afburða menn hafa, að fá fólk, hvort sem það var smátt eða stórt, að vinna fyrir sig með ánægju og af ábyrgð. Minnisstætt er þegar Óskar kom einu sinni sem oftar niður á Sjávarborg til að spjalla við afa og ömmu. Í útleiðinni spurði hann pollann, sem vanalega sat og drakk í sig hvert orð sem þeir bræður létu frá sér við slíkar heimsóknir, hvort hann hefði ekki tíma til að aðstoða sig svo- lítið við að girða meðfram sundinu. Þær stundir, það sumar með Óskari, hafa ætíð síðan verið gott veganesti til náms og starfs. Við þann starfa kenndi Óskar undirstöðuatriði í ná- kvæmni, samviskusemi og þolinmæði, að rétt verklag gerði hlutina auðveld- ari og að hugsa skuli hvert verk í heild sinni frá upphafi til enda áður en haf- ist er handa. Þetta held ég að hafi ein- kennt persónuleika hans öðru fremur. Óskar fylgdist af áhuga með út- gerðarbrasi okkar pollanna í fjörunni fyrir neðan Sjávarborg og átti oft leið um til að skoða verkin og gefa góð ráð, enda með talsverða reynslu í útgerð og sjómennsku. Þetta var mest fleka- útgerð en þó með nokkrum alvöru- keim þar sem í fjörunni var slippur og ból útaf Jósefshúsi. Blökk var í bólinu og flekinn dreginn frá landi út í ból. Einu sinni festist tógið í blökkinni og flekinn þar með fastur við bólið. Nú voru góð ráð dýr. Í útgerðinni var þó til gúmmíslanga ein sem búið var að pumpa upp svo hún var mjög þanin. Á hana var sett ein þverspýta og svo var ýtt úr vör til að róa út í fleka. Óskar kom út á svalir í Ásbyrgi þegar hann sá hvað verða vildi og útgerðarmað- urinn sem á spýtunni sat sá útundan sér að Óskar fylgdist með af áhuga. Miðja vegu milli lands og fleka sprakk svo slangan með miklum hvelli og róðrarmaður sökk á bólakaf. Það fyrsta sem sneyptur slönguknapi sá og heyrði þegar honum skaut upp úr sjónum var að Óskar engdist um á svölunum af hlátri og hlátrarsköllin bergmáluðu um allan fjörð og alveg þangað til sjóblautur pollinn skreið inn um dyrnar á Sjávarborg. Fyrir ári þakkaði hann enn og aftur fyrir þessa skemmtun sem hann taldi einhverja þá bestu sem hann hefði á ævi sinni séð. Óskar var í seinni tíma endalaus uppspretta fróðleiks um kjör þeirra afa og ömmu og systkina sinna í upp- vextinum, enda líklega þeirra systk- ina minnisbestur. Hjá honum frædd- ist maður um persónuleika þeirra, umhverfi og aðstæður sem að hluta til hafði mótað fólkið. Af innsýni aldurs og þroska miðlaði hann heildstæðum og næmum skilningi sínum, í bland við þá kankvísi og glettni sem ein- kennir skapgerð þeirra systkina. Ég mun minnast Óskars sem ein- hvers glæsilegasta öldungs sem ég hef séð, níræður, teinréttur, virðuleg- ur í fasi, með fast og hlýtt handtak og skýrari í hugsun og framsetningu en margur maðurinn helmingi yngri. Hermann Ottósson. ÓSKAR LÁRUSSON           .       --1    ("(4 1 $!'  (    !   /0+   !  &'  1    ! 0+        2   %3'' 4     ,    /#   !( 5 ; 8,  8 ! *"#$; 8 '(  " ( ; 8 !  " (( 8 ! ! '. 1#$! '(( 1#$! " ( !  " 66<&! '(( ! " ( !  ' " ( '(( *"#$; 8 '((  '#! ! 831 !' ! *+!, '((3 6               9:-=>?1&  8@''53#!+ABC (   $  2  *!+ ,  ! !  !     7   .     2   %3'' 8. ,+      ! '!'  ! * !' *+!1#$! '(( .*!1#$! '((  (!!7!'  !  '. ( '((  90(!'  ! 8!'  !  $; 6 '(( "!"$!"!"!"$!               1 ; D-E -9   )   BF  %6#.6  ( !   &'         !   ,   !   9%&&' 4     ,  #   !(  *   ' !  '9!+ '(( 0(:+ ( '(( 0(&!9!+ ! *#!:+ ( ! +! '9G) '((   *9() !  ( 8 ! ' ! !69() !   .! 8+ '(( "!"$!"!"!"$!3 :               : :  8 * .6 ($!'  .* (( )    )#+6!)   !6"@ . %6#.6 (  ,             $   3 *!+ ,      !  8        !+  ;%)'' :! !! !  8!  '((   * !! '3*6 ! &! *6 ! .*: (:!'(( +!* ( ! ! !!) ':!'(( !! !*6 ! *6 H" ()*6 ! &!  "()*6 !     "!"$!!3 Handrit afmælis- og minningargreina skulu vera vel frá gengin, vélrituð eða tölvusett. Sé handrit tölvusett er æskilegt, að disklingur fylgi útprentuninni. Senda má greinar til blaðsins í bréfsíma 569 1115, eða á netfang þess (minning@mbl.is). Nauðsynlegt er, að símanúmer höf- undar/sendanda fylgi. Nánari upplýsingar má lesa á heimasíðum. Það eru vinsamleg tilmæli að lengd greina fari ekki yfir eina örk A-4 miðað við meðallínubil og hæfilega línulengd — eða 2.200slög. Höfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.