Morgunblaðið - 06.06.2002, Qupperneq 62
FÓLK Í FRÉTTUM
62 FIMMTUDAGUR 6. JÚNÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
! "#$
%% &"
'((
LOKAHÁTÍÐ LEIKÁRSINS 01/02
Leikur, söngur, dans, uppistand ofl.
Listamenn í Borgarleikhúsinu gleðjast með
áhorfendum eftir velheppnað leikár
Í kvöld kl 20
KRYDDLEGIN HJÖRTU e. Laura Esquivel
Leikgerð: Guðrún Vilmundard. og Hilmar Jónss.
Fö 7. júní kl 20
Fi 13. júní kl 20
ATH: Síðustu sýningar í vor
MEÐ VÍFIÐ Í LÚKUNUM e. Ray Cooney
Lau 8. júní kl 20 - AUKASÝNING
Ath: ALLRA SÍÐASTA SÝNING
COSI FAN TUTTE - W.A. Mozart
Óperustúdíó Austurlands
Stjórnandi Keith Reed
Lau 15. júní kl 20 - Frumsýning í Rvík
Su 16. júní kl 17 - Síðasta sýning
AND BJÖRK OF COURSE ...
e. Þorvald Þorsteinsson
Lau 8. júní kl 20
Síðasta sýning í vor
JÓN GNARR
Í kvöld kl 20
Ath. Afsláttur sé greitt með MasterCard
PÍKUSÖGUR Á VOPNAFIRÐI
þri 11. júní kl 20:30 í Miklagarði
Stóra svið
Nýja sviðið
Miðasala: 568 8000
Miðasalan er opin kl. 13-18 og fram að sýningu
sýningardaga. Sími miðasölu opnar kl. 10 virka daga.
Fax 5680383 midasala@borgarleikhus.is
LEIKFERÐ
3. hæðin
!
!
! "# $
"# $
# $
#
$
% # '
DJ.
Baddi
í kvöld
Sumarstuð
Fimm í fötu
á dúndur verði
kveðja rugl.is
Sumartilboð
1/2 l Víking,
hamborgari og
franskar
kr. 990
LANDSLIÐ Íslands í matreiðslu
er á leið til Seoul í Suður-Kóreu í
þessum mánuði, þar sem það ætl-
ar að taka þátt í alþjóðlegri mat-
reiðslukeppni sem haldin er á
matvælasýningunni Seoul Int-
ernational Expo 2002. Að sögn
Gissurar Guðmundssonar, for-
seta Klúbbs matreiðslumanna,
hafa Íslendingar verið að sækja í
sig veðrið í matargerð á síðustu
árum og stendur landsliðið orðið
mjög framarlega, þá sérstaklega
er kemur að heitum máltíðum, en
Íslendingar tóku fyrst þátt í al-
þjóðlegu keppninni árið 1972.
Liðsmennirnir eiga það sameig-
inlegt að vera yfirkokkar á
helstu veitingastöðum bæjarins.
Gissur segir liðið hafa staðið
fyrir ýmiss konar kynning-
arstarfsemi á síðustu árum sem
nú er farin að skila sér í boðum
um þátttöku í matreiðslukeppn-
um og sýningum víða um heim.
„Við höfum fengið tvö heimboð á
innan við mánuði. Við erum til
dæmis á leiðinni til Austurríkis í
mars á næsta ári, þar sem við tökum þátt í keppnum
og hátíðarhöldum í tilefni af afmæli matreiðslu-
klúbbsins þar,“ segir Gissur. Hann nefnir að eitt
stærsta fagblaðið í greininni, Rolling Pin, kosti ferð-
ina og er það í kjölfar sýningarinnar Matur 2002. Að
hans sögn fær sú sýning mun meiri athygli erlendis
en hér á landi og hafa fjölmörg erlend blöð og tíma-
rit fjallað um hana.
Íslendingar hafa tekið þátt í Ólympíuleikunum í
matreiðslu frá 1992, en þeir leikar eru haldnir fjórða
hvert ár í Þýskalandi. „Okkur hefur gengið mjög vel
á leikunum, nema við höfum ver-
ið svolítið veikir í kalda matnum,
enda leggjum við mikla áherslu á
hann núna,“ bendir Gissur á, en
liðið fór í stífar æfingabúðir við
Rangá á dögunum.
Hann segir, aðspurður hvernig
dæmt sé í matreiðslukeppnum,
að erfitt sé að lýsa stigagjöfinni
nákvæmlega. „Það er farið eftir
alþjóðlegum reglum og gefið fyr-
ir hina ýmsu þætti matreiðsl-
unnar, svo sem vinnubrögð í eld-
húsi, bragðið, hvernig réttunum
er stillt upp og allt þar á milli.
Aðspurður hvað liðið ætli að
bjóða upp á í keppninni í Seoul,
svarar hann að í aðalrétt verði ís-
lenskt lambakjöt að sjálfsögðu á
boðstólum. „Í forrétt bjóðum við
upp á íslenskan fisk, bæði lax og
humar, en við notum ávallt ein-
göngu íslenskt hráefni,“ heldur
Gissur áfram. Hann segir það
stundum vera vandkvæðum
bundið að flytja hráefnið á milli
landa, en þeir hafi rætt við ræð-
ismanninn í Suður-Kóreu, sem
ætli að vera þeim innan handar ef eitthvað kemur
upp á.
Sýningin í Seoul stendur yfir á sama tíma og
Heimsmeistarakeppnin í knattspyrnu, en Gissur er
ekki bjartsýnn á að liðsmenn nái að fara á leik í
keppninni. „Við erum náttúrlega að fara þangað til
að keppa sjálfir og verðum í vinnu stanslaust allan
tímann en það er enginn spurning að við munum
koma til með að upplifa stemmninguna,“ segir hann
og bendir á að sýningin hefjist með opnunarhátíð
sem beri yfirskriftina HM á strætum úti.
Ætla að bjóða upp á
íslenskt lambakjöt
Gissur Guðmundsson, forseti
Klúbbs matreiðslumeistara.
Íslenska landsliðið í matreiðslu keppir í Seoul
Morgunblaðið/Golli
HÚN er rétt sú staðhæfing Halls
Ingólfssonar, Þrettán-manns með
meiru, að hljómur þessa verkefnis
hans hafi lýstst upp í gegnum árin í
takt við umslög
platnanna. Þetta
kom fram í spjalli
við Morgunblaðið
sem birtist 12. maí
síðastliðinn. Þann-
ig var fyrsta plat-
an, Salt, stór rokktónlist með got-
neskum blæbrigðum og
véltónlistarlegum (e. industrial)
grunntóni. Næsta plata, Serpentine,
var öllu hefðbundnara rokkverk, en
mikilfengleikinn, sem hefur í raun
réttri verið inntak Þrettán frá upp-
hafi, viðloðandi sem fyrr.
Og nú sjö árum síðar kemur þriðja
platan út. Meðgangan var löng, og á
stundum ströng. Og hljómurinn all-
ur annar en við eigum að venjast,
þótt andi hins upprunalega hafi ekki
vikið langt frá.
Að vissu leyti mætti segja að tón-
listin væri poppaðri en áður ... jafn-
vel aðgengilegri. En þar með er ég
ekki að segja að einhverjum listræn-
um metnaði hafi verið fórnað. Nei,
því fer fjarri.
Hallur hefur undanfarin ár gert
mikið af því að semja tónlist fyrir
kvikmyndir, dansverk og þess hátt-
ar. Áhrifa þessa gætir að vísu ekki
beint á þessari plötu en sú vinna hef-
ur greinilega opnað pilt fyrir nýjum
möguleikum.
Platan byrjar á „stóru“ lagi,
„Transmission“. Með lýsingunni
„stórt“ á ég við að um það leikur
dramatík, bæði í texta og uppbygg-
ingu. Eins og áður segir hefur þetta
stílbrigði fylgt Þrettán alla tíð, og
það skýtur upp kolli hér og þar á
plötunni.
Fyrri hluti plötunnar er næsta
pottþéttur. Opnunarlaginu er fylgt
eftir af afar melódískum, vel sam-
settum rokksmíðum. Tárin falla
jafnvel þegar maður hlustar á „Cold-
er“. „Love is colder than death“
syngur Hallur af einlægni með ljúfri
en kraftmikilli röddu (mér misheyrð-
ist reyndar í fyrstu, heyrðist hann
segja „Love is older than pain“. Hví-
líkt drama hjá mínum!). Fjórða lagið
er svo alger risasmellur, glæsilegt
rokklag að nafni „Wishbone“,
skreytt skemmtilegri raddsetningu
og flugbeittum króki. „Amorica“ er
síðan rokkballaða dauðans. Stór-
brotið verk, þar sem sá er flytur
stendur einn á veðurbörðum kletti,
með hretlegan vind í hári. Það er
a.m.k myndin sem maður fær í hug-
ann.
Það er nefnilega auðvelt að lesa
allnokkra kímni úr þessari plötu. Á
vissan hátt, eins og í „Wishbone“ og
„Amorica“, er farið yfir strikið, þó ég
þori ekki að fullyrða hvort það er
með vilja gert
eða ekki. Það
sem fólk áttar
sig sjaldan á
er að alvarleg-
ir listamenn
hafa jafnan
mikla kímni-
gáfu fyrir sjálf-
um sér. Mig
grunar að Hall-
ur hafi fæturna
sterklega á jörð-
inni hér, um leið
og metnaðurinn
skín undan-
bragðalaust í
gegn. Kröftug
falsettan í „Wis-
hbone“, dóms-
dagsbragurinn yf-
ir „Amorica“ -
bæði eru þetta góð dæmi um glúrna
sýn Halls, hann svona lítur framan í
mann kersknislega yfir rokksólgler-
augun íbyggnu augnaráði.
Seinni helmingur plötunnar er
ekki jafn innblásinn og sá fyrri.
Lagasmíðarnar eru traustar og
gæðastaðallinn lækkar ekki en rest-
ina vantar þó einhvern neista sem
einkenndi plötuna framan af. „New
Years Day“, „Daisy Chain“ og „Wir-
ed“ eru dæmi um lög sem fljóta full-
auðveldlega fram hjá manni.
Tíunda lagið, „Miracle Sun“ (plat-
an inniheldur að sjálfsögðu þrettán
lög), er gott uppbrot á þessu, þar
sem áhrifa frá gítarvísindafólkinu í
hinni sálugu áhrifasveit My Bloody
Valentine gætir.
Magnifico Nova er vel unnið verk
og furðu heilsteypt, sé tillit tekið til
þess að hún var unnin á mjög löngu
tímabili, með hléum og þar að auki út
um hvippinn og hvappinn. Sú stað-
reynd að platan er eins manns verk
gefur henni líka á einhvern hátt
aukna vigt í huga manns. En burtséð
frá þessu öllu er þetta fyrst og
fremst svalt verk; poppað, véltónlist-
arlegt rokk að hætti Halls Ingólfs-
sonar þar sem römm höfundarein-
kenni mynda sterka heildarmynd.
Eina umkvörtunin er áðurnefndur
bensínskortur sem gerði vart við sig
um miðbikið. Að öðru leyti, sáttur.
Tónlist
XIII
sendir út
TH1RT3EN
Magnifico Nova
Hallur Ingólfsson/XIII Bis Records
Magnifico Nova, þriðja plata Thirteen,
sem er einherjasveit Halls Ingólfs-
sonar. Lög, textar, hljóðfæraleikur,
upptökustjórn, upptaka og hljóð-
blöndun voru í höndum Halls. Þorvaldur
B. Þorvaldsson tók upp raddir. Björgvin
Smári Haraldsson aðstoðaði við
„rusltarnir“.
Arnar Eggert Thoroddsen
Hallur Ingólfsson er heilinn á bakvið Þrettán.
Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson
AUGLÝSINGADEILD
netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111