Morgunblaðið - 21.06.2002, Síða 4
FRÉTTIR
4 FÖSTUDAGUR 21. JÚNÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Í SÉRSMÍÐUÐUM stól komst Að-
alheiður Bára Steinsdóttir frá bæn-
um Mel í Skagafirði upp á Mæli-
fellshnjúk (1.138 m y.s.), einhvern
glæsilegasta tind Skagafjarðar og
þó víðar væri leitað.
Aðalheiður Bára er fötluð og not-
ast allajafnan við hjólastól til að
fara ferða sinn en þar sem leiðin
upp á hnjúkinn er ófær slíkum far-
kostum var hún borin upp í álstól.
Um 20 manns skiptust á við burðinn
sem tók rúmlega tvær klukku-
stundir. Voru þar að verki starfs-
fólk og nemendur frá meðferðar-
og skólaheimilinu Háholti og ung-
lingaheimilinu Litlu-Gröf, björg-
unarsveitarmenn frá Sauðárkróki,
Hofsósi og Skagaströnd og starfs-
fólk í sumarbúðum Rauða krossins
að Löngumýri í Skagafirði þar sem
Aðalheiður Bára dvaldi í júní.
Gengið var frá Mælifellsdal eftir
merktri gönguleið upp á topp. „Við
héldum á Báru í sérsmíðuðum burð-
arstól sem var hannaður til að bera
fólk sem notar hjólastól svo það
komist upp á fjöll og ýmislegt sem
það langar til,“ segir Karl Lúðvíks-
son, sumarbúðastjóri á Löngumýri.
Stóllinn er síðan lánaður á milli
Rauða kross deilda og sumarbúða
eftir þörfum.
Sex manns héldu undir stólinn
hverju sinni, gengu með hann í 5
mínútur og hvíldu í 10. „Þetta var
svolítið erfitt ofarlega, þar er dálít-
ið mikill bratti,“ segir Karl sem
hyggst láta breyta stólnum ofurlítið
svo fæturnir risti ekki jafn djúpt í
þúfur og börð. Í fyrra var ætlunin
að fara með Báru og annan til upp á
tindinn en þá komst leiðangurinn
bara rétt rúmlega hálfa leið. Þá
voru miklu færri um verkið og
burðurinn var erfiðari en talið var í
fyrstu. „Hana langaði alltaf upp á
topp og núna náði hún því og hún
var alsæl með að ná þessu tak-
marki,“ segir Karl.
Renndu sér niður á skafli
Ferðin upp tók rúmlega tvo tíma
en með því að renna sér á skafli nið-
ur urðu þau talsvert fljótari niður.
„Bára var eiginlega á sleða á leið-
inni niður og við vorum allt í kring
eins við værum í hrossarétt utan á
erfiðum hesti,“ segir Karl.
Í sumarbúðunum á Löngumýri
dvelja jafnt fatlaðir sem ófatlaðir í
átta daga í senn og gera sér ým-
islegt til dægrastyttingar annað en
að fara á hæstu tinda. Siglt er niður
Blöndu, farið á sjóinn og rennt fyrir
fisk og margt fleira.
Morgunblaðið/Jón Þ. Sigurðsson
Aðalheiður Bára Steinsdóttir var borin upp á Mælifellshnjúk sem er í
1.138 metra hæð yfir sjó, í sérsmíðuðum fjallgöngustól.
Í sérsmíðuðum fjall-
göngustól á tindinn
FÉLAGSDÓMUR tekur fyrir í dag
mál Félags ungra lækna og Lækna-
félags Íslands, en fjármálaráðuneyt-
ið telur að lagaskilyrði skorti fyrir
samningsrétti Félags ungra lækna
og hefur mótmælt verkfallsboðun fé-
lagsins sem ólöglegri. Fyrsta verk-
fallið á að hefjast á miðnætti aðfara-
nótt mánudagsins 26. júní og segir
Oddur Steinarsson, formaður Félags
ungra lækna, að verkfallið standi og
falli með niðurstöðu Félagsdóms.
Oddur segir að í deilunni sé tekist
á um félagafrelsi í landinu og almenn
mannréttindi starfandi þegna, en í
kjarasamningi þeim sem Lækna-
félagið og ríkið gerðu sín á milli fá
unglæknar ekki vinnuvernd sam-
kvæmt EES-samningnum, líkt og
aðrir aðilar að kjarasamningnum, og
er undanþágan byggð á því að þetta
sé stétt í starfsnámi. Þá voru öll
vinnutímaákvæði fyrri kjarasamn-
inga felld út hvað varðar unglækna.
„Það verður einnig úrskurðað fyrir
Félagsdómi um það hvort Lækna-
félagið hafi haft umboð til að skrifa
undir samninginn fyrir okkur,“ segir
hann og bendir á að samningurinn sé
úr takt við nútímann, ekki síst í ljósi
þess að rúm 80 ár séu síðan vökulög-
in voru sett. Hann segir að undir-
skrift samningsins framselji vinnu-
veitanda það vald að hann geti
skikkað ungan lækni til að vinna 12
sólarhringa samfellt án einnar mín-
útu í hvíld og aðeins gefið þeim
tveggja daga frí. Oddur leggur
áherslu á að þessi vinnutímaákvæði
gangi þvert á það sem gerist erlend-
is, þar sem ungum læknum sé tryggð
lágmarkshvíld.
Félagi ungra lækna breytt í
sjálfstætt stéttarfélag
Að sögn hans eiga unglæknar full-
trúa í samninganefnd Læknafélags-
ins og lýsti sá fulltrúi því yfir að hann
væri ekki tilbúinn að skrifa undir
samninginn. Hann bætir við að ung-
læknar hafi gert bæði Læknafélag-
inu og samninganefnd ríkisins það
ljóst hverju þeir vildu ná fram, en
engu að síður hafi Læknafélagið
undirritað samninginn án þess að
taka tillit til þessara atriða.
„Það er alger andstaða í okkar fé-
lagi við samninginn, þannig að við
brutumst út úr Læknafélaginu og
héldum aukaaðalfund 10. maí síðast-
liðinn. Á fundinum var lögunum
breytt og Félagi ungra lækna breytt
í sjálfstætt stéttarfélag, alveg óháð
Læknafélagi Íslands,“ heldur Oddur
áfram og segir að í kjölfarið hafi fé-
lagið óskað eftir samningaviðræðum
við fjármálaráðuneytið. Það gekk
ekki eftir og boðuðu unglæknar því
til verkfalla.
Hann leggur áherslu á að Félag
ungra lækna hafi gerst stéttarfélag á
grundvelli almennra laga um stétt-
arfélög og vinnudeilur og að félagið
uppfylli öll skilyrði sem þau lög setji
um stéttarfélög. Fjármálaráðuneyt-
ið byggi hins vegar afstöðu sína á því
að um kjarasamninga þess við lækna
gildi lög um kjarasamninga opin-
berra starfsmanna.
Oddur segir að spítalarnir hafi
fengið boð frá fjármálaráðuneytinu
um að gera unglæknum persónulega
grein fyrir ábyrgð slíkra aðgerða og
sé bent á að slíkt geti varðað til
dæmis launafrádrætti, áminningu,
uppsögn og skaðabótaskyldu. „Ég
fékk til dæmis persónulega bréf frá
Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri
um að ég gæti borið skaðabóta-
skyldu sem einstaklingur ef við fær-
um í verkfall,“ bætir hann við.
Oddur segist vona að Félagsdóm-
ur staðfesti einhver réttindi til handa
unglæknum en segir jafnframt að ef
svo verði ekki grípi félagið til frekari
aðgerða í framhaldinu.
Tekist á um félagafrelsi
og almenn mannréttindi
Verkfallsboðun Félags ungra lækna fyrir Félagsdóm
ýmsar af þeim vörum sem nú fara
tollfrjálst til þessara landa, eða milli
30–40% af útflutningi okkar til
þeirra, bera toll eftir stækkun
Evrópusambandsins.
Ráðherra sagðist vera mjög
ánægður með þá afstöðu að áhersla
yrði lögð á að ekki yrði um kvóta-
lausn að ræða í samningum við Evr-
ópusambandið. ESB væri ekki
reiðubúið til þess að ræða þessi mál
formlega fyrr en stækkunarferlinu
væri lokið og með sama hætti væri
það ekki reiðubúið til þess að ræða
breytingar á EES-samningnum fyrr
en að lokinni stækkun þess, en málið
yrði rætt frekar í heimsókn Gunther
Verheugen til Íslands í næstu viku
og þá myndi væntanlega skýrast
betur hvernig hægt verður að standa
að framhaldi málsins.
Samskiptin betri nú en verið
hefur um langan tíma
Þegar hann var spurður að því
hvort fiskveiðimál hefði borið á góma
sagði Halldór að við værum með
ýmsa samninga á fiskveiðisviðinu við
Noreg. Þessum samningum hefði
tekið mjög langan tíma að ná fram og
þróa. Það væri óánægja á báða bóga
með ýmsa þessa samninga, meðal
annars með samninginn um veiðar í
Barentshafi sem náðist í kjölfar
Smugudeilunnar.
Halldór sagðist hafa lagt á það
mikla áherslu að það væri mikið óráð
að hreyfa við samningnum um þess-
ar mundir. Það hefðu myndast djúp
sár í samskiptum landanna í aðdrag-
anda samningsins og mikilvægt væri
að lengri tími liði áður en hreyft yrði
við honum.
„Ég er þeirrar skoðunar að sam-
skipti Íslands og Noregs séu betri nú
en þau hafa verið um langan tíma.
Það er mikilvægt að viðhalda því
andrúmslofti og því samstarfi, meðal
annars vegna þess að við stöndum
saman utan við Evrópusambandið
og þurfum að sækja margvísleg
hagsmunamál sameiginlega gagn-
vart því,“ sagði Halldór.
Ráðherra sagðist hafa átt mjög
hreinskiptnar og gagnlegar umræð-
ur um þessi mál við forsætis-, utan-
ríkis- og sjávarútvegsráðherra Nor-
egs.
BÆÐI Ísland og Noregur leggja
áherslu á að kvótalausn verði ekki
niðurstaðan úr viðræðum landanna
við Evrópusambandið vegna þeirra
tollfríðinda sem fyrirsjáanlega falla
niður við stækkun Evrópusam-
bandsins til austurs en sú niðurstaða
fékkst þegar Svíþjóð og Finnland
gengu í Evrópusambandið á sínum
tíma.
Þetta kom fram á fundi Halldórs
Ásgrímssonar utanríkisráðherra
með Kjell Magne Bondevik, for-
sætisráðherra Noregs, í gær en í
ferð sinni til Noregs að þessu sinni
hefur utanríkisráðherra rætt við,
auk Bondevik, utanríkis- og sjávar-
útvegsráðherra Noregs og
utanríkismálanefnd norska Stór-
þingsins, auk þess sem hann hitti
Noregskonung.
Halldór sagði í samtali við
Morgunblaðið að á öllum þessum
fundum hefði Evrópumál og öryggis-
og varnarmál borið hæst en einnig
hefði verið rætt um samstarf í fisk-
veiðimálum, hvalamálinu og margt
fleira.
Hann sagði að á fundinum með
Bondevik hefði verið farið yfir vænt-
anlega samninga landanna við
Evrópusambandið vegna stækkunar
þess og ljóst væri að bæði löndin
myndu leggja áherslu á að viðhalda
þeim tollfríðindum sem þau hafa í
umsóknarlöndunum.
„Það má búast við að upp komi
ýmis mál í því sambandi og af því
höfum við áhyggjur vegna þess að
útflutningur til þessara landa er vax-
andi og mikilvægt að löndin vinni
saman,“ sagði Halldór.
Hann sagði að Íslendingar ynnu
að því að útfæra nánar samnings-
markmið sín og það gerðu Norð-
menn einnig, en báðar þjóðirnar
legðu áherslu á að ekki yrði um
kvótalausn að ræða, eins og verið
hefði þegar Evrópusambandið var
stækkað síðast, þ.e. við inngöngu
Svíþjóðar og Finnlands í sambandið,
heldur yrði lögð áhersla á að tollar
lækkuðu.
Halldór benti á að samkvæmt bók-
un níu við EES-samninginn myndu
Scanpix
Halldór Ásgrímsson utanríkisráðherra ræddi við Kjell Magne
Bondevik, forsætisráðherra Noregs, í Ósló í gær.
Áhersla á að ekki verði
um kvótalausn að ræða
Utanríkisráðherra eftir fund með forsætisráðherra Noregs