Morgunblaðið - 21.06.2002, Síða 14
AKUREYRI
14 FÖSTUDAGUR 21. JÚNÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
www. .is
ÍBÚÐIR TIL SÖLU • ÍBÚÐIR TIL LEIGU • TÆKJALEIGA • ÚTBOÐ
KÍKTU
Á NETIÐ
Jónsmessuleikur
á Akureyri
Verðlaunaleikritið Grimm í Ketilhúsinu á föstudagskvöld.
Gríma frá Færeyjum sýnir „Happy Days“ í Samkomuhúsinu
á laugardagskvöld.
Á sunnudaginn finnskt brúðuleikhús í Deiglunni kl. 15,
„Röd Kanel“ í Kompaníinu kl. 17 og „Eva“ í Deiglunni kl. 20.
um helgina
Missið ekki af þessari
leiklistarveislu!
LISTASUMAR á Akureyri hófst
formlega í gær með athöfn í Ket-
ilhúsinu, en Listasumar er nú
haldið í tíunda sinn. Dagskráin er
óvenju fjölbreytt, samtals yfir 60
viðburðir á sviði leiklistar, mynd-
listar, tónlistar og bókmennta auk
þess sem í boði verða námskeið og
fyrirlestrar.
Tómas Ingi Olrich mennta-
málaráðherra setti Listasumar og
sagði m.a. í ávarpi sínu að þegar
litið væri yfir þá dagskrá sem í
boði yrði nú í sumar mætti glöggt
sjá að mikið starf lægi að baki og
metnaður. Viðburðir væru fjöl-
margir og fjölbreytilegir, „og
bera vitni um hið kröftuga starf
sem hér fer fram“, sagði ráð-
herra. Hann sagði það greinilega
hafa verið skynsamlega ákvörðun
þegar Gilfélagið, sem stendur að
Listasumri, var stofnað, en það
hefði áhrif á menningarstarfsemi í
landinu öllu. „Listasumar er
merki um hið kröftuga menning-
arlíf bæjarins.“
Tómas Ingi sagði Listasumar
einnig sýna hversu metnaðarfullt
bæjarfélagið væri varðandi menn-
ingarmál. Hann sagði samstarf
milli ríkis og bæjar á þessu sviði
jákvætt og hefðu framlög til
menningarmála á Akureyri aukist
úr 30 milljónum á ári í um 64
milljónir á síðustu 6–7 árum.
Myndlistarsýningar verða óslitið
í sýningarsölum á Akureyri næstu
10 vikur, en Listasumri lýkur 31.
ágúst. Djass mun duna í Deiglunni
öll fimmtudagskvöld auk þess sem
tónleikar af ýmsu tagi verða
haldnir. Af stærri viðburðum á
því sviði má nefna tónleika Jó-
hanns Friðgeirs Valdimarssonar,
Ólafs Kjartans Sigurðssonar og
Jónasar Ingimundarsonar, tón-
leika Megasar og söngdagskrá um
Marelene Dietrich. Söngvökur
verða í Minjasafnskirkju og Sum-
artónleikar í Akureyrarkirkju.
Samtímis setningu Listasumars
hófust svonefndir Jónsmessuleikar
sem standa fram á sunnudag, en
um er að ræða leiklistarhátíð.
Boðið verður upp á 7 leiksýningar
þessa daga, í Samkomuhúsi, Ket-
ilhúsi og dagskránni lýkur með
sýningu í Kjarnaskógi á sunnu-
dagskvöld. Leiksýningar verða frá
Færeyjum og Finnlandi auk Ís-
lands.
Menntamálaráðherra setti Listasumar í tíunda sinn
Merki um kröftugt
menningarlíf í bænum
Morgunblaðið/Kristján
Tómas Ingi Olrich menntamálaráðherra setti Listasumar á Akureyri
með formlegum hætti í Ketilhúsinu í gær. Með honum á myndinni eru
Helgi Vilberg, skólastjóri Myndlistaskólans á Akureyri, Sigrún Björk
Jakobsdóttir bæjarfulltrúi og Þóra Ákadóttir, forseti bæjarstjórnar.
NÝTT farsímafyrirtæki, IMC Ísland
ehf., hefur tekið til starfa á Akureyri.
Það hefur notið aðstoðar At-
vinnuþróunarfélags Eyjafjarðar við
uppbygginguna og verður væntan-
lega til húsa við Glerárgötu 36 þar
sem starfsemi Atvinnuþróunar-
félagsins er til húsa.
Á heimasíðu AFE kemur fram að
IMC Ísland ehf. sé að hefja rekstur
símstöðvar hér á landi fyrir alþjóð-
lega reikiþjónustu bandarísks móð-
urfyrirtækis síns við farsímanotend-
ur ásamt farsímkerfis innanlands á
nokkrum stöðum á landsbyggðinni. Í
þeim tilgangi hefur félagið sett upp
farsímakerfi á Akureyri sem tekið
verður í notkun 1. júlí nk.
Nýtt farsíma-
fyrirtæki
KARLMAÐUR um fimmtugt hefur í
Héraðsdómi Norðurlands eystra ver-
ið dæmdur í tveggja mánaða fangelsi
og þá var hann sviptur ökuréttindum
ævilangt. Maðurinn var ákærður fyr-
ir umferðarlagabrot en lögregla í
Reykjavík stöðvaði för hans þar í
byrjun janúar síðastliðinn og reyndist
maðurinn ökuréttindalaus og undir
áhrifum áfengis við aksturinn.
Maðurinn játaði brot sitt. Hann
hefur ítrekað sætt refsingum vegna
ölvunarakstursbrota. Gerðist hann
þannig sekur um slíkt athæfi fimm
sinnum á tveggja mánaða tímabili í
fyrravor.
Fangelsi
fyrir að aka
ítrekað und-
ir áhrifum
ÚRBÓTARMENN, sem vinna að
uppbyggingu orlofshúsahverfis í
Kjarnaskógi á Akureyri, afhentu í
vikunni orlofssjóði Kennarasam-
bands Íslands nýtt og glæsilegt
sumarhús sem sjóðurinn hefur fest
kaup á.
Þetta er þriðja húsið sem orlofs-
sjóður KÍ eignast á svæðinu. Við af-
hendingu hússins í vikunni var jafn-
framt skrifað undir kaup á fjórða
húsinu, sem afhent verður næsta
vor, og í athugun er að bæta því
fimmta við.
Sveinn Heiðar Jónsson, bygg-
ingameistari og einn Úrbótar-
manna, sagði að gert væri ráð fyrir
23 húsum á svæðinu í fyrsta áfanga.
Alls eru risin 13 hús og búið er að
panta fimm hús til viðbótar. Upp-
bygging svæðisins hefur staðið í um
6 ár.
Hið nýja hús orlofssjóðs KÍ er
rúmir 80 fermetrar að stærð með
lagnakjallara, stórri verönd og heit-
um potti.
Hilmar Ingólfsson, formaður or-
lofssjóðs KÍ, sagði að mikill áhugi
væri fyrir húsunum í Kjarnaskógi.
Hann nefndi sem dæmi um ásókn-
ina að hægt hefði verið að leigja 42
hús á svæðinu um síðustu páska.
Tæplega 8.000 félagsmenn eru í KÍ.
Orlofssjóður sambandsins hefur 110
leigueiningar á 64 stöðum á sínum
snærum og þar af 8 íbúðir á Spáni.
Orlofshús sjóðsins á Flúðum njóta
mestra vinsælda en besta heildar-
nýtingin árið um kring er í Kjarna-
skógi.
Friðrik Rúnar Friðriksson, smið-
ur á Lambeyri í Skagafirði, smíðar
orlofshúsin, þaðan sem þau eru flutt
í Kjarnaskóg.
Morgunblaðið/Kristján
Arkitekt hússins, Úrbótarmenn, fulltrúar orlofssjóðs Kennarasambands Íslands, og byggingameistarinn við hið
nýja sumarhús KÍ. F.v. Páll Tómasson, Sveinn Heiðar Jónsson, Hilmar Ingólfsson, Þórarinn Kristjánsson,
Hólmsteinn Hólmsteinsson, Friðrik Rúnar Friðriksson og Valgeir Gestsson.
Orlofssjóður KÍ fær afhent þriðja sumarhúsið í Kjarnaskógi
Mikill áhugi fyrir
húsunum árið um kring
SKÓLANEFND Akureyrarbæjar
samþykkti samhljóða á fundi sín-
um í vikunni að ráða Úlfar Björns-
son í starf skólastjóra Glerárskóla.
Úlfar hefur starfað sem skólastjóri
Oddeyrarskóla og verður sú staða
auglýst laus til umsóknar innan
tíðar.
Úlfar er ekki ókunnugur í Gler-
árskóla, því hann hefur starfað þar
sem kennari og aðstoðarskóla-
stjóri, auk þess sem hann leysti af
sem skólastjóri í eitt ár. Úlfar tek-
ur við stöðunni af Vilberg Alex-
anderssyni, sem verið hefur skóla-
stjóri Glerárskóla undanfarin 35
ár. Glerárskóli er einsetinn grunn-
skóli með um 430 nemendur og yf-
ir 50 starfsmenn. Alls bárust þrjár
umsóknir um skólastjórastöðuna
en auk Úlfars sóttu þeir Halldór
Gunnarsson, aðstoðarskólastjóri
Glerárskóla, og Karl Erlendsson,
skólastjóri Þelamerkurskóla, um
hana.
Skólastjóri Glerárskóla
Úlfar Björns-
son ráðinn
HESTAMANNAFÉLAGIÐ Hring-
ur í Svarfaðardal varð 40 ára 16.
júní sl. og verður það haldið hátíð-
legt laugardaginn 22. júní.
Dagskráin hefst kl. 11 með því að
Hringsfélagar fara hópreið um göt-
ur Dalvíkur og verður lagt upp frá
skólanum.
Dagskrá hefst á vellinum við
Hringsholt kl. 14, þar sem m.a.
verður fánareið, töltsýning og gaml-
ir Hringsfélagar munu keppa.
Einnig verður afkvæmasýning
svarfdælskra kynbótahrossa, sýnd
verða afkvæmi Sólons frá Hóli,
Baldurs frá Bakka, Hjartar frá
Tjörn og Söndru frá Bakka. Að því
búnu verður vígsla á nýju reiðgerði
í Hringsholti. Þar munu gestir
flytja ávörp, Friðgeir Jóhannsson
rifjar upp sögu Hrings og Karlakór
Dalvíkur flytur nýjan „þjóðsöng“
Hrings o.fl. lög.
Anton Níelsson, reiðkennari á
Hólum, mun sýna notkunarmögu-
leika reiðskemmu og loks verður
gestum og gangandi boðið í kaffi í
Hringsholti.
Um kvöldið verður afmælishátíð í
Víkurröst, með borðhaldi, fjöl-
breyttri skemmtidagskrá og dans-
leik.
Hestamannafélagið
Hringur 40 ára
ÁRLEGT maraþonhlaup umhverfis
Mývatn fer fram í kvöld, föstudaginn
21. júní, og hefst kl 21. Á laugardag-
inn verður síðan keppt í hálfmaraþoni
og skemmri vegalengdum. Á undan-
förnum árum hafa keppendur verið á
bilinu 40 til 60 og mikil ánægja verið
meðal þátttakenda. Búist er við svip-
aðri þátttöku og undanfarin ár.
Skráning er í Selinu á Skútustöðum.
Mývatns-
maraþon
Mývatnssveit
♦ ♦ ♦
♦ ♦ ♦