Morgunblaðið - 21.06.2002, Page 21
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. JÚNÍ 2002 21
w
w
w
.d
es
ig
n.
is
©
20
02
TAKIÐ EFTIR!
40 feta gámur af gegnheilu
parketi á hlægilegu verði.
Fyrstir koma fyrstir fá.
Ármúla 23 • Sími 568 1888
www.parketgolf.is
Vara Verð Magn
Eik country 19*83/108 (Lakkað) 3980 kr 419 m2
Hnota classic 19*57 Fallandi 2490 kr 245 m2
Hlynur classic 19*57 Fallandi 2490 kr 267 m2
Hlynur classic 3780 kr 356 m2
Rauð Eik Valin 19*57 stafa 2880 kr 137 m2
Loftaklæðningar
Gegnheilt parket
Borðaparket Plastparket
Korkparket
GólflistarLoftalistar Slípivélar - leiga
!
HAFÞÓR F. Sigurðsson, formað-
ur Snarfara – félags sportbáta-
eigenda, segir ástand báta í eigu
félagsmanna vera gott en þó geti
verið að margir þeirra hafi trass-
að að láta skoða báta sína. Eins
og greint var frá í Morgunblaðinu
í gær hefur Siglingastofnun Ís-
lands sett farbann á 51 af 59 bát-
um í eigu félagsmanna Snarfara
þar sem bátarnir uppfylltu ekki
skilyrði um haffærni í kjölfar eft-
irlitsskoðunar.
Hafþór þvertekur fyrir að
ástand báta í eigu félagsmanna
Snarfara sé slæmt.
Þvert á móti sé ástand þeirra
mjög gott. Hinsvegar sé ekki úti-
lokað að sumir hafi trassað að
láta skoða báta sína. Hann bendir
á að bátarnir séu skoðaðir í
tveimur áföngum, annarsvegar
fari fram bolskoðun á meðan bát-
arnir standi á landi, sem oftast
fari fram á veturna. Hinsvegar
gerir Siglingastofnun kröfu um
að bátarnir séu settir á flot og þá
fari fram búnaðarskoðun. „Flest-
ir bátanna sem hér um ræðir hafa
verið bolskoðaðir en margir eru
nýkomir á flot og sumir hafa jafn-
vel ekki enn verið sjósettir. Það
er því ekki búið að klára skoð-
unarferlið. Skemmtibátar eru
jafnan aðeins í notkun yfir sum-
artímann og eigendur þeirra eru
margir að láta skoða bátana
þessa dagana. Flestir þessara
báta sem Siglingastofnun hefur
nú sett í farbann munu því fá haf-
færisskírteini á næstu dögum og
vikum.“
Harkalegar aðgerðir
Hafþór segir að stjórn Snarfari
hafi ekki aðgang að skýrslum um
hvaða bátar hafi gengið í gegnum
skoðun og hverjir ekki. Stjórninni
hafi vissulega brugðið við að
heyra hversu margir bátar upp-
fylltu ekki skilyrði um haffærni
og ljóst sé að gera verði brag-
arbót í þessum efnum. Að því sé
nú unnið í samvinnu við Siglinga-
stofnun. Hann segir í raun ekkert
athugavert við vinnubrögð Sigl-
ingastofnunar, stofnuninni beri
skylda til að annast eftirlit þess-
ara báta en sér þyki þó aðgerð-
irnar nú nokkuð harkalegar.
Ástand Snarfara-
báta er gott
alltaf á föstudögumDAGLEGT LÍF