Morgunblaðið - 21.06.2002, Qupperneq 25
FLUGHELGI Á AKUREYRI
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. JÚNÍ 2002 25
FLUGSAFNIÐ á Akureyri var
stofnað 1. maí 1999, með það að
markmiði að halda á lofti sögu
flugs á Íslandi, á þann veg að varð-
veita gamlar flugvélar, muni,
myndir og texta sem tengist þess-
ari sögu á allan hátt. Þegar var
hafist handa við að koma upp sýn-
ingu í Flugskýli 7 á Akureyr-
arflugvelli og þann 24. júní árið
2000 var safnið opnað með form-
legum hætti. Flugsafnið eignaðist
síðan þetta hús þann 1. janúar árið
2001. Í júní árið 2001 var haldin
svo kölluð Flughelgi á vegum
safnsins á Akureyri og þar fór
fram fyrri hluti Íslandsmótsins í
listflugi á vegum Flugmálafélags
Íslands. Samningur hefur verið
gerður milli þessara aðila um að
Flughelgin á Akureyri verði árleg-
ur viðburður framvegis. Stefnt er
að því að helgin 22. og 23. júní í ár
verði Flughelgi á Akureyri. Þar
munu fara fram flugsýningar af
ýmsu tagi, fallhlífastökk og Ís-
landsmót í listflugi. Flugsafnið
verður að sjálfsögðu opið og þar
má skoða sögufrægar flugvélar og
muni, ásamt sýningu sem rekur
flugsögu Íslands í máli og myndum
Fyrsta flugvélin sem keypt var
til Íslands var af Avro-gerð og
smíðuð í Bretlandi. Hún kom til
landsins á árinu 1919 og fyrsta
flugið var farið úr Vatnsmýrinni
þann 4. júní það ár (Annálar ísl.
flugsögu).
65 ár frá stofnun
Flugfélags Akureyrar
Flugsaga Akureyrar er merkur
þáttur í flugsögu Íslands og Ak-
ureyri hefur stundum verið nefnd
vagga flugs á Íslandi þó fæðingin
hafi átt sér stað í Vatnsmýrinni og
þar hafi flugið átt sína fyrstu
vöggu á Íslandi. Segja má að
Vatnsmýrin, Sandskeið og Mel-
gerðismelarnir, sunnan Akureyrar,
séu þeir staðir sem oftast eru
nefndir í umræðunni um flugsögu
Íslands, auk sjávarins kringum
landið, en allar fyrstu flugvélarnar
sem notaðar voru til póst- og far-
þegaflugs í atvinnuskyni hér á
landi voru sjóflugvélar.
Á þessu ári eru 65 ár frá stofnun
Flugfélags Akureyrar, en það var
stofnað á Akureyri 3. júní 1937.
Agnar Kofoed-Hansen, síðar flug-
málastjóri, var aðalhvatamaðurinn
en Vilhjálmur Þór, kaupfélagsstjóri
á Akureyri (KEA), gekkst fyrir
stofnun fyrirtækisins og var fyrsti
stjórnarformaður þess. Aðrir í
stjórn voru Guðmundur Karl Pét-
ursson yfirlæknir og Kristján
Kristjánsson, forstjóri Bifreiða-
stöðvar Akureyrar (BSA). Tíu aðrir
stórhuga Akureyringar stóðu að
stofnun félagsins auk tveggja fyr-
irtækja, Útgerðarfélags KEA og
Kaffibrennslu Akureyrar. Fyrsti
flugstjóri og forstjóri Flugfélags
Akureyrar var ráðinn Agnar
Kofoed-Hansen. Félagið festi kaup
á flugvél af gerðinni Waco og hóf
farþegaflug til Reykjavíkur og
fleiri staða á landinu.
Flugfélag Akureyrar
verður Flugfélag Íslands
Á aðalfundi Flugfélags Akureyr-
ar 13. mars 1940 var samþykkt að
breyta nafni félagsins í Flugfélag
Íslands. Þetta var þriðja flug-
félagið með þessu nafni og það fé-
lag sem í raun lifir enn í dag. Nafn-
breytingin var tilkynnt til
hlutafélagaskrár 27. mars, und-
irritað af stjórninni. Jakob Frí-
mannsson, kaupfélagsstjóri KEA,
var þá tekinn við af Vilhjálmi Þór
og auk hans í stjórn voru Guð-
mundur Karl Pétursson og Krist-
ján Kristjánsson. Fyrstu stjórn
Flugfélags Íslands skipuðu síðan
Jakob Frímannsson, Kristján
Kristjánsson, Agnar Kofoed-
Hansen, Örn Ó. Johnson og Bergur
G. Gíslason. Flugleiðir urðu til síð-
ar með samruna Flugfélags Íslands
og Loftleiða.
Fyrsta farþegaflug á Íslandi,
annað en útsýnisflug, var farið frá
Reykjavík til Akureyrar 4. júní
1928, á vegum Flugfélags Íslands
nr. 2. Þetta var jafnframt fyrsta
flugvélin sem kom til Akureyrar,
en hún var af gerðinni Junkers JU
13. Flugvélin var nefnd Súlan og
hafði skráningarstafina D 463.
Koma flugvélarinnar til Akureyrar
þótti að sjálfsögðu merkur við-
burður í bæjarlífinu. Fimm flug-
vélar, af Junkers-gerð, voru not-
aðar til farþegaflugs, póstflutninga
og síldarleitar á Íslandi á árunum
1928 til 1931, þó aldrei nema tvær í
einu. Þær höfðu allar þýska skrá-
setningarstafi, en báru íslensk
nöfn. Nöfnin voru Súlan, Veiðibjall-
an og Álftin.
Flugið heillaði Akureyringa
strax á fyrstu árum þess á Ak-
ureyri, mikill áhugi kviknaði og
hefur ríkt þar alla tíð síðan. Svif-
flugfélag Akureyrar var stofnað á
árinu 1937 og hefur starfað óslitið
fram á þennann dag. Margir af
þekktustu flugstjórum íslenskrar
flugsögu hófu sitt flugnám hjá Svif-
flugfélagi Akureyrar á Melgerð-
ismelum og má nefna sem dæmi þá
Jóhannes Snorrason og Arngrím
Jóhannsson.
Fyrsti flugskóli á Íslandi var
stofnaður á Akureyri. Það var
Flugskóli Akureyrar, sem stofn-
aður var af Gísla Ólafssyni og Árna
Bjarnarsyni á árinu 1945. Steindór
Hjaltalín kom síðar inn í hópinn og
var flugkennari ásamt Gísla. Gísli
var framkvæmdastjóri jafnframt
kennslunni, en þeir félagar ráku
skólann í nokkur ár. Skólinn átti
flugvélar af gerðunum Piper Cub,
Percival Proctor og Tiger Mouth,
sem notaðar voru til kennslunnar.
Ein þeirra, af Tiger Mouth-gerð, er
nú í endurbyggingu hjá áhuga-
mönnum á Akureyri.
Flugskóli Akureyrar er enn
starfandi, þó nokkurt hlé hafi orðið
á rekstrinum eftir að frumkvöðl-
arnir hættu á sínum tíma. Skólinn
rekur nú tvær kennsluvélar af
gerðinni Piper Tomahawk og hefur
næg verkefni.
Flugsafnið á Akureyri er nú
þriggja ára gamalt og óðum að
koma undir sig fótunum. Þó að
töluvert sé til af minjum úr flug-
sögunni hefur mikið farið for-
görðum og er það miður. Fullvíst
er að ekki mátti dragast lengur að
hefjast handa við söfnun og skrá-
setningu þeirra muna sem enn eru
til og koma þeim fyrir til varðveislu
á viðurkenndu safni. Þannig getum
við best haldið flugsögu Íslands á
lofti.
Vagga flugs
á Íslandi
Flugsaga landsmanna er varðveitt í Flug-
safninu á Akureyri og má þar finna flugvélar,
muni og myndir sem fluginu tengjast.
En flughelgi verður, að sögn Svanbjörns
Sigurðssonar, haldin í bænum 22. og 23 júní.
Fyrsta flugvél Flugfélags Akureyrar var Waco YKS-7, sem hér sést á Akureyrarpolli 1938. Fyrsta flugvél sem kom til Akureyrar, 4. júní 1928. Súlan D-463. Gerð: Junkers JU-13.
Stjórn Flugsafnsins, f.v.: Sigurður Aðalsteinsson, Haukur Jónsson,
Svanbjörn Sigurðsson, Kristján Víkingsson og Arngrímur Jóhannsson.
Höfundur er stjórnarformaður Flug-
safnsins á Akureyri.
meistar inn. is
GULL ER GJÖFIN