Morgunblaðið - 21.06.2002, Side 37
Samtökin hafa unnið sér það til
saka að sópa til sín fleiri fylg-
ismönnum í Kína en nokkur önnur
samtök, þ.m.t. sjálfur kommúnista-
flokkurinn og voru þar með orðin
ógnun við viðtekna hugmynda-
fræði kommúnistaflokks Kína. Þar
er öll gagnrýni á ríkjandi skipan
bæld niður með dæmalausri
grimmd og er skemmst að minnast
atburðanna á Torgi hins himneska
friðar árið 1989, sem enn eru í
fersku minni, en þeir sem bera
ábyrgð á þeim aðgerðum eru enn
við völd. Kína er á lista Amnesty
International yfir ríki þar sem
flest mannréttindabrot eru framin,
sýndarréttarhöld haldin og dauða-
dómum framfylgt yfir fólki sem
framið hefursmávægileg brot á
okkar mælikvarða. Þar tíðkast enn
hópréttarhöld eins og í Sovétríkj-
unum forðum.
Stundum heyrast þær raddir að
ekki sé rétt að láta menn gjalda
endalaust fyrir misgjörðir sínar og
að betri árangri megi ná með því
að telja þeim hughvarf sem í hlut
á. Það kann að vera rétt í sumum
tilfellum en réttlætir ekki þann
undirlægjuhátt sem við höfum orð-
ið vitni að.
Lokaorð
Ef koma á á vinsamlegum sam-
skiptum við lönd eins og Kína þar
sem sannanlega eru framin mann-
réttindabrot í stórum stíl er leiðin
til þess ekki sú að horfa með
blinda auganu á það sem miður
fer.
Ekki er heldur rétt að taka af-
stöðu gegn hópum sem vilja vekja
athygli á því ástandi sem ríkir
heima fyrir jafnvel þótt þeir geti
valdið gestum okkur óþægindum
með nærveru sinni. Það er bikar
sem verður að drekka ef við viljum
standa undir nafni sem verðir
mannréttinda.
Við eigum þvert á móti að bjóða
alla jafnt velkomna sem ætla að
tjá okkur vinarhug sinn með heim-
sókn sinni eða mótmæla friðsam-
lega framferði gestsins. Annars er-
um við komin á hættulega braut
og stutt verður í að hugtök eins og
„óvinir ríkisins“ eða „handbendi
heimskommúnismans“ geri vart
við sig svo vitnað sé í hugtök
ákveðinna ríkja við að flokka
óæskilega þjóðfélagsþegna.
Höfundur er efnaverkfræðingur.
vildi koma sjónarmiðum sínum á
framfæri. Ríkisstjórnin íslenska
varð með þessum aðgerðum sínum
uppvís að ótrúlegu dómgreindar-
leysi. Svona gera menn ekki.
Ábyrgð íslenskra stjórnvalda var
sú að tryggja öryggi okkar kín-
versku gesta. Aldrei var í raun
spurning um að því öryggi væri hin
minnsta hætta búin, þótt hundruð
eða þúsundir hefðu uppi friðsamleg
mótmæli. Það er ekki í fyrsta skipti –
og ekki það síðasta – sem það gerist
hérlendis. Það vita Kínverjar og
fulltrúar annarra þjóða sem okkur
sækja heim.
Nauðsynlegt er að draga réttan
lærdóm af þeim mistökum sem ís-
lensk stjórnvöld gerðu í heimsókn
þessari. Íslenskur almenningur vill
ekki að landið okkar verði þekkt að
því í samfélagi þjóðanna að vera það
land þar sem mannréttindi og skoð-
anafrelsi er fótum troðið, þegar
valdamönnum þykir við eiga. Lýð-
ræðið er engin skiptimynt.
Lýðræði
Nauðsynlegt er að
draga réttan lærdóm af
þeim mistökum, segir
Guðmundur Árni Stef-
ánsson, sem íslensk
stjórnvöld gerðu í heim-
sókn þessari.
Höfundur er alþingismaður Sam-
fylkingarinnar.
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. JÚNÍ 2002 37
Sparisjóður Reykjavíkur og nágrennis
Stofnfjáreigendafundur Sparisjóðs Reykjavíkur og nágrennis verður haldinn föstudaginn
28. júní 2002, í Súlnasal Hótels Sögu í Reykjavík. Fundurinn hefst kl. 16.15.
Dagskrá:
1. Tillaga stjórnar um að breyta Sparisjóði Reykjavíkur og nágrennis í hlutafélag.
Tillagan felur í sér að breytingin fari þannig fram, að sparisjóðurinn sameinist
samnefndu hlutafélagi, sem stjórn hans hefur fyrir hans hönd stofnað í þessu skyni
og að breytingin miðist við 1. janúar 2002.
2. Tillaga tveggja stofnfjáreigenda um breytingu á samþykktum, þess efnis að 2. ml.
1. mgr. 5. gr. falli niður, en í staðinn komi ný mgr. svohljóðandi: „Ekki eru sett takmörk
á fjölda hluta í eigu einstakra stofnfjáreigenda“.
3. Tillaga tveggja stofnfjáreigenda að svohljóðandi ályktun: „Stjórn Sparisjóðs
Reykjavíkur og nágrennis mun ekki standa gegn framsali stofnfjárhluta í sparisjóðnum“.
Stjórn Sparisjóðs Reykjavíkur og nágrennis hvetur stofnfjáreigendur til að fjölmenna til
fundarins. Aðgöngumiðar og atkvæðaseðlar verða afhentir við innganginn á fundarstað.
Reykjavík 19. júní 2002
Sparisjóðsstjórnin
SPRON-sjóðurinn ses
Fulltrúaráðsfundur verður haldinn í SPRON-sjóðnum ses föstudaginn 28. júní 2002, í Súlnasal
Hótels Sögu í Reykjavík, að loknum fundi stofnfjáreigenda í Sparisjóði Reykjavíkur og
nágrennis þennan sama dag og á sama stað, en stofnfjáreigendafundurinn hefst kl. 16.15.
Dagskrá:
1. Stjórnarkjör
2. Ákvörðun stjórnarlauna
Reykjavík 19. júní 2002
Stjórn SPRON-sjóðsins ses
Sparisjóður Reykjavíkur og nágrennis hf.
Hluthafafundur verður haldinn í félaginu föstudaginn 28. júní 2002, í Súlnasal Hótels Sögu í
Reykjavík, að loknum fundi stofnfjáreigenda í Sparisjóði Reykjavíkur og nágrennis og fulltrúa-
ráðsfundi í SPRON-sjóðnum ses, þennan sama dag og á sama stað, en stofnfjáreigenda-
fundurinn hefst kl. 16.15.
Dagskrá:
1. Tillögur til breytinga á samþykktum félagsins.
Í fyrsta lagi lúta tillögurnar að breytingum sem gera þarf m.t.t. rafrænnar skráningar
hlutabréfa í félaginu.
Í öðru lagi er gerð tillaga um að í samþykktir félagsins komi ákvæði sem heimila stjórn
félagsins að hækka hlutafé þess með áskrift nýrra hluta allt að kr. 475.000.000,-.
2. Tillaga um heimild til handa stjórn félagsins til kaupa á eigin hlutum fyrir félagsins hönd.
3. Önnur mál, löglega fram borin.
Reykjavík 19. júní 2002
Stjórn Sparisjóðs Reykjavíkur og nágrennis hf.
Sparisjóður Reykjavíkur og nágrennis
A
B
X
/
S
ÍA