Morgunblaðið - 29.06.2002, Blaðsíða 8
FRÉTTIR
8 LAUGARDAGUR 29. JÚNÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Hestanámskeið fyrir kátar konur
Ekki skal hest-
ana hræðast
UM ALLT land máfinna hestaleigursem opna hesthús
sín og gerði fyrir ferða-
mönnum á sumrin. Marg-
ir fara á mis við hesta-
mennskuna vegna
kunnáttuleysis eða
tengslaleysis. Hestaleig-
urnar hafa sannarlega
bætt stöðu þeirra sem
ólmir vilja komast á bak,
og einnig fyrir þá sem
hafa litla reynslu af hesta-
mennsku og hrýs jafnvel
hugur við brambolti af því
tagi. Á Bjarnastöðum í
Hvítársíðu er boðið upp á
fjölbreytta ferðaþjónustu
og meðal þess sem er á
boðstólum eru hestaferðir
fyrir kátar konur, sér-
hönnuð námskeið fyrir
konur sem langar á bak. Morg-
unblaðið ræddi við Arndísi Guð-
mundsdóttur um hestamennsk-
una.
Hvað fékk ykkur til að halda
sérstök reiðnámskeið fyrir kátar
konur?
„Við fengum hugmyndina í
fyrra og eru námskeiðin aðallega
ætluð konum sem lítið hafa farið
á hestbak eða hafa misst kjark-
inn. Það er staðreynd að margar
konur eru hræddar við að fara á
bak, ekki síst meðal vanra hesta-
manna og fjörmikilla hesta. Þess
vegna leggjum við áherslu á
trausta hesta og rólegt umhverfi
á hestanámskeiðinu, sem veitir
konunum tækifæri til að öðlast
öryggi á baki.“
Hvernig mæltist framtak ykk-
ar fyrir?
„Þetta vakti mikla lukku, sér-
staklega meðal kvenna hér í
sveitinni, sem vildu gjarnan kom-
ast á bak, áttu jafnvel hesta á
bænum en höfðu aldrei eða sjald-
an farið á bak. Við fundum fyrir
þörfinni og ákváðum því að bjóða
námskeiðin á ný nú í sumar.
Hver veit nema við fáum fleiri
gesti lengra að komna til að jafna
sakirnar við íslenska hestinn?“
Er málið viðkvæmt fyrir suma
einstaklinga?
„Já, sumar konur eru óöruggar
og þær líða fyrir það. Einu tæki-
færin sem þær hafa ef til vill
fengið hafa verið innan um vant
hestafólk. Það skilur margt ekki
hve óþægilegt og streituvaldandi
það er að vera óöruggur á hest-
baki. Konunum hefur liðið illa og
þær hafa fundið til vanmáttar
síns. Við bjóðum að leysa úr
þessum vanda og leyfa öllum að
njóta sín til fullnustu. Það er eðli-
legt að vera smeyk við hestana ef
kynnin af þeim eru stutt eða eng-
in, þess vegna er öruggur hestur
og rólegt umhverfi nauðsynlegt.“
Hvenær hefjast námskeiðin?
„Ég byrjaði með konum hér úr
nágrannasveitinni í vikunni og á
von á mörgum í næstu viku.
Mánudaginn 1. júlí hefst nám-
skeið fyrir algjöra byrjendur og
mánudaginn 8. júlí er framhalds-
námskeið fyrir lengra
komnar.“
Þið bjóðið einnig
börnum að fara á bak,
ekki satt?
„Jú, við höfum
barnanámskeið á morgnana og
kvennanámskeið á kvöldin. Við
höfum fjölgað námskeiðunum í ár
frá því í fyrra enda fundið fyrir
miklum áhuga bæði yngri og
eldri. Þannig náum við að sinna
þessum hópum saman. Börnin
njóta þess út í ystu æsar að vera
með hestunum, og ekki er að sjá
annað en að konurnar hafi gert
það líka, eftir að þær höfðu sum-
ar yfirunnið hræðslu og óöryggi.“
Hefur býlið lengi boðið hesta
til leigu?
„Já, hestaleigan hefur verið
starfandi frá um 1970, er líklega
með þeim elstu á landinu, en
smám saman hefur starfsemin og
fjölbreytnin aukist. Við leggjum
mikla áherslu á að gestir okkar
njóti náttúrunnar í nágrenninu
og reynum eftir megni að bjóða
upp á fjölbreytta þjónustu. Við
höfum opið frá vori fram á
haust.“
Hvert er farið í útreiðartúra?
„Við ríðum hér inn með Hvít-
ánni, förum yfir Hraunána og
Lambeyrarkvíslina, en sú kvísl
kemur undan hrauninu líkt og
Hraunfossar, sem eru aðeins í
fjögurrra kílómetra fjarlægð frá
bænum. Náttúran er alveg ein-
stök hér um slóðir og mjög gam-
an að fara í reiðtúr í þessu um-
hverfi. Við bjóðum upp á
mislangar ferðir en einkum
leggjum við áherslu á að hafa
hestana trausta og góða svo að
ekkert þurfi að óttast. Svo er
rúsína í pylsuendanum þegar
ferðinni lýkur, sem best er að
segja ekkert meira um. Ég tek
myndir af konunum á hestinum
og afhendi ásamt viðurkenning-
arskjali að loknu námskeiðinu.
Það er gaman að eiga minn-
inguna skjalfesta.“
Það er ekki á dagskrá að bjóða
álíka námskeið fyrir karlmenn
sem eru ólagnir við hesta?
„Þú segir nokkuð,
ætli veiti nokkuð af
því? Eflaust er fjöldi
karlmanna sem aldrei
hefur fengið tækifæri
til að fara á hestbak og
kann ekki að bera sig að. Þeim
hópi þyrfti líka að sinna.“
Á Bjarnastöðum í Hvítársíðu
er rekin fjölbreytt ferðaþjónusta
eins og áður sagði. Má þar nefna
tjaldstæði, sölu veiðileyfa, hand-
verksmarkað og margt fleira.
Fyrir áhugasama er auðvelt að
hafa samband við Arndísi í síma
435 1486 eða á heimasíðu býlisins
http://bjarnastadir.vefurinn.is/.
Arndís Guðmundsdóttir
Arndís Guðmundsdóttir er
fædd í Kópavogi árið 1968 og
uppalin á Bjarnastöðum í Hvítár-
síðu. Hún lauk stúdentsprófi frá
Fjölbrautaskóla Vesturlands á
Akranesi árið 1988. Arndís starf-
aði við hótelstörf, veitinga- og
skrifstofustörf í Reykjavík árin
1988–1993. Frá árinu 1994 hefur
Arndís búið á Bjarnastöðum og
tók hún við búskap þar 1996
ásamt manni sínum, Sigurði
Rúnari Gunnarssyni. Þau hjónin
eiga tvo syni, Guðmund Aron,
sem er fæddur 1994, og Stefán
Má, sem er fæddur 1997.
Konur og
börn njóta
hestaferða
Þá er nú Byggðastofnun búin að finna út að það er sjónvarpsleysi, og ekkert annað en
sjónvarpsleysi sem þjáir þennan volaða landsbyggðalýð.
MORGUNBLAÐINU hefur bor-
ist eftirfarandi yfirlýsing frá Al-
coa:
„Að gefnu tilefni vill Alcoa
koma á framfæri eftirfarandi
skýringum vegna fréttatilkynn-
ingar sem WWF sendi til ís-
lenskra fjölmiðla 27. júní s.l:
Hálslón (sem yrði uppistöðu-
lón Kárahnjúkavirkjunar) er
einn besti vatnsaflsvirkjunar-
kostur sem fyrir hendi er nokk-
urs staðar í heiminum. Verkefnið
kallar ekki á fólksflutninga, hef-
ur engin áhrif á dýra- eða
plöntutegundir í útrýmingar-
hættu og setur engar hömlur á
aðgang ferðafólks og náttúru-
unnenda að virkjunarsvæðinu.
Viðkvæmt vistkerfi hálendisins
verður verndað og hreindýra-,
fugla- og selastofnum stafar eng-
in marktæk hætta af fram-
kvæmdunum.
Þegar gerð virkjunarinnar og
aðgangsvega er lokið verður auð-
veldara fyrir ferðamenn að njóta
stórbrotins landslags á svæðinu
án þess að valda meiriháttar um-
hverfisspjöllum. Svæðið heldur
óbyggðareiginleikum sínum og
getur þannig orðið að auðlind
sem er aðgengilegri fyrir ís-
lenska ferðamenn og erlenda að
njóta.
Virkjunin sjálf er sérlega hag-
kvæm, þar sem hún þarf aðeins
lítið uppistöðulón til þess að
framleiða allt að 500 MW af raf-
orku vegna rúmlega 600 m fall-
hæðar sem fæst með því að veita
jökulvatni um neðanjarðargöng.“
Yfirlýsing frá Alcoa
SÚ ákvörðun
stjórnar Byggða-
stofnunar um að
stofnunin eignist
sjónvarpssenda
sem hún eigi veð í
og muni jafn-
framt beita sér
fyrir uppbygg-
ingu dreifikerfis
Sýnar, Skjás eins
og Aksjón á Ak-
ureyri í samráði
við þessi fyrirtæki, hefur vakið at-
hygli, en Kristinn H. Gunnarsson,
fráfarandi stjórnarformaður
Byggðastofnunar, kynnti ákvörð-
unina á ársfundi stofnunarinnar fyrr
í þessum mánuði.
Markús Örn Antonsson, útvarps-
stjóri RÚV, telur að það orki mjög
tvímælis að það sé hlutverk Byggða-
stofnunar að eiga og reka senda í
dreifikerfi fyrir sjónvarp og útvarp.
„Það má spyrja hvort það sé þá ekki
verðugt verkefni fyrir þá stofnun að
fara að gefa út og dreifa dagblaði
fyrir landsbyggðina,“ bendir hann á.
Hann álítur að þetta útspil Byggða-
stofnunar sé mjög á skjön við þá alls-
herjaráætlun sem verið sé að gera í
dreifikerfismálum, ekki síst í ljósi
þess að fyrstu tillögur að uppbygg-
ingu dreifikerfis um landið fyrir staf-
rænar útsendingar liggi á borði sam-
gönguráðherra og það standi til að
hann taki afstöðu til þeirra fljótlega.
Ríkisútvarpið stendur ekki fyr-
ir einokun í dreifikerfismálum
Markús Örn segist undrandi á um-
mælum fráfarandi formanns stjórn-
ar Byggðastofnunar um að það
mætti ef til vill líta á dreifikerfi Rík-
isútvarpsins sem einokun á dreifi-
kerfismálum í landinu. Hann segir
það ekki rétt og bendir á að Stöð 2
hafi náð að byggja upp dreifikerfi
sitt.
„Ég sé það ekki ganga upp í fljótu
bragði að Byggðastofnun ætli í ljósi
þessarar meintu einokunar Ríkisút-
varpsins að byggja upp nýtt dreifi-
kerfi fyrir landsbyggðina til að veita
völdum aðilum aðgang. Er það nýtt
ríkisútvarp?“ spyr hann.
Hann bætir við að um 40–50
sveitabæir í dreifðustu byggðum nái
ekki viðunandi sjónvarpsmóttöku nú
og veltir því upp hvort Byggðastofn-
un geti ekki komið að málum, hvort
það sé ekki frekar í hennar verka-
hring en það sem sé að gerast núna.
Aðspurður hvort hann telji að
Byggðastofnun sé með þessum að-
gerðum að mismuna fyrirtækjum
segir hann svo vera. „Hvernig yrði
tekið á því ef það kæmi fram nýtt
fyrirtæki á Selfossi eða á Hvolsvelli
sem vildi fá aðstöðu til að dreifa sjón-
varpsefni sínu fyrir sinn landshluta
og kannski víðar um landið? Hafa þá
allir jafnan aðgang að þessu dreifi-
kerfi Byggðastofnunar?“ spyr Mark-
ús Örn og leggur áherslu á að hann
hafi ekki fengið nein svör við þessum
spurningum og reyndar ekki leitað
eftir þeim.
Markús Örn Antonsson útvarpsstjóri um þátttöku
Byggðastofnunar í uppbyggingu dreifikerfis
Orkar tvímælis hvort slíkt sé
hlutverk Byggðastofnunar
Markús Örn
Antonsson
Menntamálaráðuneytið hefur sett
af stað úttekt á lestrarerfiðleikum
nemenda í grunn- og framhaldsskól-
um landsins. Í úttektinni verða m.a.
könnuð og metin þau úrræði sem
standa þeim til boða sem glíma við
lestrarerfiðleika og mótaðar tillögur
til úrbóta.
Starfshópur skipaður fulltrúum
ráðuneytisins og fulltrúum Sam-
bands íslenskra sveitarfélaga mun
vinna að þessu verkefni með ráðgjaf-
arfyrirtækinu Pricewaterhouse-
Coopers ehf. sem fengið hefur verið
til að sjá um framkvæmd þess.
Stefnt er að því að úttektinni verið
lokið í september nk. og mun ráðu-
neytið þá taka ákvörðum um hvaða
úrræðum verður beitt til að mæta
þörfum þeirra sem eiga við lestr-
arerfiðleika að stríða.
Úttekt á lestr-
arerfiðleikum
♦ ♦ ♦