Morgunblaðið - 29.06.2002, Blaðsíða 62
FÓLK Í FRÉTTUM
62 LAUGARDAGUR 29. JÚNÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
SAFNPLÖTUR sem bera yfir-
skriftina Pottþétt hafa verið gefnar
út á Íslandi síðan árið 1995. Nú hef-
ur útgáfan tekið nokkrum breyting-
um, bæði hvað varðar útlit og inni-
hald, og leitaði Morgunblaðið á náðir
Björns Steinbekk og Höskuldar
Höskuldssonar hjá Skífunni til að fá
upplýsingar um málið.
„Alls hafa verið gefnar út um 60
Pottþétt-plötur, bæði svona núm-
eraðar safnplötur og svo þemaplöt-
ur. Við ákváðum að breyta til og hafa
þær einfaldar því við teljum okkur
geta gert betri plötur fyrir vikið,“
sagði Höskuldur.
„Við ákváðum að þétta diskinn.
Við viljum líka hafa hann ódýrari.
Þannig er reynt að sporna gegn því
að diskurinn verði afritaður eins og
vinsælt er að gera við Pottþétt-
diskana. Hann er læstur eins og allir
diskar sem Skífan gefur núna út,“
segir Björn.
„Það er líka auðveldara að búa til
plötu með 20 góðum lögum í staðinn
fyrir 40,“ segir Höskuldur og bætir
við: „Svo er auðvitað alltaf hollt að
staldra aðeins við þegar svona safn-
plöturöð hefur gengið svona vel og
sjá hvað má gera betur.“
Fylgjumst vel með
hvað er vinsælt
„Með þessari 28. Pottþétt-plötu er
bryddað upp á þeirri nýjung að farið
er að tengja útgáfuna við ákveðin
fyrirtæki,“ upplýsir Björn.
„Það verður alltaf eitt fyrirtæki
sem styrkir útgáfu hvers disks.
Fyrstu 300 eintökin verða svo seld á
1.500 krónur og mun allur ágóðinn
renna til góðgerðarmála. Fyrirtækin
ákveða hvaða samtök það eru sem
þau vilja leggja lið. Í þetta sinn eru
það Eurocard Atlas sem styrkir út-
gáfuna og völdu þau sér Götusmiðj-
una til að styrkja,“ segir Björn.
Pottþétt-plöturnar eru gefnar út
með tveggja mánaða millibili og er
það einkum Höskuldur sem sér um
lagavalið á plöturnar.
„Við fylgjumst bara með því hvað
er vinsælt hverju sinni. Við tökum
mið af öllum tegundum af vinsælda-
listum og fylgjumst með hvað er
heitast hér heima og einnig erlend-
is,“ segir Höskuldur.
„Við höfum svo alltaf reynt að
hafa einhverja íslenska flytjendur
með og í þetta sinn er það hljóm-
sveitin Daysleeper,“ segir Hösk-
uldur.
„Íslensku lögin eru ekki fleiri að
þessu sinni því um þessar mundir er
að koma út íslensk safnplata, Svona
er sumarið, svo að það er afgreitt
þannig.“
Framtíð safnplatnanna hefur að
geyma fjölda pottþéttra platna en
Pottþétt 29 kemur út um miðjan
september og númer 30 fyrir jólin.
Að sögn Höskuldar er svo vænt-
anleg í júlí þemaplata sem ber nafn-
ið Pottþétt Hinsegin þar sem safnað
verður saman kunnum smellum
samkynhneigðra tónlistarmanna.
Það er því nóg framundan í hinum
„pottþétta“ heimi.
CAFÉ 22 DJ Atli á neðri
hæðinni. DJ Benni og
Doddi litli á efri hæðinni .
CAFÉ AMSTERDAM Vít-
amín spila.
CAFÉ RIIS, Hólmavík
Hljómsveitin Short Notice
með dansleik.
CATALINA, Hamraborg
Acoustic spilar.
CHAMPIONS CAFÉ, Stór-
höfða 17 Siggi Hlö þeytir
skífum.
EGILSBÚÐ, Neskaupstað
Í svörtum fötum.
FÉLAGSHEIMILIÐ
BLÖNDUÓSI Írafár spila
ásamt diskóhljómsveitinni
Boogie Knights. 16 ára ald-
urstakmark.
FÉLAGSHEIMILIÐ KIRKJUHVOL-
UR, Kirkjubæjarklaustri Stórsveit
Ásgeirs Páls leikur fyrir dansi.
GAUKUR Á STÖNG Buttercup. Um
mánaðamótin kemur út fimmta
breiðskífa sveitarinnar.
GRANDROKK Rokktónleikar kl.
23.30. Fram koma Múspell, Sól-
stafir og Exizt.
GULLÖLDIN Sælusveitin leikur
fyrir dansi.
HÓPIÐ, Tálknafirði Hljómsveitin
Smack. Smack skipa þeir Þor-
steinn Bjarnason, Ingvar Val-
geirsson, Jörgen Jörgensen og
Gísli Elíasson.
JÓMFRÚIN, Lækjargötu Fimmtu
sumartónleikar veitingahússins kl.
16 til 18. Fram koma víbrafónleik-
arinn Reynir Sigurðsson og gít-
arleikarinn Jón Páll Bjarnason.
Aðgangur ókeypis.
KAFFI DUUS, Keflavík Hljóm-
sveitin Feðurnir heldur uppi fjör-
inu.
KAFFI REYKJAVÍK Hljómsveitin
Spútnik.
KAFFISETRIÐ Thai-night. Lifandi
thai-tónlist og karókí.
KIRKJUBÆJARKLAUSTUR Fjöl-
skylduhátíð Gullaldarinnar 2002
dagana 27.–30. júní. Barnahelgi-
stund kl. 11, hátíðarhöld hefjast kl.
13; leikir, grill, andlitsmálning,
trúður. Gunni og Felix mæta kl.
20, varðeldur, harmóníka, gítar og
söngur frá kl. 21. Kvöldi lýkur með
dansleik í félagsheimilinu.
KRINGLUKRÁIN Hljómsveitin Sín.
LEIKSKÁLINN, Vík Papar spila.
N1-BAR, Reykjanesbæ Hljóm-
sveitin Englar.
O’BRIENS, Laugavegi 73 Moga-
don.
ODD-VITINN, Akureyri Hljóm-
sveitin Mannakorn.
PLAYERS-SPORT BAR, Kópavogi
Íslands eina von. Eyjólfur Krist-
jáns og félagar.
SJALLINN, Akureyri Á móti sól.
SJÁVARPERLAN, Grindavík
Hljómsveitin Ber.
SPOTLIGHT DJ Cesar í búrinu kl.
21 til 6. 20 ára aldurstakmark. 500
krónur inn.
ÚTHLÍÐ, Biskupstungum Hljóm-
sveit Geirmundar Valtýssonar með
Jónsmessuhátíð fyrir bændur og
búalið.
VIÐ POLLINN, Akureyri Hljóm-
sveitin KOS.
VÍDALÍN VIÐ INGÓLFSTORG Mo-
onboots. Ball með mótorhjólaþema
í tilefni af hjólamessu Sniglanna.
VÍKIN, Höfn Diskórokktekið og
plötusnúðurinn Skugga-Baldur.
Í DAG
Sjá einnig Staður og stund á mbl.is
Hljómsveitin Spútnik leikur á Kaffi
Reykjavík í kvöld.
Safndiskurinn Pottþétt 28 kominn út með breyttu sniði
Reuters
Destiny’s Child syngja um Sóða-
stelpuna (e. Nasty Girl) á Pott-
þétt 28.
Morgunblaðið/Golli
Höskuldur Höskuldsson (t.h.) hefur haldið utan um Pottþéttu safnplöt-
urnar í gegnum árin ásamt Halldóri Baldvinssyni (t.v.).
birta@mbl.is
Þéttari Pottþétt