Morgunblaðið - 29.06.2002, Side 55

Morgunblaðið - 29.06.2002, Side 55
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. JÚNÍ 2002 55  NÝTT þriggja kvölda námskeið um bætta líðan, sem nefnist á ís- lensku „Hvernig á að vakna bros- andi“, hefst mánudaginn 1. júlí hjá Karuna, miðstöð búddista í Banka- stræti 6, 4. hæð. Kennt verður þrjú kvöld í röð, 1., 2. og 3. júlí frá kl. 20– 21. Búddanunnan Gen Nyingpo kennir fornar Lojong-iðkanir sem voru launhelgar í mörg hundruð ár. „Þær eru sérstaklega áhrifaríkar til að lækna líkamlega kvilla og um- breyta erfiðum aðstæðum í daglegu lífi í ánægjulega upplifun,“ segir í fréttatilkynningu. Gjald er 800 kr. fyrir hvert skipti eða 2.000 kr. fyrir öll þrjú. Nemar, atvinnulausir og ör- yrkjar greiða 500 kr. eða 1.200 kr. fyrir öll þrjú skiptin. Útsala er á bók- um hjá Karuna út júlí.  WEIRDHABITS.IS og Félagið Ísland-Palestína hafa ákveðið að efna til samstarfs um hönnunar- keppni í kringum þemað „Frjáls Pal- estína“ og verður besta tillagan prentuð á stuttermaboli sem FÍP mun framleiða og selja til fjáröflun- ar. Öllum er frjálst að taka þátt í keppninnni og skulu tillögur sendar í tölvupósti á netfangið weirdhabits- @weirdhabits.is fyrir 10. júlí nk. Weirdhabits.is og FÍP velja sigur- tillöguna í sameiningu en dæmt verður eftir fegurðargildi og áhrifa- mætti hönnunarinnar, segir í frétta- tilkynningu. Eina skilyrðið er að slagorðið „Frjáls Palestína“ komi fram. Prentunin takmarkast við fjóra „spot“-liti og stærðina A4. Þátttakendur geta valið á milli fjög- urra lita á bolinn: svarts, hvíts, rauðs og blás. Stefnt er að því að úrslit verði kunn og sala hafin 1. ágúst 2002. Á FIMMTUDAG hófust alþjóðlegar sumarbúðir Rauða krossins sem orðnar eru fastur liður í starfsemi félagsins annað hvert ár. 75 ung- menni á aldrinum 15–25 ára frá 12 löndum koma saman dagana 27. júní–2. júlí á Hrolllaugstöðum í Suð- ursveit. „Þátttakendur í sumarbúðunum eru allir sjálfboðaliðar Rauða kross- ins eða Rauða hálfmánans og koma frá Bandaríkjunum, Danmörku, Finnlandi, Þýskalandi, Sviss, Júgó- slavíu, Albaníu, Suður-Afríku, Le- sótó, Búrma, Palestínu og Íslandi. Töluð er enska í búðunum. Búðir af þessum toga eru frábær vettvangur fyrir ungt fólk af ólíku þjóðerni til að kynnast og samþætta ólíka reynslu sína og hugmyndir en Rauði kross- inn er stærsta sjálfboðaliðahreyfing í heimi,“ segir í fréttatilkynningu. „Þátttakendur vinna að ýmsum verkefnum meðan á sumarbúðunum stendur en sérstök áhersla er lögð á verkefnavinnu gegn hversdagsfor- dómum og alnæmi. Hugtakið hvers- dagsfordómar er nokkuð nýtt af nál- inni og lýsir sér í duldum og oft ómeðvituðum fordómum gegn ýms- um þjóðfélagshópum eins og fötluð- um, þeldökkum, unglingum, öldruð- um, samkynhneigðum o.fl. Dæmi um hversdagsfordóma er þegar hvítur maður veigrar sér við að setjast við hliðina á þeldökkum manni í strætó eða talar öðruvísi við fatlaða en heil- brigða. Forvarnavinna gegn alnæmi hefur verið allt of lítil hér á landi og víðar undanfarin ár og er ætlunin að ræða möguleg verkefni Rauða krossins í þeim efnum,“ segir í frétt- inni. Á laugardaginn kl. 17 verður hóp- urinn auk þess með götuleikhús gegn fordómum á hóteltúninu á Höfn í Hornafirði undir leikstjórn Agnars Jóns Egilssonar. Ræða hversdagsfor- dóma í sumarbúðum MÁNUDAGINN 1. júlí nk. á Hér- aðsdómur Vesturlands 10 ára af- mæli, eins og aðrir héraðsdómstól- ar á Íslandi. Af því tilefni verður opið hús hjá dómstólnum í húsa- kynnum hans, Bjarnarbraut 8 Borgarnesi, frá kl. 13–15 þann dag. Þeir sem áhuga hafa á að kynnast nánar starfsemi dómsins eru vel- komnir. Héraðsdómur Vesturlands var stofnaður ásamt sjö öðrum héraðs- dómstólum með lögum nr. 92/1989, um aðskilnað dómsvalds og um- boðsvalds í héraði, og tók til starfa 1. júlí 1992. Lögsagnarumdæmi dómsins er frá mörkum milli Kjós- ar- og Borgarfjarðarsýslna að mörkum milli Dala- og Barða- strandarsýslna. Aðsetur dómsins er í Borgarnesi, og fastir þing- staðir eru þar og í Stykkishólmi. Fyrsta heila árið sem Héraðs- dómur Vesturlands starfaði, þ.e. árið 1993, voru 485 mál tekin til meðferðar, en sl. ár, 2001, voru þau samtals 959, þar af 374 almenn einkamál og 504 opinber mál (sakamál). Samtals hafa á 10 ára tímabilinu verið tekin til meðferðar 6.188 mál. Starfsmenn dómstólsins eru þrír, Ragnheiður Guðmundsdóttir dómritari og héraðsdómararnir Benedikt Bogason og Finnur Torfi Hjörleifsson sem er dómstjóri. Fyrsti héraðsdómari og jafnframt dómstjóri við dómstólinn var Her- vör Þorvaldsdóttir. Opið hús hjá Héraðsdómi Vesturlands ESSO og Bubbi Morthens hafa ákveðið að halda áfram forvarnar- starfi sínu gegn fíkniefnum. Upphaf- lega var gert ráð fyrir því að átakið „veldu rétt“ myndi spanna einn vet- ur með áherslu á forvarnir fyrir nemendur grunnskóla. „Ástæða þess að áfram er haldið eru mikil og góð viðbrögð nemenda, kennara og foreldra en ekki síður mikill áhugi nemenda í framhalds- skólum á forvörnum og fræðslu frá Bubba Morthens. Gert er ráð fyrir því að átakið „veldu rétt“ nái að minnsta kosti til 15.000 framhaldsskólanema og hefst það strax og skólarnir nú í haust. Bubbi mun einnig í tengslum við átakið koma fram á Essómótinu í knattspyrnu sem fram fer á Akur- eyri 3. til 6. júlí næstkomandi. Þar mun hann meðal annars bjóða upp á ókeypis fjölskyldutónleika,“ segir m.a. í fréttatilkynningu frá ESSO. Bubbi Morthens í framhalds- skóla NÝ ESSÓ-afgreiðslustöð var opnuð í Mývatnssveit í gær og er í stöð- inni lögð mikil áhersla á örygg- isbúnað og umhverfismál. Stöðin er rekin í tengslum við Strax, nýja matvöruverslun á vegum Sam- kaupa, en hlutafélag um byggingu hússins var stofnað með þátttöku heimamanna. Í fréttatilkynningu frá Olíufélag- inu kemur fram að yfirborðsvatn fer af afgreiðslusvæði utandyra og frárennsli bílaþvottaplans í gegnum hreinsunarferli sem er tuttugu sinnum meira en heilbrigðisyfirvöld krefjast. Þá segir að í reglugerð sé kveðið á um heimild til að olíusmit í frárennsli sé allt að 100 milli- grömmum í lítra en olíuskiljur á nýju stöðinni hreinsi vatnið svo vel að eftir verði olíusmit sem svari í mesta lagi til 5 milligramma í hverjum lítra. Í tilkynningunni segir að elds- neytisgeymar nýju stöðvarinnar séu tvöfaldir og á milli laga sé vökvi undir þrýstingi. Komi af einhverj- um ástæðum gat á innra eða ytra byrði geymanna falli þrýstingur í millirýminu og sjálfvirkt viðvörun- arkerfi láti samstundis vita. Þannig sé unnt að gera ráðstafanir þegar í stað til að stöðva hugsanlegan leka og koma í veg fyrir umhverfisslys. Umhverfisvæn bensínstöð í Mývatnssveit SUNNUDAGINN 30. júní klukkan 13.30 mun fornleifa- fræðingurinn Orri Vésteins- son leiðsegja um uppgraftar- svæðið í Skálholti, en fyrsta uppgraftaráfanga er nú lokið í verkefni sem standa mun yf- ir til ársins 2007. Leiðsögnin um uppgraftar- svæðið er liður í helgardag- skrá sem Skálholtsskóli, Sumartónleikar í Skálholts- kirkju og Fornleifastofnun Ís- lands hafa sett saman fyrir næstu fjórar helgar. Um er að ræða menningar- og sögu- tengda dagskrá sem felst í gistingu í Skálholtsskóla, góðri tónlist og veitingum auk fræðslu um Skálholtsstað og fornleifauppgröftinn. Á veitingastaðnum verða reidd- ir fram sögutengdir máls- verðir, eða miðaldahlaðborð að hætti Þorláks biskups og kaffihlaðborð Valgerðar bisk- upsfrúar. Hægt er að njóta helgartil- boða eða einstakra liða í menningardagskrá þeirri sem boðið er upp á í Skálholti næstu vikurnar. Nánari upp- lýsingar um helgardagskrána fást á vefsíðu Fornleifastofn- unar: www.instarch.is/skal- holt.htm eða á skrifstofu Skálholtsskóla. Leiðsögn um upp- graftar- svæðið í Skálholti HEIMSKLÚBBUR Ingólfs – Príma hefur nýlega endurnýjað umboðssamninga sína við stærstu skipafélögin í Karíbahafinu, en mikill fjöldi nýrra skemmtiferða- skipa keppir þar nú um hylli far- þega, að því er fram kemur í frétt frá ferðaskrifstofunni. Kemur fram í fréttinni að nú sé auðveldara að komast frá Íslandi í siglingu í Kar- íbahafi en nokkru sinni fyrr, og allt að helmingi ódýrara með nýjum samningum Heimsklúbbsins, þar sem völ er á vönduðum klefum, jafnvel með einkasvölum, á allt að 50–60% afslætti, sem samsvarar að tveir ferðist á gjaldi eins, eða tveir fyrir einn. Samkvæmt upplýsingum ferða- skrifstofunnar seldist strax upp í eina hópbrottför í september, nær uppselt í aðra ferð 7. febrúar, en eitthvað laust enn í þá þriðju í apríl, um páska á næsta ári. Flogið er með Flugleiðum beint til Orlando á Flórída, gist eina nótt fyrir siglingu og þrjár á eftir á þekktu hóteli nærri eftirsóttustu söfnum og skemmtistöðum á þess- um slóðum. Skammt er til Canaveralhöfða, en nú sigla nýjustu skipin þaðan, og er farþegum ekið til og frá hóteli að skipshlið, en siglt er til skiptis eystri og vestri siglingaleið um Karíbahaf með viðkomu á þekktum áfangastöðum og einnig í Belíse og Mexíkó, segir ennfremur í fréttinni. Með þessum sérkjörum kosti siglingin aðeins röskar 10 þúsund kr. á dag í útborðsklefa með fullu fæði og skemmtidagskrá og allri aðstöðu innifalinni. Velji menn að ferðast bæði eystri og vestari sigl- ingaleiðina tekur ferðin um 14 daga. Heimsklúbburinn hefur einn- ig tryggt fáein sæti með beinu flugi til Orlando á hverjum föstudegi frá 20. september yfir vetrarmánuðina fyrir þá sem vilja sigla eftir eigin vali í Karíbahafi á sérkjörum Heimsklúbbsins – Príma á þessum tíma. Í tengslum við siglingarnar er boðið upp á nokkurra daga dvöl á baðströndum Dóminikana, þar sem allt er innifalið í verði hótelsins, þ.e. fullt fæði, allir drykkir, þjónusta og skemmtanir. Fram kemur ennfremur að frá því að Heimsklúbburinn hóf reglu- bundnar ferðir til Karíbahafsins fyrir um tíu árum hafi meira en 4.000 Íslendingar notið lífsins á ströndum eyjunnar eða siglt á skemmtiferðaskipum í Karíbahaf- inu. Stórlækkað verð á siglingum Heimsklúbbur Ingólfs – Príma 10 ár í Karíbahafi FIMMTUDAGINN 27. júní 2002 var ekið á hvíta Toyota Carina-fólks- bifreið þar sem hún stóð á bifreiða- stæði við Bræðraborgarstíg 9. Óhappið mun hafa gerst á milli kl. 10 og 15.30. Vitni eru vinsamlegast beð- in að snúa sér til umferðardeildar lögreglunnar í Reykjavík. Lögreglan í Keflavík lýsir eftir bifreiðinni TN078 sem stolið var af bifreiðastæði við Austurgötu 19, Keflavík á tímabilinu frá kl. 7.30 að morngi 17. júní til klukkan 21.25 hinn 19. júní sl. Bifreiðin er af gerð- inni Nissan Sunny Wagon, árgerð 1993, rauð að lit. Þeir sem kynnu að geta gefið ein- hverjar upplýsingar um bifreiðina eru beðnir að hafa samband við lög- regluna í Keflavík í síma 4202400 eða 112. Lýst eftir vitnum Vel veiðist nú í Norðurá í Borgar- firði og holl sem nú stundar þar veiðar var með 32 laxa eftir tvær fyrstu vaktirnar. Af þeim gaf morg- unvaktin 22 laxa. Hollið á undan var með alls 58 laxa, þannig að góð- ur stígandi er í aflabrögðum þessa dagana. Alls voru því komnir 266 laxar á land af aðalsvæðinu í gær- dag. Að glæðast í Dölunum Það er loksins eitthvað að glæð- ast í Dölunum eftir afar rólega daga á bökkum vatnanna. Það vant- ar þó úrkomu á þeim slóðum eins og víðar til að lífga upp á tökur sem eru í lágmarki í minnkandi vatni og björtu veðri. „Þetta virðist loksins vera að fara í gang hérna, það sést smálax í nokkrum mæli víða í ánni og veiðin hefur glæðst aðeins síðustu vakt- irnar. Við opnuðum 14. júní og það var lítil veiði fyrstu dagana, en núna eru komnir 16 laxar á land og horfur batnandi,“ sagði Torfi Ás- geirsson, umsjónarmaður Hauka- dalsár í Dölum, í samtali í gær. Gylfi Ingason, kokkur við Laxá í Dölum, tók í sama streng, hann sagði nýjasta hollið enn fisklaust eftir tvær fyrstu vaktirnar, en að sú breyting hefði orðið á morgunvakt- inni að það sást talsvert af ný- gengnum fiski sem var ekki á svæð- inu kvöldið áður. „Fyrsta hollið fékk aðeins tvo laxa, en þetta gæti bent til að það glæddist næstu daga,“ sagði Gylfi. Fleiri laxafréttir Um 20 laxar voru komnir úr Mið- fjarðará í gærmorgun og lítil hreyf- ing þótt fiskar séu á stjái hér og þar. Í gærmorgun voru einnig komnir milli 80 og 90 laxar úr Blöndu samkvæmt upplýsingum hjá leigutakanum, fyrirtækinu Lax-á. Smálaxar eru nú hluti af aflanum. Besta vaktin í Elliðaánum til þessa var á fimmtudagsmorguninn þegar sex laxar voru dregnir á þurrt en á sama tíma lönduðu menn þremur löxum í Korpu. Lítið er enn að frétta af Iðu, þar veiddist þó einn lax, 5,5 punda, á fimmtudagsmorguninn. Bæði Stóra-Laxá og Hvítá eru mjög vatnslitlar. Brynjar Þorbjörnsson, 13 ára, ásamt föður sínum með fallegan flugulax úr Laxá í Kjós fyrir skemmstu. 32 laxar á einum sólarhring ERU ÞEIR AÐ FÁ’ANN?

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.