Morgunblaðið - 29.06.2002, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 29.06.2002, Blaðsíða 23
ERLENT MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. JÚNÍ 2002 23 Golfdagur Æskulínunnar og GSÍ verður haldinn í Laugardalnum, sunnudaginn 30. júní, á túninu fyrir ofan Fjölskyldu- og húsdýragarðinn. Golfþrautir verða fyrir byrjendur sem lengra komna og hefjast kl. 13.00 Allir krakkar á aldrinum 6-11 ára geta tekið þátt í golfþrautunum. Þátttakendur geta fengið lánaðar golfkylfur á staðnum. Golf fyrir 6-11 ára Glaðningur frá Æskulínunni Frítt inn í Fjölskyldu- og húsdýragarðinn Ís frá Kjörís www.krakkabanki.is F í t o n / S Í A F I 0 0 4 9 4 8 UMFANGSMIKIL lögregluleit hófst í Ástralíu í gær að 39 hælisbeið- endum, þar af fjórum börnum, sem flúðu frá Woomera-flóttamannabúð- unum, en stuðningsmenn flóttamann- anna notuðu bíla til að rífa niður girð- ingar og ferjuðu fólkið úr búðunum, að sögn ástralskra yfirvalda. Sagði lögregla að fimm manns hefðu náðst fljótlega eftir flóttann, einn í Woo- mera og fjórir um 300 km norðan við búðirnar. Vegatálmar voru settir upp á svæð- inu í kringum búðirnar og lögreglan notaði þyrlur og flugvélar til leitar á um 200.000 ferkílómetra stóru svæði. Í kringum búðirnar er afar hrjóstrug eyðibyggð og sögðu yfirvöld á staðn- um að vegna erfiðra aðstæðna yrði nær ómögulegt fyrir fólkið að komast undan án aðstoðar farartækja. Flóttinn átti sér stað á fimmta degi hungurverkfalls um 160 manna í Woomera-búðunum en auk slíkra að- gerða hefur verið töluvert um uppþot og sjálfsmorðstilraunir meðal hælis- beiðenda í búðunum. Samtök sem styðja málstað flóttamanna og nefn- ast „Okkar heilaga land“ lýstu yfir ábyrgð á flóttanum í tölvupósti til út- varpsstöðvar ástralska fjölmiðilsins ABC og sögðu að 25 félagar samtak- anna hefðu „frelsað eins margt þjáð fólk og kostur var“. Flóttamannaráð Ástralíu fordæmdi flóttann og sagðist fulltrúi ráðsins telja að hann skaðaði málstað flóttafólksins fremur en að styrkja hann. Flóttamannabúðirnar eru meðal fimm slíkra í Ástralíu þar sem mörg hundruð manns úr hópi svonefnds bátafólks, aðallega frá Íran, Írak og Afganistan, dvelja meðan yfirvöld fara yfir umsóknir þeirra um hæli. Flestum þeirra sem dvelja í búðunum hefur verið synjað um hæli sem flóttamenn en ekki er hægt að senda fólkið til síns heima þar sem Ástralía hefur ekki gert samkomulag við heimalönd fólksins um að senda það til baka. Hafa sumir flóttamannanna dvalist í búðunum í meira en þrjú ár. Girðingar rifnar niður við Woomera-flóttamannabúðirnar í Ástralíu Á fjórða tug hælisbeiðenda flúði Canberra, Adelaide. AP, AFP EFTIR byltinguna í Íran 1979 hvöttu klerkarnir landa sína til að eiga fleiri börn. Það þyrfti fleiri her- menn til að verja landið og trúna og ekki er hægt að segja annað en vel hafi verið brugðist við ákallinu. Fæð- ingum stórfjölgaði og nú eru 60% þjóðarinnar undir 25 ára aldri. Mannfjölgunin og aldursskiptingin eru orðin að meiriháttar þjóðfélags- vanda, sem nú er reynt að bregðast við, til dæmis með ófrjósemisaðgerð- um. Klerkarnir, sem kenndu áður að hvert barn væri guðsgjöf og því fleiri, því betra, hafa nú snúið við blaðinu. Sem dæmi má nefna Hasan Doroudi, sem ræðir þessi mál gjarna eftir bænir í mosku sinni í Teheran. „Lífshamingjan felst ekki bara í barnafjölda og peningum, heldur í aukinni menntun,“ sagði hann er hann settist nýlega niður með tveim- ur mönnum á fimmtugsaldri, sex barna feðrum. „Í stað þess að eiga sæg af börnum er betra að hafa þau bara tvö og gera allt til að búa þau undir lífið með góðri menntun. Mitt ráð er að þið gangist undir ófrjósem- isaðgerð.“ Margt af því fólki sem á sínum tíma hlýddi kalli klerkanna um fleiri börn iðrast þess núna. Það berst í bökkum við að framfleyta sér enda er atvinnuleysið í landinu líklega um 30% þótt opinberlega sé það sagt vera 15%. Opinberlega er sagt að 12 af 70 milljónum íbúa lifi í sárri fá- tækt og sú tala er vafalaust ekki of lág. Fátækasta fólkið fær aðstoð frá ríkinu við að kaupa nauðsynjar eins og eldunarolíu og sykur en þá er að- eins gert ráð fyrir mest þremur börnum í fjölskyldu. Getnaðarvarnir leyfðar en umræða bönnuð Hvers konar getnaðarvarnir, pill- ur og verjur, eru leyfðar í Íran og framleiða Íranir sjálfir mikið af þeim. Það er hins vegar harðbannað að auglýsa vöruna þar sem alger bannhelgi hvílir yfir kynlífi og kyn- ferðismálum. Jafnvel kynningar- skilti á þeim stofum, sem annast ófrjósemisaðgerðir, eru litin óhýru auga. 675 íranskir læknar stunda nú þessar aðgerðir og undir þær gang- ast um 30.000 manns árlega. Sumir Íranir halda því fram að sérhvert barn sé gjöf frá guði og því séu getnaðarvarnir synd. Klerkarnir hafa hins vegar snúið við blaðinu og komist að því við nánari lestur í Kór- aninum að þar sé hvergi að finna stafkrók sem banni þær. „Það er ekki bannað að gangast undir ófrjósemisaðgerð eða nota verju til að koma í veg fyrir barns- burð og hugsanlega líf í fátækt,“ sagði háttsettur klerkur, Hussein Mousavi Tabrizi. Bætti hann við að auk þess yrði að taka tillit til kvenna, sem ættu rétt á að „njóta kynlífsins“. Írönum fjölgar hratt 60% íbúa undir 25 ára aldri Teheran. AP. alltaf á föstudögum
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.