Morgunblaðið - 29.06.2002, Síða 13
JÓN Sigurðsson, stjórn-
arformaður Samkaupa,
afhenti Guðrúnu Maríu
Valgeirsdóttur, oddvita
í Skútustaðahreppi, 300
þúsund króna framlag
til fuglasafnsins í Ytri-
Neslöndum í athöfn
sem efnt var til í Hótel
Reynihlíð fyrir
skemmstu, en tilefnið
var opnun nýrrar
Strax-verslunar í Mý-
vatnssveit.
Guðrún María þakk-
aði gjöfina og góð orð
sem Jón lét falla um
fuglasafnið af þessu til-
efni.
Sigurgeir Stefánsson
í Ytri Neslöndum var
mikill áhugamaður um
lífríki Mývatnssvæð-
isins og ekki síst
fuglana. Sigurgeir
hafði safnað uppstopp-
uðum nær öllum ís-
lenskum fuglum auk
fjölmargra erlendra
þegar hann lést. Hann fórst við
þriðja mann á Mývatni í október
1999. Fuglasafn hans er til sýnis í
bráðabirgðahúsnæði í Neslöndum
en vantar sárlega betra húsnæði.
Tekið er á móti framlögum til
safnsins í Sparisjóði Suður-
Þingeyinga, reikningi nr. 1110-
18-640137, til byggingar varan-
legs húsnæðis.
Jón Sigurðsson afhendir Guðrúnu Maríu Val-
geirsdóttur gjafabréf vegna fuglasafns Sigur-
geirs Stefánssonar.
Framlag til fuglasafns
Morgunblaðið/BFH
Mývatnssveit
AKUREYRI
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. JÚNÍ 2002 13
www. .is
ÍBÚÐIR TIL SÖLU • ÍBÚÐIR TIL LEIGU • TÆKJALEIGA • ÚTBOÐ
KÍKTU
Á NETIÐ
LEIKFANGAVERSLUNIN
DÓTAKASSINN Á AKUREYRI
ER TIL SÖLU
Hér er um að ræða þekkta, mjög vel staðsetta sérverslun.
Verslunin er í leiguhúsnæði.
Upplýsingar gefur
„ÁRROÐ frá vakandi stund“ er heiti
á sýningu sem opnuð hefur verið í
húsnæði Zontaklúbbs Akureyrar
við Aðalstræti. Sýningin fjallar um
Sigríði Jónsdóttur, móður Jóns
Sveinssonar, Nonna, ævi hennar og
líf í tveimur heimsálfum. Nonna-
nefnd Zontaklúbbs Akureyrar hef-
ur veg og vanda af sýningunni.
Björg Bjarnadóttir, ritstjóri sýn-
ingarinnar, sagði að alllangt væri
frá því hugmyndin hefði kviknað,
en segja mætti að félagskonur
hefðu unnið að sýningunni í um eitt
og hálft ár. Þær hefðu viðað að sér
efni víða og því tekið langan tíma að
fullbúa sýninguna.
Sigríður var fædd í Mývatnssveit
árið 1826 og giftist Sveini Þórarins-
syni amtsskrifara á Möðruvöllum
árið 1851. Þau eignuðust 8 börn en
þrjú þeirra dóu ung úr barnaveiki.
Fyrir átti hún Kristínu Guðmunds-
dóttur. Fjölskyldan fluttist í Páls-
hús, nú Nonnahús á Akureyri þar
sem Sveinn dó árið 1869. Ári síðar
hélt Nonni til náms í Frakklandi og
tvö barna hennar fóru í fóstur og
fluttu til Vesturheims en eitt fluttist
til Danmerkur og lést þar. Sigríður
flutti sjálf vestur um haf tveimur ár-
um eftir lát Sveins og giftist þar
William Taylor. Bjuggu þau víða í
Kanada, en Sigríður lést eftir um 40
ára dvöl þar og er jarðsett í bænum
Baldur.
Björg sagði að venslafólk í Kan-
ada hefði verið Zontakonum innan
handar um öflun heimilda um líf
hennar þar, en víða hefði verið
leitað fanga. „Það hefur margt
komið í ljós um ævi þessarar merku
konu, sem ekki var vitað áður,“
sagði Björg. Líf hennar hafi oft
verið erfitt, hagurinn var rýr, miss-
ir barna og aðskilnaður við þau
börn sem á lífi voru hafi eflaust
verið henni þungbær. Hún hafi þó
átt góða frændur og vini að.
„Sigríður var trúuð, víðsýn og
glaðsinna og þá var hún vel ritfær
og skrifaði fjölda bréfa, þar sem vel
sést hversu auðvelt hún átti með að
tjá tilfinningar sínar. Bókmennta-
áhugi var líka mikill á heimili henn-
ar, sem hafði yfir sér alþjóðlegan
blæ. Það má gera ráð fyrir að það
hafi mótað Nonna sem rithöfund,“
sagði Björg.
Sá minnisvarði sem Nonni hefði
reist móður sinni í bókum sínum
bæri göfugri sál vitni.
Zontakonur hafa hug á að sækja
um styrk til að þýða sýninguna yfir
á ensku og setja hana síðar upp í
Gimli og Winnipeg, en fyrirspurnir
þess efnis hafa borist.
Sýningin verður opin allan júlí-
mánuð frá kl. 13 til 16.
Sýning um Sigríði móður Nonna opnuð
Einstætt
líf í tveim-
ur heims-
álfum
Morgunblaðið/Kristján
Björg Bjarnadóttir, ritstjóri sýningar um móður Nonna, Sigríði frá
Vogum, sem opnuð hefur verið í húsi Zontaklúbbs Akureyrar.
SKÓLANEFND Akureyrarbæjar
hefur hafnað erindi frá starfsfólki
Glerárskóla þar sem skorað er á
nefndina að hafa frumkvæði að end-
urskoðun þeirrar ákvörðunar að
lengja skólaárið. Skólanefnd leggur
ríka áherslu á að lenging skólaárs-
ins verði nýtt eins vel og kostur er í
þágu skólastarfs á Akureyri.
Gunnar Gíslason, deildarstjóri
skóladeildar, sagði að lenging
skólaársins tengdist nýjum kjara-
samninga kennara og launanefndar
sveitarfélaga og að þessir 10 auka-
dagar væru hugsaðir til þess að
auka sveigjanleika í skólastarfinu.
„Skólarnir geti þannig skipulagt
meiri útivist og fleiri náttúruskoð-
unarferðir með því að byrja aðeins
fyrr á haustin og hætta aðeins
seinna á vorin. Þetta snýr líka að
lagaákvæði um 170 kennsludaga,
sem ráðuneytið hefur gengið hart
eftir að kennt sé eftir samkvæmt
stundaskrá. Við sjáum ekki ástæðu
til að þrengja aftur að skólunum
hvað þetta skipulag varðar og því
var þessu erindi hafnað.“
Gunnar sagði að í erindi starfs-
manna Glerárskóla væri m.a. bent á
að þessir aukadagar hefðu verið illa
nýttir að mati foreldra og aldrei
hefði verið jafnmikið beðið um frí
fyrir nemendur í lok skólaárs og nú
í vor.
Aðspurður sagði Gunnar að
skóladeild hefði ekki fengið nein
sérstök viðbrögð frá foreldrum
vegna lengingar skólaársins. „Það
hefur heyrst af óánægju foreldra
með að þessir dagar séu illa skipu-
lagðir í einhverjum skólanna og að
þeir séu ekki nægilega vel tengdir
því starfi sem fram hefur farið í
skólunum. Kannski hefur ekki held-
ur verið farið nægilega vel yfir það
með foreldrum að náttúruskoðunar-
ferðir og ýmislegt annað tengist því
námsefni sem farið hefur verið yfir
um veturinn. Fólk áttar sig ekki
heldur alltaf á að það fer fram heil-
mikið nám þótt ekki sé setið yfir
bókinni. Það er skólanna að sýna
fram á að þessir dagar séu ekki síð-
ur mikilvægir en aðrir í skólastarf-
inu.“
Skólanefnd Akureyrarbæjar
Lenging skóla-
ársins verði nýtt í
þágu skólastarfs
HANDVERKSHÁTÍÐIN Hand-
verk 2002 verður haldin tíunda árið í
röð í Hrafnagili í Eyjafjarðarsveit
en hún hefst fimmtudaginn 8. ágúst
næstkomandi og stendur til sunnu-
dagsins 11. ágúst.
Sýningarsvæðið er í íþróttahúsi
Hrafnagilsskóla í um 1.700 fermetra
húsnæði, auk þess sem sýnt er í
kennsluhúsnæði og útibásum. Á
sýningarsvæðinu verða bæði sölu-
og vinnubásar handverksfólks og
gefst gestum færi á að sjá hand-
verksfólk að störfum.
Þema sýningarinnar að þessu
sinni er „torf og grjót“ og verður
leitast við að móta umgjörð
sýningarinnar og dagskrá með
þemað að leiðarljósi.
Helgi Sigurðsson verður með
fyrirlestur um torfhleðslu og þá
koma þrír kennarar frá Svíþjóð og
Danmörku sem halda námskeið í
tengslum við sýninguna. Þá verður
margt til afþreyingar á sýningunni,
s.s. spunakeppni, tískusýning og
kynning á textílkjörsviði VMA, auk
þess sem vinnubás verður fyrir börn
þar sem þau geta kynnst íslensku
handverki. Einnig verður unnið við
torfhleðslu og steinaslípun á sýning-
arsvæðinu.
Útitjald og torg verður við sýn-
ingarsvæðið þar sem seldar verða
veitingar og einnig verða þar sölu-
básar þar sem áhersla verður lögð á
afurðir heimilanna. Skemmtikvöld
verður í umsjá Freyvangsleikhúss-
ins á laugardagskvöldið og þá verða
handverksfólki veittar viðurkenn-
ingar.
Handverkshátíðin er orðin að
föstum lið í tilveru íslensks hand-
verksfólks og hefur aðsókn verið góð
allt frá fyrstu sýningu en á bilinu sex
til átta þúsund gestir hvaðanæva
sækja sýninguna að jafnaði.
Handverkshátíð í Hrafnagili haldin 10. árið í röð
Torf og grjót verður þemað í ár
AUÐHUMLA, félag mjólkurfram-
leiðenda í Eyjafirði og Þingeyjar-
sýslum, hefur keypt 67% hlut Kald-
baks í Norðurmjólk, en skrifað var
undir samning þessa efnis í gær.
Starfsfólki Norðurmjólkur var
kynnt þessi breyting á eignarhaldi
félagsins á starfsmannafundi í há-
deginu í dag.
Jafnframt samkomulaginu um
kaupin liggur fyrir að Auðhumla
mun í framhaldinu selja hluta af
sínum eignarhlut til annarra, þ.e.
Kaupfélags Eyfirðinga, Kaupfélags
Skagfirðinga, Osta- og smjörsöl-
unnar, Mjólkurbús Flóamanna og
Mjólkursamsölunnar í Reykjavík.
Hluthafasamkomulag milli allra
þessara aðila er fyrirliggjandi en
ljóst er að mjólkurframleiðendur á
félagssvæði KEA, í nafni framleið-
endafélagsins Auðhumlu, verða að
afloknum þessum breytingum eig-
endur að 40% hlutafjár í Norður-
mjólk og langstærsti einstaki hlut-
hafinn í félaginu. Eignarskipting
verður að öðru leyti þannig að
KEA mun eiga 13%, Osta- og
smjörsalan 12%, Mjólkurbú Flóa-
manna 16%, Mjólkursamsalan í
Reykjavík 16% og Kaupfélag Skag-
firðinga 3%.
Boðað verður til hluthafafundar í
Norðurmjólk innan hálfs mánaðar
og verður þá efni hluthafasam-
komulagsins kynnt frekar og kosin
ný stjórn.
„Við erum ánægð með þessa nið-
urstöðu, þetta hefur tekið langan
tíma og það er jákvætt að málið er
í höfn,“ sagði Stefán Magnússon,
formaður stjórnar Auðhumlu.
Auðhumla kaupir
hlut Kaldbaks í
Norðurmjólk
BREYTING verður á símaþjón-
ustu Lögreglunnar á Akureyri
og Dalvík frá og með 1. júlí
næstkomandi. Allir þeir sem
þurfa á aðstoð lögreglu að halda
eftir þann tíma skulu hringja í
símanúmer Neyðarlínunnar,
112. Gildir það um tilkynningar
á slysum, árekstrum og öðrum
óhöppum. Vísað verður á það
númer í gömlu símanúmerum
lögreglunnar.
Tekið verður upp nýtt þjón-
ustunúmer fyrir lögregluna,
464-7700, og er það ætlað þeim
sem eiga erindi við starfsfólk,
yfirlögregluþjóna, rannsóknar-
deild, sektarinnheimtu eða þá
sem þurfa upplýsingar vegna
byssuleyfa og óskilamuna.
Breytingarnar eru gerðar í kjöl-
far þess að yfirmenn lögregl-
unnar á Norðurlandi ákváðu að
taka upp þá þjónustu sem í boði
er hjá Neyðarlínuni og leggja
um leið niður þá símsvörun sem
verið hefur í lögreglustöðvum í
þessum landshluta.
Símaþjónusta lögregu
á Akureyri og Dalvík
Hringja á
í númer
Neyðarlín-
unnar