Morgunblaðið - 29.06.2002, Page 20

Morgunblaðið - 29.06.2002, Page 20
AP Afganar virða fyrir sér brunna flugskeytavagna af sovéskri gerð í gær. MIKIL skelfing greip um sig í afg- anska landamærabænum Spin Bol- dak í gær þegar vopnageymsla skammt frá markaðstorgi bæjarins sprakk í loft upp. Haft er eftir hjálp- arstarfsmanni, að 32 hafi týnt lífi en embættismenn í borginni Kandahar segja, að enginn hafi beðið bana. Fyrsta sprengingin í vopnageymsl- unni, sem var aðeins í nokkur hundr- uð metra fjarlægð frá markaðstor- ginu og rétt við helstu stjórnarbygginguna í bænum, varð um miðnætti í fyrrinótt og síðan tók hver sprengingin við af annarri fram á dag. Rigndi flugskeytum yfir ná- grennið og skelfingin meðal bæjar- búa, 30.000 manns, var alger að sögn. Talið var að 20 til 70 manns hefðu slasast og lýsingar á atburðinum benda til, að orð hjálparstarfsmanns- ins um mannfall séu rétt. Getgátur um árás Vopnageymslan var frá tíð talibana en miklu af vopnum hafði verið komið fyrir í henni eftir ósigur þeirra. Get- gátur eru um, að flugskeytaárás ein- hverra talibanaliðsmanna hafi valdið sprengingunni en afganskir embætt- ismenn þvertaka fyrir það. Spin Boldak er við landamæri Pak- istans og er mikil miðstöð verslunar og viðskipta. Þar er mesti bílamark- aður í Afganistan og sýningarsalir með nýjustu árgerðunum. Enginn tollur er á bifreiðum, sem fluttar eru til landsins, og því mikið um, að þeim sé smyglað til Pakistans þar sem bíl- verð er almennt helmingi hærra. Mikil skelfing meðal íbúanna Chaman. AFP. Vopnageymsla í afgönskum bæ sprakk í loft upp ERLENT 20 LAUGARDAGUR 29. JÚNÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ Kíktu inn á bílaland.is TUTTUGU og einum rússneskum vísindamanni var bjargað af skipi er situr fast í suðurskautsísnum á fimmtudaginn um borð í tvær suður- afrískar þyrlur, að því er rússneska fréttastofan ITAR-TASS greindi frá í gær. Alls voru 107 um borð. Einnig tókst áhöfnum þyrlnanna að koma hálfu tonni af vistum til þeirra sem enn eru um borð í skip- inu, Magdalena Oldendorff, sem set- ið hefur fast í ís um 300 km frá suð- ur-afrísku bækistöðinni Queen Maude Land á Suðurskautslandinu, síðan 14. júní. Um borð eru rúss- neskir vísindamenn. Vonir standa til að hægt verði að bjarga 40 manns til viðbótar af skipinu. Þyrlurnar lögðu upp frá suður- afríska björgunarskipinu Agulhas sem er í um 350 km fjarlægð frá Magdalena. Í gær átti að reyna að fara tvær björgunarferðir til við- bótar á hvorri þyrlu, en ólíklegt var talið að það tækist þar sem flug- ferðin milli skipanna tekur um þrjár og hálfa klukkustund, en dagsbirtu nýtur aðeins í um fjóra tíma við Suð- urskautslandið á þessum árstíma. Einnig veltur mikið á veðrinu hvort hægt verður að halda björg- unaraðgerðum áfram. Gífurlegt frost er á þessum slóðum, og gæti það leitt til þess að ísinn sem björg- unarskipið er í þykknaði og þyrfti skipið því að færa sig utar og það langt frá Magdalena að þyrlurnar nýttust ekki. Agulhas er ekki ísbrjót- ur, en hefur sérstyrktan byrðing. Magdalena er í eigu þýsks skipa- félags en rússneska Heimskauta- stofnunin er með það á leigu. Um borð var 28 manna áhöfn og 79 vís- indamenn. Skipið var á leið til Höfðaborgar í Suður-Afríku frá Novolazarevskaíja-bækistöðinni á Suðurskautslandinu fyrir hálfum mánuði er það lenti í rekís og neydd- ist áhöfnin til að leita vars inni á flóa. Áætlað er að einungis allra nauð- synlegasta áhöfn verði eftir um borð og bíði argentínska ísbrjótsins Alm- irante Irizar, sem lét úr höfn í Bue- nos Aires á þriðjudaginn og er vænt- anlegur að Magdalena eftir um tíu daga, og á ísbrjóturinn að lóðsa þýska skipið í örugga höfn. Reuters Önnur björgunarþyrlan fer í loftið frá björgunarskipinu Agulhas í fyrradag áleiðis að Magdalena Oldendorf. Fólki bjargað af skipi í suðurskautsísnum Moskvu, Höfðaborg. AFP, AP, Baltimore Sun. MIKILL meirihluti Bandaríkja- manna er andvígur úrskurði 9. um- dæmisáfrýjunardómstólsins í San Francisco í Kaliforníu í vikunni, þess efnis, að hollustueiðurinn sem skóla- börn þar í landi sverja daglega gangi gegn stjórnarskránni. Alfred Good- win, dómarinn sem skrifaði dóms- álitið, taldi að orðin „ein þjóð, sem lýtur Guði“ sem koma fyrir í holl- ustueiðnum gangi gegn bandarísku stjórnarskránni. Andstaða almennings hefur komið greinilega í ljós eftir að dómurinn var kveðinn upp á miðvikudag, en al- menningur hefur látið í sér heyra á ýmsum vettvangi. Fjölmargir hafa látið skoðun sína í ljós í umræðuþátt- um í sjónvarpi og útvarpi og ýmsar kapalstöðvar sem einungis sjón- varpa fréttum hafa staðið fyrir skoð- anakönnunum meðal áhorfenda þar sem mikill meirihluti fólks hefur lýst yfir andstöðu við úrskurðinn. Sjónvarpsstöðvar hafa sýnt fjöl- margar myndir af skólabörnum sem- fara með eiðinn og viðtöl við nem- endur sem sögðu að þeir hefðu ekkert á móti orðunum, „ein þjóð, sem lýtur Guði“. Gagnrýni hefur í nokkrum mæli beinst að Kaliforníu og San Francisco svæðinu. „Hvar eru jarðskjálftarnir í San Francisco, þegar maður þarf á þeim að halda?“ sagði í leiðara blaðsins The New York Post, en fyrirsögn leiðarans var „Brjálæði á Vesturströndinni“. Alríkisstjórnin mun ekki liggja á liði sínu John Ashcroft, dómsmálaráðherra Bandaríkjanna, Gray Davis, ríkis- stjóri Kaliforníu, og stjórnendur skólaumdæmis í Norður-Kaliforníu, þaðan sem sækjandi málsins er, lýstu því yfir á fimmtudag að þeir hygðust biðja 9. umdæmisáfrýjunar- réttinn að breyta úrskurði sínum. „Dómsmálaráðuneytið mun verja rétt barna okkar til þess að sverja bandaríska fánanum hollustu sína. Alríkisstjórnin mun ekki liggja á liði sínu til að tryggja að börnin geti tjáð föðurlandsást sína með því að hafa yfir hollustueiðinn,“ sagði Ashcroft. Ashcroft og Davis segja að þeir muni fara fram á að ákvörðun dómaranna þriggja verði endurskoðuð af full- skipuðum rétti 11 dómara. Þörf fyrir dómara sem hafa til að bera heilbrigða skynsemi George W. Bush, forseti Banda- ríkjanna, sagði úrskurðinn sýna að þörf væri fyrir „dómara sem hafa til að bera heilbrigða skynsemi og skilja að réttindi okkar eru upprunn- in hjá Guði. Og það eru þess konar dómarar sem ég hef ætlað mér að fá til starfa,“ sagði Bush. Í öldungadeild Bandaríkjaþings gættu demókratar þess vandlega að vel væri mætt í þingsalinn yfir opn- unarbæninni, en venjulega er þar fá- skipað þegar hún er höfð yfir. Þeir tóku undir með þingmönnum repú- blikana og fóru með hollustueiðinn, með sérstakri áherslu á orðin „ein þjóð, sem lýtur Guði“. Þá var sam- þykkt samhljóða ályktun beggja flokka gegn úrskurðinum. Í fulltrúa- deildinni sungu þingmenn beggja flokka „Guð blessi Bandaríkin“ og gáfu svo frá sér ályktun gegn úr- skurðinum í San Francisco og var hún samþykkt með 416 atkvæðum gegn þremur. Tveir þeirra sem greiddu ekki atkvæði með ályktun- inni voru þingmenn frá Kaliforníu. Langflestir bandarískir stjórn- málamenn hafa lýst yfir vanþóknun sinni á úrskurðinum í San Francisco. Sumir þeirra hafa sagt hann árás á hefðbundin bandarísk gildi, en aðrir telja að í málinu hafi pólitískur rétt- trúnaður farið yfir strikið. Hin sterku viðbrögð stjórnmálamanna ber að skoða í ljósi þess að nú er kosningaár í Bandaríkjunum, 4. júlí, þjóðhátíðardagur Bandaríkjamanna, nálgast og atburðirnir 11. september 2001 eru enn lifandi í minningu fólks. Almenningur æfur yfir úrskurði um hollustueið Washington Post, Los Angeles Times.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.