Morgunblaðið - 29.06.2002, Síða 22
ERLENT
22 LAUGARDAGUR 29. JÚNÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
RÚSSNESKIR rannsóknarlögreglu-
menn lokuðu í gær aðalstöðvum rík-
isolíufyrirtækisins Slavneft í Moskvu
og gerðu húsleit á staðnum. Allir
starfsmenn, þ. á m. starfandi for-
stjóri, Júrí Súkhanov, voru látnir yf-
irgefa staðinn. Talsmenn lögreglunn-
ar gáfu út misvísandi yfirlýsingar
vegna málsins en heimildarmenn
sögðu að aðgerðin væri tengd ásök-
unum á hendur Súkhanov um glæp-
samlegt brask.
Í för með lögreglumönnunum var
Míkhaíl Gútseríev, fyrrverandi for-
stjóri fyrirtækisins, en honum var
velt úr sessi á hluthafafundi í maí.
Hann reyndi einnig að leggja aðal-
stöðvarnar undir sig með aðstoð lög-
reglumanna 24. maí en eftir fjögurra
klukkustunda þrátefli urðu allir að yf-
irgefa húsið vegna sprengjuhótunar.
Ríkið á nú 75% hlut í Slavneft og
Hvíta-Rússland á 10,8% hlut. Ætlun-
in er að einkavæða fyrirtækið að hluta
síðar á árinu og þykir atburðurinn
sýna vel hve mikið skorti á að við-
skiptalíf í Rússlandi hlíti sams konar
lögmálum og á Vesturlöndum. Lög-
leysur og geðþótti ráði ríkjum.
Heimildarmenn telja að tveir hópar
í efsta lagi stjórnkerfisins berjist nú
um tökin á fyrirtækinu sem er eitt af
tíu stærstu orkufyrirtækjum Rúss-
lands. Annar hópurinn er sagður
njóta stuðnings valdaklíku er gengur
undir nafninu Fjölskyldan en í hópn-
um eru margir embættismenn og
kaupsýslumenn sem komu undir sig
fótunum í valdatíð Borís Jeltsíns,
fyrrverandi forseta. Meðal þeirra eru
Míkhaíl Kasjanov, núverandi for-
sætisráðherra, og auðkýfingurinn
Róman Abramovítsj. Hinn hópinn
skipa aðallega menn frá Sankti Pét-
ursborg, heimaborg Vladímírs Pútíns
forseta. Heimildarmenn efast þó um
að Pútín sé sjálfur flæktur í átökin.
Gútseríev er sagður hafa tryggt sér
stuðning áhrifamikils kaupsýslu-
manns, Sergeis Púgatsévs, sem er í
góðum kunningsskap við Pútín.
Moskvustjórnin tryggði í gær enn
betur tök sín á orkurisanum Gazprom
er aðstoðarskrifstjóri Pútíns, Dmítrí
Medvedev, var kjörinn stjórnarfor-
maður. Fyrirrennari hans, Rem
Vjakírev, var framkvæmdastjóri
Gazprom þar til í fyrra en vék þá fyrir
lítt þekktum manni, Aleksei Miller,
sem er náinn félagi Pútíns og fékk
Vjakírev valdaminna embætti stjórn-
arformanns í sárabætur. Ríkið á 38%
hlut í Gazprom sem er stærsti gas-
framleiðandi í heimi og ræður yfir um
fjórðungi allra gaslinda jarðar. Verð á
hlutabréfum fyrirtækisins hækkaði í
fyrra um 90% en á tíu ára ferli Vjak-
írevs var Gazprom fádæma illa
stjórnað, að áliti sérfræðinga.
Slagur um yfirráð
rússneskra orkurisa
Moskvu. AFP.
Menn Pútíns
tryggja sér und-
irtökin í Gazprom
JOHN Entwistle, bassaleikarinn
hógláti og vinnusami sem var einn af
stofnendum hljómsveitarinnar The
Who, og átti þátt í því að gera hana
að einhverri vinsælustu rokk-
hljómsveit sögunnar, fannst látinn,
að því er virðist af hjartaáfalli, á hót-
elherbergi sínu í Las Vegas á
fimmtudaginn. Hann var 57 ára.
Entwistle var á lyfjum vegna
hjartveiki, að því er haft var eftir
öðrum meðlimi hljómsveitarinnar,
Steve Luongo. Krufning átti að fara
fram í gær, en að sögn embættis-
manna þótti ekkert grunsamlegt við
fráfall Entwistles. Um það bil ald-
arfjórðungur er síðan hinn upp-
haflegi trommuleikari hljómsveit-
arinnar, Keith Moon, lést af of
stórum fíkniefnaskammti, 31 árs.
The Who átti að spila á tónleikum
á Hard Rock-veitingastaðnum í Las
Vegas í gær, og áttu það að verða
fyrstu tónleikarnir í þriggja mánaða
tónleikaferð sveitarinnar um Banda-
ríkin. Tónleikunum í gær og fyr-
irhuguðum tónleikum fyrsta júlí í
Los Angeles var aflýst. Óráðið er
hvað verður um aðra fyrirhugaða
tónleika, sögðu skipuleggjendur.
Aðrir meðlimir sveitarinnar sögðu í
yfirlýsingu að orð fengju ekki lýst
harmi þeirra við fráfall Entwistle.
Hljómsveitin The Who var stofn-
uð í London í byrjun sjöunda áratug-
arins og tók þátt í hinni svonefndu
„bresku innrás“ tónlistarmanna í
Bandaríkin, ásamt Bítlunum, Roll-
ing Stones og fleiri sveitum. The
Who var ný rödd sem kom fram með
fjölda laga er slógu í gegn, þ. á m.
My Generation, I Can See For Mi-
les, I Can’t Explain og fleiri.
Hljómleikum sveitarinnar fylgdu
mikil læti, sprengingar og dúndr-
andi rokk og skildu hljómsveitar-
meðlimirnir oft sviðið eftir í rjúkandi
rúst og hljóðfærin gerónýt. The Who
var ein þekktasta hljómsveit heims á
áttunda áratugnum og seldi millj-
ónir platna.
„Mörgum aðdáenda okkar líkaði
við okkur vegna þess að við gerðum
mistök. Það gerði okkur mannlegri.
Og svo líka það að við áttum til að
springa úr hlátri á sviðinu þegar við
klúðruðum einhverju verulega illa,“
sagði Entwistle í viðtali við AP 1995.
Hógvær og hæfileikaríkur
Entwistle fór fimum fingrum um
strengi bassans, en stóð grafkyrr á
sviðinu, þveröfugt við gítarleikarann
Pete Townsend og aðalsöngvarann
Roger Daltrey. Entwistle forðaðist
sviðsljósið og þótt maður hógvær í
allri framgöngu. Hann þótti sérlega
hæfileikaríkur og skapandi tónlist-
armaður og var hans minnst í gær
sem eins merkasta bassaleikara
rokksögunnar. Ray Manzarek,
hljómborðsleikari hljómsveitarinnar
Doors, sagði að Entwistle hefði verið
„einn allra besti rokkbassaleikari
allra tíma. Raunverulegur snill-
ingur.“
„Hann var einfaldlega hógvær-
asta rokkstjarna sem ég hef kynnst,
auk þess að hafa bestu bassaleikara-
hendurnar í rokksögunni,“ sagði
rokkarinn Sammy Hagar.
Entwistle samdi ekki mörg lög
fyrir sveitina, samanborið við afköst
Townsends. Meðal laga sem Ent-
wistle samdi voru Boris the Spider
og My Wife, en hvorugt náði miklum
vinsældum. En hann var sá eini af
hljómsveitarmeðlimunum sem hafði
tónlistarmenntun.
Hann var með þeim fyrstu í rokk-
inu sem gerðu tilraunir með sex og
átta strengja bassa og auk þess lék
hann á franskt horn. „Sem tónlist-
armaður gerði hann fyrir bassann
það sem Jimi Hendrix gerði fyrir
gítarinn,“ sagði Luongo.
Entwistle fæddist í London 1944
og spilaði á píanó og trompet á yngri
árum. Hann kynntist Townsend og
Daltrey á menntaskólaárunum og
hljómsveitin The Who varð til 1964.
Sveitin lék á fyrstu Woodstock-
hátíðinni og sendi frá sér fjölda vel
heppnaðra platna, s.s. Happy Jack,
The Who Sell Out og The Kids Are
Alright.
Einnig samdi sveitin rokkóperuna
Tommy, sem fjallar um daufdumban
og blindan messías en á þeirri plötu
leikur Entwistle á horn auk bassa-
gítarsins. Eftir þeirri plötu var gerð
kvikmynd og síðar söngleikur er
fluttur var á Broadway.
Níu sólóplötur
Entwistle gaf út fyrstu sólóplötu
sína 1971, en þær urðu alls níu.
Einnig stofnaði hann eigin hljóm-
sveit, Ox (en það var gælunafn
hans), en hélt áfram að leika með
The Who. Sveitin hætti störfum
1982, en kom oft saman og hélt í tón-
leikaferðir. Meðal annars lék sveitin
á hljómleikum í New York í fyrra
þar sem safnað var áheitum til
handa fórnarlömbum hryðjuverk-
anna 11. september, og síðasta plata
sveitarinnar fór í 31. sæti á vin-
sældalista Billboard fyrir hálfum
mánuði.
Entwistle þótti mjög fram-
bærilegur málari og stóð einmitt til
að opna sýningu á verkum hans í
Las Vegas í gær.
John Entwistle, bassaleikari bresku rokkhljómsveitarinnar The Who, látinn
„Jimi Hendrix
bassagítarsins“
Reuters
John Entwistle (til vinstri), ásamt Roger Daltrey og Pete Townsend.
Las Vegas. AP.
’ Hann var hógvær-asta rokkstjarna
sem ég hef kynnst ‘
FÉLAGAR í vinstrisamtökunum
Polo Obrero veifuðu bareflum er
þeir mættu á Plaza de Mayo í Bue-
nos Aires á fimmtudagskvöldið.
Þúsundir andstæðinga ríkis-
stjórnar landsins efndu til mótmæla
vegna aðgerða lögreglu á miðviku-
daginn gegn mótmælafundi at-
vinnulausra, þar sem tveir létu lífið
í óeirðum og fjöldi manns slasaðist.
Beitti lögregla gúmmíkúlum og
táragasi og voru óeirðirnar á mið-
vikudaginn þær verstu í landinu
síðan í desember sl. er 29 létust í
átökum sem brutust út vegna hruns
efnahagslífsins í landinu.
AP
Óeirðir í Argentínu