Morgunblaðið - 29.06.2002, Qupperneq 39
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. JÚNÍ 2002 39
✝ RagnheiðurÓlafsdóttir fædd-
ist á Fjöllum í Keldu-
hverfi 23. ágúst 1920.
Hún lést á Heilbrigð-
isstofnun Þingey-
inga, Húsavík, 23.
júní síðastliðinn. For-
eldrar hennar voru
Ólafur Jónsson,
bóndi á Fjöllum, f.
21.11. 1881, d. 19.5.
1953 og kona hans,
Friðný Sigurbjörg
Sigurjónsdóttir, f.
31.8. 1898, d. 27.5.
1999. Ragnheiður
ólst upp á Fjöllum og var næstelst
af 5 systkinum sem á legg komust.
Hinn 19. júlí 1942 giftist hún Þor-
geiri Einari Þórarinssyni, bónda á
Grásíðu í sömu sveit, f. 12.12.
1915, en foreldrar hans voru Þór-
arinn Þórarinsson, bóndi á Grá-
síðu, og seinni kona
hans, Sigurrós Sig-
urgeirsdóttir. Hafa
Ragnheiður og Þor-
geir búið á Grásíðu
allan sinn búskap.
Þau eiga þrjá syni.
Elstur er Sigurður,
f. 20.12. 1944,
kvæntur Guðnýju
Björgu Þorvalds-
dóttur og eiga þau
þrjú börn og tvö
barnabörn. Þá Ólaf-
ur Þór, f. 23.2. 1950,
kvæntur Stefaníu
Björgu Einarsdótt-
ur. Þau eiga fjögur börn og átta
barnabörn. Yngstur er Friðgeir, f.
3.11. 1955, kvæntur Ingveldi
Árnadóttur og eiga þau þrjá syni.
Útför Ragnheiðar verður gerð
frá Garðskirkju í Kelduhverfi í
dag og hefst athöfnin klukkan 13.
Þú mikli, eilífi andi
sem í öllu og alls staðar býrð
þinn er mátturinn, þitt er valdið
þín er öll heimsins dýrð.
Þú ríktir frá upphafi alda,
ert allra skapari’ og skjól
horfir um heima alla
hulinn myrkri og sól.
Frá því hin fyrsta móðir
fæddi sinn fyrsta son,
varst þú í meðvitund manna
mannkynsins líf og von.
Þetta ljóð, eftir Davíð Stefánsson,
kom í huga minn við andlát ástkærr-
ar tengdamóður minnar, Ragnheið-
ar Ólafsdóttur. Hún varð mér kær
sem besta móðir er ég giftist elsta
syni hennar.
Það var mikið gæfuspor fyrir mig
að kynnast heiðurshjónunum Ragn-
heiði og Þorgeir. Allt einkenndist af
hlýju og kærleika á Grásíðu. Þar leið
mér vel frá fyrstu stundu. Ég sé þau
hjónin fyrir mér á hlaðinu á Grásíðu
fagra vornótt árið 1968. Innilegt
faðmlag þeirra bauð mig velkomna á
þeirra heimili. Aldrei bar skugga á
samband okkar þessi 34 ár sem liðin
eru síðan. Mikill gestagangur var
ætíð á Grásíðu, enda gestristni þar
mikil og alltaf nóg að borða. Og
bakkelsið hennar Rögnu með því
besta sem til var, enda minnast
barnabörnin á kökurnar hennar
ömmu og gleyma aldrei hvað gott
var að fá mjólk og meðlæti áður enn
háttað var. Nú er skarð fyrir skildi.
Ragna mín kvaddi þennan heim
sunnudaginn 23 júní eftir mikil veik-
indi. Hún kvaddi um sumarsólstöður
og er það táknrætt fyrir hana. Hún
elskaði þennan tíma ársins.
Elsku Doddi minn. Þinn söknuður
er mikill, en minning um góða konu
mun ylja okkur öllum, ástvinum
hennar.
Ég þakka þau ár sem ég átti,
þá auðnu að hafa þig hér.
Og það er svo margs að minnast,
svo margt sem um hug minn fer.
Þó þú sért horfin úr heimi,
ég hitti þig ekki um hríð.
Þín minning er ljós sem lifir
og lýsir um ókomna tíð.
(Þórunn Sig.)
Guðný Björg Þorvaldsdóttir.
Það er ýmislegt sem flýgur í gegn
um huga minn á þessari stundu,
þegar ég sest niður í þeim tilgangi
að skrifa nokkur minningarorð um
tengdamóður mína, Ragnheiði
Ólafsdóttur.
Vorið 1976 flutti ég í Grásíðu, sem
tilvonandi tengdadóttir, þá nýkomin
úr húsmæðraskóla og taldi mig nú
aldeilis vita hvernig gera ætti hlut-
ina innanhúss. Ragna stóð nú bara
álengdar og leyfði mér að láta ljós
mitt skína. Fljótt sá ég þó að þessari
konu gat ég ekki kennt neitt og hef
reyndar eftir því sem árin líða dáðst
meira og meira af því hve mikla þol-
inmæði hún sýndi þessu stelpu-
tryppi sem taldi sig allt vita, og allt
kunna. Það má reyndar segja að
virðing mín fyrir henni hafi vaxið
með árunum, því í seinni tíð hef ég
stundum spurt sjálfa mig hvernig ég
myndi bregðast við í hennar sporum
í dag ef einhver kæmi inn á mitt
heimili sem teldi sig þurfa að segja
mér eitthvað til. Þetta er kannski
ekki svo fjarstæðukennt því nú eig-
um við Friðgeir þrjá uppkomna
stráka. Elsti drengurinn okkar
fæddist meðan við bjuggum á heim-
ilinu hjá þeim Rögnu og Dodda, en
yngri strákarnir fæddust eftir að við
byggðum okkur hús skammt frá
þeirra húsi. Það var því stutt fyrir
þá að skreppa til ömmu og afa og
þiggja einhverjar góðgerðir. Hjá
þeim bjó einnig hún Ólöf, eða Lalla
eins og hún var oftast kölluð, en hún
dvaldi á Grásíðu hjá tengdaforeldr-
um mínum í hátt í 40 ár. Það þótti
ekki þurfa neinna útskýringa við,
heldur þótti alveg sjálfsagt, að þar
sem hún hafði beðið þau hjón fyrir
sig á sínum tíma, að hún byggi þar á
meðan hún vildi. Þó að Ólöf væri sú
sem dvaldi þar lengst var hún alls
ekki sú eina utan fjölskyldunnar
sem var þar um lengri eða skemmri
tíma. Þetta var ýmist eldra fólk eða
sumarbörn sem komu sumar eftir
sumar og jafnvel börn sumar-
barnanna. Eru meira segja dæmi
þess að þrjár kynslóðir hafi verið
hér á bænum, hver á eftir annarri.
Þetta fólk hefur langflest haldið
mikilli tryggð við þau hjón og hefur
alla tíð verið mikill gestagangur hjá
þeim. Það var Rögnu mikið kapps-
mál að eiga gott brauð með kaffinu
og að heimili hennar liti alltaf vel út.
Það er óhætt að segja að hún
Ragna hafi verið mjög heimakær og
stundum var mjög erfitt að fá hana
til að fara af bæ. Því fannst mér al-
veg ótrúlegt, eftir að við Friðgeir
fórum að ferðast um Ísland, hve
mikinn áhuga hún hafði fyrir land-
inu og hve fróð hún var um stað-
hætti víða. Þegar við hringdum heim
úr þessum ferðalögum var hún alltaf
með á hreinu hvaða staðir voru í ná-
grenni við okkur, en þá fylgdist hún
með á landakorti.
Fyrir nokkrum árum varð ljóst að
Ragna gekk ekki heil til skógar.
Bæði greindist hún með krabbamein
í nýra og var illa haldin af krans-
æðastíflu. Það var ljóst að hún þurfti
að fara í aðgerð til að fjarlægja
meinið, en læknar treystu henni
ekki til þess nema gera á henni
hjartaaðgerð fyrst og skipta um þær
æðar sem voru verst farnar. Það
verður að segjast eins og er, að við
aðstandendur vorum ekki bjartsýnir
á að hún lifði þetta af, en sjálf var
hún þess fullviss að allt gengi vel og
að hún myndi ná heilsu á ný. Það
liðu aðeins 40 dagar á milli þessara
stóru aðgerða, en eftir örstuttan
tíma var hún komin heim aftur og þá
við mun betri heilsu en hún hafði
haft svo árum skipti. Næstu ár voru
nokkuð góð, en í desember síðast-
liðnum var ljóst að meinið hafði búið
um sig á nýjum stað. Allt var gert til
að Ragna gæti átt sem lengstan og
bestan tíma heima, en þar vildi hún
auðvitað helst vera. Það var alveg
yndislegt að fylgjast með honum
Dodda, hann gerði allt sem hann gat
til að henni mætti líða sem best. Það
var alveg ótrúlegt að ímynda sér að
þau væru búin að vera gift í nærri 60
ár því stundum fannst manni að þau
gætu verið nýtrúlofuð. Þau gátu set-
ið og haldist í hendur, rétt eins og
unglingar. Ég hafði svolítið gaman
af því, á síðasta ári, þegar einn sonur
okkar kom heim með vinkonu sína
og fór með hana til ömmu sinnar og
afa til að sýna hana. Þegar þau
komu heim sagði hún að þau væru
alveg eins og ömmur og afar ættu að
vera, án þess að útskýra það nokkuð
frekar.
Þó að allt væri gert til að Ragna
fengi að ljúka ævikvöldinu heima á
Grásíðu kom þó að því að veikindin
gerðu það ókleift. Um mánaðamótin
mars-apríl var hún flutt í Sjúkra-
húsið á Húsavík, þar sem hún dvald-
ist þar til yfir lauk. Það var ótrúlegt
að fylgjast með honum tengdaföður
mínum, sem er orðinn áttatíu og sex
ára, hve umhyggjusamur hann var.
Að minnsta kosti annan hvern dag
keyrði hann til Húsavíkur, en það
eru hátt í 50 kílómetrar hvora leið.
Þar sat hann hjá henni megnið úr
deginum og reyndi að stytta henni
stundir.
Elsku Doddi, ég veit að söknuður
þinn er óskaplega mikill. Þú hefur
ekki bara misst ástvin, heldur líka
félaga þinn gegnum lífið. En þú get-
ur verið sáttur við sjálfan þig, því þú
gerðir allt sem þú gast, og stundum
reyndar svo miklu meira. Ég veit að
ég tala fyrir munn allrar fjölskyld-
unnar, þegar ég segi þér hversu
stolt við erum af þér, hvernig þú
reyndist henni Rögnu þinni í gegn-
um lífið. Við verðum að hugsa til
þess með gleði að hún hefur fengið
hvíld, þótt auðvitað sé söknuðurinn
sár.
Ég vil nota þetta tækifæri til að
þakka þeim hjónum fyrir að hafa á
sínum tíma tekið á móti mér með
þeirri hjartahlýju sem þau hafa allt-
af sýnt mér. Þessi ár hafa kennt mér
að bera virðingu fyrir því fólki sem
verður á leið minni.
Að lokum vil ég þakka Rögnu fyr-
ir öll okkar kynni, Guð geymi hana.
Ingveldur Árnadóttir.
Sveitina okkar, að alföður ráðum,
eflið þið mesta og breytið í hag.
Stundirnar notið með dugandi dáðum
dreifbýlisafréttar grói hvert flag.
Fóðrið úr mýrinni virðið og metið,
menningu feðranna sýnið þá hlýju.
Magnið þá grósku, sem fyllir hvert fetið,
fallandi gæðin öll reisið að nýju.
Ragna mín blessuð við óskum þess öll,
þig endalaust lán megni að styðja.
Yfir þó gefir vor fegurstu Fjöll,
fjölskylda og móðir þess biðja.
Við fögnum að heimili hér áttu gott
og hraðhentan gumann við síðu.
Foreldraheimilis fegurstan vott
flyt honum kærleik og blíðu.
Þessi tvö erindi eru úr ljóði sem
afi minn, Ólafur Jónsson, bóndi á
Fjöllum í Kelduhverfi, orti til Rögnu
elstu dóttur sinnar fyrir hartnær 60
árum þegar hún gifti sig. Mér finnst
þessi tvö erindi eiga afar vel við lífs-
hlaup hennar og Þorgeirs, eftirlif-
andi eiginmanns hennar. Þau hafa
verið sveitinni sinni trú og gert sitt
til að auka og viðhalda menningu
hennar og góðu mannlífi.
Það kom mér kannski ekki svo
mjög á óvart þegar móðir mín
hringdi og tilkynnti mér lát Rögnu
föðursystur minnar, en þó er maður
aldrei undir það búinn þegar ein-
hver deyr sem manni þykir vænt
um. Við mamma höfðum reyndar
heimsótt Rögnu á Heilbrigðisstofn-
un Þingeyinga á Húsavík kvöldið áð-
ur og þá var hún býsna hress og
spjallaði við okkur. En skyndilega
var allt búið. Hún hafði þurft að fara
í tvær stórar aðgerðir fyrir fáum ár-
um og náði sér ótrúlega vel, en síð-
astliðið ár hafði hallað undan fæti
aftur.
Við, fjölskylda Héðins bróður
hennar eigum Rögnu og Dodda, eft-
irlifandi eiginmanni hennar, svo
ótalmargt að þakka. Í blíðu sem
stríðu hafa þau liðsinnt okkur í
gegnum árin og reynst okkur öllum
hinir bestu vinir. Í huga okkar hafa
þau alltaf verið eitt.
Í veikindum móður minnar þegar
ég var rúmlega eins árs, tóku þau
mig að sér í nokkra mánuði. Ég var
tekin grátandi frá þeim aftur og var
farin að kalla þau „Öggu mömmu“
og „Dodda pabba“. Lengi vel átti ég
jólakort frá þeim með þessari undir-
skrift. Æ síðan hafa þau sýnt mér al-
veg einstaka hlýju og sögðu alltaf að
þeim fyndist þau eiga svolítið í mér.
Yngri systir mín Kolla var einnig hjá
þeim þegar veikindi herjuðu á og við
höfum öll systkinin 6 notið mikillar
hlýju og hjálpsemi frá þeim. Okkur
hefur fundist eftirsóknarvert að
koma í Grásíðu og hitta þau þegar
við höfum komið heim í Kelduhverfi,
því það hafa alltaf verið einstakar
móttökur sem við höfum fengið. Við
fórum ríkari en við komum.
Það sama átti við um mömmu og
pabba. Pabbi fór oft í heimsókn í
Grásíðu og hafði sérstaklega góð
tengsl við Rögnu og Dodda. Þeir
Doddi áttu mörg sameiginleg áhuga-
mál s.s. veiðiskap og var það þeim
óendanleg uppspretta samræðna.
Einnig fóru þeir oft saman í veiði-
ferðir bæði á sjó og landi. Eftir að
pabbi dó fyrir 10 árum hafa þau
haldið mikilli tryggð við móður okk-
ar. Fyrir þetta allt skal þakkað hér
af heilum huga. Hvað er betra en að
eiga góða fjölskyldu og vini sem allt-
af eru til staðar, bæði í velgengni og
erfiðleikum.
Fyrir hönd móður minnar Sjafn-
ar, systkina minna og fjölskyldu
sendi ég Dodda, Didda, Óla Þór,
Friðgeir og fjölskyldum þeirra inni-
legar samúðarkveðjur.
Guð blessi minningu Rögnu okk-
ar.
Sigurbjörg Friðný
Héðinsdóttir.
Hún Ragna mín er farin, það er
mikil eftirsjá að slíkri manneskju
sem var alltaf svo góð og ljúf við
mig. Henni kynntist ég ungur að ár-
um, þegar móðir mín fór með mig til
hennar í Grásíðu. Þar tóku þau á
móti mér opnum örmum, Doddi og
Ragna, eins og þeim einum var lag-
ið. Þar var ég í sveit hjá þeim í mörg
sumur í góðu yfirlæti.
Ragna mátti ekkert aumt sjá,
hvort sem var dýr eða menn. Í sveit-
inni voru kindur og kýr og sá hún
mest um að mjólka kýrnar, allavega
á meðan á heyskap stóð. Ég var
snemma látinn fara að keyra traktor
í heyskapnum og mér þykir svo
vænt um að heyra hana í minning-
unni segja „gættu bara vel að þér,
vinur“ og síðan „gættu bara voða vel
að þér, vinur“ ef ég þurfti að fara
lengra frá bænum á vélinni.
Ragna var alltaf svo mikil búkona
sem hafði samt þennan blíða og góð-
lega svip. Hún sá til þess að hjá
henni var alltaf nóg að bíta og
brenna og ofarlega í huga mér er
súra slátrið og skyrið sem hún bjó til
og var hvorttveggja hreint lostæti.
Það var segin saga, þá og alltaf eftir
það, að þegar ég kom við á Grásíðu
eða þegar ég stoppaði eitthvað, dró
Ragna fram allt það fínasta og besta
sem hún átti í mat og drykk, sem var
ekkert lítið.
Þetta voru dýrðartímar og áttum
við margar góðar stundir saman,
enda Ragna ein yndislegasta kona
sem ég hef þekkt. Fyrir nokkrum
dögum hitti ég hana á Heilbrigðis-
stofnun Þingeyinga og var augljóst
að sama gestrisnin og góðmennskan
var henni efst í huga, þá sem endra-
nær, þrátt fyrir háan aldur og veik-
indi sem hún átti við að stríða.
Ég kveð þig með miklum söknuði,
Ragna mín, og trúi því að þú sért
komin á betri stað.
Að lokum vil ég votta fjölskyld-
unni samúð mína og bið Guð að
varðveita þau.
Arnþór Þ. Árnason.
Alltaf er jafnsárt að kveðja ein-
hvern sem manni þykir mjög vænt
um, eins og í þessu tilviki, elsku
amma. Þegar þetta er skrifað er ég
komin alla leið norður á Grásíðu í
huganum og er þá margs að minn-
ast. Fyrst dettur mér í hug sá tími
þegar ég dvaldi hjá hjá ykkur afa á
sumrin sem lítil stúlka. Það var
skemmtilegur og lærdómsríkur tími.
Já, lærdómsríkur segi ég þar sem
þið afi kennduð mér svo margt,
sögðuð mér margar skemmtilegar
sögur og bentuð mér á að bera virð-
ingu fyrir því sem okkur þykir vænt
um. Þetta hefur verið mér gott vega-
nesti í lífinu og hefur ósjaldan
heyrst þegar ég tala til minna litlu
drengja; „svona sögðu amma og afi á
Grásíðu alltaf“.
Já, þetta var svo sannarlega
skemmtilegur tími, sem ég mun
aldrei gleyma.
Og í rauninni er óþarfi að tíunda
hvert smáatriði fyrir sig, því að dvöl-
in hjá ykkur var skemmtilegt æv-
intýri frá upphafi til enda sumar eft-
ir sumar.
En reyndar verð ég aðeins að
minnast á mjólkurgrautinn okkar,
amma, því ég veit að þú gleymir því
eflaust seint, þegar glumdi í flestum
símum sveitarinnar að þú hafðir eld-
að 13 sinnum grjónagraut handa
mér á fyrstu vikunni. Og kæmi mér
ekki á óvart þó að bros færðist á
andlit þitt nú.
Mikið er nú búið að hlæja og vitna
í þetta síðastliðin ár.
Og þegar ég kom norður til ykkar
með fjölskylduna mína var ekki síð-
ur gaman, ég og Rúnar höfðum un-
un af því að horfa á ykkur afa með
litlu drengina okkar síðastliðið
haust.
Ég sá hvað þið höfðuð gaman af
því og hvað þeir nutu samverunnar
vel.
Anton Ingi talar mikið um sveit-
ina þeirra afa og ömmu á Grásíðu.
Elsku afi, þinn missir er mestur,
það verður skrýtið að eiga ekki eftir
að sjá ykkur ömmu sitja saman við
sjónvarpið hönd í hönd, sem mér er
svo sérstaklega minnisstætt, alltaf
hönd í hönd, svo glöð og ánægð sam-
an.
Elsku amma, ég þakka þér sam-
fylgdina og bið góðan guð að veita
afa allan þann styrk sem hann þarf á
að halda. Hvíl þú í friði amma mín.
Þín nafna,
Ragnheiður Þóra Ólafsdóttir.
RAGNHEIÐUR
ÓLAFSDÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ tekur afmælis- og minningargreinar til birtingar
endurgjaldslaust. Greinunum er veitt viðtaka á ritstjórn blaðsins í
Kringlunni 1, Reykjavík, og á skrifstofu blaðsins í Kaupvangsstræti 1,
Akureyri. Þá er enn fremur unnt að senda greinarnar í símbréfi (569
1115) og í tölvupósti (minning@mbl.is). Nauðsynlegt er, að símanúmer
höfundar/sendanda fylgi.
Um hvern látinn einstakling birtist formáli, ein uppistöðugrein af
hæfilegri lengd, en aðrar greinar um sama einstakling takmarkast við
eina örk, A-4, miðað við meðallínubil og hæfilega línulengd, - eða 2.200
slög (um 25 dálksentimetra í blaðinu). Tilvitnanir í sálma eða ljóð tak-
markast við eitt til þrjú erindi. Greinarhöfundar eru beðnir að hafa
skírnarnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum.
Við birtingu afmælisgreina gildir sú regla, að aðeins eru birtar grein-
ar um fólk sem er 70 ára og eldra. Hins vegar eru birtar afmælisfréttir
ásamt mynd í Dagbók um fólk sem er 50 ára eða eldra.
Mikil áhersla er lögð á, að handrit séu vel frá gengin, vélrituð eða
tölvusett. Sé handrit tölvusett er æskilegt, að disklingur fylgi útprent-
uninni. Það eykur öryggi í textameðferð og kemur í veg fyrir tvíverknað.
Auðveldust er móttaka svokallaðra ASCII-skráa sem í daglegu tali eru
nefndar DOS-textaskrár. Þá eru ritvinnslukerfin Word og Wordperfect
einnig auðveld í úrvinnslu.
Birting afmælis- og
minningargreina