Morgunblaðið - 05.07.2002, Síða 28
LISTIR
28 FÖSTUDAGUR 5. JÚLÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
FORVÖRSLUÁTAK fer um þessar
mundir fram á Þjóðminjasafni Ís-
lands. Kemur það þannig til, að
unnið er að gerð nýrra grunnsýn-
inga á vegum safnsins, en mikil-
vægur þáttur í þeim undirbúningi
er forvarsla gripa sem ráðgert er
að sýna þar. Að verkefninu koma
alls 11 manns, forverðir og forvörsl-
unemar. Verkefnið er þríþætt, þar
sem fram fer forvarsla ámálaðra
kirkjugripa, forvarsla textíla og for-
varsla jarðfundinna gripa. Blaða-
mannafundur um forvörsluátakið
var haldinn í gær á vegum Þjóð-
minjasafns Íslands. Hlýddu gestir á
ávörp forsvarsmanna safnsins, auk
þess sem þeim gafst tækifæri til að
ganga um forvörsluverkstæðin í
fylgd sérfræðinga safnsins og skoða
vinnuna sem þar fer fram.
Án forvörslu
væri ekkert að sýna
Margrét Hallgrímsdóttir þjóð-
minjavörður sagði að forvarsla væri
einn af mikilvægustu þáttunum í
starfsemi Þjóðminjasafns Íslands.
„Við höfum lagt metnað okkar í að
efla forvörsluna á þessum tímamót-
um sem Þjóðminjasafnið stendur á
núna,“ sagði hún. „Um þessar
mundir er verið að undirbúa opnun
safnsins í endurbættu húsnæði við
Suðurgötu. Mikilvægur þáttur í
þeim undirbúningi er forvarsla
gripa, sem eru okkar þjóðarger-
semar, til sýningar í húsinu.“
Þjóðminjasafnið hefur nýverið
ráðið til sín fleiri forverði til starfa,
en einnig eru forverðir frá danska
þjóðminjasafninu við störf á safn-
inu. „Forvarsla er, eins og nafnið
gefur til kynna, fræðigrein sem lýt-
ur að því að koma í veg fyrir að
fornleifar skemmist. Þó að sýning-
arhald sé augljósasti þátturinn í
starfsemi safna, þá er varðveisla
gripanna einnig gríðarlega mikil-
vægur þáttur í okkar starfsemi,“
sagði Margrét ennfremur. „Ef við
gætum ekki gripanna og höfum
ekki góða aðstöðu til forvörslu og
varðveislu, þá höfum við að lokum
ekkert að sýna.“
Hún sagði að forvörsluátakið lyti
að þeim gripum sem fyrirhugað
væri að sýna á grunnsýningum
safnsins er það verður opnað á ný,
og að það væri fjármagnað með því
fjármagni sem Þjóðminjasafnið
hefði, en einnig með styrk frá
Landsvirkjun og úr minningarsjóði
Ingibjargar Johnson og Helga
Gunnlaugssonar. „Það má því segja
að þetta sé áþreifanlegur þáttur í
undirbúningi opnunar Þjóðminja-
safnins á ný, sem stefnt er að af öll-
um krafti,“ sagði Margrét að lok-
um.
Mjög sérhæft starf
Lilja Árnadóttir, deildarstjóri
munadeildar, benti á að forvarsla
væri ung fræðigrein. „Það er ekki
langt síðan orðið forvarsla varð til í
íslensku,“ sgaði hún. „En við erum
að gera okkur vonir um að skiln-
ingur ráðamanna og almennings sé
að glæðast og að þetta átak sem
hér er í gangi geti eflt og stutt fag-
lega umræðu um þetta svið. Fyrir
það er mikil þörf.“ Lilja sagði enn-
fremur að forvarsla væri marg-
slungin fræðigrein, sem margar
sérhæfðar greinar rúmuðust innan.
„Það eru liðin yfir 20 ár síðan
fyrstu forverðirnir komu til starfa
hér á safninu og sér þess mjög
greinileg merki í þeim geirum sem
þeir hafa einbeitt sér að. Til dæmis
höfum við haft um nokkurt skeið
forverði á sviðum textíls og forn-
gripa, en það sem við höfum ekki
haft yfir að ráða eru forverðir sem
eru sérhæfðir í ámáluðum kirkju-
gripum. Okkur var ljóst að hér
þurfti stórátaks við. Því var leitað
til þjóðminjasafnsins í Kaupmanna-
höfn um samstarf, sem nú er orðið
að veruleika,“ sagði hún.
Breyttar áherslur í forvörslu
Nathalie Jacqueminet er einn af
forvörðum kirkjumuna við safnið.
Hún segir áherslur hafa breyst
mikið undanfarin 50 ár í forvörslu-
fræðum. „Í gamla daga var fyrst og
fremst hugsað um að laga útlit
munanna,“ sagði Nathalie. „Í nafni
fagurfræði var næstum allt leyfi-
legt, að mála yfir upprunalega
málningu, bæta við líkamshlutum
og svo framvegis. Í dag er hug-
myndafræðin önnur. Markmið for-
vörslu er í fyrsta lagi að koma í veg
fyrir að hlutirnir skemmist áfram. Í
öðru lagi viljum við helst að þessi
áfangi dugi í að minnsta kosti 50 ár,
og til þess notum við valin efni sem
við búum til sjálf og vitum hvernig
munu breytast með tímanum. Einn-
ig er mikilvægt að hægt sé að
hreinsa þau burt svo að þau verði
aldrei hluti af verkinu.“
Nathalie sagði mikilvægt að fólk
skildi hvers vegna ekki væri reynt
að nálgast upphaflegt útlit. „Verkin
sem við varðveitum eru fyrri tíma
hlutir, sem hafa verið notaðir í dag-
legu lífi forfeðra okkar. Þetta eru
lifandi hlutir með sál, og með því að
fela ummerki eftir notkun þeirra
erum við að eyðileggja merki fortíð-
arinnar sem næsta kynslóð nyti
ekki. Við verðum að sætta okkur
við það og læra að njóta hlutanna
eins og þeir eru,“ sagði hún.
Grunnþáttur í
starfsemi safnsins
Forvarsla er einn af grunnþáttum í starfsemi safna nú til dags.
Fræðigreinin er ung og hefur tekið miklum áherslubreytingum
undanfarin ár. Inga María Leifsdóttir sat blaðamannafund um
forvörsluátak á Þjóðminjasafni Íslands.
Morgunblaðið/Jim Smart
Gestir blaðamannafundar fylgjast með forvörðum Þjóðminjasafnsins við vinnu sína með ámálaða kirkjugripi.
ingamaria@mbl.is
KAMMERKÓR músíknema við há-
skólann í Álaborg í Danmörku er
þessa dagana á tónleikaferð um Ís-
land og Færeyjar og heldur
þrenna tónleika hér á landi. Gestir
kórsins eru sænski saxófónleik-
arinn Anders Paulsson og Einar
Már Guðmundsson rithöfundur.
Kórinn heldur fyrstu tónleikana í
Norræna húsinu á morgun, laug-
ardag, kl. 15, þar sem kórinn
ásamt Anders Paulsson flytur efn-
isskrá sína og Einar Már les nokk-
ur ljóða sinna. Í Grafarvogskirkju
heldur kórinn tónleika á sunnu-
dagskvöld kl. 21 og að lokum í Sel-
fosskirkju mánudaginn 8. júlí kl.
20.
Yfirskrift tónleikaferðarinnar
er „Söngvar til vordjúpsins“ og eru
orðin tekin úr ljóði eftir færeyska
náttúrulýrikerinn
Christian Matras.
Á efnisskránni í
þessari tónleikaferð
getur m.a. að heyra
frumflutning á verki
fyrir kór og sópran-
saxófón eftir fær-
eyska tónskáldið
Kára Bæk. Mogens
Dahl hefur verið
stjórnandi kórsins
frá upphafi en hann
þykir í hópi fremstu
kórstjóra Danmerk-
ur.
Kammerkór mús-
íknemanna var stofn-
aður árið 1995 vegna
framkominna óska frá nemendum
um að syngja vandaða kórtónlist.
Frá þeirri stundu hef-
ur kórinn verið list-
rænt andlit Álaborg-
arháskóla í
menningarlegu tilliti.
Í kórnum eru 27
söngvarar á aldrinum
20-30 ára. Á alþjóðlegu
kórakeppninni í Ka-
lundborg vorið 2001
vann kórinn fyrstu
verðlaun, ásamt öðrum
kór, í hópi blandaðra
kóra fyrir söng sinn.
Sænski saxófónleik-
arinn Anders Paulsson
er þekktur um allan
heim fyrir breiddina í
tónlistinni sem hann
flytur, hvort sem talað er um klass-
íska tónlist eða djass.
Einar Már
Guðmundsson
Kór danskra músík-
nema á tónleikaferð
LIGHT Nights-sýningarnar, sem
hafa verið sýndar nánast hvert sum-
ar í Reykjavík síðastliðin 30 ár,
verða sýndar í Kaffileikhúsinu í
Hlaðvarpanum í sumar, en eins og
mörgum er eflaust minnisstætt var
sýningin til húsa í Tjarnarbíói á
sumrin um árabil, og síðastliðið
sumar í Iðnó. Fyrsta sýning leik-
hússins er í kvöld.
Sýningin Light Nights hefur tekið
nokkrum breytingum frá ári til árs,
og er svo einnig nú. „Sýningin er þó
nokkuð mikið breytt síðan í fyrra.
Til dæmis eru í ár tveir atvinnuleik-
arar í sýningunni, í stað eins í fyrra,“
segir Kristín G. Magnús, stofnandi
Ferðaleikhússins sem hefur sett
sýningarnar upp frá upphafi, en í ár
leikur á móti henni Ólafur Þór Jó-
hannesson. „Einnig hef ég bætt við
nokkrum atriðum, og svo erum við á
nýjum stað sem breytir auðvitað
heilmiklu. Það besta við að vera í
Kaffileikhúsinu, er nálægðin við
áhorfandann. Leiksvið geta stund-
um haft ákveðnar takmarkanir.“
Á efnisskrá Light Nights í sumar
eru 14 atriði, sem flest eru leikin, en
einnig eru skyggnusýningar með
hljóði hluti af henni. Fyrir hlé eru
þjóðsögur á dagskrá, en eftir hlé
taka víkingar völdin. „Efnisskráin er
auðvitað byggð eingöngu á íslensku
efni, til þess að fræða erlenda sem
íslenska gesti um íslenska menningu
á skemmtilegan hátt,“ segir Kristín.
Hún segist eiga von á gestum ým-
issa þjóða, til dæmis mun hópur frá
Hawaii sækja sýninguna heim auk
þess sem japanskir gestir verða við-
staddir frumsýninguna.
Á sýningunni er gestum boðið að
panta sér mat sem kemur frá veit-
ingahúsinu Tapas. Sem fyrr fer sýn-
ingin fram á ensku þó að efniviður-
inn sé íslenskur, og fer
frumsýningin, sem uppselt er á,
fram í kvöld að viðstöddum forseta
Íslands og Dorrit Moussaieff.
Í sumar hefjast sýningar kl. 20.30
alla föstudaga, laugardaga, sunnu-
daga og mánudaga. Sýningum lýkur
31. ágúst.
Fyrsta sýning Light Nights í sumar verður í Kaffileikhúsinu í kvöld.
Light Nights í
Kaffileikhúsinu í ár
ÍSLENSKI látbragðsleikarinn
Kristján Ingimarsson, sem sl. tíu
ár hefur verið búsettur í Dan-
mörku, hlýtur mikið lof hjá danska
dagblaðinu Berlingske Tidende
fyrir leik sinn í verkinu „Koncert i
P-mol“. Verkið er sett upp sem
götuleikhús í garðinum við Rosen-
borgar-höll af leikhópnum HMF
Brændende Kærlighed.
„Koncert i P-mol“ segir frá tón-
listarmönnum sem uppgötva er
þeir eru í þann mund að fara að
leika á tónleikum að hljóðfæri
þeirra eru horfin. Upphefst þá mik-
ill grátkór í fyrstu, en þótt tónlistin
sé dauð hafa tónlistarmennirnir
það þeim mun betra. Yfirþyrmandi
persónleiki hvers og eins nær þá
loks að blómstra, enda hafði þeim
aldrei líkað að falla í skugga hljóð-
færanna. Að sögn blaðsins vekur
verkið mikinn hlátur meðal áhorf-
enda og er það Íslendingurinn
Kristján sem þar stendur upp úr.
„Sterkastur er leikur Kristjáns
Ingimarssonar sem gítarleikara er
heldur stjörnulífi sínu gangandi
með áfengisdrykkju og eiturlyfja-
neyslu, en lyfin hefur hann falið á
fáránlegustu stöðum. Hann nær
fullkomnum tökum á persónunni,
bæði kómísku yfirbragði hans sem
og sársaukanum sem býr innra
með honum. Með leik í verkum eins
og „Mike Attack“, „Kabel al
Dente“ og „Kama Sutra“ hefur
þessi ungi íslenski leikari náð að
festa sig í sessi sem einstakur hæfi-
leikamaður innan danska lát-
bragðsleiksins,“ segir í dómi Berl-
ingske Tidende.
Berlingske Tidende um Kristján Ingimarsson
„Einstakur hæfileikamaður“