Morgunblaðið - 05.07.2002, Side 53
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. JÚLÍ 2002 53
RÓSIN, þetta þokkafulla blóm,
hefur fylgt mannkyninu um þús-
undir ára. Talið er að saga rósar-
innar hafi verið samofin mannkyn-
inu um 5000 ára skeið. Upphaflega
hefur rósin sennilega ekki verið
ræktuð vegna fegurðargildis held-
ur vegna nytsamlegra eiginleika.
Aldin rósanna, nýpurnar, eru
ákaflega C-vítamín-
rík og því mikilvæg
til að koma í veg fyr-
ir sjúkdóma eins og
skyrbjúg. Þó er ekki
hægt að útiloka það
að fegurð blómanna
hafi hvatt fólk til að
rækta rósir í ná-
grenni við hýbýli sín.
Falleg blóm geta
hins vegar verið til
trafala, sérstaklega
þegar þau hafa lokk-
andi áhrif á búfénað
og önnur dýr sem
vilja gjarnan njóta
blómanna, helst inn-
vortis. Þyrnar rós-
anna hafa líklega
þróast sem nokkurs konar sjálfs-
vörn plantnanna í gegnum aldirn-
ar, þyrnóttar plöntur verða mun
síður fyrir beit svangra dýra en
þyrnalausar. Runnarósir, eða villt-
ar rósir, hafa gjarnan mjög mikið
af þyrnum og þyrnarnir eru bæði
stórir og smáir. Það eru aðallega
stönglar rósanna sem eru alsettir
þyrnum en á sumum tegundum
eru líka þyrnar á blaðstilkunum.
Beitardýr þurfa því að hafa frekar
masókistískar tilhneigingar ef þau
ætla sér að leggja tvisvar til at-
lögu við rósarunnana.
Grikkir til forna ræktuðu rósir
og helguðu rósina Afródítu, gyðju
fegurðar og ástar. Í Grikklandi
varð til sá siður sem við þekkjum
enn í dag að strá rósablómum og
krönsum úr rósum á grafir látinna
ættingja. Rómverjar ræktuðu rós-
ir í stórum stíl og notuðu í ýmsum
tilgangi. Rómverskir garðyrkju-
menn þekktu til brumgræðslu,
fjölgunaraðferðar sem enn þann
dag í dag er notuð á rósir og
gengur út á það að brum af fram-
úrskarandi rós er grætt á rót af
harðgerri runnarós. Með því móti
fæst mun þróttmeiri planta en
ella. Talið er víst að þeir hafi
ræktað rósir í ræktunarbeðum,
hugsanlega undir gleri og þannig
getað tryggt framboð á rósum ut-
an ,,eðlilegs“ blómgunartíma
plantnanna. Eftirspurnin var svo
sannarlega til staðar. Konur í
Rómaveldi settu rósablöð í bað-
vatn sitt til að halda líkamanum
unglegum og eggjandi. Á nóttunni
sváfu þær svo með
rósablöð á andlitinu
til að koma í veg fyr-
ir hrukkur. Það er
því svo sannarlega
ekkert nýtt undir
sólinni því konur í
dag þekkja líka
undrameðöl af svip-
uðu tagi, kvöldvor-
rósarolían sem var
auglýst grimmt fyrir
nokkrum árum átti
að hafa svipuð áhrif.
Orðatiltækið ,,að tala
undir rós“ eða sub
rosa er einmitt kom-
ið úr Rómaveldi. Þar
tíðkaðist að skreyta
hýbýli með rósum og
voru þær gjarnan hengdar upp
fyrir ofan gestina til tákns um að
allt sem fram fór í gestaboðinu
var bundið þagnarskyldu. Þetta
tákn um þagmælsku má finna í
mörgum kirkjum þar sem rósir
voru hengdar upp fyrir ofan
skriftastólana. Á íslensku hefur
merking orðatiltækisins breyst ör-
lítið, hér táknar það að gefa eitt-
hvað í skyn, að fara með hálf-
kveðna vísu.
Kaþólska kirkjan fordæmdi rós-
ina upphaflega sem heiðið blóm en
tókst þó ekki að útrýma heiðnum
siðum eins og þeim að strá rósa-
blómum á leiði ættingja og vina.
Kirkjan brá því á það ráð að inn-
lima þetta fyrrum heiðna tákn inn
í kirkjulega menningu. Blóðrauða
rósin varð því tákn um blóð Jesú
og rósin, sem áður hafði verið
helguð Afródítu, varð nú blóm
Maríu meyjar, tákn hreinleika og
manngæsku. Vegsemd rósarinnar
óx og hún var álitin nokkurs konar
sendiboði himnanna til barna jarð-
arinnar. Þannig þótti það sérlega
mikið gæfumerki að reisa kirkjur
á stöðum þar sem rósir uxu. Lista-
menn gerðu myndir af rósum í
steinda glugga í kirkjum og rósum
bregður fyrir í ýmsum kirkjuleg-
um listaverkum frá gamalli tíð.
Rósaræktun breiddist út um
Evrópu frá löndunum við Miðjarð-
arhafið. Talið er að hún hafi borist
til Þýskalands um árið 800 e. Kr.
og allt norður til Skandinavíu um
1100 e. Kr. Til Íslands bárust rós-
ir sennilega fyrst seint á 19. öld-
inni, upphaflega voru þær rækt-
aðar í gluggum vel stöndugra
húsfreyja en þegar kom fram á 20.
öldina fluttist rósaræktunin smám
saman út í garða, svona eftir því
sem garðamenningunni óx ásmeg-
in. Í dag eru rósir ræktaðar meira
og minna um allt land og hafa
margar tegundir og yrki sýnt góð
þrif við íslenskar aðstæður.
Allan þennan tíma hafa rósir
verið kynbættar fram og til baka
og menn reynt að búa til hina full-
komnu rós. Blómin eru allt frá því
að vera agnarsmá með einungis 5
krónublöð upp í risastór blóm með
fleiri tugi krónublaða, ilmandi eða
ilmlaus. Blómlitirnir eru rauðir,
gulir, hvítir, bleikir, grænir og allt
þar á milli en enn hefur engum
tekist að búa til bláa rós, þrátt
fyrir ítrekaðar tilraunir. Sennilega
hefur enginn tölu á öllum þeim
rósayrkjum sem hafa verið búin til
og markaðssett í gegnum tíðina.
Þýskur rósakynbótamaður sagði
við mig fyrir nokkrum árum að
rétt eins og að ekki væri til hin
fullkomna kona, þá væri hin full-
komna rós ekki til. Ég benti
manninum umsvifalaust á að það
væri augljóst að hann hefði aldrei
komið til Íslands, heimkynna full-
komnu kvennanna.
Guðríður Helgadóttir
garðyrkjufræðingur
SUB ROSA
VIKUNNAR
BLÓM
Um s j ó n S i g r í ð u r
H j a r t a r
475. þáttur
Hinir stórglæsilegu
Benimar húsbílar eru komnir og verða til sýnis
og sölu hjá
húsbílar,
Tangarhöfða 1,
110 Reykjavík — Íslandi,
símar 567 2357 og 893 9957.
UPPBOÐ
Uppboð
Framhald uppboðs á eftirfarandi eign verður háð á henni
sjálfri sem hér segir:
Ytra-Fell, Eyjafjarðarsveit, þingl. eig. Valdimar Jónsson, gerðarbeið-
endur Eyjafjarðarsveit, Lánasjóður landbúnaðarins og Vélar og þjón-
usta hf., þriðjudaginn 9. júlí 2002 kl. 14:00.
Sýslumaðurinn á Akureyri,
4. júlí 2002.
Harpa Ævarrsdóttir, ftr.
SMÁAUGLÝSINGAR
FÉLAGSLÍF
Laugard 6. júlí: Heklurætur.
Gengið um sjaldfarnar en fagrar
slóðir sunnan eldfjallsins, hraun-
jaðra og gróðurspildur. Sérstök
áhersla lögð á fjölbreytta jarð-
fræði svæðisins. 5—6 klst.
ganga. Brottför frá BSÍ með við-
komu í Mörkinni 6 kl. 8:00. Farar-
stjóri Haukur Jóhannesson jarð-
fræðingur. Verð 2.500/2.800.
Sunnud. 7. júlí: Skarðsheiði
(1039 m). 8—9 klst ganga. Verði
ekki bjart á fjallið verður gengið
á Þráinsskjöld og Slögu. (6—7
klst.). Brottför frá BSÍ með við-
komu í Mörkinni 6 kl. 9:00. Ath.
breyttur brottfarartími. Farar-
stjóri Jónas Haraldsson. Verð
2.000/2.300.
Miðvikud. 10. júlí: Sumar-
kvöld á Helgafelli. Um 3 klst.
ganga. Brottför frá BSÍ og Mörk-
inni 6 kl. 19:30. Verð 1.000/1.200.
Fjölskylduferð í Þórsmörk
5.—7. júlí 2002. Götuleikhús,
leikir, gönguferðir, grill og
margt fleira. Afmælisganga
yfir Fimmvörðuháls sömu
helgi.
Enn 2 sæti laus í Grænlands-
ferð í ágúst og í Fjörður 16. júlí.
www.fi.is og bls. 619 í textavarpi
RUV.
Dagskrá þjóðgarðsins á Þing-
völlum helgina 6.—7. júlí.
Laugardagur 6. júlí
Kl. 13.00 — Gengið í Hrauntún
Gengið verður í Hrauntún sem
er eyðibýli nyrst í þjóðgarðinum.
Farið verður frá þjónustumið-
stöð klukkan 13.00 og tekur
gangan um 3 klukkustundir. Í
dag bera veggjarbrot og tún enn
merki um búskaparhætti þar en í
gönguferðinni verður hugað að
jarðfræði og gróðurfari svæðis-
ins.
Kl. 13.00 Fornleifar og sögur á
þingi Í gönguferðinni verður
farið um þingstaðinn forna og
sagan rifjuð upp fyrir krakka á
öllum aldri. Safnast verður sam-
an við kirkju.
Sunnudagur 7. júlí
Kl. 14.00 Guðsþjónusta í Þing-
vallakirkju.
Kl. 15.00 Þinghelgarganga.
Gengið um þingstaðinn forna og
hugað að sögu og náttúru. Hefst
við kirkju að lokinni guðsþjón-
ustu og tekur um 1 klst.
Nánari upplýsingar eru veittar í
þjónustumiðstöð í s. 482 2660
og á heimasíðu þjóðgarðsins
www.thingvellir.is .
Þátttaka í dagskrá þjóðgarðsins
á Þingvöllum er ókeypis og allir
eru velkomnir.
6. júlí:
Eiríksjökull. Brottför kl. 8:00 frá
BSÍ. Verð kr. 4.100/4.700. Farar-
stjórar: Hallgrímur Kristinsson og
Gunnar Hólm Hjálmarsson.
6.—7. júlí:
Fimmvörðuhálsganga. Brott-
för frá BSÍ kl. 8:30. Verð kr. 7.700/
9.200. Fararstjóri: Ingibjörg Ei-
ríksdóttir.
7. júlí:
Esjuganga (E-5) Þverfells-
horn og fram á Blikdalsbrún-
ir. Brottför frá BSÍ kl. 10:30. Verð
kr. 1.500/1.700. Fararstjóri: Tóm-
as Þ. Rögnvaldsson.
7.—10. júlí:
Sveinstindur — Skælingar.
Fyrsta ferðin í þessa vinsælustu
gönguleið sumarsins. Trússferð.
Brottför frá BSÍ kl. 8:00. Verð kr.
19.400/22.600. Fararstjóri: Vignir
Jónsson. UPPSELT.
10.—13. júlí:
Lónsöræfi. Brottför frá Stafa-
felli kl. 10:00. Verð kr. 13.900/
16.200. Fararstjóri: Gunnlaugur
Ólafsson.
10.—14. júlí:
Tindfjöll – Hungurfit – Emstr-
ur. Ný og spennandi ferð. Brott-
för frá BSÍ kl. 8:30. Verð kr.
17.900/20.500. Fararstjóri: Sylvía
Kristjánsdóttir. Trússferð.
11.—18. júlí:
Sveinstindur – Básar (8 dag-
ar). Hér eru tvær af vinsælustu
leiðum Útivistar settar saman í
eina frábæra ferð. Brottför frá
BSÍ kl. 8:00. Verð kr. 29.900/
33.300. Fararstjóri: Marrit Meint-
ema. Trússferð.
mbl.is
ATVINNA