Morgunblaðið - 05.07.2002, Síða 65
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. JÚLÍ 2002 65
Hverfisgötu 551 9000
www.regnboginn.is
1/2kvikmyndir.com
Radíó X
Rás 2 1/2HK DV
Sýnd kl. 8. B.i 16. Sýnd kl. 5.30 og 10.30. B.i 16.Sýnd kl. 5.30. B.i. 10.
1/2 RadióX
1/2 kvikmyndir.is
Sánd
Þegar pabbinn neitar að borga enn eitt
skólaárið fyrir son sinn, tekur partýdýrið
Van til sinna ráða...
Sýnd kl. 8 og 10.30.
Sýnd kl. 6, 8 og 10.
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30. B. i. 16.
1/2
kvikmyndir.is
kvikmyndir.is
Frumsýning
Framhjáhald
getur verið
spennandi
en líka
stórhættulegt.
Magnaður
erótískur
spennutryllir
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30. B.i. 14. Vit 393.
Sýnd kl. 3.45. Ísl tal. Vit nr. 370.
kvikmyndir.is
MBL
DV Kvikmyndir.is Mbl Kvikmyndir.com
Sýnd kl. 7.15 og 10. B. i. 16. Vit 381.
Frumsýning
Sýnd kl. 3, 4, 5, 6, 7, 8, 9, 10 og 11. Vit 398.
vik yndir.is
bl
vik yndir.co
Martin Lawrence er
trítilóður og tímavilltur!
Í einni fyndnustu
mynd ársins
Úr smiðju Jerry Bruckheimer (ConAir,
The Rock) kemur þessi magnaða
sumarsprengja undir leikstjórn Joel
Schumacher. (Batman, Forever, 8 mm)
Freddie Prinze Jr, Sarah Michelle Gellar, Mathew Lillardog,
Rowan Atkinson (MrBean) lenda í spennandi ævintýrum ásamt
sætustu og skemmtilegustu hetju sumarsins Scooby-Doo.
Sýnd kl. 8 og 10. Vit 397.
Sýnd kl. 7.30 og 10. Vit 394.
Sýn
d á
klu
kku
tím
afre
sti
38
ÞREP
ÚTSALA
opið frá 10-18 / laugavegi 49 / sími 561 5813
VIÐ norðanverðan Ólafs-
fjörð er lítil byggð sem
nefnist Kleifar. Þeir sem
ættir rekja þangað hafa
löngum talist til söngelskari
manna og í áratugi hafa þeir
Kleifamenn komið saman til
söngs og hljóðfærasláttar,
sér og öðrum til ánægju. Á
ættarmóti sem haldið var
fyrir tveimur árum, þegar
menn tóku lagið sem oft áð-
ur, kom upp sú hugmynd
hjá afkomendum þeirra
Kleifamanna er byggðu bæ-
inn Syðri-Á, að nú væri
kominn tími til að stofna
formlega hljómsveit. Sveit-
in sú fékk hið grínaktuga
nafn The South River Band,
í höfuðið á ættaróðalinu.
Fastir liðsmenn í sveitinni
eru átta talsins og á öllum
aldri, allt frá 23 til 74 ára.
Koma þeir alls staðar að af
landinu en enginn þeirra hefur at-
vinnu af tónlistarflutningi. Þó á þessi
ólíki hópur það sameiginlegt að vera
allir tengdir Syðri-Á á einn eða ann-
an hátt.
„Það var alltaf mikið sungið á
Syðri-Á,“ segir Ólafur Þórðarson,
fyrrum Ríó tríó-maður, sá kunnasti í
bandinu, er hann veitti Morgun-
blaðinu viðtal við annan liðsmann,
Helga Þór Ingason. „Sá elsti okkar,
Jón Árnason, sem er 74 ára gamall,
býr enn þarna fyrir norðan og hefur
alltaf haft hljóðfæri við hönd er gesti
og ættingja hefur borið að garði. Það
er alltaf sungið þegar þessi fjöl-
skylda kemur saman. Á ættarmótinu
fyrir tveimur árum kom fram sá vilji
manna að hittast oftar en á þeim
þriggja ára fresti sem ættarmótin
fara fram. Þannig varð úr að The So-
uth River Band fæddist.“
Ólafur segir liðskipan þó fremur
frjálslega og að fleiri spilarar eigi til
að bætast við ef þannig ber við.
„Bróðursonur minn spilaði t.d. með
okkur um daginn. Þannig að það eru
allir í stórfjölskyldunni meira og
minna spilandi.“ Aðspurðir hvort
menn þurfi að sanna ætterni sitt til
að vera gjaldgengir meðspilarar
hlæja þeir Ólafur og Helgi Þór við og
játa því svona meira í gríni en alvöru:
„Við skulum segja að það sé þannig
að ef menn eru ekki í ætt-
inni þegar þeir koma við
sögu bandsins þá verða þeir
að leggja ýmislegt á sig til
að sanna verðleika sinn.“
Angurværir
og gamaldags
Aðspurðir hverskonar
tónlist það er sem The So-
uth River Band leikur segir
Ólafur henni hafa verið lýst
sem „angurværri og gamal-
dags“: „Við erum svolítið
fyrir moll og einstaka dúr.
Menn eru mikið fyrir sveifl-
una, sérstaklega Jón ald-
ursforseti. En þetta er alls-
konar og við erum að reyna
við allt, meira að segja rokk
og ról. “
Þessa dagana kemur út
fyrsta plata The South Ri-
ver Band, sem heitir í höf-
uðið á sveitinni. Platan var
tekin upp á skottíma í maímánuði,
menn mættu einfaldlega inn í hljóð-
ver, röðuðu sér í hring með hljóðfæri
sín og töldu svo í,“ skýrir Ólafur.
Fæstir í sveitinni höfðu komið inn í
hljóðver áður en Ólafur segir það
ekki hafa komið mikið að sök.
„Magnús Kjartansson sem tók upp
plötuna með okkur var gáttaður yfir
því hversu menn fóru létt með þetta
og kallaði Jón gjarnan „One-take
Charlie“.“
Helgi Þór segir allar stíltegundur
vera að finna á nýju plötunni. „Á
henni eru 14 lög og öll þeirra eru
frumsamin nema fjögur. Þarna er
vögguvísa, rokk, sveifla, rómönsk
stemning, allt sem hugsast getur,
sönn alþýðutónlist.“
Ólafur segir textana eitt það
skemmtilegasta við lög The South
River Band: „Innanborðs eru hag-
yrtir menn þannig að allir textarnir
eru frumsamdir.“ Hann segir þó lítið
um að ort sé til heimahaganna, ef
undan er skilið lokalag plötunnar
„Við hittumst heil“, sem er íslenskuð
útgáfa lagsins „We’ll Meet Again“.
Söngskemmtanir þær sem The
South River Band hefur efnt til síð-
astliðið ár eru orðnar þrjár talsins og
hafa vakið verðskuldaða athygli en
þar eru engir venjulegir tónleikar á
ferð. „Þetta er sannkölluð alþýðu-
skemmtun,“ segir Helgi Þór.
„Aðalmarkmiðið er að fá gesti til
að taka undir með okkur. Við höfum í
þeim tilgangi bryddað upp á þeirri
nýbreytni að varpa öllum söngtext-
unum upp á sýningartjald með
myndvarpa, bæði okkar eigin og hin-
um gömlu og sígildu.“
Í kvöld mun The South River Band
halda eina af sínum rómuðu söng-
skemmtunum, viðburður sem um leið
er haldinn til að fagna útkomu nýju
plötunnar. Skemmtunin verður í
Vesturportinu, hefst upp úr kl. 22 og
aðgangur er ókeypis. Þar segja þeir
Ólafur og Helgi Þór sama gamla al-
þýðlega braginn verða hafðan á,
söngtextarnir á sýningartjaldinu og
allir hvattir til að taka hressilega
undir með frændunum frá Syðri-Á.
Það var mikið sungið á Syðri-Á
Syðri-Ár Bandið. Í hring frá vinstri: Þorvaldur
Ólafsson, Grétar Ingi Grétarsson, Ólafur Sigurðs-
son, Helgi Þór Ingason, Kormákur Bragason, Jón
Árnason og Ólafur Þórðarson. Á myndina vantar
Gunnar Reyni Þorsteinsson.
The South River Band gefur út fyrstu plötu sína
Árn Jónsson, bóndi og forfaðir
liðsmanna The South River
Band, við sveitastörfin utan við
gömlu Syðri-Á.