Morgunblaðið - 10.07.2002, Page 7
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. JÚLÍ 2002 7
KOMIÐ hefur í ljós að gufuleiðsla, sem í
sumar hefur verið grafin upp í Reykholti í
Borgarfirði, liggur inn á bæjarstæðið í átt
að húsi með hellulögðu gólfi sem fannst í
fyrrasumar.
Gufuleiðslan fannst í fyrra og í forn-
leifauppgreftri í sumar hefur stefna henn-
ar verið rannsökuð. Hún liggur að öllum
líkindum að hvernum Skriflu eins og aðrar
þekktar fornar leiðslur á staðnum.
Guðrún Sveinbjarnardóttir fornleifa-
fræðingur segir að af jarðlögum virðist
mega ráða að þessar minjar séu frá mið-
öldum. Hún telur að leiðslan tengist hellu-
lagða húsinu og líkleg skýring sé að húsið
hafi verið notað til baða. Þessi mannvirki
séu merki um stórhug og nýtingu náttúru-
auðlinda á þeim tíma. Ekkert sambærilegt
hús hefur verið grafið upp á Íslandi svo
hún viti til. Umbúnaður leiðslunnar er
áþekkur öðrum fornum leiðslum sem fund-
ist hafa á svæðinu, en áður hafa fundist
tveir heitavatnsstokkar og einn gufustokk-
ur, sem ekki nær upp á bæjarstæðið.
Leiðslan er vel varðveitt á stórum kafla,
og stefnir frá bæjarstæðinu, að öllum
líkindum, undir fótboltavöllinn í átt að
suðurenda hótelbyggingarinnar, og telur
Guðrún víst að hún hafi eyðilagst á því
svæði vegna framkvæmda. Næst húsinu
með hellulagða gólfinu hefur leiðslunni
verið raskað í seinni tíma framkvæmdum.
Inni í húsinu er djúp, torkennileg hola, eða
ker, sem hún segir ekki hægt að koma
með neinar tilgátur um.
Uppgreftri sumarsins lýkur eftir næstu
vikulok. Auk leiðslunnar hefur hann m.a.
leitt í ljós hvar gamli kirkjugarðurinn lá,
en hann náði sunnar og austar en hann er
núna. Síðustu vikuna verður gerð for-
könnun í kirkjutóft sem er innan núver-
andi kirkjugarðs og þeirri rannsókn verð-
ur haldið áfram næsta sumar. Sú kirkja
var í notkun fram til 1886–87, þegar nú-
verandi timburkirkja var reist. Uppgröftur
á bæjarstæðinu er nú langt kominn en úr-
vinnsla uppgraftargagna undanfarinna ára
mun standa í nokkur ár.
Morgunblaðið/Sigríður Kristinsdóttir
Leiðslan stefnir undir íþróttasvæði hótelsins.
Merki um nýtingu
auðlinda á miðöldum
Reykholti. Morgunblaðið.
LÖGREGLAN fagnar 200 ára af-
mæli sínu á næsta ári og óskaði Sól-
veig Pétursdóttir dómsmálaráðherra
eftir því á ríkisstjórnarfundi í gær að
hálf milljón króna yrði veitt af ráð-
stöfunarfé ríkisstjórnarinnar í kostn-
að vegna afmælisins.
Skipaður var starfshópur í janúar
vegna afmælisins og segir Sólveig að
ýmislegt sé í bígerð. Að sögn hennar
verður sett upp lögreglusýning í Ár-
bæjarsafni yfir sumarið og þá hefur
verið rætt um að gefa út bækling um
sögu lögreglunnar og sérstakan
minnispening sem seldur verður í til-
efni afmælisins.
Sérstakur lögregludagur verður
haldinn hátíðlegur, líklega 15. apríl.
Þann dag árið 1803 var gefinn út kon-
ungsúrskurður þar sem Reykjavík
var gerð að sérstöku lögsagnarum-
dæmi. Sólveig segir að fyrstu fjóra
áratugina hafi danskir lögreglumenn
séð um löggæslu í Reykjavík. „Lög-
reglan hefur staðið sig vel og það er
full ástæða til að minnast starfa henn-
ar,“ segir dómsmálaráðherra.
Fjárveitingar vegna hátíðarhald-
anna koma frá ýmsum stöðum, meðal
annars dómsmálaráðuneytinu, ríkis-
lögreglustjóra og Landssambandi
lögreglumanna.
200 ára af-
mælis lög-
reglunnar
minnst á
næsta ári
ÍSLANDSPÓSTUR hefur sameinað
tvö pósthús í Vesturbænum í
Reykjavík. Pósthúsinu við Hofs-
vallagötu hefur verið lokað og öll
starfsemi sem þar var færð á póst-
húsið við Eiðistorg.
Þrír starfsmenn voru á pósthúsinu
við Hofsvallagötu. Gerður var starfs-
lokasamningur við tvo þeirra en sá
þriðji var færður til á pósthúsið á
Eiðsgranda.
Hörður Jónsson hjá Íslandspósti
segir að breytingarnar hafi verið
gerðar vegna hagræðingar í rekstri.
Talið hafi verið óþarfi að hafa tvö
pósthús í Vesturbænum. Þjónusta
Íslandspósts hafi breyst það mikið
að nú væri í auknum mæli farið að
aka með póstsendingar heim til
fólks.
Hann segir að ýmsar breytingar
hafi verið í gangi hjá fyrirtækinu til
hagræðingar í rekstri. 1. júní hafi
pósthúsið í Mjódd verið fært inn í
verslun Nettó og hefði sú nýbreytni
gefist vel, en hann telur líkur á að
fyrirtækið muni í auknum mæli færa
pósthús inn í verslanir í framtíðinni.
Hjá Íslandspósti starfa um 1.500
manns í 83 útibúum um allt land.
Íslandspóstur
Pósthúsinu
við Hofsvalla-
götu lokað
♦ ♦ ♦
FRÉTTIR