Morgunblaðið - 10.07.2002, Qupperneq 8

Morgunblaðið - 10.07.2002, Qupperneq 8
FRÉTTIR 8 MIÐVIKUDAGUR 10. JÚLÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ 1.490 kr. Múrgips Sími 525 3000 • www.husa.is frá Bayonson Epple 25 kg poki FLUGMÁLASTJÓRN er byrjuð að gefa út JAR-66 skírteini fyrir flug- virkja. Skírteinið veitir íslenskum flugvirkjum réttindi til atvinnu í fagi sínu í öllum aðildarríkjum Flugörygg- issamtaka Evrópu (JAA). Um 300 flugvirkjar eru á Íslandi og hafa 30 þeirra nú þegar fengið útgefið JAR-66 skírteini. Allir sem eru með skírteini sem er samþykkt af Alþjóða- flugmálastofnuninni (ICAO) eða upp- fylla kröfur þar að lútandi, eiga rétt á að fá JAR-66 skírteini. Breyting á reglum varðandi skírteini flugvirkja tók gildi í júní á síðasta ári. Í tilkynn- ingu frá Flugmálastjórn segir, að það hafi hins vegar tekið um ár að sam- ræma reglur um mat á áritunum og fleira í tengslum við útgáfu skírtein- isins. Engu að síður eru Íslendingar í hópi þeirra 10 þjóða sem fyrstar eru til að gefa JAR-66 skírteinin út. Fyrir tíma JAR-66 hafði hver aðildarþjóð JAA sín eigin skírteini og eigin kerfi og mjög misjafnt var hverjir viður- kenndu skírteini frá hverjum. Það gat því reynst flugvirkjum erfitt að fá réttindi sín viðurkennd í öðrum lönd- um en heimalandinu í Evrópu. Aðild- arríki Flugöryggissamtaka Evrópu eru nú öll eitt atvinnusvæði hvað varðar flugvirkja. Þeir sem hófu nám í flugvirkjun í Bandaríkjunum eftir 1. júní 2001 fá réttindi sín ekki viður- kennd í Evrópu þar sem þess er kraf- ist að menn hafi sótt JAR-147 skóla sem ekki eru til staðar í Bandaríkj- unum. Þeir sem hófu nám fyrir þann tíma geta hins vegar fengið nám sitt metið. Töluverð eftirspurn er eftir mönnum með JAR-66 skírteini og því hefur atvinnutækifærum íslenskra flugvirkja fjölgað með útgáfu Flug- málastjórnar á þessum skírteinum. Atvinnutækifærum flugvirkja fjölgar Leifshátíð í Haukadal í þriðja sinn Hátíð heima hjá Leifi heppna LEIFSHÁTÍÐ verð-ur haldin við Ei-ríksstaði í Hauka- dal í Dölum nú um helgina. Morgunblaðið ræddi við Rögnvald Guðmundsson, einn skipuleggjenda Leifshátíðar. – Verður von á fjöl- breyttri skemmtun á hátíð- inni? „Já, sannarlega. Við leggjum mikla áherslu á að dagskrá hátíðarinnar sé fjölbreytt og spennandi fyrir alla aldurshópa. Við viljum sýna handverk og víkingastörf af öllum toga og hafa heimilislegan brag á hátíðinni.“ – Hver er saga Leifs- hátíðar? „Hugmyndin vaknaði í framhaldi af fornleifauppgreftri á vegum Þjóðminjasafnsins í landi Eiríksstaða árin 1997–99 sem Guðmundur Ólafsson stýrði. Fundust þar leifar húss frá lokum 10. aldar sem ber vel saman við frásögn Eiríks sögu rauða. Ákveð- ið var að byggja svonefnt tilgátu- hús skammt frá uppgreftrinum þar sem reynt er að endurskapa forna bæinn á Eiríksstöðum. Hús- ið var vígt sumarið 2000 og þá var einnig haldin fyrsta Leifshátíðin enda 1000 ár liðin frá siglingu Leifs heppna til Vínlands. Eiríks- staðanefnd Dalabyggðar stendur fyrir hátíðinni og hefur Alma Jenný Guðmundsdóttir ferða- málafulltrúi unnið mikið að und- irbúningi hennar. Einnig fengum við styrk frá samgönguráðuneyti og norræna menningarsjóðnum.“ – Hátíðin tengist ekki eingöngu feðgunum Eiríki og Leifi? „Nei, við höfum tekið þann pól í hæðina að minnast sögupersóna úr nágrenninu einnig, til dæmis persónum Laxdælu og Njálu sem hér bjuggu. Hátíðin er þess vegna nokkurs konar söguhátíð. Við leik- um okkur líka með 19. öldina og búskaparhætti síðari alda.“ – Hefur svæðið vakið athygli frá því að uppgröftur hófst? „Já, það hefur vakið mikla at- hygli. Áður en uppgröftur hófst lögðu fáir ferðamenn leið sína inn Haukadalinn, og flestum var það gleymt að á Eiríksstöðum höfðu þeir landafundafeðgar búið. Síðan tilgátuhúsið var opnað hafa um 25 þúsund manns heimsótt það. Ánægja ríkir því með þau viðbrögð sem húsið hefur hlotið, en áformað er að auka enn við lífið í bænum.“ – Á hvern hátt ætlið þið að auka lífið í bænum? „Hugmyndin er að láta hand- verksfólk og heimilisfólk dvelja í bænum við störf yfir sumarið svo að fólk komi í raunverulega heim- sókn á bæinn. Nú eru tveir starfs- menn í bænum sem gefa fólki með- al annars að smakka á Þjóðhildarbrauði og Leifssúpu og veita fræðslu.“ – Er ennþá verið að grafa á Ei- ríksstöðum? „Já, Guðmundur Ólafsson verður að grafa á hátíðarsvæðinu um helgina. Það fannst lítið jarðhýsi rétt sunn- an við bæinn nú um daginn sem talið er vera forn vef- stofa kvenna. Gestir hátíðarinnar geta séð og fræðst um uppgröftinn á vettvangi.“ – Hvernig verður dagskrá há- tíðarinnar háttað? „Svæðið verður opnað á föstu- daginn klukkan fjögur, og þá mun handverksfólk þegar vera að störf- um. Formleg dagskrá hefst klukk- an sjö á föstudagskvöld og henni lýkur um tvöleytið á sunnudag. Boðið verður upp á sýnikennslu í járnsmíði, útskurð í tré og bein, vefnað, tónlist og meðferð vopna svo eitthvað sé nefnt. Einnig munu Arthúr Björgvin Bollason og Halla Steinólfsdóttir rökræða um kappa og kvenskörunga. Einar Kárason flytur hátíðarávarp á laugardag- inn og bæði kvöldin verður slegið upp dansleik.“ – Þið leggið áherslu á að gestir fái að taka þátt og prófa. „Jú, við leggjum mikla áherslu á það. Sem dæmi má nefna að börn- in fá að baka sitt eigið brauð yfir langeldi, og þeir fullorðnu geta lært grunnatriði í handíðum sem áður voru nefndar. Þá verða haldnir íþróttaleikar sem allir geta tekið þátt í. Við teljum það vera mun eftirminnilegri reynslu fyrir alla að fá að vera með. Að sama skapi er þátttaka gesta í samræmi við framtíðarstefnu Eiríksstaða um að bjóða skólakrökkum í heim- sókn, þess vegna í nokkra daga, þar sem þau geti kynnst af eigin raun þjóðveldislífinu og fræðst um eigið land og sögu þess. Þetta verða nokkurs konar víkingabúð- ir.“ – Hafið þið einhverjar erlendar fyrirmyndir að starfinu? „Já, við höfum fengið góða gesti frá Noregi, heila fjölskyldu frá Karmøy nálægt Haugasundi, sem sér um að reka sambærilegt víkingabýli þar. Þau eru þegar komin til landsins og hafa miðlað heima- mönnum af reynslu sinni, bæði með hátíðar- höldin, virka starfsemi í bænum og heimsóknir skólabarna. Auk þeirra verða 25 erlendir handverksvíkingar á Leifshátíð, ásamt Íslendingum. Eiríksstaðir geyma þannig varan- lega sögu þjóðveldisins og geta hæglega orðið miðstöð á því sviði hér á landi.“ Nánari upplýsingar um hátíðina má finna á vefnum www.dalir.is eða í Upplýsingamið- stöðinni í Búðardal, í síma 434- 1410. Rögnvaldur Guðmundsson  Rögnvaldur Guðmundsson fæddist í Reykjavík árið 1958 en ólst upp á Ásum í Saurbæjar- hreppi í Dalasýslu. Hann lauk stúdentsprófi frá MS 1978 og nam íslensku, sagnfræði og uppeldis- og kennslufræði við HÍ 1979–84, ásamt námi í ferðamálafræði í Lillehammer í Noregi sem hann lauk 1992. Hann starfaði sem ferðamálafulltrúi í Hafnarfirði ár- ið 1992–97. Rögnvaldur stofnaði fyrirtækið Rannsóknir og ráðgjöf ferðaþjónustunnar árið 1996. Hann er kvæntur Helgu Björgu Stefánsdóttur meinatækni og eiga þau fimm börn. Gestum er boðið að taka þátt í störfum Menn eru komnir tímanlega í skotgrafirnar fyrir X-ESB 2003. BLÓMIN sem prýða hinn bráð- fallega kaktus sem á myndinni sést, en hann nefnist Næturdrottn- ing, eru skammlíft augnakonfekt. Næturdrottningin sem blómstrar um 40 blómum á sumri ber nafn sitt með rentu, því blómin koma seint að kvöldi og standa aðeins eina nótt. Nýverið skartaði þessi Næturdrottning, sem er í eigu Maríu Gísladóttur í Reykjavík, 11 blómum og þá tók Guðrún María Sveinsdóttir þessa fallegu mynd. Næturdrottn- ing í fullum skrúða

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.