Morgunblaðið - 10.07.2002, Side 19
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. JÚLÍ 2002 19
Verð frá
1.990.000 kr
.
BULENT Ecevit, forsætisráðherra
Tyrklands, hafnaði í gær kröfum um
að hann segði af sér vegna heilsu-
brests eða boðaði til þingkosninga
fyrir tímann en kjörtímabilið rennur
ekki út fyrr en 2004. Þrír flokkar eiga
aðild að stjórninni og hafa hinir tveir
lýst vilja til að kosningum verði flýtt.
Sex ráðherrar hafa sagt af sér und-
anfarna daga og ríkir nú óvissa og
ringulreið í tyrkneskum stjórnmál-
um, verðbréf féllu á mörkuðum í land-
inu í gær og gengi tyrknesku lírunnar
hrapaði er markaðir voru opnaðir.
Að sögn fréttavefs BBC hefur Ece-
vit þegar tilnefnt menn til að gegna
embættum ráðherranna sem sögðu af
sér. Upplausnin hófst á mánudag er
hægri hönd Ecevits og aðstoðarfor-
sætisráðherra, Husamettin Ozkan,
sagði af sér embætti og yfirgaf um
leið Lýðræðislega vinstriflokkinn
(DSP), flokk Ecevits, vegna deilna við
forsætisráðherrann um tímasetningu
kosninga og framtíð samsteypu-
stjórnarinnar.
Ecevit er 77 ára gamall og hefur
verið einn af áhrifamestu stjórnmála-
mönnum Tyrklands í meira en ald-
arfjórðung. Hann hefur undanfarna
tvo mánuði verið svo heilsutæpur að
hann hefur lítið getað komið fram op-
inberlega og á erfitt um mál. Ecevit
stofnaði DSP árið 1985 og hefur
stjórnað flokknum með harðri hendi
ásamt eiginkonu sinni, Rahsan.
Ozkan er sagður hafa gegnt lykil-
hlutverki í stjórninni og oft tekist að
miðla málum en harðar innbyrðis
deilur hafa einkennt feril hennar.
Fleiri ráðherrar og háttsettir flokks-
menn fylgdu í kjölfar hans og munu
þeir nú vera orðnir um 30, að sögn
tyrknesku fréttastofunnar Anatolia.
DSP er því ekki lengur stærsti flokk-
urinn á þingi, flokkur þjóðernissnna,
MHP, er nú öflugastur en hann á að-
ild að stjórn Ecevits. Leiðtogi MHP,
Devlet Bacheli, boðaði óvænt til
blaðamannafundar á sunnudag og
sagðist þar mæla með því að kosið
yrði í nóvember en nokkrum dögum
áður höfðu stjórnarflokkarnir gefið út
sameiginlega yfirlýsingu um að sam-
starfinu yrði haldið áfram til loka
kjörtímabilsins. Á mánudag sagði
Mesut Yilmaz, leiðtogi þriðja stjórn-
arflokksins, ANAP, að stjórnmála-
kreppa ríkti í Tyrklandi og rétt væri
að kalla saman sérstakan þingfund í
september til að ákveða hvort flýta
bæri þingkosningum.
Óttast þrátefli
Óvissan núna er talin geta valdið ill-
leysanlegu þrátefli og geta grafið
undan umdeildum efnahagsumbótum
sem njóta stuðnings Alþjóðagjaldeyr-
issjóðsins, IMF. Einnig gæti hún orð-
ið til að tefja fyrir því að Tyrkir fái
Evrópusambandið, ESB, til að hefja
viðræður um aðild landsins að sam-
bandinu. Ráðamenn ESB setja meðal
annars þau skilyrði að tyrknesk
stjórnvöld afnemi dauðarefsingu,
leyfi þjóðarbroti Kúrda að nota eigin
tungu og almenn mannréttindi verði
tryggð.
Flokkur þarf að fá minnst 10% at-
kvæða til að fá þingmann kjörinn í
Tyrklandi. Dagblöð í Tyrklandi sögðu
að stjórnmálakreppan væri upphafið
að hruni DSP. „Ecevit-hjónin og DSP
ganga nú á vit örlaga sinna og munu
ekki komast yfir þröskuldinn ef flokk-
urinn hagar sér eins og hann sé póli-
tískar fornleifar,“ sagði Milliyet sem
er frjálslynt. Nokkur blöð boðuðu í
gær að stofnaður yrði nýr flokkur
undir forystu Ozkans og sögðu að
Ismael Cem utanríkisráðherra, sem
er liðsmaður DSP og Kemal Dervis
fjármálaráðherra, sem er utan flokka,
myndu ganga til liðs við Ozkan.
Flokki múslíma spáð sigri
Skoðanakannanir sýna slæma
stöðu allra þriggja stjórnarflokkanna,
að sögn breska vikuritsins The Eco-
nomist. Ef marka má þær mun flokk-
ur íslamskra bókstafstrúarmanna,
Réttlætis- og þróunarflokkurinn,
vinna mikinn sigur í næstu kosning-
um. Miklar efnahagsþrengingar und-
anfarna mánuði hafa grafið undan
trausti almennings á stjórnarflokkun-
um.
Herinn hefur oft skipt sér af stjórn-
málum í Tyrklandi og berst hatramm-
lega gegn því að íslam verði ríkistrú
en Kemal Atatürk, sem lagði grunn
að lýðveldi í landinu á þriðja áratug
síðustu aldar, rauf tengsl ríkisvalds-
ins við trúna.
Stefnu Ecevit líkt við
„pólitískar fornleifar“
Tyrknesk dagblöð spá því að nokkrir ósáttir liðsmenn
forsætisráðherrans muni stofna nýjan flokk
Ankara. AP, AFP.