Morgunblaðið - 10.07.2002, Blaðsíða 20
Tsjetsjenar lýsa grimmd
rússneskra hermanna
NÆR 150.000 tsjetsj-
enskir flóttamenn eru
enn í Ingúsetíu, fátæku
héraði í Suður-Rúss-
landi, og þótt kjör
þeirra séu mjög bág
geta þeir ekki hugsað
sér að verða við ósk
rússneskra stjórnvalda
og snúa aftur til
Tsjetsjníu. Ástæðan er
sú að ástandið í Tsjetsj-
níu er enn verra og
ekkert lát virðist vera á
grimmdarverkum rúss-
neskra hermanna.
Flóttakonan Kuslum
Savnykaevna býr með
fimm börnum sínum í
gömlu bílaverkstæði í
Ingúsetíu og það hvarflar ekki að
henni að snúa aftur til Tsjetsjníu.
Hafi hún einhvern tíma haft efa-
semdir um að fjölskylda hennar ætti
að vera áfram í Ingúsetíu hurfu þær
eins og dögg fyrir sólu þegar hún
heimsótti foreldra sína í Tsjetsjníu
um miðjan maí og varð vitni að
grimmd rússneskra hermanna.
Foreldrar hennar búa í Mesker
Yurt, 2.000 manna bæ um ellefu km
austan við Grosní, höfuðstað Tsjetsj-
níu, þar sem uppreisnarmenn úr röð-
um aðskilnaðarsinna hafa barist
gegn tsjetsjnesku stjórninni sem
nýtur stuðnings rúss-
neskra ráðamanna.
Savnykaevna hafði
ekki verið lengi í Mesk-
er Yurt þegar rúss-
neskir hermenn lokuðu
bænum vegna „hreins-
unaraðgerða“ sem
stóðu í þrjár vikur.
Bæjarbúar pyntaðir
og myrtir
Savnykaevna kvaðst
hafa séð nokkur af
fórnarlömbum aðgerð-
anna eftir að ættingjar
þeirra báru þau af akri
sem hermennirnir
höfðu lagt undir sig við
jaðar bæjarins. Hún
heimsótti tvo bræður, sem höfðu
verið pyntaðir á akrinum, og sá að
hermennirnir höfðu plokkað auga úr
öðrum þeirra og skorið fjóra fingur
af hönd hins.
Hún kvaðst hafa séð hermann
berja berar iljar karlmanns með
járnröri og komist að því seinna þeg-
ar hún heimsótti fjölskyldu hans að
hermenn hefðu skorið bak hans með
brotnu gleri, nuddað salti í sárin,
hellt alkóhóli á bakið og kveikt í hon-
um. Fjölskylda þriggja bræðra, sem
voru handteknir, fékk poka frá her-
liðinu og „í þeim voru aðeins bein
bræðranna“, að sögn konunnar.
Bræðrum og systkinasonum Sav-
nykaevna var hins vegar þyrmt
vegna þess að fjölskylda hennar
greiddi hermönnunum andvirði
35.000 króna í mútur fyrir að gera
þeim ekki mein.
„Ég hefði aldrei getað ímyndað
mér slíkar pyntingar, slíka grimmd,“
sagði Savnykaevna. „Þarna voru
margir menn skildir eftir nær dauða
en lífi.“
Segjast aðeins hafa vegið
vopnaða uppreisnarmenn
Hermennirnir fóru út úr bænum
10. júní og ekki hefur enn verið upp-
lýst að fullu hvað gerðist í Mesker
Yurt. „Öll lög, sem hægt var að
brjóta, voru brotin,“ sagði þó Aslan-
bek Aslakhanov, fulltrúi Tsjetsjníu í
dúmunni, neðri deild rússneska
þingsins, en hann flutti átta fórnar-
lambanna á sjúkrahús.
Helsta mannréttindahreyfing
Rússlands, Memorial, er að rann-
saka aðgerðir hersins í Mesker Yurt
og segir að a.m.k. átta íbúar bæj-
arins hafi verið drepnir og tuttugu
annarra sé saknað. Íbúar bæjarins
sögðu að hermennirnir hefðu myrt
a.m.k. tuttugu manns.
Yfirmaður rússnesku hersveit-
anna í Tsjetsjníu neitaði því að her-
mennirnir hefðu framið grimmdar-
verk í Mesker Yurt og sagði þá hafa
fundið stórt vopnabúr og vísbend-
ingar um að leyniskyttur úr röðum
uppreisnarmanna hefðu notað skóla
bæjarins til að skjóta á hermenn.
„Íbúar Mesker Yurt styðja glæpa-
mennina. Í bænum voru að minnsta
kosti 50 skæruliðar.“
Rússneskur ofursti í Grosní sagði
að hermennirnir hefðu aðeins vegið
fjórtán vopnaða uppreisnarmenn
sem hefðu veitt mótspyrnu.
Ekkert lát á
blóðsúthellingunum
Rannsóknarmenn mannréttinda-
hreyfinga segja hins vegar að
„hreinsunin“ í Mesker Yurt sé nýj-
asta dæmið um dráp, pyntingar,
nauðganir og kúgun rússneska hers-
ins í Tsjetsjníu frá október 1999 þeg-
ar hann hóf aðgerðirnar til að kæfa
uppreisn aðskilnaðarsinna.
Vladímír Pútín Rússlandsforseti
segir að átökunum sé lokið, lífið í
Tsjetsjníu sé að færast í eðlilegt horf
og flóttafólkinu í Ingúsetíu sé nú
óhætt að snúa heim til að endurreisa
bæi sína. Ekkert lát virðist þó vera á
blóðsúthellingunum í Tsjetsjníu, ef
marka má frásagnir Tsjetsjena, upp-
lýsingar sem mannréttindahreyfing-
ar hafa safnað og tölfræðilegar upp-
lýsingar frá hernum. Rannsókn-
armenn Memorial segja að
rússnesku hermennirnir drepi fleiri
óbreytta borgara í Tsjetsjníu en áð-
ur og nokkrir þeirra rekja þessa þró-
un til þess að vestrænar þjóðir hafa
dregið úr gagnrýni sinni á aðgerðir
rússneska hersins eftir hryðjuverkin
11. september.
Memorial segist hafa sannanir
fyrir því rússneskir hermenn hafi
orðið 946 saklausum Tsjetsjenum að
bana á aðeins þremur af þéttbýlustu
svæðum Tsjetsjníu á fjórtán mánaða
tímabili sem lauk í nóvember. 1.200–
2.000 annarra Tsjetsjena sé saknað.
Uppreisnarmennirnir drepi enn einn
til tvo hermenn að meðaltali á degi
hverjum.
Flóttafólkið
vill vera um kyrrt
32.000 Tsjetsjenar hafast við í
tjaldborgum í Ingúsetíu og 115.000
flóttamenn búa í ýmsum byggingum,
allt frá gömlum fjósum til verk-
smiðja sem hafa lagt upp laupana.
Þar sem flóttamennirnir fá gas, raf-
magn, vatn og matarskammta frá al-
þjóðlegum hjálparstofnunum og
þurfa ekki að hafa áhyggjur af árás-
um hermanna eru þeir miklu betur
settir en þeir sem búa í Tsjetsjníu.
Míkhaíl Ejiev, aðstoðarfram-
kvæmdastjóri mannréttindahreyf-
ingarinnar Vinafélag Rússlands og
Tsjetsjníu, segir að þótt þjóðir heims
veiti Tsjetsjníu minni athygli en áður
geti þær ekki leitt vandamál héraðs-
ins alveg hjá sér svo fremi sem
flóttamennirnir verði áfram í
Ingúsetíu. „Snúi þeir heim geta rúss-
nesk yfirvöld sagt að vandinn hafi
verið leystur,“ sagði hann. „En
flóttafólkið vill vera um kyrrt, vegna
þess að það vill ekki deyja.“
Sagðir beita nauðgunum, pyntingum og morðum á óbreyttum borgurum
Kuslum Savnyka-
evna, flóttakona í
Ingúsetíu.
Nazran. The Washington Post.
’ Ég hefði aldreigetað ímyndað mér
slíkar pyntingar ‘
ERLENT
20 MIÐVIKUDAGUR 10. JÚLÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
LÖGREGLUMAÐUR í Inglewood,
einu úthverfa Los Angeles-borgar í
Bandaríkjunum, hefur verið leystur
tímabundið frá störfum eftir að
fram kom myndband sem sýnir
hann slá ungan pilt, sem hafði verið
handjárnaður, í andlitið og lemja
höfði hans við farangursgeymslu
bíls síðastliðinn laugardag. Fórnar-
lambið, Donovan Jackson, sem er
sextán ára gamall blökkumaður, er
meiddur á auga og marinn á hálsi
eftir átökin en lögreglumaðurinn,
Jeremy Morse, er meiddur á hné,
olnboga og eyra.
Lögmaður Jacksons, Joe Hopk-
ins, lýsir atburðarásinni á þann hátt
að Jackson hafi orðið samferða föð-
ur sínum, Coby Chavis, á bensín-
stöð og meðan Chavis keypti elds-
neyti hafi Jackson farið inn í
verslunina að kaupa kartöfluflögur.
Þegar hann kom út hafi hann séð
tvo lögreglumenn á tali við föður
sinn um útrunnar númeraplötur á
bíl hans. Jackson hafi deilt við lög-
reglumennina þangað til fjórir lög-
reglumenn til viðbótar hafi mætt á
staðinn og hafi þeir ráðist sam-
stundis að drengnum.
Faðir Jacksons segir að eftir að
lögreglumennirnir hafi handjárnað
drenginn hafi þeir dregið hann til
og frá á silfurhálsfesti sem hann var
með um hálsinn, lamið höfði hans
við bílinn og kýlt hann í andlitið. Á
fréttamannafundi á mánudag sagði
Jackson að hann hefði verið
meðvitundarlaus á tímabili meðan
barsmíðarnar stóðu yfir. „Þeir voru
að kyrkja mig,“ sagði hann lágum
rómi. Lögmaður hans segir að Jack-
son sé seinþroska, hann hafi þurft
að fá sérkennslu í skólanum en hafi
aldrei fyrr komist undir manna
hendur.
Nýtt Rodney King-mál?
Plötusnúður nokkur, Mitchell
Crooks, sem staddur var á hóteli
nærri bensínstöðinni þar sem at-
burðurinn varð tók upp myndband-
ið sem áður hefur verið nefnt. Hann
heyrði öskur um að einhver sætti
barsmíðum fyrir utan bensínstöðina
og hljóp hann því út með mynd-
bandstökuvél sína. Hann segist ekki
hafa verið hissa á því sem hann sá.
„Ég hélt að svona væri þetta bara í
Los Angeles,“ sagði Crooks.
Talsmaður lögreglunnar í Ingle-
wood segir menn þar á bæ taka
málið mjög alvarlega og að Morse
hafi verið vikið tímabundið úr starfi
meðan rannsókn málsins stendur
yfir. Lögreglumennirnir sem voru á
staðnum segja að Jackson hafi verið
til mikilla vandræða og hafi ráðist
upphaflega að þeim. Benda þeir á
að á myndbandinu sést að Morse er
með sár á andliti. Jackson var hand-
tekinn fyrir að ráðast á lögreglu-
mann en honum var síðar sleppt.
Vitni að atburðinum, Andres
Mejia, segist hafa séð lögreglumann
krjúpa á baki Jacksons og annan
lögreglumann kýla drenginn með
krepptum hnefa. „Við skildum ekki
hvað þeim gekk til með þessu,“
sagði Mejia. Hann bætti því við að
hann hefði ekki tekið eftir því að
Jackson veitti nokkra mótspyrnu.
Sumir talsmenn samtaka blökku-
manna líkja málinu við það sem
kennt hefur verið við Rodney King
en árið 1991 sætti blökkumaðurinn
King harkalegum barsmíðum af
hálfu fimm hvítra lögreglumanna í
Los Angeles. Málið vakti mikla at-
hygli og sögðu margir leiðtogar
blökkumanna í Bandaríkjunum það
bera vitni um harkalegar aðferðir
og kynþáttahatur lögreglumanna í
borginni. Talsmaður blökkumanna-
samtakanna Íslamskrar vonar, Naj-
ee Ali, segir málið „ekki snúast um
kynþætti heldur lögreglumenningu
borgarinnar“.
Óréttlætanleg valdbeiting
Þeir lögreglumenn sem rætt hafa
við fjölmiðla segja að oft sé hægt að
deila um hvað telja má réttlætan-
lega beitingu valds af hálfu lög-
reglumanna. Hins vegar sé það
nánast heilög regla að þegar búið er
að handjárna hinn grunaða megi
ekki lengur beita hann ofbeldi.
Greg Berg, fyrrverandi deildar-
stjóri hjá lögreglunni í Los Angeles,
sagði að ekki væri til sá lögreglu-
maður í Bandaríkjunum sem gæti
verið sammála þeim aðferðum sem
lögreglumaðurinn sést beita á
myndbandinu. „Sumt verða lög-
reglumenn að læra,“ sagði Berg.
„Suma hluti gerir maður hreinlega
ekki.“
Varalögreglustjóri Los Angeles,
David C. Coan, segir að valdi megi
aðeins beita þegar það getur hugs-
anlega skilað einhverjum árangri.
„Þú notar þær aðferðir sem nauð-
synlegar eru til að fá hinn grunaða
til að hætta að veita mótspyrnu og
þegar því takmarki hefur verið náð
hættir þú að beita hann valdi.“
Sérfræðingur í aðferðum lögreglu
og fyrrverandi lögreglustjóri, D.P.
Van Blaricom, segir að jafnvel þótt
hinn grunaði hafi lamið lögreglu-
mann hafi lögreglumaðurinn engan
rétt til þess að beita hann valdi eftir
að hann er kominn í járn og hættur
að veita mótspyrnu. „Ég hef verið
laminn, bitinn og menn hafa hrækt
á mig,“ segir hann. „Það er einfald-
lega hluti af starfinu. Þegar mað-
urinn er kominn í þína vörslu er það
ekki hluti af starfi þínu að refsa
honum.“
Myndband sýnir ofbeldi af hálfu lögreglumanna í Los Angeles
Sextán ára
blökkumaður
sætti bar-
smíðum
AP
Á myndinni, sem tekin er úr myndbandi, sjást lögreglumenn í Los Angeles halda hinum sextán ára gamla
Donovan Jackson upp við lögreglubíl. Einum lögreglumanninum hefur nú verið vísað tímabundið frá störfum.
Los Angeles. AP, Los Angeles Times.